Morgunblaðið - 12.06.1994, Side 2
2 SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ljót aðkoma landvarða að heiðagæsavarpi í Herðubreiðarfriðlandi
Öllum eggjum
rænt úr heiða-
gæsahreiðrum
HVERJU einasta eggi virðist hafa
verið rænt úr stórum hluta heiða-
gæsavarps í Herðubreiðarfrið-
landi um miðjan maí. Kári Krist-
jánsson, landvörður, segir að um
níðingsverk sé að ræða. Hann
segir að einhveijar gæsir hafi
verpt aftur en dæmi séu um að
þær hafi ekki verpt í annað sinn.
268 hreiður voru í friðlandinu í
fyrra. Af þeim voru 144 í Grafar-
löndum. Ekki hefur verið kannað
hvort farið hafí verið ránshendi
þar um nú. Að sögn Ævars Pet-
ersens fuglafræðings er heiða-
gæsavarpið í Herðubreiðarlindum
lítill hluti af varpi heiðagæsar,
eitthvað um 1%.
„Mjög ógeðslega hefur verið að
þessu staðið. Hreiðrin virðast hafa
verið gjörsamlega tæmd. Stundum
hafa gæsir ekki verpt aftur og
varplönd verið eyðilögð með þess-
um' hætti. Við virðumst hins vegar
hafa verið svo heppin að einhveijar
gæsanna hafa verpt aftur. Þær
verpa svona einu og upp í þremur
eggjum. En venjulega eru á bilinu
3 til 7 egg í hveiju hreiðri," sagði
Kári. Hann sagði að þegar varp
væri nýtt væru 3 til 4 egg skilin
eftir í hveiju hreiðri að jafnaði og
gæsir verptu aftur.
Kári sagði að sá háttur hefði
verið hafður á að opna svæðið
fyrir ferðamönnum þegar gæsin
væri búin að koma út ungum.
Yfirleitt væri opnunardagurinn í
kringum 18. júní. Nú myndi því
væntanlega seinka eitthvað. „Enn
er of snemmt að segja hvenær
verður hægt að opna.“
Eggjataka alfarið bönnuð
Ævar segir að menn sæki í
eggin til að borða þau. Heiðagæs-
in verpi um allt land og hafi henni
fjölgað mikið á undanförnum ára-
tugum. Hann segir að eggjataka
á friðlýstum svæðum eins og
Herðubreiðarlindum sé bönnuð,
auk þess sem egg heiðagæsarinn-
ar séu alfarið friðlýst.
Lögregla á Húsavík hefur mál-
ið með höndum. Fram hefur kom-
ið að þrír ungir menn hafí hugað
að varpinu en játning um eggja-
töku liggur ekki fyrir.
►Tæplega þriggja áratuga bið er
á enda, íslandssfldin hefur snúið
aftur./lO
Stoltur af f ramsóknar-
áratugnum
►SteingrímurHermannsson, ný-
ráðinn seðlabankastjóri, horfir um
öxl og ræðir m.a. um stjórnmála-
feril sinn, þróun efnahags- og
stjórnmála, árangur og axar-
sköft./14
íslenskir læknar í
Bosníu
►Þeir eru í norska friðargæslulið-
inu og merktir íslenskum fána,
læknamir tveir og hjúkrunarmað-
urinn, sem blaðamaður Morgun-
blaðsins hitti í Tuzla í Bosníu./18
Morgunblaðið/Þorkell
ELÍNBORG Sturludóttir kirkjuvörður á ÞingvöIIum tekur til
mold sem Flugleiðir flytja til Parísar á miðvikudag en þaðan
verður moldin svo flutt til Barcelona á fimmtudag.
Hornsteinn
*
lagður að Is-
landstorgi í
Barcelona
Barcelona. Morgunblaðið.
HORNSTEINN verður Iagður að
Islandstorgi í Navas-hverfi í
Barcelona 17. júní. Inn í horn-
steininum verður hólkur með
upplýsingum um torgið, einu ein-
taki af Morgunblaðinu, íslensk-
um og spænskum gjaldmiðli og
mold frá Þingvöllum. Fram-
kvæmdir við torgið eru hafnar
og á þeim að Ijúka í byijun næsta
árs.
Ákveðið var að endurskipu-
leggja hverfið og bæta úr skorti
á útivistarsvæði með því að koma
fyrir torgi á mótum tveggja ann-
arra hverfa. Torgið er aflangt
og er gert ráð fyrir 33x15 m tjörn
í öðrum endanum. I tjörninni
verði fossar og gosbrunnur í lík-
ingu við goshver. Gert er ráð
fyrir bekkjum, tijágróðri og trjá-
göngum að torginu.
Einhljóða samþykkt
Ibúasamtök hverfisins sam-
þykktu einhljóða að torginu
skyldi gefið nafnið íslandstorg
enda minnti þema þess, sem
tengt er vatni, á ísland. Ennfrem-
ur þótti við hæfi að miða lagn-
ingu hornsteins við þjóðhátíðar-
dag íslendinga 17. júní og minn-
ast þannig 50 ára afmælis lýð-
veldisins. Varaborgarstjóri
Barcelona, Lluis Armet, kemur
hornsteininum fyrir og verður
500 blöðrum með íslenska fánan-
um á sleppt upp i loftin blá af
því tilefni. Ýmislegt annað verð-
ur til hátíðarbrigða á torginu
þjóðhátíðardaginn og má sem
dæmi nefna að trúbador hefur
verið fenginn til að semja og
flytja lag og ljóð um Island.
Kostnaður 100 milljónir
Áætlanir gera ráð fyrir að
framkvæmdir við torgið kosti um
200 milljónir peseta (um 100
millj. ísl. kr.) að frátöldum kostn-
aði við áðurnefndan gosbrunn.
Reynt hefur verið að fá íslenska
aðila til að fjármagna gosbrunn-
inn og hafa undirtektir verið
góðar. Svipaður gosbrunnur er í
Perlunni. Navas-hverfið er fjöl-
mennt og liggur á milli ólympíu-
þorpsins og ólympíuþorps blaða-
manna í Barcelona.
Friðrik Sophusson um aukinn fjárlagahalla
Vísbending en
ekki niðurstaða
FRIÐRIK Sophusson, fjármálaráð-
herra, segir að það sé rétt að vís-
bendingar séu um að halli á fjárlög-
um þessa árs að óbreyttu verði 13-14
milljarðar króna eins og frá var skýrt
í Morgunblaðinu á fímmtudag, en
ekki innan við 10 milljarðar eins og
gert er ráð fyrir í fjárlögum. Hann
lagði hins vegar áherslu á þessar
hallatölur væru einungis vísbending-
ar en ekki niðurstaða og hann vænti
þess að hallinn yrði ekki jafn mikill
þegar upp væri staðið, enda væru
að hefjast viðræður við viðkomandi
fagráðuneyti um tii hvaða ráða eigi
að grípa til þess að draga úr honum.
Friðrik sagði í samtali við Morg-
unblaðið að næstu daga yrðu fundir
með viðkomandi fagráðuneytum um
framkvæmd fjárlaga á yfírstandandi
ári. Jafnframt verði unnið að undir-
búningi fjárlaga næsta árs og drög
gerð að fjárhagsáætlun ríkissjóðs
Fundir næstu daga
með fagráðuneyt-
um um fram-
kvæmd fjárlaga
fyrir nokkur næstu árin. Þetta allt
saman yrði síðan til umræðu í ríkis-
stjórn á næstu vikum.
Friðrik sagði að aukin útgjöld
stöfuðu að hluta til af einstökum
útgjaldaákvörðunum og þar væri því
ekki um viðvarandi útgjaldaauka að
ræða. Það gilti til dæmis um útgjöld
vegna ákvörðunar um kaup á nýrri
þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna sem
og útgjöld vegna eingreiðslu sam-
kvæmt kjarasamningum. Þessi út-
gjöld kæmu ekki til með að endur-
taka sig á næsta ári. Hins vegar
væri um útgjöld að ræða sem endur-
lækju sig frá ári til árs og þau væru‘
miklu varhugaverðari frá sjónarhóli
ríkissjóðs.
Vísbending en ekki niðurstaða
Aðspurður hvort aukinn halli
stefndi ekki baráttu stjómvalda fyr-
ir lægra raunvaxtastigi í hættu sagði
Friðrik að þetta væru einungis vís-
bendingar en ekki niðurstaða. „Ég
minni á að síðastliðið haust voru
vísbendingar um að halli á ríkissjóði
yrði umtalsvert meiri en varð. Ég
vænti þess að hallinn verði ekki eins
mikill og vísbendingar gefa lilefni
til á þessari stundu. Það sem hins
vegar skiptir mestu máli er að það
sé dregið markvisst úr ríkissjóðshall-
anum á næstu árum og jafnvægi
náð. Að öðrum kosti er augljóst að
lánsfjárþörf ríkissjóðs getur sprengt
raunvextina upp hér á landi eða leitt
til slíkrar erlendrar skuldasöfnunar
að hætta sláfár af,'‘ ságðí Friðrik.
Jafnaðarmannafélag
Islands
Álver í aldarfjórðung
►Christian Roth forstjóri ÍSAL í
viðtali./20
Breyta
nafnifé-
lagsins
Á FLOKKSÞINGINU Alþýðuflokks-
ins á föstudag var innganga hins
nýstofnaða Jafnaðarmannafélags ís-
lands í Alþýðuflokkinn samþykkt en
stjóm félagsins samþykkti á fundi
sl. fimmtudag að bera upp tillögu
um breytingu á nafni þess á aðal-
fundi félagsins sem haldinn verður
síðar á árinu. Var þetta gert vegna
deilna sem verið hafa í Alþýðu-
flokknum um nafn félagsins. Guð-
mundur Oddsson, framkvæmdastjóri
flokksins, sagði að í trausti þess að
það gangi eftir hafí verið lagt til að
félagið verði tekið inn í flokkinn og
fulltrúar þess fengju að sitja flokks-
þingið með fullum réttindum.
Eitt kjördæmi
fyrir 1999
ALÞÝÐUFLOKKURINN lýsir
stuðningi sínum við það að gera
landið að einu kjördæmi í drögum
að ályktun flokksins um kjördæma-
og kosningamál sem afgreidd verð-
ur á flokksþinginu í dag, sunnudag.
„Flokksþingið telur nauðsynlegt
að ríkisstjómin framfylgi á kjör-
tímabilinu þeirri stefnu sinni að ein-
falda kosningalögin og jafna at-
kvæðisrétt landsmanna. Við óbreytt
ástand verður ekki unað lengur.
Nýtt kosningakerfí og kjördæma-
skipan em eitt stærsta umbótamál
nútímans. Brýnt er að við næstu
kosningar liggi fyrir samþykkt
breyting á stjórnarskrá og kosn-
ingalögum, svo unnt verði að kjósa
í einu kjördæmi ekki seinna en árið
1999,“ segir í ályktunardrögunum.
Komum með börnin á
Þingvöll
►Matthías Á. Mathiesen, formað-
ur lýðveldishátíðamefndarinnar
segir frá viðhorfum sínum til þjóð-
hátíðarinnar./22
B
► 1-28
Mamma Popp
►Björk Guðmundsdóttir syngur
fyrir íslendinga á kvennadaginn
19. júní næstkomandi á tónleikum
sem Morgunblaðið og Smekkleysa
standa að á vegum Listahátíðar.
Urður Gunnarsdóttir brá sér til
Lundúna og sótti söngkonuna
heim./l
Matur og vín
► í þættinum að þessu sinni er
rædd við Serena Sutcliffe, vínsér-
fræðing hins fræga uppboðsfýrir-
tækis, Southby’s./4
Dans inn í skólakerfið
►Hlín Svavarsdóttir segir frá
skoðunumsínum á listdansi í Hol-
landi og á íslandi./5
íslenskur þjóðbúning-
ur karla
►Nýleg samkeppni um þjóðbún-
ing handa körlum hefur vakið upp
spumingar hvers vegna ekki hefur
tekist að fá karlmenn til að ganga
í slíkum klæðum. Svarið kann að
vera að þjóðbúningurinn þarf að
vera þannig að karlmenn vilji
klæðast honum, eins og bent er á
í grein í blaðinu í dag./12
BÍLAR
► 1-4
Tekið í tískubíl
►Með adrenalín í æðunum á Land
Rover Discovery./3
Reynsluakstur
►Daihatsu Feroza er aðallega
jeppi./4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak
Leiðari 24
Helgispjall 24
Reykjavíkurbréf 24
Minningar 26
Myndasögur 34
Brids 34
Stjömuspá 34
Skák 34
Bréftilblaðsins 35
ídag 36
Fólk í fréttum 38
Bíó/dans 39
íþróttir ’ 42
Útvarp/sjónvarp 44
Dagbók/veður 47
Gárur 6b
Mannlífsstr. 6b
Kvikmyndir 8b
Dægurtónlist lOb
Samsafnið, 23b
INNLENDAR FRÉTTIR:
Morgunblaðinu í dag fylgir auglýs-
ingablað um lýðveldishátíðarviku,
13.-16. júní, á Laugavegi og í Banka-
sfræti. -i
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR-
1-4
iXS.ij i 1111 tllluttulttll tHtlÍ