Morgunblaðið - 28.06.1994, Page 12

Morgunblaðið - 28.06.1994, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Fjármál Sparisjóðir Bolvíkinga og Súgfirð- inga sam- einast l.júlí Suðureyri. Morgunblaðið. NÝR sameinaður sparisjóður Bol- ungai’víkur og Suðureyrar tekur til starfa 1. júlí nk. samkvæmt tillögum stjórnar Sparisjóðs Bolungarvíkur og Sparisjóðs Súgfirðinga sem sam- þykktar voru á síðustu aðalfundum sparisjóðanna. Heiti nýja sjóðsins er Sparisjóður Bolungarvíkur og er honum ætlað að hafa opnar afgreiðslur á Suður- eyri og í Bolungarvík. í samþykktum sjóðsins er lögð áhersla á að sama þjónustustigi verði haldið uppi í báð- um afgreiðslunum. Ný stjórn fyrir hinn sameinaða sjóð var kjörin á sameiginlegum fundi allra stofnfjár- eigenda sjóðanna, sem haldinn var í ráðhúsi Bolungarvíkur laugardag- inn 25. júní. Stjórnina skipa Guð- finnur Einarsson, Benedikt Bjarna- son, Ólafur Þ. Benediktsson og Örn Jóhannsson frá Bolungarvík og Gestur Kristinsson frá Suðureyri. Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Bolung- arvíkur er Sólberg Jónsson. Rögnvaldur Guðmundsson spari- sjóðsstjóri á Suðureyri segir að með sameiningunni sé verið að búa til öflugri sjóð sem hafi aukna mögu- leika til þess að veita meiri og betri þjónustu í framtíðinni. Ekki er ætlunin að stöðugildum fækki við sameininguna. Rögnvaldur Guðmundsson hefur þó sagt starfi sínu lausu sem sparisjóðsstjóri á Suðureyri og er að hverfa til náms. Þessa dagana er unnið að miklum endurbótum á húsnæði Sparisjóðs Súgfirðinga á Suðureyri og standa vonir til þess að þeim verði lokið mjög fljótlega. Fundur Hafnarmál í Reykjavík og Rotterdam FÉLAG íslenskra stórkaupmanna og Aðalræðisskrifstofa Hollands á ís- landi standa fyrir fundi um flutn- inga- og hafnarmál í Rotterdam og Reykjavík næstkomandi fimmtudag. Fundurinn er haldinn í tengslum við opinbera heimsókn Hollandsdrottn- ingar til Islands. Sendinefnd skipuð fulltrúum hollenska viðskiptalífsins verða þar með í för og munu þeir sitja fundinn. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borg- arstjóri Reykjavíkur, flytur inn- gangsávarp á fundinum undir nafn- inu Reykjavíkurhöfn - frjálst hafnar- svæði. Ræðumaður verður Harry Kloosterboer frá fyrirtækinu Euro- frigo, fulltrúi hafnaryfirvalda í Rott- erdam. Hann mun fjalla um starf- semi hafnarinnar í Rotterdam og kynna þá þjónustu og möguleika sem þar bjóðast auk þess að fjalla um tollafgreiðslumál. Fundurinn verður haldinn í Skála á Hótel Sögu og hefst kl. 11.30. Hann er öllum opinn en tilkynna þarf þátttöku fyrirfram. Fjarskipti Einkaaðilar undirbúa rekstur GSM-far- símakerfis STOFNAÐ hefur verið fyrirtæki á fjarskiptasviðinu til að undanbúa upp- byggingu og rekstur GSM-farsímakerfis sem yrði í beinni samkeppni við Póst og síma. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hafa fleiri aðilar hugsað sér til hreyfings og er verið að vinna að stofnun annars hlutafélags í sama tilgangi. Þessir tveir aðilar hafa í undirbúningi að sækja um starfs- leyfi til samgönguráðuneytisins. Er gert ráð fyrir að leyfi fyrir a.m.k. eitt farsímakerfi fyrir utan kerfi Pósts og sima verði veitt á næstunni af ráðuneytinu. Hjá Evrópusambandinu er gert ráð fýrir að a.m.k. tveimur leyfum fyrir farsímakerfi verði úthlutað í hveiju landi innan Evrópska efna- hagssvæðisins. í flestum Evrópu- landanna eru nú þegar a.m.k. tveir aðilar með leyfi til reksturs GSM- farsímakerfis. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er áætlað að stofnkostn- aður farsímakerfis sé á bilinu 300-500 milljónir fyrir kerfi sem er sambærilegt við kerfi Pósts og síma. Áætlað er að uppbyggingu á landskerfi verði lokið á 10 árum og kosti um 1,5 milljarða. Stefnt er að því að farsímanot- endur geti byrjað að nýta sér GSM- farsímakerfi Pósts og síma 16. ág- úst nk., en tilraunarekstur kerfisins mun hefjast nokkru fyrr. Styrkir Evrópusambandið 10 milljónir til skipaiðnaðar íjúní „Hvað verður gert þegar fjárveitingu þrýtur,“ spyrja samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði ÍSLENSKUR skipaiðnaður fékk nú í júní úthlutað styrkjum sem nema alls um 10 milljónum króna til þróunar- og markaðsstarfs. Um er að ræða helming af viðbótarstyrk sem stjórnvöld ákváðu að veita til iðnaðarins sl. vor, með það að markmiði að styrkja samkeppnishæfni fyrirtækja í skipa- og málmiðnaði. Hjá Málmi, samtökum fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, óttast menn þá óvissu sem mun skapast þegar sú fjárveiting sem stjórn- völd hafa ákveðið að veita til að bæta aðstöðu íslensks skipaiðnaðar í er- lendri samkeppni verður uppurin. Tíu milljónirnar skiptast á milli 12 verkefna frá jafnmörgum fyrir- tækjum, en alls bárust umsóknir um styrki í 21 verkefni frá 12 fyrirtækj- um í skipaiðnaði. Verkefnin sem hlutu styrki eru ýmist á sviði markaðsmála eða tækniþróunar. Markaðsþátturinn beinist að því að afla verkefna sem skila fyrirtækjunum tekjum á skömmum tíma, en þróunarverkefn- in ganga út á að þróa tæknibúnað sem gerir íslenskum fyrirtækjum í skipaiðnaði kleift að veita ýmsa þá þjónustu sem hingað til hefur aðal- lega verið á færi erlendra keppi- nauta. Einnig verða styrkt verkefni sem lúta að gæðaumbótum í þjón- ustu. 20-60% af heildarkostnaði Styrkupphæð til viðkomandi verk- efna er á bilinu 20-60% af áætluðum heildarkostnaði við verkefnin. Iðn- tæknistofnun íslands hefur umsjón með framkvæmd þeirra og hefur verkefnisstjóri á vegum stofnunar- innar heimsótt öll fyrirtækin og mótað verkefnin í samráði og sam- starfi við þau. Karl Friðriksson frá Iðntæknistofnun er umsjónarmaður verkefnisins. Hann mun hafa eftirlit með framgangi mála og greiða út styrki til fyrirtækjanna eftir fram- vindu og árangri miðað við þá áætl- un sem samþykkt hefur verið. Þeim verkefnum sem ekki fengu styrk verður vísað á aðrar fjármögnunar- leiðir. Full ástæða til að óttast framhaldið Forsvarsmenn Málms, samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, sendu nýlega frá sér fréttatilkynn- ingu þar sem segir að verði horfið frá þeim aðgerðum til að jafna að- stöðumun íslensks skipaiðnaðar gagnvart ríkisstyrktum skipaiðnaði samkeppnisþjóða sem ákveðnar voru í upphafi árs vegna þess að fjárveit- ingu þrjóti verði stjórnvöld að grípa til annarra tiltækra aðgerða til að jafna aðstöðumuninn. Þær 40 milljónir sem ákveðið var að veita til íslensks skipaiðnaðar í janúar sl. voru uppurnar í vor. „Þetta ástand hefur varað í röska tvo mán- uði þegar loks liggur fyrir ákvörðun um að verja til þessara mála 20 milljónum króna til viðbótar, en eng- inn getur sagt fyrir um það með neinni vissu hvort þessir fjármunir nægja til þess að mæta því mark- miði að jafna aðstöðumun íslensks skipaiðnaðar til loka þessa árs,“ seg- ir í fréttatilkynningunni og ennfrem- ur að full ástæða sé til að óttast þá óvissu sem enn muni skapast ef þessir fjármunir gangi fljótt til þurrðar. Það þeim mun frekar að tilkynnt hafi verið að ekki verði um frekari fjárveitingar að ræða á þessu ári. Harka gegn ríkisaðstoð við flugfélög eykst Brussel. Reuter. STJÓRNARNEFND Evrópusambandsins hefur boðað harðari afstöðu til ríkisstuðnings við illa stödd flugfélög í stefnumótunarskjali, sem hefur verið dreift til aðildarlandanna. Þar segir að þar sem nefndin vinni að því að þessari aðstoð verði hætt í áföngum hyggist hún ganga harðar eftir því að fylgt verði regl- um um ríkisaðstoð fyrir 1. apríl 1997. Frá apríl 1997 verður Evrópu- sambandið sameiginlegur markað- ur flugfélaga, fræðilega séð. Aukið frelsi verður meðal annars til þess að flugfélag í einu ESB-ríki fær rétt til þess að útvega framhalds- flug með öðru flugfélagi. Eftir þennan tíma mun stjórnar- nefndin meta nákvæmlega áhrif ríkisaðstoðar á samkeppni og aðeins leyfa slíka aðstoð í undantekningar- tilfellum, segir í skýrslunni. Undir vissum kringumstæðum verði ríkis- aðstoð leyfð ef flugfélög eigi við fortíðarvanda að stríða. Með því er meðal annars átt við ríkisafskipti sem komi í veg fyrir að flugfélag geti gætt hagsmuna sinna. Skjalið er fyrst og fremst vís- bending um afstöðu nefndarinnar til ríkisaðstoðar í framtíðinni, en lýsir um leið afstöðu hennar um þessar mundir í nokkrum málum, sem snerta flugfélögin Air France, Olympic Ainvays og TAP Air Port- ugal. Heimsmarkadur Kaffi hækkar um lh KAFFIVERÐ SNARHÆKKAR Kaffiverð hækkaði um þriðjung á mánudag vegna ótta um að 1 frost myndu spilla uppskerunni í Brasilíu, hinni mestu í heimi. | auu 160 S<nrf 120 80 ’OpnimrmðlNtwrork 40 . . ...',? ■: -.1 : i'.i ; >.:■ r - . REUTER 89 90 91 92 93 94 London. Reuter. VERÐ á kaffi hækkaði um þriðjung á mánudag vegna frétta um mestu frost í 13 ár í aðalframleiðsluland- inu, Brazilíu. Þegar hefur verið varað við því að hækkun á smásöluverði kunni að fylgja í kjölfarið. Við lokun á markaðnum í London hafði verð á kaffi til afhendingar í septem- ber hækkað um 775 doll- ara í 3.030 og það er mesta hækkun sem um getur. Skortur á kaffi kann að verða langvinnur vegna hugsanlegs tjóns af völdum frostskemmda á uppskerunni í Brazilíu á næsta ári, að sögn þýzks sérfræðings. Al- mennt hefur uppskera verið lítil í heiminum og gengið hefur á birgð- ir, en neyzla helst stöðug. Kaffiverðið hefur hækkað um helming það sem af er þessu ári og hefur ekki verið eins hátt í l'h ár. Mikið umrót hefur verið á kaffí- mörkuðum, en sumir sérfræðingar telja of snemmt að fullyrða um áhrif frostanna í Brazilíu. Qt beneflon Laugavegi 97 UTSALAN HEFST Á MORGUN LOKAÐ í DAG Q beneífi on Laugavegi 97

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.