Morgunblaðið - 28.06.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.06.1994, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Kravtsjúk með forystu LEONÍD Kravtsjúk, forseti Úkraínu, og Leoníd Kuchma, forsætisráðherra, urðu efstir í fyrstu umferð forsetakosning- anna í Úkra- ínu, sem fram fóru á sunnu- dag. Sam- kvæmt óopin- berum tölum náði hvorugur þeim 50% at- kvæða, sem nauðsynleg eru til að ná kjöri og verður því að kjósa aft- ur. Var áætlað að forsetinn hefði hlotið um 40% fylgi, aðallega í vesturhlutanum en forsætisráð- herrann um 35% fylgi, mest í austurhluta landsins. Fundartími staðfestur BANDARÍKJAMENN staðfestu í gær að viðræður þeirra og Norður-Kóreumanna yrðu 8. júlí nk. eins og þeir síðarnefndu lögðu til. Verður Robert Gallucci, aðstoðarutanríkisráð- herra, fulltrúi Bandaríkjanna. Nú er unnið að dagskrá fundar- ins, sem talsmaður Bandaríkja- forseta sagði að myndi vara eins lengi og þörf krefði. Meðal þess sem á að ræða eru lausn deil- unnar um kjarnorkuáætlun N- Kóreu, hversu mikið kjarnorku- eldsneyti hefur verið nýtt í vopnaframleiðslu, öryggi á Kór- euskaganum, hersveitir Norður- Kóreu og sala á flugskeytum, t.d. til Sýrlands. Ástralir sagðir drykkjusvolar ÁSTRALIR, sérstaklega ungt fólk, eru að öilum lík- indum mestu drykkusvolar í heimi, að sögn ástralsks sér- fræðings. Sagði hann Ástrali sjá drykkju í dýrðarljóma og að timburmenn væru eitt- hvað til að stæra sig af. Því meira sem menn drykkju og því meira sem menn eyddu í áfengi, því betra. Sljórnar- myndun út um þúfur Stjórnarmyndunarviðræður fóru út um þúfur í Hollandi í gær vegna djúpstæðs ágreinings um velferðarkerfið. Er þar með Ijóst að Verkamannaflokkurinn, Fijálslyndir og D66, miðju- vinstri flokkur, munu ekki mynda stjórn en viðræður höfðu staðið yfir í sjö vikur. Fyrsti blakki biskupinn JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, skipaði í gær biskup af pakistönskum ættum og er hann fyrsti biskup landsins sem ekki er hvítur. Biskupinn, Mich- ael Nazir-Ali, er 44 ára og verð- ur biskup af Rochester. Hann var biskup í Raiwand í Indlandi 1984-1986 og hefur verið að- stoðarbiskup í Southwark í London frá 1989. Kravtsjúk ERLENT • X / * J 1 1 Reuter Banð a motmælendum SÉRSVEITIR lögreglu á Jakarta mælti banni á þremur fréttatíma- barðinu á lögreglunni og 24 voru ráðast gegn hópi fólks sem mót- ritum. Urðu um 100 manns fyrir handteknir. Játvarður og Sophie hætt við trúlofun? London. Reuter. BRESKA slúðurblaðið The Daily Mirror hafði í gær eftir heimilda- manni innan hirðarmnar Rhys-JoneS að Játvarður prins og Sophie Rhys-Jones hefðu slitið trúlofun sinni. Hvor- ugt þeirra vildi nokkuð segja um áreiðanleika fréttarinnar. Blaðið segir ástæðu slitanna vera að Rhys-Jones hafi fengið bakþanka um líf eiginkonu við hirðina, í ljósi þess hvernig fór fyrir Díönu prinsessu og Söru hertogaynju af York, en hjóna- bönd beggja enduðu sem kunn- ugt er með aðskilnaði. Fylkisþingkosningar í Sachsen-Anhalt á sunnudag Samstjóra kristilegra og jafnaðarmanna líkleg Bonn. Reuter. DAGBLÖÐ í Þýskalandi sögðu í gær, að Kristilegi demókrataflokk- urinn, CDU, sem fékk flest atkvæði í kosningunum í Sachsen-Anhalt í Austur-Þýskalandi á sunnudag, yrði að mynda stjórn með jafnaðarmönn- um, SPD. Þeir fengu aðeins minna fylgi en CDU en samstarfsflokkur kristilegra í ríkisstjórn, Fijálsir demó- kratar, FDP, komust ekki yfir 5%- markið. Athygli hefur vakið og jafn- vel hneykslan mikið fylgi við arftaka gamla kommúnistaflokksins. CDU fékk 34.4% atkvæða og vegnaði betur en spáð hafði verið þar sem mörg hneykslismál honum tengd hafa komið upp í Sachsen- Anhalt að undanförnu en SPD fékk 34%. FDP kom ekki manni að þar sem fylgið náði ekki 5%. „Niðurstaða kosninganna í Sachs- en-Anhalt er þessi: Rudolf Scharp- ing, leiðtogi jafnaðarmanna, er að sækja á í austurhlutanum. Helmut Kohl kanslari getur ekki enn verið viss um sigur í þingkosningunum í haust,“ sagði þýska fjármálablaðið Handelsbiatt. „Eftir þá útreið, sem fijálsir demókratar fengu, hlýtur að koma til samstarfs kristilegra demó- krata og jafnaðarmanna. Sú gæti einnig orðið raunin í ríkisstjórn að loknum þingkosningum í október." Batnandi liorfur Frankfurter Allgemeine Zeitung sagði, að CDU hefði gengið betur en búist hefði verið við og þakkaði það batnandi horfum í efnahagslíf- inu og persónu Kohls sjálfs. í kosningunum á sunnudag fengu græningjar 5,1% atkvæða en PDS, arftaki gamla kommúnistaflokksins, fékk 19,9%. „Þetta fylgi við PDS er sannkölluð hrollvekja," sagði Handelsblatt. „Sumir Austur-Þjóð- veijar hljóta að hafa skelfilega lélegt minni.“ Frankfurter Allgemeine sagði, að PDS væri mótmælaflokk- ur, sem lofaði fólki gulli og grænum skógum í trausti þess að þurfa aldr- ei að standa við stóru orðin. Hútúar fagiia Frökkum Stríðsgæfan að yfirg-efa Serba? Kigali. Reuter. HARÐIR bardagar geisuðu í Kig- ali, höfuðborg Rúanda, í gær og komu þeir í veg fyrir, að starfs- menn Rauða krossins gætu flutt sært fólk frá sjúkrahúsum í þeim hluta borgarinnar, sem stjórnar- herinn ræður . Hútúmenn fagna mjög komu franska herliðsins til landsins og trúa því, að það muni koma í veg fyrir, að uppreisnarher tútsímanna leggi það undir sig. Svo virðist sem uppreisnarmenn hafí náð á sitt vald öllu svæðinu í kringum Kigali og nú láta þeir sprengjunum rigna yfir þau hverfí, sem stjórnarhermenn ráða enn. Talið er, að þau muni falla þeim'í hendur fljótlega og Rauði krossinn og starfsmenn Sameinuðu þjóðanna hafa hætt um sinn við tilraunir til að flytja burt særða frá borgar- hverfunum en talið er, að þar haf- ist enn við um 30.000 manns. 200.000 á flótta Um 200.000 hýtúmenn hafa flú- ið til landshlutans undan sókn upp- reisnarmanna en hann er sá hluti landsins, sem er einna ófijóastur og það á mörkunum, sem þeir sem fyrir voru, hafi haft nóg að bíta og brenna. Sarajcv o. Reutcr. HERSVEITIR Bosníustjórnar, múslima og Króata, styrkjast stöð- ugt og erulíklega að undirbúa mikla sókn á hendur Serbum. Kom þetta fram hjá Sir Michael Rose, yfir- manni herliðs Sameinuðu þjóðanna, um helgina en hann telur, að hér eftir muni halla á Serba í stríðinu. Þeir ráða nú um 70% lands í Bosn- íu og hafa notið þess vopnabúnað- ar, sem júgóslavneski herinn réð áður yfir. Þegar Bosníustríðið hófst börðust Króatar og múslimar saman en síð- an snerust þeir hvorir gegn öðrum. Nú hafa þeir náð sáttum og mynd að með sér sambandsríki og Rose segir, að við það hafi losnað um tugþúsundir hermanna, sem geti snúið sér af alefli gegn • Serbum. Aðflutningsleiðir eftir Adríahafs- strönd frá Króatíu hafi einnig opn- ast og við það hafí dregið úr áhrif- um vopnasölubannsins. Stjórnarherinn að styrkjast „Ég tel, að Serbar nái ekki lengra í þessu stríði," sagði Rasim Delic, foringi í Bosníuher. „Þeir hafa ekki bolmagn til að ná lengra en stjóm- arherinn er að styrkjast og getur nú hafíð sitt frelsisstríð." Danir hættir að nota „fótlás“ LÖGREGLA í Danmörku mun hætta að nota „fótalás" á óróa- seggi, að sögn Jose Ayala Lasso, mannréttindafulltrúa Samein- uðu þjóðanna. Lasso er i heim- sókn í Danmörku, og sagði að Erling Olsen, dómsmálaráð- herra, hefði fullvissað sig um að lögregla myndi ekki nota lás- inn framar, og fram færi rann- sókn á meintri hættu sem af aðferðinni stafar. Mannréttindasamtökin Am- nesty International gagnrýndu dönsku lögregluna harðlega í síðustu viku fyrir að nota téða aðferð í baráttu við óróaseggi. Hún er ekki notuð í nokkru öðru landi í Vestur-Evrópu, nema Noregi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.