Morgunblaðið - 11.08.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1994 9
FRÉTTIR
Bragi náði
bestum
árangri
BRAGI Þorfinnsson náði bestum
árangri íslensku keppendanna á
Heimsmeistaramóti barna og ungl-
inga í skák sem lauk í Szeged í
Ungverjalandi í gær, hlaut 5 vinn-
inga úr 9 skákum I flokki 13-14 ára.
Enginn Islendinganna var meðal
efstu manna. Þrír piltanna, Magnús
Öm Úlfarsson, í flokki 17-18 ára,
Matthías Kjeld, í flokki 15-16 ára,
og Davíð Kjartansson í flokki 11-12
ára, hlutu 4 vinninga. Þá náði Guð-
jón Valgarðsson 'í'h vinningi í sínum
flokki, yngri en 10 ára. Bestum
árangri stúlknanna náði Ingibjörg
Birgisdóttir í hópi 10 ára og yngri
en hún hlaut 3 vinninga. Álfheiður
Óladóttir fékk 1 vinning í flokki
11-12 ára og Berta Ellertsdóttir, í
flokki 13-14 ára, og Anna B. Þor-
grimsdóttir, í flokki 15-16 ára,
fengu 'A vinning úr skákum sínum.
Visual Basic námskeið
94023
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 • ® 68 80 90
UTSALA
30-70% afsláttur
B O G N E R
sérverslun v/Óðinstorg, sími 25177
Benedikt Davíðsson forseti Alþýðusambandsins
Verkalýðshreyfingin
sterkari samstillt
Björk
hætt við
BJÖRK Guðmundsdóttir hefur
lagt öll áform um kvikmynda-
leik á hilluna að sinni. Eins og
greint var frá í Morgunblaðinu
síðastliðinn sunnudag hafði
hún verið beðin um að fara
með aukahlutverk í kvikmynd
um teiknimyndapersónuna
Tank Girl. Að sögn Einars
Arnar Benediktssonar snerist
Björk hugur á sunnudag. Hann
vissi ekki fyrir víst hverju þessi
sinnaskipti sættu en hallaðist
helst að því að söngkonunni
hefði ekki litist á handritið.
Einar sagði að Björk hygðist
nú einbeita sér að vinnslu nýrr-
ar plötu. Hvorki náðist í Björk
sjálfa né umboðsaðila hennar
í gærkvöldi.
Göngumupp*
ffjijð!
lsland
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ
BENEDIKT Davíðsson forseti Al-
þýðusambands íslands vísar gagn-
rýni Guðmundar J. Guðmundssonar
formanns Dagsbrúnar þess efnis að
ASI hafi haldið illa á málum í síð-
ustu kjarasamningum til föðurhús-
anna. Hann segir að í þeim efnum
tali hann við sjálfan sig þar sem öll
félög hafi komið að samningagerð
og beri jafna ábyrgð á þeim. ASÍ
fari með umboð þeirra en hafi ekki
verið sjálfstæður gerandi í samning-
unum.
„Ég er eindregið þeirrar skoðunar
gagnstætt því sem virðist koma fram
í þankagangi Guðmundar J. Guð-
mundssonar að verkalýðshreyfíngin
sé eftir því sterkari sem hún er sam-
stæðari," sagði Benedikt í spjalli við
Morgunblaðið. „Guðmundur hefur
fyrst og fremst verið að boða það
að undanförnu að hann vilji einangra
Dagsbrún og það finnst mér ekki lík-
legt til þess að skila meiri árangri
en ef hreyfingin er samstillt. Allar
hugrenningar í þá veru eru líklegri
til að styrkja andstæðinginn,“ sagði
hann.
Aðspurður kveðst Benedikt ekki
kannast frekar við óánægju Dags-
brúnarfólks en annarra með síðustu
kjarasamninga. „Af og til verður til
umræða um það hvort þessi lína sem
verið er að vinna eftir núna, hin svo-
kallaða þjóðarsáttarlína sem Guð-
mundur er höfundur að, sé ásættan-
leg fyrir verkafólk. Við höfum haldið
því fram að ASÍ hafi fylgt þessari
línu allt frá því í febrúar 1990. Við
teljum aftur á móti að ýmsir aðrir
t.d. stjómvöld og atvinnurekendur
hafi ekki gert það í þeim mæli sem
við höfum ætlast til. Þetta eru menn
óánægðir með ekki bara í Dagsbrún
heldur í allri hreyfmgunni,“ sagði
Benedikt.
Óvíst af hverjum næstu
samningar verða unnir
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um það af hveijum næstu kjara-
samningar verða unnir að sögn Bene-
dikts. „Ákvörðun um það hvort
samningar verða gerðir af hálfu ein-
stakra félaga eða ASÍ hefur ekki
verið tekin. Ég tel að við verðum að
taka sameiginlega ákvörðun um það
hver niðurstaðan verður," sagði
Benedikt og taldi iíklegt að hún yrði
tekin síðar í haust.
Morgunblaðið/Golli
Rex sjófær og verður Arnar
VIÐGERÐ á togaranum Rex miðar vel áfram. Jón Steinar Árna-
son hjá Brimrúnu hf gerir ráð fyrir að hann verði orðinn sjófær
í dag. Sveifarás mun hafa verið brotinn. Rex varð vélarvana á
leið sinni heim úr Smugunni og dró skemmtiferðaskipið Leifur
Eiriksson togarann til hafnar. Að sögn Jóns Steinars stendur
til að skrá togarann á Skagaströnd að lokinni viðgerð á ný
undir nafninu Arnar. Rex var skráður í Limasol á Kýpur.
Morgunblaðið/Guðmundur Jakobsson
*
I sumarsól
EKKI var amalegt að skiða í Kerlingarfjölium um helgina.
Veður var stillt og sumarsólin gyllti hjarnið.