Morgunblaðið - 11.08.1994, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1994 3
Sunnudaginn 14. ágúst!
Sunnudaginn 14. ágúst kl. 13 - 20 bjóða bændur á fjörutíu og
þremur bæjum víðs vegar um landið íslendingum á öllum aldri í
heimsókn. Þá munu húsráðendur og heimafólk gefa gestum sín-
um einstakt tækifæri til þess að kynnast lífinu í sveit, dýrunum,
vinnunni, rekstrarþáttunum, framförunum og nýjungunum.
Njóttu lífsins í sveitinni á sunnudaginn. Engir tveir bæir eru
eins en víðast geturðu klappað dýrum og kíkt í fjós, borðað
nesti í fögru umhverfi og notið töðuilmsins, sveitaloftsins,
ÍSLENSKUR
LANDBÚNAÐUR
kyrrðar og fegurðar. Á einum stað gætirðu að auki bragðað á
heimagerðu smjöri, heimareyktri bleikju eða hákarlsbita, á
öðrum lent í grillveislu, bátsferð eða hestasýningu, komist í
veiðiskap eða eitthvað allt annað og bráðskemmtilegt fyrir
böm og fullorðna.
Heimboð bænda er tilvalinn áfangastaður í skemmtilegum
sunnudagsbíltúr í sveit. Láttu sjá þig með alla fjölskylduna.
- og gefðu þér góðan tíma!
Á þessum bæjum bjóða bændur heim:
1. Dalsgarður, Mosfellsdal, 4 km frá Mosfellsbæ
2. Crjóteyri, KjÓS, 30 km frá Mosfellsbæ
3. Ferjukot.BorgarfírðÍ, 15 km frá Borgarnesi
4. Brúarland, Hraunhreppi, 17 km frá Borgarnesi
5. Bjarnarhöfn, Snæfellsnesi, 20 km frá Stykkishólmi
6. Langaholt/Garðar, Snæfellsnesi, 33 km frá óiafsvík
7. Botn/Birkihlíð, Súgandafirði, ío km fráSuðureyri
8. Fossá, Barðastrond, 15 km frá Brjánslæk
9. BÚrfell, V-Húnavatnssýslu, 20 km frá Hvammstanga
10. Stóra-Ciljá, A-Húnavatnssýslu, 13 km frá Biöndósi
11. Flugumýrarhvammur, Skagafirði, 10 km frá varmahlíð
12. Litla-Brekka, Skagafirði, s km frá Hofsósi
13. Ásgeirsbrekka, Skagafirði, 15 km frá Sauðárkróki
1 4. Keta, Skagafirði, 17 km frá Sauðárkróki
1 5. Egg, Skagafirði, 17 km frá Sauðárkróki
16. Stóru-Akrar I, Skagafirði, 7 km frá Varmahlíð
17. Saurbær, Skagafirði, 6 km frá Varmahlíð
18. Syðra-Skörðugil, Skagafirði, 5 km frá Varmahlíð
1 9. Hátún, Skagafirði, 5 km frá Varmahlíð
20. Garðakot, Skagafirði, 23 km frá Hofsósi og Sauöárkróki
21. Þórisstaðir, Svalbarðsströnd, 12 km frá Akureyri
22. Víðigerði, Eyjafirði, 15 km frá Akureyri
23. Hríshóll, Eyjafirði, 27 km frá Akureyri
24. Möðruvellir, Hörgárdal, 12 km frá Akureyri
25. Sakka, Svarfaðardal, 5 km frá Dalvík
26. Laxamýri, Reykjahreppi, 8 km frá Húsavík
27. Pálmholt, Reykjadal, 8 km frá Laugum
28. Hraunkot I, Aðaldal, 17 km frá Húsavík
29. Cunnarsstaðir, Svalbaröshreppi,12 km frá Þórshöfn
30. HÓII, Kelduhverfi, 43 km frá Kópaskeri
31. Engihlíð.vopnafirði, 8 km frá Vopnafirði
32. Möðrudalurjökuldal, 100 km frá Egilsstöðum '
33. Berunes við Berufjörð, 29 km frá Breiðdalsyík
34. Hof, Öræfum, 4 km frá Fagurhólsmýri
35. Fagridalur, Mýrdal, 5 km frá vík
36. Þorvaldseyri, Eyjafjallahreppi, 10 km fráskógum -
37. Stóra-Hildisey II, A-Landeyjum, 18 km frá Hvoisveiii
38. Selalækur, Rangárvöllum, 6 km frá Heiiu
39. Hrosshagi, Biskupstungum, 5 km frá Reykholti
40. Reykir, Skeiðahreppi, 6 km frá Brautarhoiti ,
41. Reykjahlíð, Skeiðahreppi, 6 km frá Bragtarholti
42. Reykhóll, Skeiðahreppi, 6 km frá Brautarhólti
43. Cljúfur, Ölfusi, 6 km frá Hveragerði