Morgunblaðið - 11.08.1994, Side 6

Morgunblaðið - 11.08.1994, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg Lagaákvæði um fullvinnslu um borð endurskoðuð SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur ákveðið að láta endurskoða ákvæði laga um fullvinnslu botn- fiskafla um borð í veiðiskipum sem tóku gildi í júnímánuði 1992. Jafn- framt hefur ráðuneytið ákveðið að fresta um eitt ár gildistöku ákvæðis reglugerðar um 60% nýtingu þorsks, ýsu og ufsa hjá eldri fullvinnsluskip- um meðan endurskoðun fer fram. I lögum um fullvinnslu botn- fiskafla um borð í veiðiskipum var mörkuð sú meginstefna að öll skip sem fullvinna botnfisk um borð skyldu koma með allan afla að landi, þar með talið slóg og fiskúrgang sem til félli við vinnsluna. Var þeim skip- um sem vinnslu höfðu hafið fyrir gildistöku laganna eða smíði var hafin á fyrir 22. júní 1992 veittur frestur til 1. september 1996 til að fullnægja þessu ákvæði. Nýjum skip- um var ekki veittur neinn frestur í þessu efni. Jafnhliða þessu voru gerðar auknar kröfur til eldri full- vinnsluskipa um nýtingu aukaafla og fiskúrgangs og var m.a. ákveðið í reglugerð að fyrir fiskveiðiár það sem hæfist 1. september 1994 bæri þeim að hafa náð 60% meðalnýtingu á þorski, ýsu og ufsa. Nú hefur ráðu- neytið ákveðið að fresta fresta um eitt ár gildistöku þessa ákvæðis reglugerðarinnar. Framkvæmdastj ór i Sambands sparisjpða um niðurfell- ingu þjónustugjalda hjá Sparisjóði Ónundarfjarðar Breytir ekki gjaldtöku Nýtt fangelsi rís FRAMKVÆMDUM við ný- byggingu fangelsisins á Litla- Hrauni miðar vel að sögn Har- aldar Johannessen formanns framkvæmdanefndar. Búið er að steypa upp tvær af þremur hæðum hússins og hluta þriðju hæðar. Gert er ráð fyrir að húsið verði tekið í notkun næsta vor. í nýbyggingunni verður rúm fyrir 50 til 55 af- plánunarfanga en samtals fjölgar fangaplássum úr 51 í 87 á Litla-Hrauni með tilkomu þessa nýja fangelsis. JÓN Magnússon lögfræðingur og framkvæmdastjóri Neytendafélags höfuðborgarsvæðisins telur ákvörðun Sparisjóðs Önundarfjarð- ar um að fella niður þjónustugjöld af hinu góða og vonandi leiði hún til þess að fleiri taki slíka ákvörðun og í framtíðinni verði gjaldtaka bankanna talin ólögleg. Sigurður Hafstein framkvæmdastjóri Sam- bands sparisjóða segir ákvörðun sparisjóðsins engu breyta. Segir Jón Magnússon að von- andi leiði fyrirhugaður fundur samtakanna með bönkum og við- skiptaráðuneyti til þess að hægt sé að ná samkomulagi og bankarn- ir leggi þjónustugjöld á það sem teljist þjónusta og annað ekki. Hann segir ennfremur að hann vonist til þess að samstaða lána- stofnana verði rofin í kjölfar ákvörðunar Sparisjóðs Önundar- ijarðar. Sigurður Hafstein fram- kvæmdastjóri Sambands spari- sjóða segir að ákvörðun Sparisjóðs Önundarfjarðar hafi engin áhrif á afstöðu sparisjóðanna, sem sé óbreytt. „Við vorum búnir að und- irbúa gjaldskrána lengi og ræki- lega og það hefur ekkert gerst sem breytir þeirri ákvörðun. Lögum samkvæmt er Sparisjóðunum heimilt að hafa samráð um vexti og þjónustugjöld. Morgunblaðið/Júlíus GSM-farsími GSM-farsímarnir eru fyrir- ferðarlitlir og handliægir. Inn í þá er rennt korti með upplýsingum um notandann og skráir það jafnframt notk- un símans. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? 24 punda hæng- ur úr Bugðufossi Það er ekki sama hvar menn eru staddir á landinu með tilliti til þess hvort að veiðiskapur hefur gengið vel, sæmilega eða þaðan af verr. Það hefur verið, eins og nefnt hefur verið, ákaflega klippt og skorið. Frá Dölum vestur, og austur um allt Norðurland. Ástandið er ekki gott þrátt fyrir að einhver reytingur hafi komið af smálaxi síðustu vikuna. Meira þarf til að árnar rétti úr kútnum og nú eru margir að auki farnir að hugsa um næstu sumur. Hvernig verða þau? Hvað verður af stórlaxi í ánum á aflabrests- svæðunum þegar jafn lítið er af smálaxi og raun ber vitni? Og hvemig árgangur kemur undan jafn liðfáum göngum? Einn sá stærsti í Laxá í Kjós... Spænskur veiðimaður gerði sér lítið fyrir og dró 24 punda hæng úr Fossinum í Bugðu í Kjós á mánudagsmorguninn. Laxinn fékk sá spænski á flugu og var glíman hörð. Fyrir um 30 árum veiddi Kristján Sigurmundsson jafnstóran lax í Laxá, en síðan hefur enginn svo vænn veiðst í ánni, stærst 22 punda fískur fyrir nokkuð mörgum árum. Rólegheit í Laxá á Ásum... Milli 400 og 500 laxar hafa veiðst í Laxá á Ásum og veiðin þar verið kaflaskipt. Það hafa komið sprettir, en síðan hefur botninn dottið úr á milli. Árni Baldursson sagði í samtali við Morgunblaðið, að t.d. hefðu tveir Bandaríkjamenn á hans vegum verið í ánni með báðar stangirn- ar í tvo daga fyrir skömmu og aðeins fengið tvo laxa. Dræmt í Dölum... Árni Baldursson var á leið í Laxá á Ásum er rætt var við hann, en hefur að undanförnu verið við veiðar í Dölunum, Fáskrúð og Laxá. „Þetta er orðið vatnslaust og það lítur ekki vel út því spáin hljóðar ekkert upp á rigningu á þessum slóðum. Þrátt fyrir þetta er með ólíkindum hvað lax hefur verið að skrattast upp árnar, sérstaklega Laxá, þrátt fyrir af- leit skilyrði. Þetta eru samt ekki nema kannski 400 laxar sem veiðst hafa og varla að veiðin nái því að geta kallast sæmileg. í Fáskrúð er ástandið enn verra, við sáum mjög lítið af laxi og áin hafði ekki gefið nema um 50 stykki. Ég frétti að ástandið væri svipað í Flekkudalsá," sagði Árni. Byijaður að ganga í Vatnsá... Við skiljum ekki strax við Árna, hann er leigutaki Vatnsár við Vík í Mýrdal og sagði hann að á mánudaginn hefðu 17 laxar verið komnir á land og fyrstu göngurnar verið að skila sér síð- ustu daga. „Ég spái eiginlega aldrei í Vatnsá fyrr en í ágúst, þetta er þvílík síðsumarsá. Nær .öll veiðin í henni er tekin í ágúst og september og hún fer batn- andi er á Iíður,“ sagði Árni. Talsverður fiskur í Gljúfurá Talsvert er af laxi í Gljúfurá í Borgarfirði eins og flestum ám Borgarfjarðarhéraðs og fyrir skömmu höfðu 83 laxar veiðst. Síðustu vikurnar hefur laxinn átt það til að taka mjög illa, en veðrabrigði gætu sett allt í gang. Fluguspil... Eyþór Sigmundsson, „Kokkur- inn“, sem erflestum stangaveiði- mönnum að góðu kunnur, hefur verið í póstkortaútgáfu síðustu árin og skýrði fyrirtækið á sínum tíma „Laxakort". Hann hefur nú bætt um betur og sent frá sér spilastokka sem hljóta að höfða sterklega til þeirra sem bæði eru haldnir veiðidellu og einnig ár- áttu að grípa til spila. Eins og sjá má af meðfylgjandi mynd eru í stað hefðbundinna mynda af kóngafólki, ljósmyndir af göml- um klassískum laxaflugum og kennir margra grasa, enda eru alls 54 tegundir þarna að finna. Aðeins ein fluga tengir okkur við nýja tímann, Laxá blá Þórðar Péturssonar, sem einnig hefur afrekað það að komast í vöru- lista bandaríska stórfyrirtækis- ins Orvis. Það var Pétur Stein- grímsson í Nesi, landskunnur fluguhnýtari, sem hnýtti flug- urnar sem Magnús Hjörleifsson ljósmyndaði síðan. Litgreining og filmuvinnsla fór hins vegar fram í Litrófí hf. „Þetta er fyrir nokkru komið á markaðinn og óhætt er að segja að þetta hafi fengið frábærar viðtökur," sagði Eyþór kokkur í samtali við Morg- unblaðið. GSM-farsíma- kerfið opnað á þriðjudag NÝTT farsímakerfi, GSM (Global System Mobile) verður opnað af Pósti & síma næsta þriðjudag. Kerfið er stafrænt og hefur ýmsa kostir fram yfir núverandi kerfi, m.a. þann að ekki er hægt að hlera símtöl í því. Auk þess eru símtæk- in lítil og handhæg og eru ekki bundin við farartæki eða burðar- einingu. Fyrst um sinn verður hægt að nota kerfið á höfuðborgarsvæðinu, frá Keflavík og upp á Kjalarnes og á Akureyrarsvæðinu. Stækkun kerfisins ræðst síðan af viðtökun- um sem það fær. Núverandi kerfi, NMT (Nordic Mobile Telephone), verður starf- rækt áfram en í því eru nú um 18.000 notendur. Forsvarsmenn Pósts & síma vonast til að nýja kerfið muna létta álagi af NMT- kerfinu, þ.e. að einhverjir notendur í NMT færi sig yfir í GSM. GSM verður dýrara í notkun en NMT en stofngjald og ársfjórð- ungsgjald er lægra. Stofngjaldið í GSM-kerfinu verður 4.358 krónur og afnotagjaldið 1.899 krónurfyr- ir hvern ársfjórðung. Mínútugjald er 24,90 krónur. Laugardaga og sunnudaga kl. 18-8 og mánudaga til föstudaga kl. 22-8 kostar mínútan 16,60 krónur en það er sama mínútugjald og í NMT-kerf- inu. Sá sem hringir úr GSM-síma til útlanda greiðir venjulegt gjald að viðbættum 14,94 k’rónum fyrir hveija mínútu. GSM-símtæki kosta hjá Pósti & síma 48-120 þúsund krónur. Þeg- ar viðskiptavinur hefur keypt sér tæki fær hann númer hjá Pósti & síma og kort sem stungið er í sím- tækið. Á kortinu eru upplýsingar um notandann og það skráir notk- un símans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.