Morgunblaðið - 28.06.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ1994 31
FRETTIR
Hlutafjársöfnunum
Edinborgarhúsið á Isafirði
ísafirði. Morgunblaðið.
HLUTAFELAGIÐ Edinborgarhúsið
á ísafirði er nú að hefja hlutafjár-
söfnun. Félagið var stofnað árið
1992 um uppbyggingu menningar-
miðstöðvar í Edinborg, gömlu pakk-
húsi sem nokkur menningarfélög á
staðnum höfðu þá nýverið fest kaup
á. Félagið hefur sent frá sér kynn-
ingarbækling þar sem rakin er tilurð
félagsins og gerð grein fyrir helstu
áformum um hlutverk hússins.
í bæklingnum segir að félagið vilji
stuðla að því að auka fjölbreytni í
mannlífi og atvinnuháttum á Vest-
Ijörðum og styrkja þannig byggðina.
Markmiðunum hyggst félagið ná með
því að setja á stofn Hönnunarmiðstöð
og Listaskóla í húsinu. Hönnunarmið-
stöðinni, sem verður rekin sem list-
iðnaðarskóli, er ætlað vera faglegur
farvegur fyrir handverk og listiðnað
á Vestfjörðum með varanleg tengsl
við atvinnulífið. Hugmyndin er að
hönnuðir og listafólk veiti ráðgjöf um
hönnun og handverk í vinnslu, auk
þess sem fólk verði þjálfað í að vinna
úr hugmyndum og koma þeim í
markaðssetjanlegt form.
Listaskólinn hefur þegar verið
stofnaður og heitir Listaskóli Rögn-
valdar Ólafssonar, eftir arkitektin-
um sem teiknaði Edinborg, en hann
hefur stundum verið kallaður fyrsti
íslenski arkitektinn. Skólanum er
ætlað að bæta úr þörf fyrir íjöl-
breyttara námsval á sviði lista og
menningar á Vestfjörðum. Boðið
verður upp á samþættingu list-
greina, s.s. myndlistar, leiklistar,
tónlistar, danslistar og ritlistar.
Starfsemi skólans verður í formi
stundaskrár, en einnig verða haldin
einstök námskeið og námskeiðarað-
ir, jafnt fyrir unga sem aldna.
Þegar hafa fengist framlög úr
húsafriðunarsjóði og ríkissjóði, en
stefnt er að því að starfsemi geti
hafist í húsinu eftir 2 til 3 ár.
Síða úr bæklingnum sem gef-
inn hefur verið út um Edin-
borgarhúsið á ísafirði vegna
hlutafjársöfnunarinnar.
B DAGANA 22.-24. júlínk. hitt-
ast burtfluttir og búandi Kleifar-
menn og -konur með fjölskyldur
sínar á Kleifum í Ólafsfirði. Kleifar
er þyrping nokkurra bæja við vest-
anverðan Ólafsfjörð í minni Ytri-
Árdals. Fyrr á öldinni var þar mikil
útgerð og búskapur. Mikið fjölmenni
var á Kleifum á þessum tíma og
mikið líf. Kleifarmenn hafa alla tíð
haldið mikla tryggð við Kleifarnar
og er þetta í þriðja sinn sem slík
samkoma er haldin.
■ KYNNING á Kripalujóga verð-
ur haldin fimmtudaginn 30. júlí kl.
20.30 i Jógastöðinni Heimsljósi,
Skeifunni 19, 2. hæð. í júh' hefst
námskeið hjá Heimsljósi þar sem
kenndar verða leiðir kripalujóga til
að takast á við kvíða og fælni. I lok
námskeiðs verður stofnaður stuðn-
ingshópur. Leiðbeinandi verður Ás-
mundur Gunnlaugsson, jógakenn-
ari.
ATVIN N MMAUGi YSINGAR
Framhaldsskóla-
kennarar
Laus er staða deildarstjóra og kennara við
sjávarútvegsdeildina á Dalvík - V.M.A.
Umsóknarfrestur til 19. júlí.
Skólastjóri,
símar 96-61380 og 96-61162.
Yiimuimðlun
Reykjavíkurborgar
Atvinnuráðgjafar
Vinnumiðlun Reykjavíkurborgar óskar eftir
að ráða tvo atvinnuráðgjafa frá og með
1. ágúst nk.
Störfin felast í margvíslegri aðstoð og ráð-
gjöf við fólk í atvinnuleit m.t.t. náms og starfa,
ásamt upplýsingagjöf varðandi atvinnuleit,
vinnumiðlun og atvinnuleysistryggingar.
Umsækjendur skulu hafa reynslu af störfum
við starfsmannahald, atvinnuráðgjöf, náms-
ráðgjöf eða aðra hliðstæða starfsreynslu og
æskilegt er að þeir hafi lokið burtfararprófi
frá viðurkenndum háskóla í einhverri grein
félagsvísinda eða lögfræði.
Umsóknir, með greinargóðum upplýsingum um
menntun og fyrri störf, berist fyrir 12. júlí nk.
til framkvæmdastjóra Vinnumiðlunar Reykjavík-
urborgar, sem einnig gefur upplýsingar um
störfin.
Englatelgur 11 • Sími (91) 882580 • Fax (91) 882587
Innheimtufulltrúi
Hjá innheimtu- og greiðsludeild Hafnarfjarð-
arbæjar er laus 50% staða innheimtufull-
trúa. Vinnutími e.h.
Krafist er reynslu í innheimtu- og gjaldkera-
störfum og meðferð tölvuupplýsinga.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum STH.
Umsóknir skulu berast á bæjarskrifstofurnar
í Hafnarfirði, Strandgötu 6, eigi síðar en
5. júlí nk.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
Stundakennsla
Flensborgarskólinn óskar að ráða stunda-
kennara á haustönn 1994 í eftirtaldar
kennslugreinar:
a) Tölvufræði.
b) Viðskiptagreinar (bókfærslu, hagfræði-
greinar, verslunarrétt).
Umsóknarfrestur er framlengdur
til 1. júlí 1994.
Allar nánari upplýsingar veitir skólameistari
í síma 650400 eða 50560.
Skólameistari.
SHI
STÚDENTARAÐ HÁSKÓLA 1SLANDS
STUDENTAHE1MIUNU V HRINGBRAUT
auglýsir laust til umsóknar starf fram-
kvæmdastjóra landssöfnunnar á vegum
Stúdentaráðs. Um er að ræða 3-4 mánaða
vinnu síðsumars og í haust.
Umsóknum ber að skila á skrifstofur SHÍ,
Stúdentaheimilinu v/Hringbraut.
Umsóknarfrestur er til og með 6. júlí nk.
Á skrifstofum SHÍ fást einnig allar frekari
upplýsingar.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
Laus staða
íleikfangasafni
Þroskaþjálfi óskast í fullt starf frá 1. septem-
ber. Æskileg reynsla af starfi með ung, fötluð
börn.
Upplýsingar veita forstöðumaður Greiningar-
og ráðgjafarstöðvar og forstöðumaður leik-
fangasafns í síma 641744.
Umsóknir berist fyrir 9. júlí.
auglýsingar
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Fjölskylduhelgi í Þórsmörk
(Langadal) 1 .-3. júlí.
Mjög ódýr helgarferð I tilefni árs
fjölskyldunnar og 40 ára atmælis
Skagfjörösskála. Frltt f. börn 10
ára og yngri í fylgd foreldra sinna
og hálft gjald fyrir 11-16 ára.
Fjölbreytt dagskrá, m.a. göngu-
ferðir, ratleikur, leikir, kvöldvaka,
pylsugrill. Góð fararstjórn. Gist
I tjöldum og skála. Brottför
föstudagskvöld kl. 20. Pantið og
takið farmiða tímanlega.
Næturganga yfir
Fimmvörðuháls 1 .—3. júlf.
Það er nóg pláss í þessa ferð
miðað við að gist sé í tjöldum.
Þessi ferð býðst á sérkjörum fjöl-
skylduferðarinnar. Brottförkl. 20.
Fimmtudagskvöld 30. júni
kl. 20.30-22: Hornstranda-
kvöld (opið hús).
Kynntar verða Hornstrandaferð-
ir sumarsins og árbókin „Ystu
strandir norðan Djúps", sem
fjallar um svæðið. Gerist félagar
og eignist þessa glæsilegu og
fróðlegu bók. Fararstjórar
mæta.
Árbókarferðin 7.-14. júlí
Ystu strandir norðan Djúps
Hlöðuvík - Hornvík.
Enn eru laus pláss í þessa stuttu
og þægilegu Hornstrandaferð
sem er sérstaklega tileinkuð ár-
bókinni. Brottför frá Reykjavík á
miðvikudagskvöldi og til baka á
fimmtudagsmorgni. Farangur
ferjaður milli staða. Gist í góðum
húsum að Horni og í Hlöðuvík
(aðeins 18 pláss á hvorum stað),
einnig hægt að vera með tjöld.
M.a. verður í boði sigling undir
Hælavíkurbjarg. Pantið og tak-
ið farmiða strax.
Snæfell-Lónsöræfi og dvöl
á Lónsöræfum.
Þessi gönguleið nýtur vaxandi
vinsælda. Brottför í 7 daga ferð-
ir 16/7, 30/7 (aukaferð), 6/8 og
13/8. 7 daga ferðir með dvöl í
Múlaskála á Lónsöræfum eru
með brottför 22/7 og 12/8.
Sjálfboðavinna
Sjálfboðaliðar óskast I gæslu
Hvítárnesskála fyrstu vikuna í
júlí og nokkrar aðrar vikur í júlf
og ágúst og í ýmsar vinnuferðir.
Nánari upplýsingar á skrifstof-
unni.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFELAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 6S253*
Miðvikudaginn 29. júní:
Kl. 08.00 Þórsmörk, dagsferð,
kr. 2.700.
1/2 gjald fyrir börn frá 7 ára.
Ath.: Odýr sumarleyfisdvöl i
Þórsmörk. Hringið til okkar á
skrifstofuna og athugið verð og
tilhögun.
Kl. 20.00 Úlfarsfell (296 m).
Létt og skemmtileg gönguleið.
Verð kr. 600.
Laugardaginn2.júl(:
Kl. 08.00 Hagavatn, dagsferð.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, og Mörkinni 6.
Heimsækið Þórsmörk með
Ferðafélaginu ísumar
Dagsferðir með brottför kl. 8.00
alla sunnudags- og miðvikudags-
morgna. Næsta ferð 29. júní.
Helgarferðir allar helgar. Ódýr
fjölskylduhelgi 1.-3. júlí. Einriig
tilvalið að dvelja milli ferða. Það
er stöðugt verið að bæta að-
stöðu til dvalar, bæði I skála og
tjöldum. Við tjaldhús (dagdvalar-
hús) eru komin tvö ný útigrill og
nýverið voru smíðaðir svefnbálk-
ar á vesturloft Skagfjörðsskála.
Verð I dagsferðir í Þórsmörk kr.
2.700. Allir þátttakendur í Þórs-
merkurferðum fá frítt Þórsmerk-
urkort Fl.
Brottför í ferðirnar frá BSÍ,
austanmegin, og Mörkinni 6.
Ferðafélag Islands.
UTIVIST
Hallveigarstig l • simi 614330
Helgarferðir 1 .-3. júlí:
Botnsúlur. Gönguferð með allan
búnað um hina ýmsu tinda
Botnsúlna og Súludals. Gist eina
nótt I skála og aðra í tjaldí. Tiivai-
in æfingarferö fyrir lengri göngur
sumarsins.
Fararstjóri Hörður Haraldsson.
Básar við Þórsmörk. Nú er sum-
arið komið í Þórsmörk og á
Goðalandi. Fjölbreyttar göngu-
ferðir með fararstjóra. Gist í
skála eöa tjöldum.
Fararstjóri Eyrún Ósk Jensdóttir.
Fimmvörðuháls. I tengslum við
ferð í Bása verður dagsferð yfir
Fimmvörðuháls á laugardag.
Reikna má með um 9-10 klst.
langri göngu.
Fararstjóri Árni Jóhannsson.
Sumarleyfisferðir:
Landmannalaugar - Básar
5.-8. júlí. Vegna forfalla eru
nokkur sæti laus I ferðina. Geng-
ið frá Landmannalaugum til
Bása á 4 dögum. Gist í skálum.
Fararstjóri Árni Jóhannsson.
Upplýsingar og miðasala á
skrifstofu Útivistar.
Útivist.