Morgunblaðið - 10.06.1994, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Stefnt að
slysalausri
þjóðhátíð
LÖGREGLUMENN á Norður-
landi verða mikið á ferðinni
næstu daga en í dag, föstudag-
inn 10. júní, hefst 10 daga sér-
stakt átak þeirra sem miðar að
því að haida ökuhraða innan
lejrfilegra marka.
Ólafur Ásgeirsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn á Akureyri,
sagði að næstu daga yrðu lög-
reglumenn mikið á ferðinni, á
svæðinu allt frá Holtavörðuheiði
tii Þórshafnar. „Við ætlum að
vera sýnilegir úti á þjóðvegun-
um, stöðva bíla, ræða við öku-
menn og kanna ástand þeirra
og bifreiðanna. Þetta er allt gert
í góðu en markmiðið er að ná
hraðakstri niður,“ sagði Ólafur
en þeir sem aka á óskoðuðum
bílum mega búast við að númer
verið tekin af þeim.
„Slysalaus þjóðhátíð er besta
þjóðhátíðargjöfin sem við getum
gefið hvort öðru og við munum
gera það sem í okkar valdi stend-
ur til að svo megi verða og í því
skyni reyna að draga úr hrað-
akstri sem er undirrót alltof
margra slysa.“
Dönsk lúðra-
sveit heldur
tónleika
LÚÐRASVEITIN „Musikkorps
Fyn“ heldur tónleika í Akur-
eyrarkirkju á morgun, laugar-
daginn 11. júní, kl. 17.00.
Hljómsveitin mun einnig leika á
Ráðhústorgi á laugardagsmorg-
un milli kl. 11 og 12.
Lúðrasveitin „Musikkorps
Fyn“ tengist foringjaskóla
danska hersins á Fjóni og hefur
starfað í núverandi mynd frá
árinu 1953. Hljóðfæraleikarar
eru 18 auk stjómandans Eriks
Hammerbaks og hafa þeir allir
sótt nám við tónlistarskóla og
nokkrir starfa einnig sem stjórn-
endur eða kennarar við áhuga-
mannalúðrasveitir á Fjóni.
Lagavalið er fjölbreytt, vinsæl
sígild tónlist, kirkjuleg tónlist frá
17. öld, marsar og ýmis nútíma-
verk.
Lúðrasveit Akureyrar annast
móttöku dönsku lúðrasveitarinn-
ar og ætla lúðrasveitarmenn að
bjóða hina dönsku félaga sína
velkomna með því að leika nokk-
ur lög á flugvellinum þegar þeir
lenda.
Fé úr jöfnunarsjóði til niðurgreiðslna í skipaiðnaði er uppurið
Ovíst hvar Kald-
bakur fer í slipp
STJÓRN Útgerðarfélags Akur-
eyringa tekur í dag, föstudag,
ákvörðun um hvar umfangsmiklar
endurbætur á ísfisktogaranum Kald-
bak EA fara fram. Tilboð í endur-
bætumar voru opnuð í mars síðast-
liðnum og voru þau lægstu frá pólsk-
um skipasmíðastöðvum en fyrirheit
um 13% niðurgreiðslu úr jöfnunar-
sjóði til íslenskra skipasmíðastöðva
varð m.a. til þess að dregið var að
taka ákvörðun um hvaða tilboði
ætti að taka. Fé það sem veita átti
íslenskum skipasmíðastöðvum úr
jöfnunarsjóðnum er nú uppurið.
Lægsta tilboðið í endurbæturnar
á Kaldbak var frá skipasmíðastöð-
inni Nauta í Póllandi, 20 milljónir
króna og þá bauð skipasmíðastöð í
Gryfia 24 milljónir króna í verkið.
Tilboð frá skipasmíðastöð á Spáni
var upp á rúmar 40 milljónir króna
og tvö íslensk boð bárust, frá Stál-
smiðjunni upp á 44 milljónir og
Slippstöðinni-Odda upp á rúmar 44
milljónir króna.
Guðmundur Thulinus fram-
kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar-
Odda sagði að það fé sem ríkis-
stjórnin ákvað að veita til niður-
greiðslna í skipasmíðaiðnaði í upp-
hafi árs væri uppurið og til umræðu
hefði verið hvort veita ætti meira
fé til jöfnunarsjóðsins. „Við getum
ekki lofað Útgerðarfélaginu neinni
niðurgreiðslu," sagði Guðmundur.
„Við höfum verið að bíða eftir því
hvort v’eitt yrði meira fé í þetta, en'
það myndi hjálpa okkur við að fá
fleiri verkefni."
Hann sagði að óþægilegt væri
að vita ekki hvort fyrirtækið hefði
aðgang að þessari aðstoð eða ekki
en hann vonaði að niðurstaða kæmi
í málið innan skammst. „Við hefð-
um þá meiri möguleika að halda
innanlands verkefnum sem annars
færu til útlanda."
Vantar stefnu
Guðmundur taldi nauðsynlegt að
marka stefnu varaðandi skipa-
smíðaiðnaðinn bæði fyrir nútíðina
og framtíðina og að hans dómi hefð)
slík stefnumörkun átt að líta dags-
ins ljós fyrir löngu eða 10-12 árum
síðan þegar enn gekk nokkuð vel
en fyrirsjáanlegt var að iðnaðurinn
þyrfti að aðlaga sig breyttum að-
'stæðum. „Við byggðum góð skip á
íslandi þó margt hefði betur mátj,
fara, mikil þekking var til staðar
og það hefði verið hægt að haldj
því áfram á jákvæðan hátt til góðá
fyrir þjóðarbúið í heild. Við erurö
að leitast við að auka atvinnumöguj
leika og störf og á næstu árurt)
vantar mörg ný störf. Að mínu
mati væri æskilegt að í skipaiðnaði
sem er undirstöðuþjónustugrein
fyrir okkar aðalatvinnuveg og við
byggjum okkar lífsviðurværi á
byggðust upp fleiri störf, en þeim
hefur því miður fækkað mjög á
undanförnum árum í stað þess að
ijölga,“ sagði Guðmundur.
Sól og blíða
FJÖLMARGIR voru á ferðinni í miðbæ Akur-
eyrar í gærdag enda sáu bæjarbúar þá til
sólar í blíðskaparveðri eftir að norðanáttin
hafði verið ríkjandi með rigningu í of langan
tíma. Eitt af fyrstu merkjum þess að sumarið
sé komið er ávaxtavagninn sem settur er upp
í göngugötunni en það var einmitt gert í vik-
unni og var hann Atli Þór ekki í nokkrum
vafa um að melónurnar eru bestu ávextirnir
en aftur á móti er Margrét Nanna meira fyr-
ir banana eins og sjá má á myndunum. Vask-
ur flokkur manna sem vinnur við endurbætur
á húsinu númer 90 við Hafnarstræti tók kaffi-
brúsana með sér út í góða veðrið og gerðu
þessum þjóðardrykk bestu skil.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Leikskóli
við Kiðagil
Hyrna
tekur við
verkinu
BÆJARLÖGMAÐUR kynnti á
fundi bæjarráðs Akureyrar í gær
óskir frá fyrrverandi starfsmönn-
um A. Finnssonar hf. um að taka
við verksamningum fyrirtækisins
við Akureyrarbæ. Byggingafyrir-
tækið A. Finnsson hf. var innsigl-
að á dögunum og er hætt starf-
semi, en starfsmenn þess hafá
stofnað Byggingafélagið Hyrnú
hf. A. Finnsson var m.a. að byggja
leikskóla við Kiðagil, íbúðir í Gilja;-
hverfi og var með verkefni í Verk-
menntaskólanum á Akureyri þeg-
ar það hætti starfsemi.
Tryggingafélag A. Finnssonar
hf. hefur gert þær kröfur að tjón
bæjarins verði íakmarkað svo sem
kostur er og var því á fundi bæjar-
ráðs samþykkt að fela bæjarstjóra
að taka upp viðræður við Bygg-
ingafélagið Hyrnu um framkvæmd
verksins við leikskólabygginguna.
Fjölnir hf. og SS-Byggir hf. sem
gerðu tilboð í byggingu leikskólans
við Kiðagil lýstu því yfir að þau
væru reiðubúin að standa við fyrri
tilboð sín.
fluqfélacj
noröurlands lif
SÍM4R 96-12100 og 92-11353
Gamli spítalinn við Aðalstræti næstelsta hús bæjarins
Morgunblaðið/Rúnar Þór
GAMLI spítalinn, eða Gudmanns Minde, við Aðalstræti 14.
Safn sett
upp í
Gudmanns
Minde
HÚSFRIÐUNARSJÓÐUR Akur-
eyrarbæjar í samstarfi við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri,
Læknafélag Akureyrar, Félag ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga, norð-
austurdeild, og Minjasafnið á Akur-
eyri hefur keypt húsið við Aðal-
stræti 14, Gamla spítalann eða
Gudmanns Minde eins og það var
kallað í eina tíð. Eiður Baldvinsson
átti húsið og hefur búið í því lengi
en er nú fluttur á sambýli aldraðra.
Húsið er byggt árið 1836 sem
íbúðarhús, en árið 1872 gaf Friðrik
Gudmann kaupmaður Akureyrarbæ
húsið til þess að þar yrði spítali eða
heimili þurfamanna. Spítali, sá
fyrsti á Akureyri, var rekin í húsinu
til ársins 1899 en þá hafði verið
byggt nýtt sjúkrahús í bænum. Frá
þeim tíma hefur húsið verið í eigu
einstaklinga og notað til íbúðar.
Sérstakt svipmót
í skýrslu Finns Birgissonar arki-
tekts segir að Gamla spítalann megi
hiklaust telja til allra merkustu gam-
alla húsa á Akureyri en honum hafi
óvenjulítið verið breytt í tímans rás
og sé sérlega fágætt hversu mikið
er eftir af upprunalegum innri frá-
gangi. Þetta er næstelsta hús bæjar-
ins og eitt fyrsta tvílyfta hús á land-
inu. „Það hefur óvenjulegt og sér-
stakt svipmót og er nokkuð áber-
andi í umhverfi sínu,“ segir í skýrslu
Finns Birgissonar.
Húsfriðunarsjóður Akureyrar er
eigandi Gamla spítalans, en Lækna-
félag Akureyrar og norðausturdeild
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
munu sjá um rekstur þess. Fyrir-
hugað er að koma upp safni í hús-
inu sem tengist fyrrverandi hlut-
verki þess sem fyrsta sjúkrahúss
bæjarins og þá verður þar einnig
félagsaðstaða fyrir félögin tvö sem
reka húsið og loks húsvarðaríbúð.