Morgunblaðið - 28.06.1994, Page 36

Morgunblaðið - 28.06.1994, Page 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Jack Palance hóf feril sinn sem blaðamaður ► JACK Palance stundaði há- skólanám við Stanford og hafði atvinnu af blaðamennsku á sín- um yngri árum. „Þegar mér voru boðnir 35 dollarar [2.450 ísl. krónur] á viku sagði ég við sjálf- an mig: „Til helvítis með þetta kjaftæði, best að skella sér til Hollywood!““ Síðan þá hefur fer- ill hans legið upp á við í og hann hlaut Óskarsverðlaun árið 1992 fyrir hlutverki sitt í kvikmynd- inni „City Slickers“. Þá lék hann úrillan kúreka að nafni Curly og nú er framhald þeirrar kvik- myndar væntanlegt þar sem Pal- ance leikur tvíburabróður Cur- lys. „Fyrst lék ég mann sem helg- aði líf sitt kúm,“ sagði Palance. „Núna leik ég tvíburabróður hans. Hann þolir ekki hesta, hat- ar kýr og mislíkar flest annað.“ ^ Háskólabíó Það er ekki á hverjum degi sem maður sieppur ódýrt frá því að mæta í brúðkaup. En í dag á þriðjudagstiiboði gefst þér kostur á að skella þér á launfyndnasta brúðkaup seinni ára og það fyrir aðeins 400 kr. Landkynning Walter Croncite á Islandi BANDARÍSKI sjónvarpsmaðurinn Walter Croncite kom hingað til iands í upptökur á ijórum kynningum fyrir ijórtán sjónvarps- ætti sem heita Scandinavia og eru fram- leiddir fyrir PBS-sjónvarpsstöðvakeðjuna. PBS er gríðarstór sjónvarpskeðja sem á þijú hundruð almenningssjónvarpsstöðvar í Bandaríkjunum. Valgeir Guðjónsson _er framieiðandi þessara þátta á Islandi: „Eg tók að mér skipulagningu á ferðum þátta- gerðarmannanna hingað. Síðan kom ég með hugmyndir að efni og viðtölum og sá um að öfl- un fjármagns fyrir þættina. Tökurnar gengu fljótt fyrir sig þannig að honum gafst nú ekki færi á að veiða lax eða kynnast íslandi mikið, en það kæmi mér nú ekki á óvart ef hann kæmi hérna aftur einhvern tíma í framtíðinni.“ Croncite tók WALTER Croncite og Valgeir Guðjónsson. sjónvarpsviðtöl inn í þessa þætti við forseta ís- lands og forsætisráðherra. Kynningarnar með honum voru ailar teknar upp í Reykjavík og nágrenni, þar á meðal kynningin fyrir fyrsta þáttinn sem spáð er mikilli Tiorfun og var tekin við Sólfar Jóns Gunnars Árnasonar. Jeff Bridges er sama um peninga ►ÞRÁTT fyrir að flestir séu sammála um að Jeff Bridges sé hæfileikaríkur leikari og leikstjóri hafa myndir hans ekki slegið í gegn sem skyldi í Bandaríkjunum. „Það skiptir mig engu máli hvort þær kvikmyndir sem ég leikstýri hala inn hundrað milljónir dollara [sjö milljarða ísl. króna]“, segir Bridges. „Mér er drullusama hvort ég græði tíu milljónir dollara eða tvær milljónir dollara fyrir hverja mynd. Eg vil miklu heldur leikstýra fimm áhugaverðum kvikmyndum sem hljóta enga aðsókn heldur en has- armynd þó að hún skili margföld- um hagnaði." Bridges er fjörutíu og fjögurra ára gamall og er giftur konunni sem hann kynntist fyrir nítján árum síðan. Hann hefur leikið í tiltölulega fáum myndum og segir það vera vegna þess að hann sé svo mikill fjölskyldumaður: „Mér líkar afar illa að vera vikur eða mánuði að heiman. Eg er kannski síðasti maðurinn í Hollywood sem vill frekar farsælf hjónaband heldur en kvikmynd sem fær metaðsókn.“ Jeff Bridges í myndinni Bilun í beinni útsendingu (The Fisher King). Isabella Rosselini og Jeff Bridges í „Fearless".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.