Morgunblaðið - 12.06.1994, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1994 35
BRÉF TIL BLAÐSINS
Nokkrar hugleiðingar um símaskrána
Hún er ekki að-
gengileg öllum
Frá Gísla Helgasyni:
í DAG, þegar ég kom heim, sá
ég að dóttir mín hafði rölt sér út
á pósthús og náð í símaskrána,
sem nú er gefin út einu sinni á
ári. Að þessu sinni er hún tvær
bækur. Fyrir tilstuðlan tölvutækn-
innar er mjög auðvelt að bæta inn
í hana nýjum númerum og þannig
er skráin auðveld í útgáfu. Fyrir
nokkrum árum fórum við að velta
því fyrir okkur hjá Blindrafélaginu
hvort ekki væri hægt að gera
símaskrána aðgengilega þeim,
sem eru sjónskertir eða blindir og
eiga aðgang að tölvum. Þess vegna
höfðum við samband við yfirmenn
Pósts og síma og reifuðum málið
við þá. Þeir kváðu sjálfsagt að
láta okkur hafa skrána ef tölvu-
nefnd með Jón Tórs í fararbroddi
samþykkti.
Beðið um skrána
í tölvutæku formi
Blindrafélagið ritaði tölvunefnd
bréf og fór þess á leit að Póstur
og sími fengi að afhenda
Blindrafélaginu eða einstaklingum
þaðan skrána á tölvutæku formi.
Tölvunefnd svaraði greiðlega og
Póstur og sími fékk leyfi til þess
að gefa út símaskrána á tölvutæku
formi fyrir almennan markað.
Undirritaður fékk til prófunar
tilraunaútgáfu síðsumars 1992 og
reyndist hún mjög aðgengileg
þeim, sem lesa blindralestur eða
nota talandi tölvur. Nokkrir fengu
að reyna skrána og bentum við á
nokkra annmarka, sem tölvunefnd
Pósts og síma lagfærði. Þá kom
að því að athuga um frekari
framkvæmd og ritaði ég fyrir hönd
Blindrafélagsins Þorvarði Jónssyni
yfirmanni fjarskiptasviðs Pósts og
síma bréf, þar sem ég fór fram á
endurgjaldslaust 12-15 eintök af
skránni á tölvutæku formi. Rökin,
sem við hjá Blindrafélaginu
beittum, eru þau að aðrir
símnotendur, sem hafa sjón, fá
símaskrána endurgjaldslaust eða
kaupa hana á vægu verði.
Þorvarður brást mjög vel við mála-
leitan okkar og þar með töldum
við málið í höfn. Þorvarður benti
mér á að tala við starfsmann sinn
varðandi þetta.
Beiðninni synjað
Það var á föstudegi, sem Þor-
varður tilkynnti þessi gleðitíðindi.
Strax eftir helgina var haft sam-
band við viðkomandi starfsmann.
Hún tjáði mér að Þorvarður, æðsti
yfirmaður fjarskiptamála Pósts og
síma, hefði enga heimild til slíkra
hluta og þetta yrði að fara fyrir
gjaldskrárnefnd. Mér þótti undar-
legt hvað þessi ágæta kona var
hvöss og kuldaleg, fékk reyndar
hnút í magann þau skipti, sem ég
þurfti að eiga samskipti við hana.
Gústaf Arnar tók við málinu og
eftir fund á vegum gjaldskrár-
nefndar bauð Póstur og sími
skrána á helmings afslætti, þ.e.
25 þús. krónur, en símaskráin átti
að kosta 50 þús. krónur á almenn-
um markaði. Þessu vildum við
ekki una og í marsmánuði á síð-
asta ári gengum við Halldór Rafn-
ar framkvæmdastjóri Blindrafé-
lagsins á fund samgönguráðherra
með ályktun frá félagsfundi
Blindrafélagsins, þar sem þess var
eindregið farið á leit að sjónskert-
ir tölvunotendur fengju aðgang
að skránni eins og hveijir aðrir
símnotendur. Það tók tvo mánuði
fyrir samgönguráðherra að senda
Blindrafélaginu neitun, enda
mætti hann ekki sjálfur á fundinn,
kom of seint í ráðuneytið þennan
dag, svo að ágætur aðstoðarmaður
hans sá um það. Með svari ráð-
herra fylgdi bréf frá Pósti og síma,
undirritað m.a. af áðurnefndri
konu, var þess getið að eðlilegt
væri að almannatryggingar þessa
lands greiddu símaskrána niður til
blindra og sjónskertra. Þess var
og getið að blint og sjónskert fólk
hefði hvort sem er frí afnotagjöld
af símum. (Umframskrefin eru
greidd að fullu. Aðeins nokkur
hluti sjónskertra nýtur þessa.)
Okkur fannst einhver hótunartónn
í bréfinu og þar gætti ekki þeirrar
ljúfmennsku, sem við höfðum átt
að venjast af hálfu þeirra aðila,
sem við höfðum haft samband við
að hálfu Pósts og síma. Þar við
situr enn, að þeir, sem eru sjón-
skertir, þurfa að kaupa síma-
skrána á tölvutæku formi á 25.
þús. krónur.
Það sama gildir ekki
fyrir alla
Fyrir nokkrum dögum hafði
samband við mig mjög sjónskert
stúlka, sem hafði ráðið sig í starf
við innheimtu í gegnum síma og
tjáði mér að Póstur og sími hefði
neitað að selja henni símaskrána
á helmingsafslætti, þar sem nokk-
ur fyrirtæki hefðu misnotað hana
gróflega og notað hana til þess
að senda út gögn eftir heimilis-
föngum. Okkur hjá Blindrafélag-
inu var mjög brugðið og fengum
við þetta staðfest nú í morgun,
7. júní. Þar með er líklega girt
fyrir að þessi stúlka geti sinnt
starfi sínu eðlilega, þar sem hún
hefur ekki aðgang að neinum, sem
getur flett upp fyrir hana og það
kostar einnig peninga að hringja
í 03.
Þess skal getið að Póstur og
sími hefur komið einstaklega vel
fram við aðra þjóðfélagsþegna
vegna símaskrárinnar og annars
aðgangs að símanum. Geta má
fullkomins textasíma fyrir heyrn-
arlausa og þegar Sophia Hansen
eða réttara sagt Sigurður Pétur
Harðarson setti upp skrifstofu til
þess að vinna að málefnum henn-
ar, fékk hann fullkomna símaskrá
á tölvutæku formi, sem auðveldaði
honum og öðrum þeim, sem unnu
fyrir Sophiu, verkið.
Það er einlæg von mín að Póst-
ur og sími sýni þá velvild og rausn
að láta sjónskertu fólki í té síma-
skrána á tölvutæku formi. Sjón-
skert fólk notar líklega símann
mun meir en aðrir og eru því
tryggir viðskiptavinir Pósts og
síma. Það er óeðlilegt að mismuna
fólki og refsa því með fötlun sinni
á öld tækninnar.
GÍSLI HELGASON,
Reynimel 22, Reykjavík.
NYJA SENDIBÍIASTÖDIN
685000
Þiónusta ú þinum vegum
GREINARHÖFUNDUR segir símaskrána ekki aðgengilega sjónskertum í því formi sem hún er send
símnotendum, en tölvutækt form henti þeim betur. Það sé hins vegar allt of dýrt.
eé
Góðar
flréttir
Atlasldúbbnum
um verð á sumarferðum
afsláttur á mann!*
Handhöfum ATLAS-korta og
gullkorta Eurocard stendur nú til
boða 5.000 kr. afsláttur á mann í
sérstakar ferðir sem taldar
eru upp hér til hliðar. Nánari
upplýsingar fást á viðkomandi
ferðaskrifstofum. Brýnt er að
korthafi geri grein iyrii' sér strax
við pöntun - til að tryggja sér
og sínum afsláttinn!
\nk fless ítildir 4000 kr.
alslállará\ísiinin sem
\TL \S- og giillkoi Uialar fá.
Þannig getur aðild að Atlasklúbbnum sparað hjónum
samtals 14.000 kr. og séu börnin tvö (12 ára eða eldri)
sparar fjölskyldan samtals 24.000 l4T. Það munar um minna!
Med ATLAS-kortinu færð þú ýmis fríðindi,
aukna þjónustu og fjölda tilboða.
Hlboðsferðirnar hér að ofan eru aðeins lítið sýnishorn af fjölmörgum kostum
ATLAS-kortsins. Að auki má nefna víðtæka tryggingavernd, aðgang að
kortasíma Eurocard, rýmri greiðslukjör og spennandi Bónusferðir sem
heppnir korthafar eiga kost á að kaupa fyrir aðeins 30 kr. hverja ferð!
\ú er rélli tíminn
til að fá sér ATIAS
kreditkort.
ATLAS nýtur serkjara!
KREDITKORT HF. • ÁRMflA 28 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI: (91) 68 54 99
Dagsclllillg: ■ Áfangaslaður: Fcrðaskrifstofa:
19. )úní Bandaríkin, Suðurríkin Ferðaskrifstofa stúdenta
22. júní Benidorm Ferðaskrlfstofa Reykjavíkur
27. júní Mallorca Úrval-Útsýn
27. júnf Isiand, tjaldferð Ferðask. Guðm. Jónassonar
28. júní Mallorca. Cala d'Or Samvinnuferðir-Landsýn
7. júií Benidorm Samvinnuferðir-Landsýn
13. júlí Benidorm Ferðakrifstofa Reykjavíkur
15. ágúst ísland, tjaldferö Ferðask. Guðm. Jónassonar
4. sepl. Bandaríkin, nýlendurnar Ferðaskrifstofa stúdenla
*Gildir fyrir fjölskyldumeðlimi 12 ára og cldri,
börn yngri en 12 ára njóta barnaafsláttar.
HVÍTA HÚSID / SÍA