Morgunblaðið - 28.06.1994, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.06.1994, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ ÚA endurreisir frystihúsið á Grenivík Fiskvinnsla hefst að nýju á fimmtudag ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa hefur ákveðið að fiskvinnsla hefjist að nýju í frystihúsinu á Grenivík á fímmtudag, og munu 20-30 manns fá vinnu við vinnslúna. Frystihúsið, sem hafði áður um 40 manns í vinnu, varð gjaldþrota í mars sl. og keypti ÚA eignir þrotabúsins fyrir 27 milljónir króna fyrir skömmu. Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri ÚA, kveðst eiga von á reynt verði að sérhæfa starfsemina á Grenivík í náinni framtíð, en' til að bytja með verði aðallega unnið með hefð- bundnar tegundir, ýsu og þorsk. Gunnar segir að með tilkomu frystihússins eygi menn von um aukna hráefnisöflun og ýmsa hag- ræðingu. Óvíst sé að togarar ÚA muni landa á staðnum til að byrja með, en um einhveija löndun verði þó að ræða, auk þess sem ekið verði með afla frá Akureyri til vinnslu á Grenivík. Áætlað sé að á milii 6-10 tonn af fiski verði unnin í frystihúsinu á dag. Skip MHF fái að landa Á fundi bæjarráðs Akureyrar síðastliðinn fimmtudag var lagt fram bréf frá Inga Björnssyni, framkvæmdastjóra Mecklen- búrger Hochseefíscherei í Rostock, dótturfyrirtækis ÚA, þar sem hann fer þess á leit að bæjarstjórn- in beiti sér fyrir því að skip MHF fái að landa afla sínum á Akur- eyri. Gunnar segir að málið sé svo nýtilkomið að ekkert hafi verið aðhafst, og virðist stjómvöld enn setja fyrir sig að skip MHF fiski í sameiginlegum stofnum. Hags- munir fyrirtækisins og jafnframt bæjarfélagsins séu hins vegar miklir og vonist hann eftir fullt- ingi bæjarstjómar í málinu. „Þessi framleiðsla er að stærsta leyti fyr- ir Coidwater í Bandaríkjunum og sölukerfið þar, þannig að okkur þykir óeðlilegt að þurfa að sigla með aflann til Færeyja og senda hann jafnvel með þarlendum skip- um til Bandaríkjanna, í stað þess að íslenskir aðilar hafí umsjónina í sínum höndum,“ segir Gunnar. Glæsileg raðhús á Akureyri Trésmíðaverkstæði Sveins Hreiðars hf. er með í byggingu 16 raðhúsa- íbúðir við Huldugil í Giljahverfi á Akureyri, en það hverfi er verið að byggja upp. í næsta nágrenni verða verslanir, grunnskóli og leikskóli. íbúðirnar eru seldar allt frá því að vera tilbúnar undir málníngu og upp í það að vera fullbúnar. Stærð íbúða er frá 123 til 140 fm fyrir utan bílskúr en áföst bifreiðageymsla fylgir hverri íbúð. Auk þess er um 20 fm herbergi yfir bílskúr. Hægt er að gera ýmsar breytingar á innra skipulagi íbúða, s.s. stærð herbergja, í samráði við seljanda, sem hefur lítinn eða engan kostnaðarauka í för með sér. íbúðimar eru afhentar eftir óskum hvers og eins allt frá nokkrum vikum upp í 1 'h ár. Hafið samband og við sýnum ykkur íbúðirnar. Tryggið ykkur vandaða eign á góðu verði. Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars hf. Skipagötu 16, 600 Akureyri. Símar 96-12366 og 985-27066. Fax 96-12368 Skrifstofan er opin frá kl. 14-17, mánudaga - föstudaga Sveinn Heiðar Jónsson, framkvæmdastjóri, Bæjarsíðu 5,603 Akureyri sími 96-21589 AKUREYRI Morgunblaðið/Rúnar Þór Hleðslumeistarar „STRÁKARNIR eru fljótir að læra handtökin. Ég hef lofað að útskrifa þá sem hleðslumeistara gangi allt vel,“ sagði Sigurður Jósefsson, verkstjóri, þar sem hann var að vihna við Strandgötu. Hann sagði að þeir væru sex í óða önn að hlaða 70 cm háan og 250 til 270 m langan vegg við götuna. Ofan á vegginn, sem er 70 cm breiður, yrðu settar hellur og þar ofan á tréplankar þar sem fólk gæti tyllt sér og horft á fuglalíf- ið. Sprengt grjót er valið úr grjót- námu við Krossanesverksmiðj- una. Siðan tekur við flutningur í bæinn og að lokum er hverjum steini valinn sinn staður í veggn- um. Fyrir framan vegginn er gert ráð fyrir gangstétt og grasflöt að götunni. Að ofan eru þeir (f.v.) Sigurður, Helgi Sigurðsson, Kristinn Ingvarsson og Orlygur Örlygsson og á neðri myndinni Steinólfur Guðmundsson og Bald- vin Ásgeirsson. Hundruð sóttu Ólafs- fjörð heim Morgunblaðið. Ólafsfirði. DAGAR Ólafs Bekks í Ólafsfirði um seinustu helgi heppnuðust eins og best verður á kosið, þrátt fyrir mis- jafnt veður. Nokkur hundruð manns heimsóttu Ólafsfjörð af þessu tilefni, þar á meðal brottfluttir Ólafsfirðing- ar og ungir knattspyrnumenn frá nágrannabyggðum. Ferðamálaráð Ólafsfjarðar undir forustu Gunnlaugs J. Magnússonar hafði veg og vanda af samsetningu skemmtidagskrár sem samanstóð af íþróttamótum, listsýningum og hvers kyns annarri skemmtan til að minn- ast landnámsmannsins Ólafs Bekks. Dagskráin hófst sl. fimmtudag en þá var haldið Jónsmessumót í golfi. Á föstudaginn bar hæst Norður- landamót í knattspyrnu kvenna. Fjöldi fólks kom saman í Tjamarborg um kvöldið, en þar var kaffihúsa- stemmning með léttri sveiflu. Á laug- ardag og sunnudag var pollamót Morgunblaðið/Sigurður Björnsson Ólafur Bekkur eins og mynd- listarkonan Ingibjörg Einars- dóttir sér hann fyrir sér. Nikulásar í knattspyrnu mest áber- andi dagskrárliða, en einnig var mik- il aðsókn að listsýningum í gagn- fræðiskólanum þar sem listamenn sem tengjast Ólafsfírði á einn eða annan hátt, sýndu verk sín. Póstur og sími Símatrufl- anir eru framundan SÍMANÚMER í númeraröð- inni 27000 til 27999 á Akur- eyri verða tengd yfir í staf- rænt kerfi miðvikudaginn 29. júní. Breytingin fer fram milli kl. 7 og 8 að morgni og búast má við truflunum á þeim tíma. Með tilkomu kerfisins kom- ast símamál í betra horf hjá símnotendum. Ennfremur gefst þeim kostur á að not- færa sér þjónustu stafræna kerfísins svo sem vakningu, símtalsflutning og þriggja manna tal eins og sjá má á bls. 21 í símaskrá 1994. Á næsta ári er stefnt að því að flest númer verði orðin staf- ræn að því er segir í fréttatil- kynningu. Lista- sumar ’94 Þriðjudagur 28. júní SÖNGVAKA í kirkju Minjasafns- ins á Akur- eyri: Rósa Kristín Baldursdóttir og Þór- arinn Hjartarson flytja ís- lenskt efni í tali og tónum. Dagskráin hefst kl. 20.30 og er miðuð að hluta við erlenda ferðamenn. Á morgun iýkur sýningu á verkum Jóhannesar Kjarvals og Ásmundar Sveinssonar í Listasafninu á Akureyri. Metró bætir við sig VERSLUNIN Metró á Akur- eyri hefur keypt húsgrunninn við Hvannavelli 14, sem er milli núverandi verslunarhús- næðið fyrirtækisins og verk- smiðjunnar Lindu. Ingimar Friðriksson, framkvæmda- stjóri verslunarinnar, segir kaupin gerð til að stækka at- hafnasvæði verslunarinnar og §ölga bílastæðum, en ekki hafí verið ákveðið hvernig svæðið verður nýtt að öðru leyti. Svæðinu fylgi bygginga- réttur og því séu ýmsir mögu- leikar í athugun. Norsku klippurnar á safn ►OTTO Jakobsson, fram- kvæmdastjóri Blika hf., afhenti Byggðasafni Dalvíkur á föstu- dag klippur þær sem norska strandgæslan notaði við að klippa togvíra Blika EA 12 19. júlí sl. til varðveislu. Strand- gæslumenn sigldu að togaran- um á Zodiac-gúmniíbát og reyndu ítrekað að skera á togv- írana og höfðu nær farið sjálf- um sér að voða, að mati skip- verja. Um síðir urðu Norðmenn frá að hverfa og náðu skipverj- ar á Blika þá klippunum um borð. Ottó afhenti Byggðasafn- inu klippurnar að afloknum sjó- prófum vegna málsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.