Morgunblaðið - 12.06.1994, Blaðsíða 48
MORGUNBLADID, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Rekstrar-
bati
hjáísal
„ÍSAL mun skila hagnaði á þessu
ári,“ segir dr. Christian Roth for-
stjóri íslenska álfélagsins hf. „Það
verður enginn stórgróði, en þetta er
þróun í rétta átt.“ Eldri spár gerðu
ráð fyrir um 550 milljóna króna
halla á rekstrinum í ár og hagnaði
á næsta ári. Undanfarin þijú ár
hefur félagið tapað um þremur millj-
örðum króna.
Batnandi horfur rekur dr. Roth
fyrst og fremst til hækkandi heims-
markaðsverðs á áli auk ýmissa hag-
ræðingaraðgerða sem nú eru að skila
■ Álver í aldarfjórðung/20-21
■»..♦..■»
Svíar gera
við Hágang
Vopnafirði. Morgunblaðið.
VIÐGERÐ er hafín á togaranum
Hágangi I í Harstad í Noregi. Sænsk-
ir aðilar frá Kiruna tóku að sér að
""gera við gírinn, en skipasmíðastöðin
í Harstad, sem hafði áður tekið að
sér verkið, féll frá þeirri ákvörðun
eftir þrýsting frá samtökum sjómanna
og útgerðarmanna í Nordland.
--------»--».♦--
Sprengju-
hótuná
flokksþingi
ÍÞRÓTTAHÚSIÐ í Keflavík var
rýmt um kl. 14.15 í gær, eftir að
hringt var til lögreglunnar og sagt
að sprengja væri í húsinu, þar sem
flokksþing Alþýðuflokksins stóð yfir.
Lögreglan lokaði húsinu eftir að
það hafði verið rýmt og kallaði til
sprengjusérfræðinga Landhelgis-
gæslunnar. Þeir komu á vettvang
um kl. 15 og leituðu í húsinu. Leitin
stóð enn yfir þegar Morgunblaðið
fór í prentun.
Morgunblaðið/J6n Páll Ásgeirsson
Lotta
í veiðihug
MIKIÐ er um mink í Akureyjum
í Helgafellssveit og er lagt kapp
á að ná honum áður en varp kemst
þar á skrið, því minkurinn gerir
mikinn usla í æðar- og lunda-
varpi. Guðmundur Jensson
minkabani náði læðu og yrðling-
um hennar fyrir skömmu og hafði
~"Jíi.ður náð stegg. Á myndinni er
tíkin hans, Lotta, með einn mink-
anna í hvoftinum.
Fyrstu Islandssíldinni landað á Neskaupstað eftir 27 ára bið
Morgunblaðið/Kristinn
ÞAÐ VAR handagangur í öskjunni á Neskaupstað í gær er síldarlöndun hófst þar. Eftir langa bið er silfur hafsins nú farið að berast
að landi á ný og ríkir mikil bjartsýni um nýtt síldarævintýri víða um land.
Nýtt ævintýri í uppsiglingu?
MIKIL bjartsýni ríkir nú á Norðfirði eftir
löndun fyrstu Íslandssíldarinnar í 27 ár. Rúm
tvö þúsund tonn komu á land hjá Síldarvinnsl-
unni á Neskaupstað í gær, laugardag, fyrsta
daginn sem landað var. Arnþór EA 16 lagð-
ist fyrstur báta að bryggju í morgunsárið
með um 300 tonn. I kjölfarið fylgdu Þórsham-
ar með 600 tonn og Börkur með 1150 tonn.
Til stóð að salta brot aflans eftir hádegi
en síldarmatsmenn voru komnir austur til
að meta gæði hans. Að megninu til átti síld-
in þó að fara í bræðslu. Að sögn Tilkynninga-
skyldunnar voru átta bátar annað hvort lagð-
ir af stað eða þegar komnir á miðin norðaust-
ur af landinu á hádegi í gær og gert er ráð
fyrir að fleiri bætist við næstu daga. Síldin
er stór og vel á sig komin miðað við árstíma
og í henni er mun minni áta en sýnishorn
það sem hafrannsóknaskipið, Bjarni Sæ-
mundsson, landaði eystra gaf til kynna. Síld-
in fékkst um 210 mílur frá Langanesi.
■ Nú verður brætt/8
■ Silfuræðið/10
Úrskurðað um lögbannskröfu nýs meirihluta stjórnar Stöðvar 2
Þrjár milljónir króna
til tryggingar lögbanni
NÝR meirihluti innan stjórnar Stöðvar 2 lagði í gær fram kröfu um lögbann
á þá ákvörðun fráfarandi meirihluta að selja þremur aðilum 20% hlutafjár-
eign Stöðvar 2 í Sýn. Búist var við að úrskurður sýslumannsembættisins
um lögbann lægi fyrir síðdegis í gær, en nýi meirihlutinn lagði fram þriggja
milljóna króna tryggingu. Höfða verður mál til staðfestingar lögbanninu
innan viku, annars fellur það sjálfkrafa niður.
Ætla má að tiigangur fráfarandi
meirihluta með sölu hlutabréfanna
tii aðila innan hópsins hafi verið að
styrkja samningsstöðu sína gagn-
vart nýjum meirihluta.
Sigurður G. Guðjónsson, lögmað-
ur og varamaður Jóns Ólafssonar í
stjórn Stöðvar 2, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að fyrir stjórn-
arfundinn á föstudag hefði ekki ver-
ið kynnt að til stæði að ræða sölu
á hlutabréfunum í Sýn, en það væri
meginregia að kynna stjórnarmönn-
um fundarefni fyrirfram, svo þeir
hefðu ráðrúm til að bregðast við.
Sigurður sagði að núverandi meiri-
hluta hefði rennt í grun að fráfar-
andi meirihluti myndi reyna að gera
Siguijóni Sighvatssyni einhvern
grikk og þessi sala hlutabréfanna
hefði verið einn möguleikanna. Þeg-
ar hann hafi komið til fundarins á
föstudag hafi hann því verið með
tilbúið bréf, þar sem farið var fram
á að salan yrði rædd á hluthafa-
fundi, sem ákveðið hefur verið að
verði haldinn 8. júlí næst komandi.
Sigurður sagði að ef stjórn væri
komin í minnihluta innan hlutafélags
mætti hún ekki aðhafast neitt það
sem skaðað gæti félagið. Hlutafé í
Sýn er 10 milljónir króna og nafn-
verð bréfanna sem seld voru því 2
milljónir. „Menn geta ekki einfald-
lega rétt sjálfum sér eignir á þennan
hátt og því fórum við fram á lög-
bannið,“ sagði Sigurður. „Hlutabréf-
in eru seld við nafnverði, en Stöð 2
borgaði á sínum tíma margfalt verð
fyrir bréfín.“