Morgunblaðið - 12.06.1994, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ1994 23
skildum þeirra vandamál og þess
vegna litu þeir til okkar sem vorum
í svipaðri stöðu. Þannig höfum við
verið fyrirmynd annarra enda tek-
ist að skapa nútímalegt farsældar-
ríki á lýðveldistímanum, þrátt fyrir
fámennið. Það kann að fara fyrir
bijóstið á einhveijum hve stolt við
erum af landinu okkar og þessum
árangri, en aðalatriðið er að við
höfum ekki og megum aldrei of-
metnast og ekki gleyma þýðingu
sjálfstæðisins og þrotlausri baráttu
forfeðra okkar.
Einstaks atburðar minnst
Ég tel að það flokkist ekki und-
ir sérstakan þjóðrembing þótt hald-
ið sé myndarlega upp á fimmtíu
ára lýðveldisafmæli þjóðar. í vit-
und íslensku þjóðarinnar eru slíkar
hátíðir á Þingvöllum sjálfsagðar
og eðlilegar. Þær gera það að verk-
um að þjóðin er sýnilegri sjálfri
sér. Ekki síst var eðlilegt að stofna
lýðveldið á Þingvöllum árið 1944.
Þess einstæða atburðar minnumst
við nú 17. júní.
Ég hvet alla landsmenn sem
hafa tækifæri til þess að koma til
þjóðhátíðarinnar á Þingvöllum 17.
júní n.k. Ekki síst hvet ég foreldra
til þess að fara með böm sín, ég
veit af eigin reynslu að endurminn-
ingin um að hafa tekið þátt í svona
hátíð á unga aldri er dýrmæt
seinna. Fólki verður gert auðvelt
að komast til Þingvalla. Umferðin
hefur verið skipulögð þannig að
mjög auðvelt verður að komast
austur úr og svo aftur heim. Enn
þægilegra verður að fara með rútu
til Þingvalla. Leigðar hafa verið
hundrað rútur til þess að annast
flutning fólks á þjóðhátíðina gegn
vægu gjaldi. Gert er ráð fyrir að
fólk geti tjaldað þar eystra ef það
óskar eftir því.
Þær raddir hafa heyrst að bíða
hefði mátt með hátíðarhöld sem
þessi þar til lýðveldið næði 100 ára
aldri. Það hefði verið mjög misráð-
ið ef slíkt hefði gerst, þá hefði
ekki náðst að tengja saman frá-
sagnir kynslóðanna.
Sjálfur var ég á Þingvöllum árið
1944, þá tólf ára gamall, og er
ásamt öðrum sem þar voru ungir
til frásagnar yngra fólki um hvem-
ig þau hátíðarhöld fóm fram. Ég
kom ofan úr Borgarfírði, þar sem
ég var í sveit, til þess að fara með
foreldrum mínum á Þingvöll. Þar
var grenjandi rigning og stormur,
þó minnist ég þess fremur þegar
ég stóð fyrir neðan þingpallinn og
forseti Alþingis, Gísli Sveinsson,
lýsti yfir gildistöku stjómarskrár
Lýðveldisins íslands og skeytið frá
Kristjáni konungi X. var lesið upp.
Ég met það svo að kynslóðabilið
væri alltof stórt ef við minntumst
ekki afmælis lýðveldisins nema
með hundrað ára millibili. Ég á
dótturson sem er að verða ellefu
ára. Hann hefur í vetur vegna lýð-
veldisafmælisins lært í skólanum
ýmislegt sem lýtur að íslenskri
menningu og ætlar að fara á Þing-
völl. Hann og önnur ungmenni sem
koma til hátíðarhaldanna á Þing-
völlum þann 17. júní nk. verða
vonandi til frásagnar um þá hátíð
þegar aldarafmæli lýðveldisins
verður minnst árið 2044. Þannig
tengjum saman við fortíð, nútíð
og framtíð.
íslendingar þurfa að standa sam-
an, nú ekki síður en áður. íslending-
ar vora lengi búnir að þrá sjálf-
stæði. Allir börðust með, ekki síst
með því að varðveita okkar gamla
og sérstæða tungumál. Sú stað-
reynd að þetta tókst hafði ábyggi-
lega mikla þýðingu fýrir sjálfstæð-
Átak um skrásetningu á sendibréfum
eftir Kjarval og Ásmund Sveinsson
Vegna átaks um varðveislu heimilda um íslenska
listasögu fara Kjarvalsstaðir og Ásmundarsafn
þess vinsamlegast á leit við eigendur sendibréfa
frá listamönnunum Jóhannesi S. Kjarval og
Ásmundi Sveinssyni, að fá aðgang að þessum
sendibréfum til skrásetningar.
Góðfúslega hafið samband við Ásmund
Helgason á Kjarvalsstöðum í síma 91-26188.
DANMÖRK
VIKULEGA
Norræna félagið býður ódýrar ferðir
til Billund á Jótlandi alla sunnudaga á
tímabilinu 5. júnítil 14. ágúst.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu
Norræna félagsins í símum 91-10165
og 19670.
*,íín.Á
Ef bú lest aöeins
eina bók á ári ...
• Ljósmyndari úr stórborginni og bóndakona í Madisonsýslu kynnast af tilviljun
og eiga saman Ijúfsárar stundir - stundir sem eiga eftir að umturna lífi þeirra •
BRÝRNAR í MADISONSÝSLU er mest selda bók síðustu ára í Banda-
ríkjunum og var hún valin bók ársins 1993 af bandarískum bóksölum.
q Viðbrögð lesenda og gagnrýnenda hafa verið ótrúleg. Bókin er
^^ mánaðarbók júnímánaðar í bókaklúbbnum
rp Nýjar metsölubækur.
METSÖLCBÓK MÁNAÐARINS:
„Af og til kemur fram
töfrandi skáldsaga, undra-
fagur gimsteinn, saga sem
bætir upp allar venjulegar
bækur sem maður les.
BRÝRNAR í MADISON-
SÝSLU er slík saga.“
- Wash ington Post
„Þessi bók er meira en bók,
hún er galdur!“
- Þorsteinn Q. Qunnarsson, Rás 2
„ ... bræðir hvern sem er, -
jafnvel þá allra hörðustu.“
- Entertainment Weckly
„Ef þú lest aðeins eina bók á
ári þá ætti það að vera þessi.‘
Ohservc)
mt
NkM DSACAN Sf M SfTlD HEFUR í KI AIT ÁR
ETST \ MLTSÖLUISTIM VF.STAN H VFS
Kyntmi |)ér iimgöngútilhoð hokakluöhöins N’yjar metsoliihækur:
Fvrsta bókin á hálfviröi - aðeins 495 kronur
óg Fríöindakort fjölskyidunnar fvlgir með!
Hringdu strax í dag! £
Síminn er (91) 688 300 \\k\ hík.\iiu
isbaráttuna. Við ætluðum að vera
fijáls, íslensk þjóð í eigin landi sem
talaði sína eigin tungu, íslenskuna,
og það tókst. Þeirri baráttu er ekki
lokið og mun aldrei ljúka.
JKlAfgPttllMfalfrÍfr - kjarni málsins!