Morgunblaðið - 28.06.1994, Side 32

Morgunblaðið - 28.06.1994, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Ferdinand HERE, I TH0J6HT \ Y0JMI6HTLIKE \ TOSEETHEMENJ FOKNEjtrWEEICr^** ^ l'D06 FOOP, D06 FOOD, D06 FOOP, D06 F00D,D06 FOOD, D06 FOOP ANP P06 FOOD"^ É ( NO 5HERBET \ (TO CIEAN5E THE \PALATE? b-n- f % l œ I V) 1 $ u. I Z) ! © —/ «i MÍWÍÍ) 'é, i fcj. Gjördu svo vel, mér datt í „Hundamatur, hundamatur, hunda- Enginn frauðís til að hug að þú vildi sjá matseð- matur, hundamatur, hundamatur, hreinsa bragðið úr munn- ilinn fyrir næstu viku. hundamatur, hundamatur." inum? BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylqavík • Sími691100 # Símbréf 691329 Opið bréf tíl Brynjólfs Sandholts yfirdýralæknis Frá Sigríði Sigurðardóttur: HEIÐRAÐI yfirdýralæknir, Brynj- ólfur Sandholt! Betra er seint en aldrei. Ég hefði fyrir löngu átt að vera búin að klaga undan aðferð við eyð- ingu tveggja katta minna á Dýrasp- ítalanum í Reykjavík 1. mars 1993. Ég óskaði eftir því að fá að vera viðstödd við aflífun þessa tveggja vina minna og fékk það, eftir að ég hafði greitt aftökugjaldið. Kvendýra- læknir og ungur aðstoðarmaður stóðu þarna fyrir verklegum fram- kvæmdum. Þar sem að ég hafði áður fyrir annan aðila farið með kött til eyðing- ar til dýralæknis á Selfossi og einnig þar fengið að vera viðstödd, bjóst ég við samskonar vinnubrögðum á sjálfum Dýraspítalanum, eða í öllu falli ekki síðri, en aðferð dýralæknis- ins á Selfossi var til mikillar prýði. Hann gaf kettinum svefnsprautu og lagði hann því næst í þar til gerðan pappakassa með loftgötum á og beið þar til dýrið sofnaði, áður en hann svo gaf honum dauðasprautuna. Þetta var og er mannúðleg aðferð við aftöku dýra að mínu mati. Gengur yfirleitt fljótt og vel Þegar ég svo þarna á dýraspítal- anum innti kvendýralækninn eftir því, hvort ekki væri viðhöfð samskon- ar aðferð þar og ég hef lýst að fram- an, fékk ég neikvætt svar. Ungi að- stoðarmaðurinn hnýtti við setning- una „að yfirleitt gengi þetta nú bæði vel og fljótt, en vissulega kæmi það fyrir að dýrin trylltust, en slíkt væri afar sjaldgæft; venjulega fara þeir að sleikja út um og leggjast svo nið- ur og sofna“. Mér varð um og ó, en þarna var náttúrlega um fagmenn að ræða og ég og samferðafólk mitt hafði á þessu stigi mátsins fremur fátt til málanna að leggja og því var lagt til atlögu um framkvæmd enda var það til- gangur ferðarinnar. 111 meðferð Kattdýrin tvö voru fress (högni) og læða (bleikja). Fressinn var tekinn fyrst. Stórri sprautu var stungið í magann á honum. Veinin í honum á meðan sprautan var tæmd inn í hann hljóma enn fyrir eyrum mér. Að því loknu var honum stungið inn í rimla- búr. Hann var með fullri meðvitund og opin augu... hálf vitlaus af hræðslu yfir meðferðinni. Sömu með- ferð fékk læðan. Einnig hún tryllt- ist, öskraði og veinaði undir aðgerð- inni. Hún hafnaði líkt og fressinn í rimlabúri eftir sprautuna og virtist mér sem henni liði mjög illa, enda þekkti ég dýrið mitt mjög vel. Gekk ég að rimlabúrinu og reyndi þar að tala hlýlega til hennar. Kvendýra- læknirinn sagði þá að hún þyrfti stærri skammt og var hún því tekin aftur út úr búrinu í þeim tilgangi. Ekkert varð þó úr þeim fyrirætlun- um, því að kisa hreinlega ærðist þegar hún sá aftur kvalara sína með morðvopnið, þ.e.a.s. sprautuna, og var henni í hasti aftur holað inn í rimlabúrið. Hún hafði þá ennþá fulla meðvitund og þrek og reyndi allt hvað hún gat til þess að komast út og hljóp um inni í þröngu búrinu, en svo kom smám saman sljóleiki yfir báða kettina. Ég sat nokkuð lengi yfir búrunum og leið sannast sagna alveg ferlega illa og var full eftirsjár yfir því að hafa farið með dýrin til Dýraspítal- ans. Betra og mannúðlegra hefði verið að fara með þau til eyðingar til dýralæknisins á Selfossi, sem að mínu mati er sannur dýravinur og hefur sýnt það í verki. Hjartsláttur kattanna minna var ekki stoppaður, þegar að ég varð að yfirgefa stofnunina, en vitanlega er mér það ljóst að þau hafa ekki vakn- að aftur, eftir að þau loksins sofnuðu. Það átti víst að brenna kroppana, var mér tjáð. Vonandi hafa litlu deyj- andi hjörtun fengið næði til þess að stoppa., áður en sú aðgerð var sett í framkvæmd. Ómannúðlegar aðferðir Hr. yfirlýralæknir. Þessi aðferð við aftöku dýra yfirleitt finnst mér í einu orði sagt vera ógeðsleg og ómannúðleg. Ég er ekki að halda því fram að þú berir ábyrgðina á vinnu- aðferðum Dýraspítalans, eða aðferð- um dýralækna og starfsfólks þar, þó að mér vissulega bjóði í grun að svo sé með tilliti til starfsheitis þíns og stöðu. Húsdýrin okkar íslendinga, hvort sem við búum heima á klakan- um eða erlendis, eru okkar tryggustu vinir og það er beinlinis ljótt að svíkja þau á dauðastund með óbærilegum kvölum og angist. Ástæða þess að ég þurfti að láta farga vinum mínum (ef það er þá eitthvert atriði í myndinni) var sú að ég var að flytjast erlendis. Það er líka þess vegna sem það hefur dregist svo lengi hjá mér að koma því í verk að skrifa eða láta í mér heyra vegna þessara fólskulegu að- ferða dýraspítalans, eða drápsað- ferða. Endurskoðið aðferðirnar Ég hef í gegnum árin haft mikla samvinnu við dýralækna og séð að- ferðir þeirra. Ég var fædd í sveit á Suðvesturlandi og giftist síðar bónda á Norðurlandi. Tengdasonur minn og dóttir ráku bú á Suðurlandi. Ég nefni þetta bara svona svo að mér verði ekki kennt um þekkingarskort á starfsaðferðum dýralækna yfirleitt. Ég vona innilega hr. yfirdýralæknir að þú takir þetta bréf mitt til alvar- legrar athugunar. Allt það sem ég hef skrifað hér í bréfinu er hreinn og klár sannleikur, því miður. Mér til styrks, ef einhver efi er á, þá hef ég mér til halds og trausts tvö vitni, sem voru með mér við umrætt tæki- færi. Ef einhver vill svara mér, má gera það á hvern hátt sem er: á síðum Morgunblaðsins, skrifa mér beint, eða hringja til mín. Með bestu kveðjum. SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Folstjárnevágen 4, 55463 Jönköping, Svíþjóð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.