Morgunblaðið - 12.06.1994, Side 10

Morgunblaðið - 12.06.1994, Side 10
10 SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ SÍLDVEIDAR verw lengi ein samfelld sigwrför. Morgunblaðið/Markús Öm Tæplega þriggja áratuga bið er á enda, Is- landssíldin hefur snúið aftur. Þetta silfraða sjávardýr var um langt árabil uppistaðan í efnahagslífí þjóðarinnar. Uppspretta fram- fara og velmegunar. Lýðveldið á henni líf að launa. Síðan hvarf hún. Engin atvinnu- grein hefur haft jafn djúpstæð áhrif á þjóð- lífíð og síldveiðin. Tár og bros, auður og örbirgð. Síldin lék sér að tilfínningum þjóðar- innar. Hvað gerir hún nú? TILFÆRSLA SÍLDVEIÐISVÆÐA VIÐ ÍSLAND 1940-1970 AÐALVEIÐISVÆÐI SÍLDAR: 1940-1950 *■ 1950-1960 1960-1970 eftir Orra Pél Ormarsson SÍLDIN er komin aftur. Hefði lýðveldið getað hugsað sér betri afmælisgjöf? Þetta silfur hafs- ins hafði verið samofið sögu íslensku þjóðarinnar í heila öld þegar það hvarf skyndilega af sjónarsviðinu á ofanverðum sjöunda áratugnum. Þjóðin sat eftir með sárt ennið og svart- nætti skall á í efnahagslífinu. Það er því vart að undra að íslendingar hafi hugsað þessu hverflynda sjávardýri þegjandi þörfina. Margir voru þess full- vissir að það hefði einungis verið geðþóttaákvörðun síldar- innar að láta sig hverfa. Of- veiði er þó líklegri skýring, jafnvel þótt það hugtak hefði aldrei tengst síld í hugum landsmanna. Síldarævintýrin miklu höfðu afgerandi áhrif á íslenskt þjóðlíf og veittu hinni endurfæddu þjóð þrek til að fikra sig fram veginn á tímum þegar örlög hennar voru undir henni sjálfri komin. Það er því ef til vill táknrænt að síldin skuli skjóta upp kollinum til að samgleðjast Islendingum á þessum merku tímamótum í sögu lýðveldisins. Síldin stýrði löngum lundarfari landsmanna á þessari öld. Framfarir og þensla, kollsteypur og gjald- þrot. Saga þjóðarinnar á öld endurheimts sjálfstæðis verður ekki sögð án þess að síldin sé í einu aðalhlutverkanna. En hver er hún þessi síld? Til eru mörg afbrigði af síld. Stofn- arnir sem fangaðir voru við ís- land voru þrír . Þeirra frægastur var stofn norskrar ættar. Þótti því eðli- legt að hann væri nefndur norsk- íslenski síldarstofninn eftir að hans fór að gæta undan ströndum ís- lands. Reyndar var síld þessi í dag- legu tali kölluð Norðurlandssíld og síðan Íslandssíld eftir að hún hafði verið söltuð. Íslandssíldin er vorgots- síld sem kom til íslands í ætis- leit.Hún hrygndi á tímabilinu febrú- ar-apríl við vesturströnd Noregs en þegar voraði hóf hún að eltast við rauðátu vestur á bóginn. Sá eltingar- leikur barst síðan norður fyrir ís- land. Þegar rauðátuflekkirnir höfðu gengið sér til húðar hélt síldin sem leið lá til austurs og safnaðist saman á svonefndu Rauða torgi sem er um 60-100 mflur austur af landinu. Þar hélt hún sig fram til áramóta þegar hún snéri heim til Noregs. Sagan af því hvernig íslendingar uppgötvuðu norsk-íslensku síldina fyrst er nokkuð kyndug. Birgir Sig- urðsson greinir frá því hvemig þetta vildi til í bók sinni Svartur sjór af síld. Árið 1935 hafði Ámi Friðriks- son, fiskifræðingur.um hríð veitt því athygli að mikið magn af síld var fyrir Norðurlandi á sumrin. Honum var Ijóst að íslensku stofnarnir tveir, vorgotssíldin og sumargotssfldin, væru ekki það stórir að þeir gætu verið þama selskapslausir á ferð. Eðlilegast þótti Árna að álykta að öll þessi síld hefði vetursetu við suð- urströndina en var hins vegar fyrir- munað að hafa upp á henni þrátt fyrir víðtæka leit. Um haustið var Ami hins vegar á siglingu á Atlants- hafi og hafði ýtt þessari áleitnu ráð- gátu frá sér. Skyndilega laust skýr- ingunni niður í huga hans síst þegar hennar var að vænta. Á þessu augna- bliki er Ámi almennt álitin hafa gert eina byltingarkenndustu uppgötvun á síldargöngum í Atlantshafi sem um getur. Tilgáta Áma um að hér væri norsk síld á ferð var af erlend- um starfsbræðrum hans talin fráleit. Það var ekki fyrr en löngu síðar að á hana voru færðar sönnur. Bylting i sildveidum Íslandssíldin var meginuppistaðan í síldveiðum við ísland og nýsköpun í atvinnulífi eftir stríð byggðist að verulegu leyti á miklum væntingum til síldveiða. Á árunum 1950-60 var veiðin á Íslandssíldinni stöðug og fór aldrei yfir 50 þúsund tonn á ári. Strax upp úr 1960 varð hins vegar bylting í sfldveiðum íslend- inga.Tæknin lét enn til sín taka. Undir lok sjötta áratugarins komu fiskleitartæki til skjalanna. Fyrir daga þeirra var einungis unnt að veiða síld sem óð í torfum við yfir- borðið. Reyndar er hermt að aflaklær þess tíma hafi stuðst við ferðir múkk- ans, svartbaksins eða kríunnar til að hafa upp á síldinni ef þær notuðu hreinlega ekki eigið nef. Slíkar að- ferðir taka þó seint tækninni fram því leitartækin gerðu bátum kleift að fínna fískitorfur neðansjávar. Önnur undraafurð frjósamrar tæknilegrar hugsunar var kraft- blökkin sem leysti handaflið af hólmi við að draga inn nótina. Guðmundur Þórðarson RE 70 varð fyrsta hefð- bundna fískiskipið í heiminum til að nota kraftblökk við síldveiðar. Ár- angurinn lét ekki á sér standa. Bát- amir urðu mun fljótari í ferðum og gátu veitt og ferðast við margfalt erfiðari veðurskilyrði en áður. Auk þess var unnt að ná miklu stærri köstum þar sem nótin var dregin með vélarafli. Öfundin brann á brún- um erlendra skipstjóra. Oft höfðu síldveiðar verið stórbrotn- ar en kraftblökkin og leitartækin stuðluðu að þvílíkri kúvendingu afla- bragða að það tímabil sem fór í hönd er yfir alian samanburð hafið. Grunn- urinn hafði verið lagður að mikilfeng- Iegustu aflabrögðum sem um getur í fiskveiðisögu Islands. Allsherjar sildarfylleri Á árunum 1961-67 er ekki ofsögum sagt að síldin hafi verið nær einráð í íslensku efnahagslífí. Þjóðin lifði fyrir síld. Heildarsíldaraflinn var kominn upp í ríflega 770 þúsund tonn árið 1966. Verðmæti síldarinnar nam þetta ár 44% af heildarútflutn- ingsverðmæti sjávarafurða. Tækninýjungar höfðu stuðlað að því að síldveiðum sem löngum höfðu byggst á óskhyggju virtust nú engin takmörk sett. Síldarskipum fjölgaði ört samhliða því sem þau stækkuðu. Árið 1960 voru fjörutíu og sjö skip yfir 100 lestir. Sex árum síðar voru þau orðin 166, þar af 130 yfir 150 lestir. Það var ekki nóg með að sókn- in væri efld heldur höfðu þessir fræ- knu sigrar sægarpanna einnig áhrif á vinnsluna í landi. Byggðar voru nýjar síldarverksmiðjur og aðrar end- urbættar og stækkaðar. Þá voru síld- arplön reist. Fólk vann eins og það ætti lífið að leysa. Næg vinna var fyrir álla og fólk vissi vart aura sinna tal. Síldarpeningar flæddu um þjóð- félagið og hrintu af stað stórfelldum fjárfestingum fyrirtækja og einstakl- inga. Gjaldeyrisöflun varð sífellt háð- ari síldveiðum og allskonar atvinnu- starfsemi og þjónusta fékk byr undir báða vængi. Þensla á öllum sviðum. Kaupgeta almennings jókst og um leið verðbólgan. Fólk fjárfesti hvert í kapp við annað. Sjómenn og síldar- kóngar fóru vitanlega í bijósti fylk- ingar á þeim vettvangi. Engu var til sparað.Fólk kepptist við að sanka að sér veraldlegum eigum. Það var engu líkara en endir alheims væri á næstu grösum slík voru lætin. Þjóðin var komin á allsheijar síldarfyllerí. Slagsíða var komin á sjávarútveginn sem hallaðist allur til sfldveiða. Toga- raútgerðin galt afhroð, allir bestu sjó- mennimir voru komnir á síld. Síldar- afli meira en tvöfaldaðist frá árinu 1961 til ársins 1966. Ekki var nóg með að hver sumarvertíðin af annarri gengi upp heldur stuðluðu aukin tækni og fræknari floti að því að hægt var að hefja haust- og vetr- arsíldveiðar í umtalsverðum mæli. Miðstöð vinnslunnar var á Austfjörð- um þar sem verksmiðjur spmttu upp eins og gorkúlur til að anna eftir- spum. Þegar sumarvertíðinni lauk tók Rauða torgið við og það var gjöfult, sannarlega gjöfult. Sovétmenn sóttu þessi mið austur af landinu í stórum stfl á haustin og oft var gmnnt á hinu góða þessara tveggja síldveiði- risa í millum. Ekki kastaðist þó í kekki svo í frásögur væri færandi. Sildarglampi i augum Austfiröinga Helstu bækistöðvar síldarsöltunar höfðu iengi verið á Norðurlandi. Siglufjörður var þar fremstur í flokki. Einungis Reykjavík hafði staðið bæn- um framar í framleiðsiu útflutnings- verðmæta frá byijun fyrri heims- styijaldar og fram til ársins 1948. Siglfírðingar höfðu lifað á síld og engu öðru allar götur frá því upp úr aldamótum. Aðrar atvinnugreinar höfðu verið látnar liggja milli hluta. Ákvörðun stjórnvalda eftir seinna stríð um að leggja ríka áherslu á síldveiðar fékk Siglfírðinga til að dansa um stræti og torg. Síldin í sjónum var forsenda alls. Bjartsýnin réð ríkjum, framkvæmdir voru mikl- ar og fólk streymdi til bæjarins. Mörgum hefur hins vegar orðið hált á því að stóla alfarið á síld. Hverflyndið er henni í blóð borið og Siglfirðingar ekki einir um að verða fyrir barðinu á því. í upphafí sjötta áratugarins var svo komið að síldin var nánast horfín. Sú litla síld sem til spurðist var fyrir austan Mel- rakkasléttu sem þýddi að hún kæm- ist ekki óskemmd til Siglufjarðar til söltunar. Skip brugðu því á það ráð að landa í auknum mæli á Raufar- höfn. Saltendur voru knúnir til að flytja starfsemi sína austur á bóginn. Siglufjörður var vængbrotinn bær og á brast fólksflótti sem ekki sá fyrir endann á næstu tvo áratugi. Þegar sfldin snéri aftur á öndverð- um sjöunda áratugnum vænkaðist hagur Siglufjarðar þó að nýju. Hlut- ur bæjarins í verkun síldar hafði þó minnkað verulega. Nú voru það bæir á Austfjörðum sem voru í brenni- depli. Mest voru afköstin á Neskaup- stað og Seyðisfírði en smærri bæir létu sitt ekki eftir liggja. Síldin flæddi yfír Austfirði og allir sem vettlingi gátu valdið voru virkjaðir til söltun- ar. Austfirðingar sigldu seglum þöndum inn í framtíðina. Uppbygg- ing var hröð og stórtæk, síidin var dálæti allra. Blikur ó lofti íslendingar biðu vorkomunnar með uppbrettar ermar árið 1967. Síldinni skyldi ausið á land sem aldrei fyrr. SJÁ BLS. 12 I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.