Morgunblaðið - 10.06.1994, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Listahátíð í dag
BRESKA poppsveitin
St.Etienne verður með
tónleika í Kolaportinu í
Tollstjórahúsinu í kvöld
klukkan 21. Áður gefst
færi á fjölmörgum mynd-
listarsýningum á hátíð-
inni: Helgi Þorgils Frið-
jónsson sýnir í Listasafni
ASÍ, Sigurður Guð-
mundsson í Galleríi Sól-
oni íslandus, Ilja Kabakov í sýn-
ingarsalnum Annarri hæð, Krist-
ján Guðmundsson í Galleríi Sæv-
ars Karls, Rudy Audio í Umbru,
Joel-Peter Witkin á Mokka og
Stepanek og Maslin í Gallerí
Gangi.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir
sýningin Islensk samtímalist en
Listasafn íslands speglar
tímabilið frá alþingishá-
tíð til lýðveldisstofnun-
ar. íslandsmerki og önn-
ur súlnaverk Sigurjóns
Ólafssonar eru í safni
hans og verk Jóns Engil-
berts í FÍM-salnum og
Norræna húsinu. í sama
húsi eru líka verk sex
ungra gullsmiða. Leif-
ur Kaldal gullsmiður sýnir svo í
Stöðlakoti og loks er ný finnsk
glerlist í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Klúbbur Listahátíðar starfar á
kaffihúsinu Sóloni íslandus við
Bankastræti á hveiju kvöldi meðan
hátíðin stendur. í kvöld djassa þar
Smurapar, frá klukkan 22 eins og
venja er.
John Greer í Gallerí 11
KANADÍSKI myndhöggvarinn
John Greer opnar sýningu í Gall-
erí 11 við Skólavörðustíg 4a, á
morgun, laugardaginn 11. júní,
kl. 15. Meginuppistaða sýningar-
innar er verk sem hann gerir sér-
staklega fyrir sýninguna og nefn-
ist „Bláum rósahnöppum dreift á
íslandi". Verk hans eru oftast
unnin í hefðbundin efni, s.s. stein,
(marmara) og málm (brons).
Sýning Johns Greers er fram-
leg Gallerís 11 til Listahátíðar í
Reykjavík og lýkur henni 26. júní.
Listamaðurinn verður viðstaddur
opnun sýningarinnar.
85
85
&
85
85
&
85
85
85
85
8í
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
85
3^
85858585858585858585^ 85 85 ^858585
Daiwa
GÆÐAMERKI VEIÐIMANNSINS
Daiwa
JCWVÖÐLUR
KR. 26.900
Daiwa
ALLTMOR 8,5
FLUGUSTÖNG
KR. 11.900
I verslun okkar við
Eyjaslóð 7 í Reykjavík
gefur að líta mikið úrval
af
Daiwa
veiðivörum.
Littu inn, sjón er sögu ríkari.
m
%
Daiwa
SJÓHJÓL SL450H
KR. 18.200-
Merkið
sem
tryggir
Daiwa
812 FLUGUHJÓL
KR. 4.995-
góða
veiðiferð
Daiwa
VEIÐIHjÓL MG4050H
KR. 4.680-
Þar scm vciðifcrðin byrjar...
SEGLAGERÐHN
ÆGIR
Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 621780
85 85 85 85 85 85 85 85 85 85 85 85 85 85^^^85 85 ^85 85
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
?0
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
30
50
30
Atak um
varðveislu
heimilda um
íslenska
listasögu
NÚ STENDUR yfir umfangsmikil
söfnun á vegum Kjarvalsstaða og
Ásmundarsanfs á heimildum um
listamennina Ásmund Sveinsson og
Jóhannes S. Kjarval.
Þegar hefur verið safnað saman
öllu útgefnu efni um og eftir þessa
framverði íslenskrar myndlistar-
sögu og það skráð til varðveislu.
Listamennirnir skildu einnig eftir
sig handrit auk listaverka og teikn-
inga, sem Listasafn Reykjavíkur-
borgar hefur til varðveislu. Mun
allt þetta efni nýtast í framtíðinni,
ekki aðeins við rannsóknir á per-
sónusögu Kjarvals og Ásmundar
heldur einnig við ritun á almennri
listasögu þjóðarinnar.
Nú er svo komið að í þetta heim-
ildarsafn vantar helst sendibrét við-
komandi listamanna, sem vænta
má að enn séu hjá viðtakendum eða
afkomendum þeirra. Það er því afar
mikilvægt fyrir Ásmundarsafn og
Kjarvalsstaði að fá aðgang að þess-
um bréfum til skrásetningar svo
að þau geti nýst til listsögulegra
rannsókna. Því er þess farið á leit
við þá sem hafa slík bréf í fórum
sínum, að hafa samband við safnið
og tala við Ásmund Helgason á
Kjarvalsstöðum, en hann hefur
umsjón með skráningu viðkomandi
bréfa.
------» ♦ 4------
Nýjar bækur
og geisladiskar
■Nýlega kom út í Frakklandi bók
um ísland eftir Jacques Mer, sem
var sendiherra Frakklands hér á
landi 1988-1992. Bókin sem á
frönsku nefnist „L’Islande une overt-
ure obligée mais prudente“, er gefin
út af tilefni 50 ára afmæli lýðveldis-
ins. Útgefandinn, La documentation
Frangaise, er sambærilegur Náms-
gagnastofnun á Islandi.
Jacques Mer er doktor í hagfræði
og fyrrverandi alþingismaður. Bókin
er almenn haglýsing. Höfundurinn
ræðir sérkenni og sérstöðu íslands
og veltir fyrir sér framtíð landsins.
Bókin fæst hjá Bóksölu stúdenta,
Eymundsson og Máli og menningu
og kostar 1.600 krónur.
■ Brýrnar í Madison-sýslu eftir
Robert James Waller er sögð mest
selda bók Bandaríkjanna, í inn-
bundnu formi, frá upphafi. Hún hafði
þegar síðast fréttist selst í meira en
fjórum og hálfri milljón eintaka og
verið endurprentuð 54 sinnum. Hún
er nú komin út í íslenskri þýðingu
Péturs Gunnarssonar rithöfundar í
bókaklúbbnum Nýjar metsölubækur
hjá Vöku-Helgafelli. Robert James
Wallerer rithöfundur, blaðamaður og
fyrrum háskólakennari. Hann hlaut
bandarísku ABBY-verðlaunin fyrir
bókina í fyrra en hugmyndina að
bókinni fékk hann þegar hann var á
ferð í Madison-sýslu haustið 1991
ásamt vini sínum. Erindið var að
taka myndir af yfirbyggðum brúm í
sýslunni og laust þá sögunni niður í
huga hans. Sagan segir frá örlaga-
ríkum kynnum heimshomaflakkara
og bóndakonu í Madison-sýslu.
■ SKÍFAN hefur gefið út safnplöt-
una Transdans 2 sem hefur að
geyma 16 vinsæla danssmelli. Á
disknum er að finna lög með útlend-
um flytjendunum Capella,
Haddaway, Dr. Alban, Reel 2 Real,
Barbara Tucker, A Tribe Called Qu-
est, Pandora, Magic Affair, Hysterix,
Melodie MC, E.Y.C., Degrees of
Motion, Urban Species og Sasha.
Auk þess eru á plötunni tvö ný lög
með íslenskum flytjendum. Annars
vegar er lagið Hipp Hopp Halla með
Tennessee Trans og hins vegar
hljómsveitin Scope með söngkonunni
Svölu Björgvinsdóttur í öndvegi með
gamla diskósmellinn Was That All It
Was.
I
I
>
>
\
)
)
>
i
l
i
\
i
i
í
i
I.
í
i
i
\
i