Morgunblaðið - 10.06.1994, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Efasemdir um notkun gamalla rússneskra flugvéla í Kína
Þotan ekki faríð
í skoðun frá 1992
Peking. Reuter.
KÍNVERSKA farþegaþotan sem splundraðist á flugi síðastliðinn mánudag,
með þeim afleiðingum að allir um borð fórust, hafði ekki farið í reglu-
bundna ársskoðun síðan árið 1992, og verið flogið rúmlega 2.800 tíma síð-
an þá. Gert hafði verið við bilanir í henni þrem dögum áður en hún fórst.
Fréttaskýrendur telja líklegt að slysið veki alvarlegar spurningar um rétt-
mæti þess að nota gamlar rússneskar flugvélar til þess að bregðast við
brýnni þörf fyrir vélar í Kína.
Reuter
Vopnuð kona úr liði Suður
Jemen við landamæragæslu í
Aden. Lið Norður-Jemena hélt
uppi árásum á borgina í gær.
Litlar breytingar á
vígstöðunni í Jemen
Olíu- og
vatns-
skortur
Aden, Sanaa. Reuter.
HERLIÐ Norður-Jemena hélt uppi
árásum á hafnarborgina Aden í
Suður-Jemen í gær en vígstaðan í
borgarastyrjöldinni í landinu hefur
lítið breyst síðustu daga. Stjórnin
í Sanaa í norðurhlutanum boðaði
einhliða vopnahlé, sem átti að hefj-
ast um miðjan dag í gær, en ólík-
legt þótti, að það yrði haldið.
Skortur er á olíu í Aden eftir
að olíuhreinsunarstöðinni þar var
lokað og einnig er farið að skorta
vatn vegna skemmda á vatns-
veitunni og vatnsleiðslum til borg-
arinnar. Tugþúsundir manna hafa
flúið þangað undan stríðsátökun-
um og eru þar nú rúmlega 400.000
manns, sem verða að treysta á það
vatn, sem unnt er að fá úr brunn-
um. Herforingjar sunnanmanna
bera sig samt vel og segjast hafa
næogt lið til að verja borgina reyni
norðanmenn að ná henni á sitt
vald.
Ali Abdullah Saleh, forseti
Norður-Jemens, boðaði í gær
vopnahlé, sem taka átti gildi sam-
dægurs, en vopnahléið, sem hann
ákvað fyrr í vikunni, var alls ekki
virt. Segja sunnanmenn, að Saleh
sjálfur hafi skipað mönnum sínum
að standa ekki við það. Þeir sam-
þykktu þó vopnahléstilboð norðan-
manna.
TASLIMA Nasrin, 32 ára rithöfund-
ur frá Bangladesh, er nú á flótta
undan lögreglu þar í landi, vegna
þess að yfirvöld gefa Nasrin að sök
að hafa gagnrýnt íslamska trú og
þá helgu bók Kóraninn. Sagði dóms-
málaráðherra landsins að Nasrin
skyldi hljóta mpðferð „samkvæmt
Iandslögum“. Bókstafstrúarmenn
hafa krafist dauðadóms yfir Nasrin.
Móðgandi bók
Yfirvöld í Bangladesh hafa bann-
að bók hennar, Skömm, á þeim for-
sendum að hún sé móðgun við trú
múslima og þar sé farið með lygar
um þjáningar hindúa, sem eru í
minnihluta í Bangladesh.
* Norska dagblaðið Aftenposten
greinir frá því að Nasrin hafi orðið
kunn sem „kvenkyns Salman Rush-
die“ þegar hópur bókstafstrúar-
manna Iýsti hana réttdræpa í fyrra,
og hétu sem svarar 100 þúsund
Framkvæmdastjóri kínverska
flugfélagsins, Gao Junyue, sagði í
viðtali við Kínverska Dagblaðið, að
þetta væri í fyrsta skipti í kín-
verskri flugsögu að farþegaþota
hafi splundrast á flugi. Sagði hann
að bilana hefði orðið vart í þessari
tilteknu flugvél, sem var rússnesk
ÍSRAELSKI hermaðurinn Ido
Dekel komst undir læknishend-
ur í tæka tíð í gær eftir að pal-
estínskur árásarmaður réðist að
honum með hnífi skammt frá
skrifstofu Yitzhak Rabins, for-
króna verðlaunum hverjum þeim
sem næði að fullnægja dómnum.
Eftir það naut hún verndar lögreglu
í Dhaka.
Andvíg trúarbrögðum og
hjónabandi
Indverskt dagblaði hafði í síðustu
viku eftir Nasrin að það þyrfti að
„endurskoða Kóraninn rækilega“.
„Enginn framfarasinnaður maður
né kona ætti að hafa trúarbrögð,"
af gerðinni Túpolev 154, þann 3.
júní, en gert hefði verið við þær og
eftir reynsluflug hefði vélin verið
talin flughæf. Flugið síðastliðinn
mánudag var það fyrsta eftir við-
gerðirnar.
Að sögn Gao hafði vélin fengist
frá ónefndu rússnesku fyrirtæki, og
sætisráðherra, í Jerúsalem. Var
Dekel stunginn í bakið og sést
hnífurinn í sárinu, en læknar
búa sig undir að gera að sárum
hans. Arásarmaðurinn komst
undan.
var haft eftir henni. „Og hjónaband
leiðir ekki til neins nema þrældóms
fyrir konur.“ Kvennasamtök Bangla-
desh hafa gagnrýnt Nasrin fyrir
„ógætilegar yfirlýsingar", en vara
við því að bókstafstrúarmenn kunni
að nota sér upphlaupið gegn henni
til þess að ýta undir ofbeldi og stjórn-
málaólgu.
Badruddin Omar, einn framfara-
sinnaðasti rithöfundur í Bangladesh
og fyrrum aðdáandi Nasrin, er á
hefði þá verið búið að fljúga henni
um 10 þúsund klukkustundir, sem
telst þriðjungur þess sem búast má
við að vélin endist. Sagði Gao að
rússneski framleiðandinn hefði sagt
að Túpolev 154 teldist „ný“ eftir 10
þúsund stunda flug. Framleiðandinn
hefði orðið við beiðni Kínveija um
að senda rannsóknarmenn.
Eftirspurn eftir flugferðum í Kína
hefur aukist um 20 prósent árlega
að undanförnu, og einungis fáeinum
klukkutímum fyrir slysið á mánudag
höfðu yfirvöld í Peking tilkynnt um
kaup á fimm Túpolev 154 frá tímum
Sovétríkjanna.
Prestar og
biskupar
myrtir í
Rúanda
Kigali, Páfagaröi. Reuter.
KAÞÓLSKI erkibiskupinn í Kigali,
höfuðborg Rúanda, 21 kirkjunnar
maður annar og 63 óbreyttir borg-
arar voru myrtir fyrir nokkrum
dögum. Stóðu hvorirtveggju, upp-
reisnarmenn og stjórnarhermenn,
að fjöldamorðunum. Jóhannes Páll
páfi hefur skorað á ríki heimsins
að binda enda á hryllinginn í land-
inu.
Starfsmenn Sameinuðuð þjóð-
anna hafa heimildir um, að stjórnar-
hermenn hafi myrt níu presta og
63 óbreytta borgara í kirkju í einu
hverfi Kigaliborgar 6. júní en áður
hafði útvarp uppreisnarmanna við-
urkennt, að liðsmenn Föðurlands-
fylkingarinnar hefðu myrt 13
presta, þar á meðal erkibiskupinn,
fyrir sunnan borgina. Jean-Guy
Plante majór og talsmaður eftirlits-
sveita SÞ í Rúanda sagði, að þessir
atburðir sýndu hve nauðsynlegt
væri að fyrirhugaður liðsauki 5.500
manna kæmi fljótlega til landsins.
Páll páfi hefur beðið ríki heima
að stöðva blóðbaðið í Rúanda strax
og franska stjórnin hefur fordæmt
voðaverkin og krafist þess, að
stjórnarhermenn láti lausan prest-
inn Andre Sibomana en hann er
einnig formaður blaðamannafélags-
ins í Rúanda.
annarri skoðun. Hann segir Nasrin
vera útsendara öfgamannanna.
„Hún hefur í raun, með hneykslan-
legum og ruddalegum skrifum sín-
um, veitt samtökum í Bangladesh
og á Indlandi lið. Þau þurfa mjög á
henni að halda,“ sagði hann í blaða-
grein á þriðjudaginn. Hann lýsti
Nasrin sem „léttvægri", og skoraði
á rithöfunda og menntamenn að
standa gegn henni.
Áhyggjur
mannréttindasamtaka
Blöð í Dhaka greindu frá því í
gær að Amnesty International og
fleiri mannréttindasamtök hafi lýst
áhyggjum sínum útaf öryggi afkomu
Nasrin. Lögregla í Dhaka neitar því
að Nasrin hafi hugsanlega flúið land,
og telur hana vera í felum í borg-
inni. Hún heimsótti Indland og
Frakkland í síðasta mánuði, en vinir
hennar segja hana ekki vilja flytjast
á brott frá Bangladesh.
Peres og
Hussein á
leynifundi?
ÍSRAELSK-
UR þingmaður
fullyrðir að
Shimon Peres,
utanríkisráð-
herra ísraels
og Hussein
Jórdaníukon-
ungur hafi hist
á leynifundi í
London fimm
dögum áður en
ísraelar og
Jórdanir til-
kynntu að þeir
hefðu náð
samkomulagi
um mikilvæg
skref í friðar-
átt. Talsmenn
Peresar neita
þessu, en
ráðamenn í
Israel hafa hvað eftir annað
borið til baka fréttir um að
þeir hafi hitt Jórdaníukonung
á laun. Þingmaðurinn ísraelski
sagði að friðarviðræðurnar við
Jórdaníu væru ákaflega mikil-
vægar og ekki ættu ekki að
fara leynt.
Lekií
Tsjernobyl
GEISLAVIRKT vatn lak úr
geymslutanki fyrir notað
kjarnaeldsneyti við Tsjernobyl
á þriðjudag en úkraínsk yfir-
völd tilkynntu um atkvikið í
gær. Að sögn þeirra telst það
vera 0-1 stig á sjö stiga mæli-
kvarða yfír hversu alvarleg
kjarnorkuslys eru.
Domingo til
Washington-
óperunnar?
LÍKUR benda
til þess að
Placido Dom-
ingo, einn
fremsti óperu-
söngvari
heims verði
útnefndur
listrænn
stjórnandi við
Washington-
óperuna, en
búist. er við opinberri tilkynn-
ingu um valið í lok júní. Hafa
bandarísk dagblöð eftir tals-
manni söngvarans að viðræður
hafi átt sér stað en ekki liggi
fyrir samningur.
Maður beit
snák
INDVERSKUR bóndi brá við
skjótt er hann var bitinn af
snáki, sökkti tönnunum í skrið-
dýrið og drap það. Bóndinn var
fluttur í skyndi á spítala, þar
sem hann lést skömmu síðar.
Metupphæð
fyrir könnur
TVÆR kínverskar postulíns-
könnur, sem voru í eigu Marie-
Antoinette Frakklandsdrottn-
ingar, voru seldar á uppboði í
London fyrir metupphæð í
gær. Fóru könnurnar á sem
svarar til 105 milljóna króna
og hefur aldrei fengist hærri
upphæð fyrir franska skraut-
muni að sögn uppboðshaldar-
anna, Christie’s.
Kvenréttindakona á flótta undan lögreglu og bókstafstrúuðum í Bangladesh
Dhaka. Reuter.
„Kvenkyns
Rushdie“
Reuter
Stunginn í bakið
Hussein