Morgunblaðið - 11.08.1994, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
IMEYTENDUR
Grænum símanúmerum verði
komið upp hjá hinu opinbera
AÐEINS þrjú af fjórtán ráðuneyt-
um bjóða upp á svokölluð græn
símanúmar, það er landbúnaðar-,
samgöngu- og umhverfisráðu-
neyti. Grænt númer er þjónusta
fyrirtækja og stofnana sem gerir
þeim kleift að bjóða viðskiptavin-
um sínum um land allt betri síma-
þjónustu á lágmarkskostnaði. All-
ir, sem hringja í græn númer,
greiða staðargjald, en mismuninn
greiðir rétthafi númersins.
Eins og fram kemur í nýju síma-
skránni hafa græn númer rutt sér
til rúms á mjög skömmum tíma
og sýnir reynslan að neytendur
nota grænu númerin mikið við
kaup á vöru og í upplýsingaleit
um þjónustu af ólíku tagi.
Græn númer eru skráð á blað-
síðu 9 í gulu símaskránni, sem
hefur að geyma símanúmer fyrir-
tækja og stofnana, en athygli vek-
ur að sú síða fyllir ekki nema 72
númer auk þess sem grænu núm-
erin er yfirleitt ekki að finna inni
í símaskránni undir viðkomandi
nöfnum. Þannig eru græn númer
þeirra þriggja ráðuneyta, sem tek-
ið hafa upp slíka símaþjónustu,
ekki að finna undir viðkomandi
heitum eða undir heiti Stjómar-
ráðsins. Á hinn bóginn eru til und-
antekningar. Þannig birtast græn
númer Brunamálastofnunar og
Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa
í báðum bindum símaskrárinnar
fyrir utan blaðsíðu 9. Byggða-
stofnun, Lánasjóður námsmanna,
Ríkisskattstjóri, Vegagerðin og
Þjóðleikhúsið gefa upp græn núm-
er sín í öðru bindinu, ýmist í aug-
lýsingu eða dálklínu. Græn númer
Húsnæðisstofnunar, Landmæl-
inga, Löggildingarstofu, Skipu-
lags ríkisins og Umboðsmanns
Alþingis eru á hinn bóginn ekki
birt undir viðkomandi heiti, enda
það ekki gert nema beðið sé um
það, segir Hrefna Ingólfsdóttir,
upplýsingafulltrúi Pósts og síma.
90 númer í notkun
Hrefna segir að alls séu 90 græn
númer í notkun hér á landi þó
blaðsíða 9 sýni ekki nema 72.
„Með öðrum orðum þá vantar 18
númer og kunna ástæðumar að
vera af ýmsum toga. Póstur og
sími er t.d. með sjö græn númer
í notkun en aðeins eitt þeirra er
skráð í símaskrána. Við höfum
með öðrum orðum tekið upp ýmsa
sérþjónustu og græn númer henni
samfara, sérstaklega ætluð not-
endum þessarar þjónustu, en við
höfum ekkert verið að auglýsa
þessi númer sérstaklega svona
fyrst í stað. Aftur á móti hefur
notendum þessarar sérþjónustu
yerið tilkynnt um þessi númer.
Önnur græn númer kunna að vera
leyninúmer, sem einfaldlega eru
hugsuð fyrir afmarkaðan við-
skiptamannahóp."
Innanbæjargjald
Sá, sem hringir í grænt númer,
greiðir sem svarar innanbæjar-
gjaldi eða 83 aura fyrir hveija
mínútu á dagtaxta og 42 aura á
kvöld-, helgar- og næturtaxta.
Auk þess leggst töluverður kosnt-
aður á rétthafa grænna númera
sé græni síminn á annað borð í
notkun. Fyrir það fyrsta þarf sá,
Vatnshlíf fyrir stofublóm
ÞAÐ er ágætt að láta buna á stofublómin stöku sinnum
í sturtunni. Það getur þó verið vandi, að drekkja ekki
alveg plöntunni í baðinu. Til þess að komast hjá því er
hægt að búa til hlíf yfír blómapottinn, svo að ekki komi
of mikið vatn í moldina. Það þarf bara að útvega sér
plaststykki, og klippa það eftir pottinum og skilja eftir
gat í miðjunni sem plantan fer í gegnum. Þá kemst minna
vatn í moldina.
Þriggja Rétta
ft------—--
Rjómalöguó
humarsúpa
Ristaóur gjölnir og hlýri með
vorlauk og mangó-appelsinusósu
Sesamís meó hunangssósu
í karamelluhnetukörfu
Verðkr. 1.960
Skólcibrú
Sími 62 AA 55
Misbrestur virðist á því
að grænu símanúmerin
séu kynnt neytendum á
fullnægjandi hátt og hér
fjallar Jóhanna Ing-
varsdóttir um þetta
efni
sem pantar sér grænt símanúmer,
að greiða 34.500 krónur í stofn-
gjald og ársfjórðungslega þarf sá
hinn sami að greiða 13.800 krónur
í afnotagjald eða 55.200 kr. á ári.
Tölur þessar eru með virðisauka-
skatti. Fyrir utan það þurfa hand-
hafar grænna símanúmera að
standa straum af meirihluta kostn-
aðar samfara langlínusímtölunum,
sem reiknað hefur verið sem með-
altal út frá þeim tveimur langlínu-
gjaldskrám sem fyrir eru.
Meðallanglínugjald
Á meðan sá, sem hringir í grænt
númer, greiðir 83 aura fyrir mínút-
una, þarf rétthafi þess að greiða
4,98 kr. á mínútuna á dagtaxta,
sem er í gildi frá kl. 8.00-18.00,
3,32 kr. á kvöldin frá kl. 18.00-
23.00 og 2,49 kr. frá kl. 23.00-
8.00. og um helgar.
Til samanburðar má geta þess
að stofngjaldið fyrir „venjuleg"
símanúmer nemur 10.645 kr. og
afnotagjaldið nemur ársfjórðungs-
lega 1.382 kr. eða 5.528 kr. á
ári. Sú meðallanglínu-gjaldskrá,
sem „græni“ taxtinn er byggður
upp á, er saman settur af tveimur
töxtum, sem Póstur og sími notast
við innanlands á milli svæðisnúm-
era. Fyrsti gjaldflokkur, sem t.d.
er í gildi þegar hringt er frá
Reykjavík tii Húsavíkur eða frá
ísafirði til Hafnar í Hornafirði,
kostar á daginn 6,23 kr. mínótan,
4,15 kr. á kvöldin og 3,12 kr. um
nætur og helgar. Hins /egar er um
að ræða annan gjaldflokk, sem
nær til styttri leiða, t.d. á milli
Blönduóss og Sauðárkróks, en þá
kostar mínútan 4,15 kr. á daginn,
2,76 kr. á kvöldin og 2,08 kr. um
nætur og helgar.
Að sögn Hrefnu eru stöðugt
fleiri að vakna til meðvitundar um
þá kosti, sem græn númer bjóða
upp á, en eðlilega er mjög mis-
jafnt eftir fyrirtækjum hversu
mikil viðskipti þau sækja út á land.
Það er aftur á móti mjög eðlileg
krafa að opinberar stofnanir og
ráðuneyti bjóði upp á græn núm-
er, að sögn Hrefnu, en þess má
geta að Alþingi hefur falið ríkis-
stjórninni að sjá til þess að á
næsta ári verði komið upp grænum
símanúmerum í öllum ráðuneytum
Stjórnarráðsins og í helstu stofn-
unum ríkisins.
Helgartilboðin
BÓNUS
Gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Rauð epli Uncle Ben’s karrísósa Ariel-þvottaefni, 5 kg ....79 kr. kg 55 kr. 1.297 kr.
Opal-trítlar, 400 g 187 kr.
Franskar kart. í ofn, 2,5 kg 279 kr.
SÖ-nautahakk KF-beikon ..459 kr. kg 599 kr.
Bónus-kleinuhringir, 8 stk E1 Vital-næring, 2 pk 119 kr. 339 kr.
Oull-kaffi. 500”fr 137 kr.
F&A
Gildir frá fimmtudegi til miðvikudags.
Ýsa í sítrónuraspi, 400 g 222 kr.
Ýsa í hvítlauksraspi, 400 g 222 kr.
Dole-ananasbitar, 446 g 60 kr.
Harpic wc-hreinsir, 500 ml 76 kr.
Vanish-teppasjampó, 1,5 1 574 kr.
KJÖT & FISKUR
Gildir frá fimmtudegi til sunnudags.
Kryddaðar lambakótilettur...............698 kr. kg
Svínasíða...............................398 kr. kg
Svínalærissneiðar.......................698 kr. kg
Franskar kartöflur frá ísl. meðlæti, l'h kg.325 kr.
Kellogg’s-komflex, 750 g............:.......289 kr.
Homeblest-súkkulaðikex, 300 g................79 kr.
Túnfiskur í vatni/olíu.......................69 kr.
FJARÐARKAUP
Gildir 11. og 12. ágúst.
Blómkál......................
Fixiex-bleiur, st. 4-9 kg, 64 stk..
Grillsagaðir lambaframpartar...
Saltkjötshakk................
Kit Kat, 3 stk...............
Eims-skrúfur.................
Myndaalbúm, 200 myndir.......
Ananas, 3x227 g..............
Samlokukex, 500 g............
Bónda-brie...................
Coca-Cola, 12 dósir..........
Nupo Let......:..............
...89 kr. kg
....945 kr.
.358 kr. kg
.399 kr. kg
....112 kr.
....107 kr.
....545 kr.
....109 kr.
....149 kr.
....123 kr.
....595 kr.
....815 kr.
GARÐAKAUP
Gildir frá fimmtudegi til laugardags.
Nautaframfille......................
Lambalærissneiðar með og án marin...
Garðabæjargrillleggir...............
Kínakál.............................
Nýjar ísl. kartöflur................
Blómkál.............................
.749 kr. kg
.798 kr. kg
.499 kr. kg
...48 kr. kg
...84 kr. kg
...98 kr. kg
Fiskibollur frá Silfurborg, 20% afsl..398 kr. kg
Svínabógur í heilu....................478 kr. kg
Svínabógsneiðar með og án marineringar498 kr. kg
Horúg-bcdIasúpurT.4.teg.,.4fpk...........89 kr.
HAGKAUP
Gildir frá 11.-17. ágúst.
Þurrkryddað lambalæri.................649 kr. kg
Green Giant-maískorn, 432 g................59 kr.
Daim-skafís...............................229 kr.
ítalskar Ömmu-pizzur......................249 kr.
Bonduelle grænar baunir, lh dós............47 kr.
Vatnsmelónur, steinlausar..............79 kr. kg
Ananas...............................79 kr. stk.
Kornstönglar, 2 í pk......................199 kr.
Super Star-kex, 500 g.....................149 kr.
10-11 BÚÐIRNAR
Gildir frá 11. ágúst til 17. ágúst.
Þykkmjólk, allarteg........................39 kr.
Frón kremkex...............................79 kr.
Cocoa Puffs, stór.........................279 kr.
Goðaskinka............................895 kr. kg
Samsölu hvítlauksbrauð.....................98 kr.
Goða lambagrillsneiðar................689 kr. kg
Egils malt, Vi 1 dós.......................58 kr.
BKI lúxus kaffi, Vi kg....................198 kr.
NÓATÚN
Gildir frá 11. ágúst til 14. ágúst.
Kindahakk.............................399 kr. kg
Lambalifur............................159 kr. kg
Lundi................................99 kr. stk.
Reyktur lax, bitar...................998 kr.kg
JavakaffiöOOg....................... 189 kr.
Coca-Cola, 1,5 1..........................119 kr.
Aspas, Vi dós..............................69 kr.
Perur, franskar..................... 79 kr. kg
Hvítkál.............................. 79 kr. kg
Rófur..................................69 kr. kg
Vínber, bláoggræn.....................175 kr. kg
Myndaalbúm................................595 kr.
BORGIN
sími 11440
SUSHI
MIÐVIKUDAGS-TIL SUNNUDAGSVKÖLD
- Borð fyrir þig -
BORGIN
sími 11440