Morgunblaðið - 12.06.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.06.1994, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Stoltur af Framsóknar í nýju hlutverki STEINGRÍMUR Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins undanfarin 15 ár, forsætisráðherra til sjö ára og ráðherra samtals í 13 ár, hefur um mánaðar skeið gegnt nýju hlutverki sem einn þriggja bankasljóra Seðlabanka Islands. Hann þarf á degi hveijum að fara í gegnum reiðinnar býsn af skýrsl- um og hyggst á næstunni tölvuvæðast til þess að geta sinnt því hlutverki betur. eftir Agnesi Bragadóttur. Ljósmynd/Kristinn GLÆSTUM stjómmálaferli Stein- gríms Hermannssonar lauk þann 1. maí sl. þegar hann sagði af sér þingmennsku og formennsku í Framsóknarflokknum og settist í stól bankastjóra Seðlabanka ís- lands. Steingrímur hefur haft af- skipti af stjórnmálum í rúma þijá áratugi, hann sat á Alþingi 123 ár, var formaður Framsóknar- flokksins í 15 ár, ráðherra í ríkis- stjómum íslands í tæp 13 ár, þar af forsætisráðherra í sjö ár. Stein- grímur er síður en svo sestur í helgan stein, þótt stjórnmálaþátt- töku hans sé lokið. Hann telur að Seðlabanki íslands hafi mikilvægu hlutverki að gegna, geti bætt við sig þýðingarmiklum verkefnum o g eigi að taka þátt í að móta efnahagsmál með ákvörðunum og aðgerðum hér á landi, í náinni samvinnu við ríkisstjórn hveiju sinni. Þótt Steingrímur hafí ákveðnar skoðanir á hlutverki Seðlabankans, þá er það ekki aðal- umræðuefni okkar í því samtali sem hér fer á eftir, heldur lítur hann um öxl og ræðir þróun þjóð- mála undanfama áratugi, breyt- ingu sem átt hefur sér stað í stjómmálum hér á landi, axarsk- öft og ávinning stjómmálamanna, samstarf við einstaka stjórnmála- menn og fleira. teingrímur, hvað hefur helst breyst í stjómmái- um hér á landi frá því að þú hófst afskipti af þeim fyrir rúmum þrem- ur áratugum? „Eg er ekki viss um að svo miklar breytingar hafi orðið á stjórnmálunum sem slíkum á þessu tímabili, en breytingar á efnahag- og þjóðmálum almennt hafa hins vegar orðið gífurlegar og allri um- gjörð stjórnmálanna. Eiginlega var það fyrir slysni sem ég hóf afskipti af stjómmálum, þegar ég árið 1962 var kjörinn formaður ungra fram- sóknarmanna í Reykjavík. Það var á ámm Viðreisnarstjómarinnar og þá vom deilur mjög harðar á milli and- stæðinga viðreisnar og stjómarflokk- anna. Baráttuhugurinn í ungu fólki í stjómarandstöðunni á þessum ámm var gífurlega mikill, stjórnmálafundir þess vom gjarnan þannig að troð- fulit væri út úr dyrum og áhuginn mjög almennur. Skil voru skarpari í pólitíkinni þá en nú, andstæður skýr- ari og þar af leiðandi átökin á milli fylkinga mun harðari en mér virðast þau vera í dag. Síðari árin hefur mér virst að þótt töluvert af áhugasömu og góðu ungu fólki hefji afskipti af stjómmálum í öllum flokkum sé almenn þátttaka og þessi logandi áhugi miklu minni í dag en segjum fyrir þrjátíu ámm. Þetta er miður, að mínu mati, því að vissu marki verða stjórnmálin ekki jafn lifandi og áhugaverð, þegar blossann vantar hjá unga fólkinu. Breytingarnar í efnahagsmálum á þessu tímabili hafa hins vegar orðið gífurlegar á þessum áratugum. I raun má segja að þjóðin hafi verið fátæk fyrir nokkmm áratugum. Við vomm að taka okkar fyrstu skref til þess að eignast fiskveiðilögsöguna. Áttundi áratugurinn hefur oft verið nefndur „Framsóknaráratugurinn“ og ég er stoltur af þeirri nafnbót. Það var mjög ánægjulegur tími, þeg- ar landhelgin hafði verið færð út í 200 sjómflur 1974 og sá mikli hugur sem var í mönnum að nýta þá land- helgi. Þegar menn nú tala digurbarka- lega um það, að menn hafi gert óhemju fjárfestingarmistök á þessum ámm, þá segi ég að þetta séu menn sem ekki setja sig í fótspor þessara dugmiklu sjómanna og athafna- manna, sem vildu nýta þessa miklu auðlind, fiskimiðin. Eitt af mínum fyrstu verkum, eftir að ég varð sjáv- arútvegsráðherra, var að heimila endurnýjun á Guðbjörginni á ísafirði og það var deilt mikið á mig fyrir það. Ég hygg að sú ákvörðun mín hafi verið eitt af mínum betri verk- um, því Guðbjörgin er búin að færa í búið margfalt það sem hún kostaði." Allir bera vissa ábyrgð — Það hefur nú gjarnan verið deilt á sjávarútvegsráðherra fyrir að fara ekki að ráðum fiskifræðinga og heimila meiri þorskveiðar en þeir hafa lagt til. Er ekki um visst ábyrgð- arleysi að ræða, þegar um jafn þýð- ingarmikla auðlind er að ræða og þorskstofninn, að heimila meiri þorskveiðar en vísindamennirnir mæla með? „Ég minni á, að á þessum árum var því spáð, að jafnvægisafli á þorski á íslandsmiðum yrði á milli 360 og 380 þúsund lestir. Menn trúðu þessum spám. Hveijum er það að kenna, að svo hefur ekki reynst? Ég ætla ekki að kenna fiskifræðingun- um um það eða athafnamönnunum. — En stjórnmálamönnunum? „Auðvitað bera allir vissa ábyrgð í þessum efnum. Áttu stjórnmála- mennimir að stöðva hina dugmiklu athafnamenn þegar þeir byggðu upp of stóran flota? Varla samræmist það frelsinu sem menn tala nú um. Stjómmálamennirnir hafa eflaust nokkuð freistast til þess að fara við ákvörðun fískveiðiheimilda nokkuð umfram það sem fiskifræðingar lögðu til, en smám saman hafa stjómmálamennirnir verið að færa sig nær tillögum fiskifræðinganna og draga úr veiðum. Ekki má heldur gleyma því að á meðan fylgt var sóknarmarki við stjórn fiskveiða var afar erfitt að ráða aflamagni af ná- kvæmni. Það má ekki heldur gleyma því að stjómmálamennirnir hafa eng- in áhrif á það sem gerist í náttúr- unni og umhverfinu. Þegar sjórinn kólnar annarð slagið við íslands strendur er nákvæmlega ekkert við því að gera og slíkt er aldrei hægt að sjá fyrir. Þegar slíkt gerist verður auðvitað samdráttúr i veiðum. Núna finnst mér umhverfið orðið mjög breytt frá því sem var á ámm áður. Við fullnýtum fiskistofnana og menn geta almennt verið sammála um að frekari sókn í þá er útilokuð, þótt enn kunni að vera til ákveðnir stofnar á fjarlægari miðum sem ekki eru fullnýttir. Vonandi kemst þorsk- urinn upp í þann jafnvægisafla, sem áður var talað um, þótt maður sé nú heldur svartsýnn á að það verði í bráð. Framhaldshagvöxtur hér á landi hlýtur því að byggjast á öðru, en þeirri markvissu og hörðu uppbygg- ingu sem varð hér eftir að við eignuð- umst 200 mílna fískveiðilögsögu fyr- ir 20 ámm. Vitanlega er það svo, að það er alltaf hægt að vera vitur eftir á og gagnrýna og dæma af óbilgirni það sem gert hefur verið. Mér fínnst til dæmis með ólíkindum, að ákveðnir hagfræðingar hafa haldið því fram, að hér hafi verið gerðar óhemju vit- leysur, með því að fella gengið, á undanfömum áratugum. Hvað hefði gerst ef þessum krepp- um sem skullu yfír, kannski vegna kólnandi sjávar eða markaðshruns erlendis, hefði ekki verið mætt með því að aðlaga gengið. Gengisfelling er ekkert annað en viðurkenning á orðnum hlut með tilfærslu á fjármun- um frá launþegum til atvinnuveg- anna. Hún erjafnframt viðurkenning á því að í góðæri höfum við haft til- hneigingu til þess að spenna launin hærra en við var ráðið í samdrætti. Ef við hefðum ekki fellt gengið, þá hefði hér orðið blæðandi fiak um land allt. Fyrirtækin hefðu farið á hausinn, atvinnuleysi breiðst út og svo framvegis. Nú er rætt um að lánastofnanir séu að afskrifa gríðar- legar fjárhæðir sem auðvitað er mjög alvarlegt mál, en það má líka velta því fyrir sér, hversu miklar afskrift- irnar hefðu orðið ef genginu hefði verið haldið föstu. Ég er ansi hrædd- ur um að það hefðu orðið ærið marg- ir milljarðatugir, reiknað til núvirðis. Menn notuðu þau tæki sem voru aðgengileg til þess að brúa erfiðleika- tímabilin og gera þjóðinni eins létt og mögulegt var, að komast í gegn um þau, svo unnt reyndist að halda áfram markvissri uppbyggingu og stuðla að batnandi lífskjörum. Því fínnst mér erfitt að áfellast þá sem stóðu að ákvörðunum sem þessum. Þó að ég væri mjög andvígur Við- reisnarstjórninni, þá áfellist ég hana ekki, því hún gerði margt gott. Ég tel að hveijir sem hafa verið við stjórnvölinn hveiju sinni, þá hafí þeir alltaf viljað gera sinni þjóð það besta og hafi notað þau ráð sem aðgengilegust voru og þau tæki sem þeir höfðu yfir að ráða.“ Allir gera mistök — Engu að síður, þegar þú horfir um öxl koma þá engin meiriháttar axarsköft upp í hugann sem hafa reynst þjóðinni dýrkeypt, þegar á heildina er litið? Þar á ég ekki bara við allt of stóran fiskiflota íslend- inga, heldur einnig við loðdýrarækt og hvernig þar hefur tekist til, fisk- eldi og landbúnaðarpólitík. „Ollum verða á mistök í stjórnmál- um. Annað er útilokað. Það er mjög í tísku um þessar mundir að tala um mistök í landbúnaðarmálum og ein- att af mjög miklu skilningsleysi. Ég held að það sé óhemju mikils virði að geta framleitt í landinu það sem við þurfum og getum framleitt af landbúnaðarvörum, jafnvel þótt verð- ið sé eitthvað hærra. Við vöknuðum ekki nógu snemma upp við þá stað- reynd að útflutningur landbúnaðar- afurða var að verða mjög erfiður, fyrst og fremst vegna mikilla niður- greiðslna erlendis og erfiðrar sam- keppni. Eitthvert skemmtilegasta tímabil mitt í stjórnmálum fannst mér vera þegar ég var landbúnaðarráðherra árin 1978-79. Þá fór ég um allt land og hélt fundi með bændum, þar sem ég boðaði það, sem Halldór E. Sig- urðsson hafði fyrstur vakið athygli á, að við yrðum að breyta fram- leiðsluráðslögunum og draga úr út- flutningi. Í kjölfar þess var smávegis dregið úr landbúnaðarframleiðslu, en því miður var þessu síðan kippt til baka í landbúnaðarráðherratíð Pálma Jónssonar, 1980 til 1983. Mér líkaði afar vel að starfa með Pálma, en líklega hefur hann sem sauðfjár- bóndi viljað draga úr þeim erfiðleik- um, sem svona samdráttur olli sauðfjárbændum, og lagði því áherslu á að auka útflutning. Ég held að landbúnaðurinn væri í allt annarri stöðu í dag ef miklu fyrr hefði verið ráðist í að aðlaga hann breytingum og draga úr fram- leiðslunni. Ég flokka það undir meiri- háttar mistök að hafast ekki að miklu fyrr. Landbúnaðarforystan greip á sín- um tíma fegins hendi við loðdýra- ræktinni, sem lofaði mjög góðu á árunum 1978-79, því skinnaverð var þá mjög hátt. Einnig þar gerðum við mikil mistök, því við fórum ekki að ráðum skoskra sérfræðinga, að byggja hér upp loðdýrarækt mjög hægt og koma okkur upp varasjóðum í greininni. Þeir lögðu til að hér yrðu reist fjögur til fímm loðdýrabú á ári og að stofnlánadeildin lánaði ekki til fleiri búa. Þegar skinnaverðið hækk- aði upp úr öllu valdi árið 1979 fór þetta alit úr böndum, því allir sáu gull í annars garði, ef svo má að orði komast, og búin voru orðin á milli 70 og 80 á tveimur eða þremur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.