Morgunblaðið - 28.06.1994, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.06.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1994 9 FRÉTTIR Morgunblaðið/ Guðlaugur Tryggvi Karlsson KJÖRI fimm heiðursdoktora var lýst á Háskólahátíðinni. Þeir eru Hafsteinn Guðmundsson, bókaútgefandi, frá félagsvísindadeild, dr. Þórir Kr. Þórðarson, prófessor, og séra Sigurjón Guðjónsson frá guðfræðideild og Hans Martin Lipp, prófessor frá Þýskalandi og Per Bruun, prófessor frá Danmörku, frá verkfræðideild. Sveinbjörn Björnsson, há- skólarektor. 510 kandidatar braut- skráðir frá Háskólanum Á HÁSKÓLAHÁTÍÐ síðastliðinn laugardag voru 510 kandidatar brautskráðir frá Háskóla íslands. Aldrei hafa fleiri verið braustskráðir frá skólanum í einu. Kjöri fimm heið- ursdoktora var lýst. í hátíðarræðu Sveinbjörns Björnssonar, háskóla- rektors, lýsti hann þeirri skoðun sinni að ekki verði hjá því komist að gera breytingar á skipulagi náms á há- skólastigi hér á landi. Hann sagði að í því sambandi sé vert að líta m.a. til reynslu Finna. Tveir útskrifuðust frá guðfræði- deild, 163 frá læknadeild, 35 frá lagadeild, 65 frá viðskipta- og hag- fræðideild, 81 frá heimspekideild, 6 frá tannlæknadeild, 33 frá verk- fræðideild, 69 frá raur.vísindadeild og 58 frá félagsvísindadeild. Þar að auki luku 74 viðbótarnámi frá félags- vísindadeild. Alls hafa 809 kandidat- ar lokið námi á þessu háskólaári og 128 viðbótarnámi. Breytingar á háskólanámi Sveinbjörn Björnsson, háskóla- rektor, gerði brejAingar á námi á háskólastigi að umfjöllunarefni í ræðu sinni. Hann sagði að á íslandi vanti háskóla sem sinni fyrst og fremst fræðsluhlutverki. Háskóla ís- lands sé ætlað að vera bæði rann- sóknarháskóli og vísindaleg fræðslu- stofnun. Hann sagði að víða erlendis sé þessu hlutverki skipt á milli há- skóla og ströng inntökuskilyrði sé fyrir inntöku í rannsóknarháskóla. Sveinbjörn vakti athygli á því að árlega hverfa 600 stúdentar frá námi í Háskóla íslands. „Þversögnin í námsframboði á háskólastigi hér á landi felst í því að eini skólinn sem stendur öllum opinn er rannsóknarháskóli sem býð- ur fræðilegt nám, en það er ekki við hæfi helmings þeirra sem til hans sækja. Sá íjöldi úr hveijum árgangi sem hér lýkur fræðilegu háskólanámi er svipaður og gerist með skyldum þjóðum, en við eigum ekki sambæri- lega skóla og aðrar þjóðir sem bjóða aðgengilegra háskólanám með áherslum á verkmenntun," sagði Sveinbjörn. Finnar hafa á síðustu árum verið að gera athyglisverða tilraun með að breyta námi á háskólastigi, sem miðar m.a. að því að styrkja kennslu í faghá- skólum sem bjóða upp á skemmri verk- menntun. Sveinbjöm sagði að íslend- ingar gætu hugsanlega nýtt sér reynslu Finna af þessari tilraun. Morgunblaðið/Björn Blöndal GUÐJÓN Þórarinsson við einn af eyðilögðu bíiunum. 40-50 bílar voru rústaðir Keflavík. Morgunblaðið „ÞETTA er í fjórða sinn á einu ári sem bílarnir hjá mér eru lagðir í rúst án þess að lögregla geti nokk- urt aðhafst og ég hef orðið fyrir verulegu tjóni af þessum sökum,“ sagði Guðjón Þórarinsson hjá Bíla- partasölu BG í Keflavík eftir að nokkrir piltar undir lögaldri höfðu gengið berserksgang á athafnasvæði bílapartasölunnar. „Núna voru 40-50 bílar á svæðinu sem þeir skemmdu og af þeim voru nokkrir sem voru hér í geymslu. Tjónið nú nemur nokkrum hundruða þúsunda og ein- sýnt að ég verða að bera það sjálfur." Guðjón sagði að vitað væri hveijir væru að verki og lögregla stæði ráð- þrota. Piltarnir sem hér hefðu verið á ferð væru ólögráða og hvorki þeir né foreldrar þeirra væru borgunar- menn fyrir skemmdunum. Guðjón sagði að athafnasvæði partasölunnar væri girt með 3 metra girðingu en það virtist ekki stöðva skemmdar- vargana. „Maður er orðin langþreytt- ur á þessu og það er með ólíkindum að ekki skuli vera hægt að koma lögum yfir þessa pörupilta," sagði Guðjón Þórarinsson. Toscana - eða Alpafiöllin í einu fegursta héraði ÍTALIU - * ^ í nágrenni listaborganna FLÓRENS, PISA og LUCCA og baðstaðarins VIAREGGIO. MONTECATINI TERME, einn frægasti heilsulindabær Evrópu, allt frá dögum Rómverja til forna. Falleg borg og yndislegt umhverfi. Stórkostleg aðstaða til i heilsubótar og alhliða endurhæfingar. Frægir sögustaðir og listaborgir allt í kring. KYNNINGARVERÐ: Vikudvöl á hóteli ásamt flugfari báðar leiðir frá kr. 49.000 með morgunverði kn 56.700 með hálfu fæði (flugvallarsk. ekki innif.) BROTTFÖR: 16. júlí - fá sæti. AUSTURSTRÆTI17,4. hæi 101 REYKJAVÍK-SÍMI 620400-FAX 626S64 Franskar buxnadragtir úr hör Verð kr. 27.700 TES5 v Nfc NEÐST VIÐ DUNHAGA, S. 622230. Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14. Allir muna eftir Aromatic, vinsælustukaffikönnunni á markaðnum. Moccamaster frá Techni-Vorm er verðugur arftaki. MOCCAMASTER - glæsileg og traust kaffikanna Fæst í næstu raftækjaverslun. I. GUÐMUNDSSON & Co. hf. , UMBOÐS DQ.HEILDVERSLUN SlMI 91-24020 FAX 91-623145 Listræn 1 Skurðarhnífur 15 sek. sendihraði 120 nr. minni með hópsendingum Biðsending Ljósmynda- | stilling * Tengingar fyrir síma og símsvara > Val * umtölvutengi Sendir 10 síður í einu o.m.fl. ARVIK Ármúla 1 S. 91-687222 Dönsku ELFA háfarnir eru glæsilegir, stílhreinir og sönn eldhúsprýði. Við bjóðum nú nýjar gerðir af þessum vinsælu háfum í 16 mismunandi litum, stáli eða kopar. Eínar MmM Farestveit & Co.hf. Borgartúni 28 S 622901 og 622900 LANIER 500 er ótrúlega nett tæki sem búið er öllum helstu kostum stærri myndrita.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.