Morgunblaðið - 28.06.1994, Qupperneq 1
88 SÍÐUR B/C
143. TBL. 82. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Clinton
stokkar
upp
■ Major móti /22-23
Washington. Reuter.
BILL Clinton svaraði tíðri gagnrýni
á embættismenn Hvíta hússins með
því að stokka upp í starfsliði sínu í
gær. Útnefndi hann Leon Panetta,
sem verið hefur yfirmaður fjárlaga-
skrifstofunnar, í starf skrifstofu-
stjóra Hvita hússins í stað Thomas
„Mack“ McLarty.
í starf yfirmanns fjárlagaskrif-
stofunnar skipaði Clinton Alice Rivl-
in sem verið hefur aðstoðarmaður
Panetta.
Þá breytti Clinton starfshlutverki
ráðunautarins Davids Gergens þann
veg að hann mun sinna alþjóðamál-
um þar til hann hverfur úr starfi
um næstu áramót.
í yfirlýsingu sagði Clinton að upp-
stokkunin ætti að verða til þess að
efia þrótt stjórnarinnar og gera
starfslið Hvíta hússins tápmeira.
Hann hefur legið undir ámæli fyrir
að velja fremur gamla vini og kunn-
ingja til starfa en mikilhæfa sérfræð-
ingasveit.
Clinton sagði að Thomas McLarty
hefði sjálfur átt hugmyndina að upp-
stokkuninni. Yrði hann áfram í
starfsliðinu sem sérstakur ráðgjafi
forsetans og fengi víðtækt hlutverk;
allt frá því að þrýsta á þingmenn
um framgang mála og ná alþjóða-
ráðstefnum til Washington.
Reuter.
Eyðilegging
á Ríverunni
HUNDRUÐ manna urðu að yfir-
gefa heimili sín á frönsku Ríver-
unni í gær vegna eyðileggingar
af völdum fárviðris og flóða.
Meðal annars rofnaði járnbraut-
arlína til Ítalíu vegna flóða í
ánni Arc. Tugir þorpa urðu illa
úti en verst þó smábærinn
Auribeau-sur-Siagne sem er
skammt norðan við Cannes. Þar
björguðu þyrlusveitir eitt-
hundrað íbúum, þar af nokkrum
sem klifrað höfðu upp á húsþök
til að verða ekki undir flóði er
áin Siagne braust yfir bakka
sína. Alls eyðilögðust um þrjú
hundruð íbúðarhús og 50 bif-
reiðar sópuðust burtu með flóð-
unum. Símasamband rofnaði til
um 1.500 húsa en hvorki urðu
dauðsföll né alvarleg slys á
fólki. Myndin var tekin í Auribe-
au-sur-Siagne er veðrinu hafði
slotað í gær og virða tvær kon-
ur fyrir sér eyðilegginguna af
völdum fárviðrisins.
Dollar stöðugri
eftir methrun
London. Reuter.
DOLLARINN varð fyrir nýjum
þrýstingi í gær og fór niður fyrir
100 jen í fyrsta skipti frá stríðslok-
um, en seðlabankar bíða átekta.
í New York lækkaði dollarinn í
99,60 jen, eða meir en á þriðjudag-
inn í síðustu viku þegar hann var
lægst skráður 99,85 jen.
Aður hafði dollarinn lækkað í
Tókýó í 99,50 jen þótt Japansbanki
reyndi að styðja hann. Bandarískir
seðlabankar og fleiri seðlabankar
studdu hann á föstudaginn en áhrif-
in voru skammvinn og þeir reyndu
ekki að skerast í léikinn í gær.
Bandaríski seðlabankinn reyndi
heldur ekki að hækka skammtíma-
vexti þrátt fyrir bollaleggingar um
hvort það væri ekki auðveldasta
bráðabirgðaráðstöfunin til þess að
komast hjá algerri dollarakreppu og
tryggja nokkurn stöðugleika á verð-
bréfamörkuðum á ný.
Dollarinn stóð einnig höllum fæti
gegn þýzka markinu og sló fyrri
met á þessu ári þegar hann lækkaði
í 1,5725 mörk í gær úr 1,5850 á
föstudag.
■ Dollarinn/13
STARFSMAÐUR Japansbanka fylgist með breytingum á gengi
dollars gagnvart jeninu á gengistölvum bankans.
Þjóðverjar hverfa frá stuðningi við Dehaene í starf
forseta framkvæmdasljórnar ESB
Kohl hefur leit að
nýjum arftaka
Martens nefndur
Líklegt þótti að Þjóðveijar myndu
stinga upp á Wilfried Martens fyrr-
verandi forsætisráðherra Belgíu í
stað Dehaene. Auk hans voru nefnd-
ir Peter Sutherland framkvæmda-
stjóri GATT, Anibal Cavaco Silva
forsætisráðherra Portúgals, Uffe
Elleman-Jensen fyriverandi utanrík-
isráðherra Dana og Henning Chri-
stophersen fulltrúi Dana í fram-
kvæmdastjórn ESB.
Brussel. Daily Telegraph.
HELMUT Kolil kanslari Þýskalands hóf í gær leit að eftirmanni Jacques
Delors forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) og gaf
til kynna að hann myndi ekki lengur beita sér fyrir kjöri belgíska forsæt-
isráðherrans Jean-Lucs Dehaenes. Erlendir stjómarerindrekar sögðu að
Þjóðveijar myndu leita að manni sem öll ríkin myndu samþykkja og í
því skyni hóf Klaus Kinkel utanríkisráðherra í gær ferðalag til höfuð-
borga allra ESB-ríkjanna tólf. Leiðtogar sambandsins hafa verið kallaðir
til fundar í Þýskalandi 15. júlí til þess að kjósa eftirmann Delors, en tii-
raunir þess efnis fóru út um þúfur á laugardag er John Major forsætisráð-
herra Bretlands beitti neitunarvaldi til að koma í veg íýrir kjör Dehaenes.
Þýsk blöð gagnrýndu í gær Þjóð- leiðtogakjörinu en ekki neitunarvald
veija og Frakka með valinu á Deha- Majors. Frankfurtei- Allgemeine
ene og sögðu þýsk-franska möndul- sagði það misskilning að halda að
inn í ESB vera orsök kreppunnar í Bretar myndu hverfa frá grund-
vallarstefnu með brotthvarfi lafði
Thatchers af valdastóli. Blaðið Gen-
eral Anzeiger sagði það vera kléna
skýringu að kenna Major um að leið-
togafundurinn á Korfú fór í loft
upp. Hann „sýndi að hinn öflugi
fransk-þýski möndull getur ekki
umgengist önnur ESB-ríki án
minnstu tillitssemi. í mörgum ríkj-
anna finnst mönnum gæta óbilgirni
í þýskri utanríkisstefnu."
Nýr tónn
í gær kvað við nýjan tón. „Við
ræðum við alla aðila og setjum síðan
fram tillögu. Ég er ekki blindur og
ætla leiða málið til lykta,“ sagði
Kohl. Aðspurður hvort hann myndi
halda sig við Dehaene sagði hann:
„Svona spurningar eru tilgangs-
íausai', ég svara þeim aldrei. Enginn
innan þýsku stjórnarinnar hefur
heimild til að svara á annan veg,"
sagði kanslarinn og talið var að með
þessu svari væri hann að skensa Kin-
kel sem sagði í gær ástæðulaust að
finna nýjan mann í stað Dehaenes.
Kellogg
í Oxford
London. Reuter.
KENNARADEILD Oxfordhá-
skóla verður gefið nýtt nafn og
mun í framtíðinni nefnast Kell-
oggsdeild, í höfuðið á kornflög-
unum frægu. Þetta verður gert
í þakkarskyni við kornflögu-
framleiðandann, sem hefur á
undanförnum áratug veitt um
tólf milljónum dollara í styrk til
deildarinnar.
Búist er við að háskólaráðið
leggi blessun sína yfir nafn-
breytinguna á fundi í dag. Deild-
in heitir Rewley House, og sagði
gjaldkeri hennar að menn í
deildinni hefðu ekkert á móti
breytingunni, en ráðið gæti
hafnað henni.
Við aðrar, eldri deildir Ox-
fordháskóla eru álmur og bóka-
söfn sem hafa verið nefnd til
heiðurs rausnarlegum góðgerð-
armönnum, svo sem eigendum
verslanakeðja eða iðnjöfrum,
en engin deild hefur fengið
nýtt nafn.
Karl prins
var ótrúr
London. Reuter.
KARL Bretaprins játar í fyrsta
skipti í sjónvarpsviðtali, sem
sýnt verður á morgun, að hann
hafi haldið framhjá Díönu
prinsessu.
Er Karl prins var spurður í
sjónvarpsviðtalinu hvort hann
hefði ætíð verið trúr Díönu
svaraði hann: „Já . . .alltþar
til ljóst var að hjónaband okk-
ar var í molum og ekki hægt
að kippa því í lag.“