Morgunblaðið - 28.06.1994, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.06.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1994 15 Oreiða í japönskum stjórnmálum eftir afsogn Hatas Óvissa um stöðu Japana á G7-fundinum Reuter LEIÐTOGI Frjálslynda demókrataflokksins, Yohei Kono t.h. var brosmildur þar sem hann ræddi við flokksbræður sína, eftir að Tsutumo Hata sagði af sér. Tókýó. Reuter, The Daily Telegraph. TILRAUN tveggja stærstu stjórn- málaflokkanna í Japan til þess að skipa eftirmann Tsutumos Hatas, sem á laugardaginn sagði af sér embætti forsætisráðherra, mistókst í gær og ber mikið í milli. Svo getur farið að Hata muni mæta til fundar sjö helstu iðnríkja heims (G7), í næsta mánuði, án þess að hafa starf- hæfa stjórn að baki sér, og eru hag- fræðingar ekki á eitt sáttir um hver áhrif það muni hafa á stöðu Japana á fundinum. Eftir að hafa setið í stól forsætis- ráðherra í rúma tvo mánuði, til- kynnti Hata afsögn sína á laugar- daginn, áður en kæmi til atkvæða- greiðslu um vantrauststillögu á minnihlutastjórn hans. Hann mun sitja áfram uns þingið velur eftir- mann hans. Engin af þrem stærstu fylkingunum á þingi, sem eru flokka- bandalag Hatas, Sósíalistar og Ftjál- syndi dertiókrataflokkurinn, hefur þar meirihluta. Takist ekki að mynda stjórn á næstunni, gæti Hata neyðst til þess að fara sem fulltrúi Japans á G7 fundinn sem haldinn verður í Napólí 8.-10. júlí. Yrði það annað árið í röð sem leiðtogi Japans mætir til G7 fundar undir slíkum kringum- stæðum. Til bóta eða ekki? Reyndar segja sumir hagfræðing- ar að það gæti orðið Japönum í hag ef fulltrúi þeirra verður forsætisráð- herra án starfhæfrar stjórnar. Bandaríkjamenn muni ekki beita sér af hörku í viðleitni þeirra til þess að ná jöfnuði í viðskiptum ríkjanna. Þeir þurfi að veija dollarann frekara falli gagnvart jeni, og viti að þeir megi ekki fara sér að neinu óðslega ef árangur á að nást. Aðrir hagfræð- ingar telja óvissuna í japönskum stjórnmálum tvímælalaust koma sér illa fyrir Hata, fari hann á fundinn sem bráðabirgðaforsætisráðherra. Þótt Bandaríkjamenn muni ef til vill ekki beita þrýstingi í gjaldeyrismál- um, þá geti þeir knúið á um breyting- ar á hagstefnu, til að mynda að inn- flutningshöft verði afnumin. Mikið ber í milli Fulltrúar Frjálslyndra demókrata og Sósíalista ræddust við í gær, en sá fundur skilaði þeim árangri einum að fulltrúarnir samþykktu að reyna að koma sér saman um stjórn hið fyrsta. Aðalatriðið væri að sættast á hver yrði næsti forsætisráðherra, og yfirlýsingu frá leiðtogum flokk- anna í gær sagði að þeir myndu drífa í því í dag. Þingmenn töldu þó lítið að marka þau orð, þetta væri ekki sagt til annars en að slá ryki í augu almennings. Munurinn á grundvallar stefnumálum flokkanna er mikill, og gátu fullrúar ekki einu sinni komið sér saman um hvenær skyldi halda fund næst. Dagblaðið Asahi, sem er vinstri- sinnað, sagði að það yrði affarasæl- ast ef Fijálslyndir demókratar mynduðu næstu ríkisstjórn. Það væri best að hafa þann „fjanda“ sem maður þekkti helst, og var þá vísað til þess að Fijálslyndir demó- kratar höfðu setið í ríkisstjórn í 38 ár, þegar flokkabandalag Hatas bar sigur úr býtum í kosningum fyrir tæpu ári. Uppþvottavél gerö LP 770 ■ 5 þvottakerfi. ■ Gljáefnahólf. ■ Hljóölát — aðeins 45 db. ■ Innrabyrði úr ryöfríu stáli. ■ Þreföld sía á vatnsinntaki. ■ Sparnaðarkerfi/hraöþvottakerfi. ■ Tekur borðbúnað fyrir 12 manns. Afborgunarverð kr. 44.800. Staögreiösluverö kí, 41.900. Þvottavél gerö LP 550P IQKO þvottavélar og uppþvottavélar frá Ítalíu. Fxafen 9, sfmi 887 332 opiö mánud.-föstud. 9-18 og laugard. 10-14 ■ 14 þvottakerfi. ■ Tekur 5 kg af þvotti. ■ Orkusparnaðarrofi. ■ Fjórskipt sápuhólf. ■ 600 snúninga vinduhraði. ■ Tromla og belgur úr ryðfríu stáli. Afborgunarverö kr. 41.600. Staögreiösluverö kr. 38.900. Blaft allra landsmanna! |)S9Y0ttttl>laMb - kjarni málsins! Clinton breytir námslánakerfinu Endurgreiðslur verða í hlutfalli við laun BANDARÍKJASTJÓRN mun á næstu dögum gefa út endanlega reglu- gerð um nýtt námslánakerfi, sem á að auðvelda fólki að kljúfa kostnað- inn af framhaldsnámi. Er þetta í samræmi við kosningaloforð Bills Clintons, forseta. Blaðið Herald Tríbune greindi frá þessu um helgina. í nýja kerfínu er gert ráð fyrir að endurgreiðslur láglaunafólks á mánuði muni minnka verulega, og er þess vænst að þeim fækki sem gefast upp á því að endurgreiða námslán. Núverandi kerfí er byggt á þeirri fólki úr millistétt að standa straum reglu að námsmenn endurgreiða námslán samkvæmt 10 ára áætlun eftir að þeir hafa lokið námi, án til- lits til hversu há laun þeir hafa. Sam- kvæmt nýja kerfmu geta námsmenn dreift endurgreiðslum á mun lengri tíma, og því verði greiðslan lægri í hveijum mánuði. Stjórnin gerir ráð fyrir að breytingin muni auðvelda af kostnaði við framhaldsnám. Kostnaðarauki Gagnrýnendur benda hins vegar á að því lengri tíma sem það taki að endurgreiða lánin, því meiri verði vextirnir af þeim. Þess vegna sé í raun verið að auka kostnað við fram- haldsnám. Skotið á rokkhátíð- argesti með loftriffli Björk var skemmta á sama tíma FIMM manns særðust þegar skotið var á þá með loftriffli á Glastonbui-y- rokkhátíðinni í Englandi um helgina en meðal skemmtikrafta þar voru þau Elvis Costello og Björk Guðmunds- dóttir. Voru tveir menn handteknir. Samkvæmt Reulers-ívélt á sunnudag voru þrír illa haldnir eftir skotárásina en þar sagði ekkert um hvers konar byssu hefði verið beitt. Fram kom hins vegar, að atburður- inn hefði átt sér stað á sama tíma og þau Elvis Costello og Björk hefðu verið að skemmta á tvöföldu sviði. Björk sagði í viðtali við Morgun- blaðið, að bresku blöðin hefðu gert mikið úr þessum atburði en sjálf hefði hún og hennar fólk ekki veitt honum athygli. Fyrstu fréttirnar um hann hefði hún fengið úr fjölmiðlum og um hefði verið að ræða loftriffil eða -riffla. Um 80.000 manns sóttu Glaston- bury-hátíðina og að sögn lögregl- unnar voru 200 manns handteknir, þar af 48 fyrir eiturlyfjasölu. Honda er auðveldur í endursölu og heldur sér vel í verði. Hugleiddu það, nema þú sért að kaupa þér bll til htstíðar. Það er mikill munur á því hversu vel bílar halda sér í verði. Munurinn á endursöluverði ársgamallrar Honda og annarra bíla getur verið töluverður. Að ári liðnu getur Honda verið allt að 25% verðmeiri en aðrir bílar í sama verðflokki. Í0i HOND VATNAGÖRÐUM - SÍMI -góð fjárfesting

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.