Morgunblaðið - 28.06.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ1994 19
Menningarhátíð haldin
í Noregi á lýðveldisári
ÓLAFUR G. Einarsson, mennta-
málaráðherra, og Jörgen Kosmo,
varnarmálaráðherra Noregs, settu
nýlega menningarhátíð í Osló sem
haldin er þar í sumar í tilefni 50 ára
afmæli lýðveldisins íslands. Marg-
víslegir menningarviðburðir, svo sem
ljósmyndasýning, tónleikar, leiklist,
brúðuleikhús og málþing um hin
norsk-íslensku menningartengsl,
verða á dagskrá menningarhátíðar-
innar undir samheitinu „Islands
stemme í Norden - Island 50 aar“.
í ræðu sem menntamálaráðherra
flutti á málþinginu lagði hann
áherslu á að styrkja ætti gagn-
kvæma þekkingu á tungum þjóð-
anna sem mikilvæga forsendu fyrir
árangursríkum samskiptum þeirra á
milli.
„Þegar menningarstefnu ber á
góma á íslandi er oft byrjað á að
slá því föstu, að undirstaða íslenskr-
ar menningarstefnu sé varðveiðsla
og eflingar íslenskrar tungu. Ég
geri ráð fyrir að þessi áhersla á lykil-
hlutverk móðurmálsins í þjóðmenn-
ingunni sé öllu meiri hjá íslendingum
en gengur og gerist hjá mörgum
öðrum þjóðum, þó gæti verið að
Frakkar veittu okkur harða sam-
keppni í þessu efni. En afstaða okk-
ar á sér þá einföldu skýringu að við
trúum því, mörg okkar, að ef við
hættum að hugsa, tala og skrifa á
íslensku yrði ekki lengur um að
ræða neitt sjálfstætt menningarsam-
félag á Islandi. Menningarleg undir-
staða okkar er ekki síst þær bók-
menntir sem færðar voru í letur fyr-
ir meira en sjö hundruð árum. Ef
við hættum að geta lesið þær án
skýringa, þá höldum við að við verð-
um orðin að annarri þjóð, eða engri
þjóð,“ sagði Ólafur G. í ræðu sinni.
í erindi sem Aase Kleveland,
menningarmálaráðherra Noregs,
flutti lýsti hún ósvikinni aðdáun á
íslandi og því sem íslenskt er, en
hún var nýlega stödd á íslandi á
fundi norrænna mennta- og menn-
ingarmálaráðherra. Hún benti á að
Vigdís Finnbogadóttir hefði haft það
á orði að vamarmál íslands væru
fólgin í varðveislu tungu og menn-
ingar.
Alþingi á lýðveldistíma
í TILEFNI af fimmtíu ára afmæli lýðveldisins er haldin sýning í
Alþingishúsinu er ber yfirskriftina Alþingi á lýðveldistíma. Markmið-
ið með sýningunni er að gefa fólki kost á að koma í þinghúsið og
kynnast störfum þingsins.
Norskir tón-
listarnemar
spila í Nor-
ræna húsinu
NORSKIR tónlistamemar halda
síðdegis í dag tónleika í Norræna
húsinu. Leikin verða verk eftir
ýmis tónskáld. Hér eru á ferð 12
til 18 ára nemendur tónlistarskól-
ans í Haugasundi. Þau hafa ferðast
víða um landið að undanfömu og
meðal annars spilað á Austfjörðum.
Ferðin er náms- og skemmtiferð
og héðan heldur hópurinn til Fær-
eyja. Allir eru velkomnir á tónleik-
ana sem hefjast klukkan 17.
Jafnframt því að skoða þinghúsið
sjálft er gestum boðið upp á ýmsa
fræðslu um þingið. í þingflokks-
herbergjum á fyrstu hæðinni er á
veggspjöldum fjallað um aðdrag-
anda lýðveldisstofnunarinnar og
starfsemi Alþingis á lýðveldistím-
anum í máli og myndum. Einnig
er sýnt brot úr lýðveldishátíðar-
kvikmynd. Á annari hæðinni hafa
verið settar upp myndir af öllum
þingmönnum á lýðveldistímanum.
I sal efri deildar verða til sýnqs
gjafir og ávörp er bárust 1930. Á
lestrarsalnum er kynning á verk-
efnum þingsins og störfum þing-
manna. Skreytingar í Kringlunni
eru nýuppgerðar.
Sýningin verður opin alla daga
nema laugardaga kl. 13.30 - 16.30
til 30. júlí.
Aðrir fulltrúar íslands á málþing-
inu voru dr. Gylfi Þ. Gíslason og
Eiður Guðnason sendiherra.
Læknasetrið sf.
Þönglabakka 6-109 Reykjavík • Sími 677700 • Fax 677707
Vegna mistaka við útgáfu símaskrár 1994, viljum við vekja
athygli á að eftirtaldir læknar eru starfandi við Læknasetrið:
AriJóhannesson, sérfr. í lyflœkningum, innkirtla- og efnaskiptasjúkdómum.
ÁmiJón Geirsson, sérfr. t gigtarsjúkdómum.
Ásgeir Böðvarsson, sérfr. í lyflcekningum og meltingarsjúkdómum.
Ástrdður R Hreiðarsson, sérfr. í hormóna- og efnaskiptasjúkdómum.
Bima Jónsdóttir, röntgenlœknir.
Bjöm Magnússon, sérfr. í lungnasjúkdómum.
Davíð Gíslason, sérfr. í lyflœkningum og ofnœmissjúkdómum.
Eiríkur Jónsson, sérfr. íþvagfœralœkningum.
Guðjón Baldursson, sérfr. í krabbameinslœkningum.
Guðmundur Benediktsson. sérfr. í krabbameinslcekningum.
Guðmundur Ingi Eyjólfsson, sérfr. ílyflœkningum og blóðsjúkdómum.
Guðmundur M. Jóhannesson, sérfr. í blóðsjúkdómum.
HaUgrímur Guðjónsson, sérfr. í lyflœkningum og meltingarsjúkdómum.
Kjartan Magnússon, sérfr. í krabbameinslœkningum.
Kristján Erlendsson, sérfr. í lyflœkningum, ofnœmis- og ónœmisfrœði.
Kristján Steinsson, sérfr. í lyflœkningum og gigtarsjúkdómum.
Magni S. Jónsson, sérfr. í lyflœkningum og lungnasjúkdómum.
Magnús Böðvarsson, sérfr. í lyflœkningum og nýrnasjúkdómum.
Már Kristjánsson, sérfr. í smitsjúkdómum.
Sigurður Ámason, sérfr. í krabbameinslœkningum.
Sigurður Bjömsson, sérfr. í lyflœkningum og lyflœkningum krabbameina.
Steinnjónsson, sérfr. í lyflœkningum og lungnasjúkdómum.
Tryggvi Ásmundsson, sérfr. í lungnasjúkdómum.
Unnur Steina Bjömsdóttir, sérfr. í lyflœkningum og ofnœmissjúkdómum.
Vilhelmína Haraldsdóttir, sérfr. í lyflœkningum og blóðsjúkdómum.
Þorsteinn Blöndal dr. med., sérfr. í lungnasjúkdómum.
Þórarinn Gíslason, sérfr. í lungnasjúkdómum.
Þorvaldurjónsson, sérfr. í skurðlœkningum.
Tímapantanir alla virka daga kl. 9-12 og 13-17 í síma 677700.
Vinsamlegast setjið þessa auglýsingu í símaskrána.
rVARANLEG~\
| VIÐGERÐ! |
I Ji
I Þessa viögerö framkvæmir
| Þú best með PLASTIC PADDING |
CHEMICAL METAL!
I Rýrnarekki, springurekki |
Grimmsterkt á 10 mínútum.
| FYLLIR-LÍMIR-ÞÉTTIR
Alltaf nægur tími
fyrir leikinn...
...fjórar McÞrennur, einn
McMjólkurhristing, þrjár kók, fjórar
McFranskar. briár Enlabökur.
Hraðlestin Beint-í-Bílinn, Suðurlandsbraut 56.
OPIÐ 10:00-23:00
Alþjóðlegur styrktaraðili
HM1994USA