Morgunblaðið - 28.06.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1994 13
VIÐSKIPTI
Fjármálamarkaðir
Dollarinn ekki sökudólgur?
London. Reuter.
LÆKKUN dollarans hefur verið
kennt um umrótið á verð- og
skuldabréfamörkuðum, en sérfræð-
ingar telja það of einfalda skýringu.
Verðlækkun verð- og skulda-
bréfa hófst í febrúar þegar fram-
virkir skuldabréfasamningar fóru
að lækka vegna uggs um verðbólgu
í Bandaríkjunum. „Undirrót alls
vandans er bandaríski skuldabréfa-
markaðurinn, sem nú hefur lamandi
áhrif á dollarann og á verðbréf,"
segir bandarískur hagfræðingur,
sem bendir á að verðbólga minnki
arð af skuldabréfum fjárfesta.
Þótt eignir fjárfesta lækki í verði
vegna fallandi gengis dollars halda
sérfræðingar því fram að erfiðleikar
dollarans séu ekki aðalorsök verð-
lækkunarinnar. „Þótt nú sé sam-
band þarna á milli held ég því samt
fram að jafnvel þótt dollarinn hækki
muni það ekki endilega bæta
ástandið á skuldabréfamarkaðn-
um,“ sagði David Cocker, sérfræð-
ingur Chemical Bank í London.
Hann sagði að valdið hefði
áhyggjum á skuldabréfamörkuðum
að bandarískir vextir hefðu verið
hækkaðir fjórum sinnum síðan í
febrúar án þess að það hefði sann-
fært miðlara um að Clinton-stjórnin
og bandaríski seðlabankinn hefðu
sigrazt á verðbólgu.
Einnig veldur áhyggjum á
skuldabréfamörkuðum að atvinnu-
leysi í Bandaríkjunum og nýting
afkastagetu eru á svipuðu stigi og
í tveimur fyrri hagsveiflum. I bæði
skiptin var afleiðingin aukin verð-
bólga. Veikur dollar hefur hins veg-
ar aðeins smávægileg áhrif á verð-
bólgu og eykur því lítið ugg manna
um verðlækkun.
O^vrnnc loftræstiviftur fyrir
___ W.CKKC HVERS KONAR HÚSNÆÐI
LOFTVIFTUR
MIKIÐ ÚRVAL
GOTT VERÐ
^ fyrsta
S flokks
Ö frá iii#-
/FOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420
Rússland
Obreyttur
útflutingur
áls 1994
Moskvu. Reuter.
ÚTFLUTNINGUR Rússa á áli verð-
ur óbreyttur, eða 2,14 milljónir lesta
1994, en framleiðslan mun líklega
minnka um 253.000 tonn, úr 2,8
milljónum 1993, að sögn rússneskra
álfrömuða.
Georgíj Volfson, einn stjórnar-
manna rússneska Alúminíj-fyrir-
tækisins, sagði á málmráðstefnu
Samveldis fullvalda ríkja að minni
framleiðsla yrði í samræmi við sam-
komulag framleiðsluþjóða um minni
álframleiðslu.
Júríj Ovtsjinnikov, framleiðslu-
stjóri Novokuznets-versins, kveðst
hins vegar undrast spá Aluminíjs
um óbreyttan útflutning. Hann seg-
ir að eftirspurn innanlands eftir
rússnesku áli sé að aukast á ný
eftir mikla sölutregðu á síðari árum.
Volfson sagði að 300-500 millj-
óna dollara fjárfesting á næstu 6-7
árum væri nauðsynleg til þess að
færa rússnesk álver í nútímahorf.
Rússneskur álkostnaður kynni að
verða meiri en í öðrum löndum
heims ef ekki yrði ráðin bót á fjöl-
mörgum vandamálum, sem tengd-
ust auknum eldsneytis-, flutninga-
og hráefnakostnaði.
Gamaldags útbúnaður og fjár-
festingaskortur há rússneskum ál-
verum. Þar er notað meira rafmagn
en í vestrænum verum — rafmagns-
kostnaður nemur nú 27% heildar-
framleiðslukostnaðar, að sögn Volf-
sons.
Tölvur
Apple tekur
upp eWorld-
tengingu
Cupertino, Kaliforníu. Reuter.
APPLE-tölvufyrirtækið hefur tekið
upp svokallaða „eWorld“-beinteng-
ingarþjónustu fyrir notendur Mac-
intosh-tölva og Apple-tækja.
eWorld-þjónusta fyrir Macintosh-
tölvur býður upp á tölvupóstþjón-
ustu, fréttir, upplýsingar og fleira.
Um 100 samstarfsaðilar, þar á
meðal Reuters America Inc., Tri-
bune Media Services og Ziff-
Net/Mac, hafa tekið að sér að bjóða
ýmsa þjónustu með eWorld-bein-
tengingu.
Með því að ýta á hnappa fá
Apple-notendur aðgang að ýmsum
byggingum á svokölluðu „ráðhús-
torgi". Byggingar eru merktar
Blaðsöluturn, Menning og Tóm-
stundir eða Fræðasetur og gefa
notendum til kynna hvar þeir geta
aflað upplýsinga sem þeir vilja afla.
Notendur geta einnig sent og feng-
ið tölvupóst um heimstölvukerfið
Internet.
Spilaðu með!
Fáðu þér miða á næsta sölustað
íslenskrar getspár fyrir kl. 16
á miðvikudag.
Röðin kostar aðeins 20 kr.
LéTTÍ
milljómi?
f Islendingur \
sem keypti sjálfvalsmiða
fyrir 200 krónur vann
39,5 miUjónir
fyrir nokkrum vikum!