Morgunblaðið - 10.06.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1994 49
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KARLA
Svart og hvítt
í Kópavogi
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
BREIÐABLIK og Fram gerðu
jafntefli, 2:2, á Kópavogsvelli í
gærkvöldi. Öll mörkin komu í
fyrri hálfleik, sem var opinn og
fjörugur, en í þeim síðari gerð-
ist fátt markvert.
Ekkert,“ sagði Marteinn Geirsson
þjálfari Fram þegar hann var
spurður hvað hann hefði gefið leik-
mönnum sínum í
leikhléi. Ástæða
spumingarinnar var
að .eftir fjörugan
fyrri hálfleik þar
sem bæði lið fengu fjölmörg mark-
tækifæri, án þess þó að leika áber-
andi vel, var síðari hálfleikur tíðin-
dalitill og nærri tíðindalaus.
„Þetta var hræðilega lélegt. Ég
var svolítið hræddur fyrir léikinn
en hélt ekki að við myndum detta
svona niður eftir að hafa leikið vel
í síðustu leikjum. En í kvöld gleymd-
ist liðsheildin og menn voru á ein-
hveiju einstaklingsflippi. Blikar
voru á undan okkur í alla bolta og
við dekkuðum hræðilega illa,“ sagði
Marteinn.
Ingi Bjöm Albertsson þjálfari
Blika var hins vegar ánægður með
sína menn. „Það hefur verið góður
stígandi í leik liðsins og við settum
okkur það markmið að komast á
rétta braut í kvöld og ég held að
það hafi tekist. Við þurfum að nýta
færin betur og ná að halda einbeit-
ingunni eftir að við skoram því í
kvöld fengum við á okkur alveg
hræðileg mörk,“ sagði Ingi Björn.
Það var mikið fjör í fyrri hálfleik
og eftir að Fram hafði átt þtjú góð
færi skoraði Breiðablik fyrsta mark-
ið. Fram jafnaði tíu mínútum síðar,
á 25. mínútu en mínútu fyrir leikhlé
komust heimamenn aftur yfír.
Framarar tóku miðju og tókst að
skora áður en flautað var til leikhlés.
Þrátt fyrir mikið Qör og mörg
færi var leikurinn ekki sérlega góð-
ur. Allt of mikið var um misheppn-
uðar sendingar, en þess á milli sást
þó ágætt samspil, en það var þó
°f sjaldan. Eftir fjörið í fyrri hálf-
leik bjuggust menn við áframhaldi
í þeim síðari. En því miður varð
mönnurn ekki að ósk sinni því eng-
in ástæða var til að drepa niður
penna fyrr en alveg undir lok leiks-
ins, en þá fengu liðin mjög góð
færi. Fyrst Framarar sem skutu í
slá og svo.Blikar sem skutu í stöng.
Bæði færin voru eftir að nokkur
þvaga hafði myndast í vítateigunum
og buldu skotin fyrst á varnarmönn-
um og enduðu sóknirnar með horn-
spyrnum.
í síðari hálfleik mátti þakka fyr-
ir ef leikmenn náðu að senda þijár
óbrenglaðar sendingar í röð. Bar-
áttan var mikil, það vantaði ekki,
en síðan komu sendingamar og þær
vora flestar á mótheija. Það má
því með sanni segja að fyrri hálf-
leikurinn og sá seinni hafi verið
éins og svart og hvítt, alla vega
fyrir áhorfendur.
4 ill kÁ 15. mínútu tóku
1 íU ‘Blikar aukaspyrnu
rétt utan við vítateigshomið
ir stöngir a fíær. Varnarmenn
Pram skölluðu frá en boltinn
sem Kris tók hann tófer Sigurgeírsson viðstöðulaust. Hann
um stefm af vamarmanni.
4 >4 Tíu mínútum síðar
■ ■ ■ vann Helgi Sigurðs-
son bolts mn á vallarhelmmgi
Blika, bn maði aðþrengdur upp
hægri va mginn og Einar Páll
og fyrir varð mílli markið. MiBskilningur varnarmanns og iqar-
náði að teygja sig í boltann á undan Guðmundi markverði Blika og renna honum í netið.
2:1 Mínútu fyrir lok fyrri hálfleiks fengu Blik-
ar aukasp vftateigsh ymu fyrir utan hægra omið. Kristófer
spyrnti yfir skarann í miðjum vítateignum og fyrir aftan hann var Hákon Sverrisson aleinn og óvaldaður. Hann kastaði sér fram og skallaði í netið úr frek-
ur prongi 2:2 i iæn. ► Nokkrum sekúndum ■áður en flautað var
til hlés gaf Ríkharður á Helga
í vinstra hroninu. Hann lék lag- lega á Gústav ómarsson og
senai kiioluihi & bwii^itid ijötii. Hóhnsteinn skallaði fyrir markið á Gauta Laxdal sem skoraði af öryggi.
Morgunblaðið/Þorkell
Dansað í rigningunni
SIGURÐUR Björgvinsson lék á ný með Keflvíkingum og kemur hér boltanum
í burtu áður en Hermann Hreiðarsson nær að átta sig.
Skil ekki svona
vinnubrögð
- sagði Guðjón Þórðarson þjálfari KR
Þetta var virkilega svekkjandi,"
sagði Guðjón Þórðarson
þjálfari KR eftir tapið gegn FH.
„Við lögðum áherslu á stífan sókn-
arleik og við vissum að þeir myndu
leggja áherslu á varnarleikinn, en
boltinn rúllaði illa og það var margt
sem varð til þess að draga leikinn
niður.“
Áttu þar við dómararm í leiknum?
„Dómarinn er ótrúlega skilnings-
vana á hvað knattspyma er og ég
skil ekki svona vinnubrögð. Nú
spyr ég, eru það samantekin ráð
hjá dómurum að dæma eftir öðram
reglum gagnvart okkur? Ef svo er
þá eru þeir langt frá því að vera
heiðarlegir, og það er annaðhvort
það eða þeir vita ekki betur.“
Gengi liðsins upp á síðkastið hlýtur
að vera þér áhyggjuefni. Hvað er
til ráða?
„Markmiðið var og er ennþá að
taka hvern leik fyrir sig. Það er
langt í september, en við erum
komnir í þá stöðu að þurfa að von-
ast eftir slysum hjá öðrum. Við
höfum verið lánlausir, en það hlýt-
ur að breytast, önnur lið geta ekki
verið stálheppin endalaust."
Áttu þarna við Skagamenn?
„Þeir sem fylgst hafa með í
sumar vita hvað við er átt. Lukkan
er fallvölt og hún þarf að vera
með. En koma tímar koma ráð,“
sagði Guðjón Þórðarson.
Marka-
laus
barátta
KEFLAVÍK og Vestmannaeyjar
gerðu markalaust jafntefli í leið-
indaveðri í Keflavík í gærkvöldi.
Gestirnir fögnuðu stiginu og ^
heimamenn geta í raun einnig
vel við unað, því þó þeir hafi
átt eina umtalsverða færi leiks-
ins voru úrslitin sanngjörn í
þessum baráttuleik.
jjjjjyjamenn voru varkárir til að
Steinþór
Guöbjartsson
skrifar
frá Keflavík
byija með, framheijarnir komu
vel aftur og liðið treysti á gagnsókn-
ir. Fyrir bragðið vora
Keflvíkingar meira
með boltann, en spil-
ið gekk illa, rétt eins
og hjá mótheijunum,
og ekki tókst mönnum að skapa sér
marktækifæri. Eina hættan var um
miðjan hálfleikinn, þegar Marco
Tanasic tók aukaspyrnu frá vinsir'—
rétt utan vítateigshoms og skaut
lúmsku skoti að marki. Boltinn virt-
ist á leið í fjærhornið, en Friðrik
Friðriksson var réttur maður á rétt-
um stað.
í seinni hálfleik höfðu Eyjamenn
vindinn og rigninguna frekar með
sér og þeir voru óragari við að sækja,
en höfðu ekki erindi sem erfíði.
Sumarliði Árnason fékk eina færið
snemma í hálfleiknum, en skaut
framhjá einn gegn einum. Sama var
upp á teningnum hjá Keflvíkingum;
þeir börðust vel, en áttu oftar en
ekki í erfiðleikum með að finna sam-
heija. Samt vora sóknir þeirra
þyngri og hættulegri, en ekkert varð
úr hlutunum, þegar þeir nálguðust
mark mótheijanna. Þeir vildu fá
vítaspymu í hvoram hálfleik, en Glsli
Guðmundsson, dómari, var ekki á
sama máli.
Það er ósanngjamt að dæma liðin
út frá þessum leik, því aðstæður voru
ekki heppilegar, rok og rigning.
Markverðimir stigu ekki feilspor, en
höfðu lítið að gera. Baráttan var alls
ráðandi hjá vamar- og miðjumönn-
um, en þeim tókst yfirleitt illa að
koma bolta frá sér. Það, sem helst
má setja út á, er að Eyjamenn voru
stundum full aðgangsharðir, en þéir
gengu eins langt og þeim var leyft.
Sóknarmenn liðanna fengu litla að-
stoð, en einstaklingsframtak Kjart-
ans Einarssonar hjá ÍBK og Stein-
gríms Jóhannessonar hjá IBV var
nálægt því að skila árangri.
URSLIT
Dæmið gekk upp hjá FH
FH-ingar unnu frækinn sigur á KR á heimavelli þeirra síðar-
nef ndu með einu mark gegn engu í gærkvöldi. KR-ingar voru
mun meira með boltann í leiknum og fengu mun fleiri færi og
hættulegri, en leikaðferði FH-inga gekk fullkomlega upp. Þeir
spiluðu vörnina frábærlega og beittu hárbeittum skyndisóknum,
sérstaklega í síðari hálfleik, og skilaði það tilætluðum árangri
einu sinni, sem reyndist nóg til að innbyrða sigur. FH-ingar eru
nú með tíu stig eftir að haf a skorað aðeins þrjú mörk í f imm
leikjum, en KR-ingar eru enn með sjö stig en hafa þó skorað
átta mörk.
3. deild:
Dalvík-Víðir........................1:4
Jónas Baldursson - Sigurður Valur Árnason
3. Hlynur Jóhannsson.
4. deild:
Sindri - Neistí.....................6:0
Bjub 2, Hermann Stefánsson 2, Pálmar
Hreinsson 1, Kristján Baldursson.
íkvöld
Knattspyrna kl. 20
L deild karla:
Akureyrarv.: Þór - Stjarnan
Laugardalsv.: Valur - ÍA
1. deild kvenna:
Akranes: ÍA - Stjarnan
2. deild karla:
Selfoss: Selfoss - Fylkir
Vfkingsv.: Víkingur - Þróttur
IR-völlur: lR - Leiftur
3. deild karla:
Ásvellir: Haukar - Völsungur
Egilsstaðir: Höttur - Fjölnir
Sauðárk: Tindast. - Skallagr.
4. deild:
Varmárv.: Aftureld. - Ægir
Gróttuvöllur: Grótta - Leiknir
Ármannsv.: Ármann - Hamar
Leikurinn var bráðfjörugur og
skeir.fntilegur á að horfa. KR-
ingar byijuðu hann af miklum krafti,
og voru búnir að
Stefán skjóta fjórum væn-
Eiríksson legum skotum að
skrifar marki þegar fyrri
hálfleikur ^ar hálfn-
aður. Sóknir FH-inga vora beittar
þó þær væru ekki margar. Jón Erl-
ing Ragnarsson var einn á móti
markmanni á 31. mínútu eftir
snarpa sókn, en Kristján Finnboga-
son varðj meistaralega. Sex mínút-
um síðar kom besta færi hálfleiks-
ins; Tómas Ingi skallaði að marki
en Stefán Arnarson varði hreint frá-
bærlega. Þremur mínútum síðar
bjargaði hann aftur laglega er
Tryggvi Guðmundsson var kominn
einn í gegn.
KR-ingar héldu uppteknum hætti
í síðari hálfleik og fengu besta færi
sitt á 53. mínútu. Heimir Porca lyfti
þá knettinum yfír Stefán í markinu
og í innanverða stöngina hægra
megin. Á 56. mínútu kom Atli Ein-
arsson inn á hjá FH-ingum og
hleypti sú skipting miklu lífi í skyndi-
sóknir FH-inga. Hann skapaði mikla
hættu strax eftir að hann var kom-
inn inn á og gerði í þrígang usla í
vörninni áður en hann gerði út um
leikinn á 88. mínútu. Eftir markið
gerðu KR-ingar
örvæntingarfull-
ar tilraunir til að
skora en allt kom
fyrir ekki.
„Þetta var
mjög skemmti-
legur og sætur
sigur," sagði
Stefán Arnarson
markvörður FH
sem átti frábær-
an leik. „Þeir
voru hættulegri í sóknaraðgerðum
sínum en við vörðumst vel, náðum
að loka helstu svæðunum og treyst-
um á skyndisóknir," sagði Stefán.
FH-ingar léku af mikilli skynsemi
og héldu sig við upphaflega áætlun
allan tímann. Vörnin var sterk og
umfram allt voru varnarmennimir
fljótir, ekki bara fljótir að átta sig
heldur líka fljótir að ná til boltans.
Stefán Arnarson stóð sig frábærlega
í markinu eins og áður var vikið að
og Atli Einarsson hleypti lífi í sókn-
ina.
KR-ingar léku alls ekki illa þó svo
að svona færi. Þeir vora mun meira
með boltann á miðjunni, en vora
helst til seinir að skila honum fram
og upp kantana, fullmikið var um
óþarfa dútl á miðjunni, eins og ein-
hver orðaði það. Heimir Guðjónsson
lék í stöðu aftasta vamarmanns í
forföllum Óskars Þorvaldssonar og
stóð sig ágætlega. Tryggvi Guð-
mundsson vann vel og barðist allan
leikinn og góð barátta var í Rúnari
Kristinssyni og Tómasi Inga, en hún
dugði ekki til.
0H 4[ Óiafur H. Kristjáns-
■ | son skallaði knöttinn
fí*á eigin vallarhelmingi á 88.
mínútu yfír á Jón Erling Ragn-
arsson sem var á miðjum vallar-
helmingi KR. Hann lék upp
miðjuna og gaf boltann síðan
laglega út til hægri á Atla Ein-
arsson. Hann lagði knöttinn
fyrir sig lék inn í teiginn og lyfti
knettinum yfir Kristján Finn-
bogason og í netið.