Morgunblaðið - 11.08.1994, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Rithöfundurinn Taslima Nasrin koinin til Svíþjóðar
Bangladesh aftur-
kallar handtökuskipun
Stokkhólmur. Dhaka. Reuter.
Krefjast
umbóta í
Mexíkó
MÓTMÆLI gegn mexíkóskum
stjórnvöldum fara vaxandi og
krafa um lýðræðisumbætur
verður stöðugt háværri. Skæru-
liðar úr röðum maya-indjána í
Mexíkó hafa hvatt mexíkósku
þjóðina til þess að rísa upp og
hrekja stjórnina frá völdum með
mótmælum. Var myndin tekin
er skæruliðar í þjóðfrelsissveit
Zapatista marséruðu í upphafi
fundar sem uppreisnarmenn
efndu til í bænum Aguascalient-
es í Chiapas sl. mánudag.
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsis-
hreyfingar Palestínu (PLO) og Yitz-
hak Rabin, forsætisráðherra ísra-
els, hittust í gær í fyrsta sinn eftir
fund þeirra í Washington sl. haust
er samningar PLO og ísraels um
sjálfstjórnarsvæðin voru undirritað-
ir. Embættismenn PLO hafa látið
í ljós áhyggjur yfir því að hægt
gangi að leysa ýmis deilumál vegna
brottflutnings heija Israels frá
sjálfstjómarsvæðunum. PLO óttast
einnig að friðarsamningar ísraela
og Jórdana muni ýta Palestínu-
mönnum út kuldann. Athygli vakti
hve vel fór á með leiðtogunum tveim
. í gær.
Nokkrum stundum fyrir fundinn,
• sem var haldinn á ísraelskri herstöð
j á Gaza en rétt við ísraelsku landa-
\ mærin, létu stjórnvöld í Jerúsalem
I lausar úr haldi átta palestínskar
konur. Ein af helstu kröfum PLO
h.;fur verið að fólk sem fangelsað
var fyrir andstöðu við Israelsher
verði látið laust.
Er þeir Arafat og Rabin hittust
í fyrsta sinn sl. haust þurfti Bill
Clinton Bandaríkjaforseti að telja
þungbúinn Rabin á að innsigla sam-
j inginn við Arafat og PLO með
handabandi. Á Gazafundinum var
' Rabin mun léttari í bragði og sam-
. þykkti að endurtaka handaband við
j’ upphaf fundarins fyrir nýjan hóp
Ijósmyndara. „Eg vona að þriðji
hópurinn birtist ekki“, sagði hann.
Arafat sagði síðar hlæjandi að þeir
ættu að hittast til þess eins að tak-
RITHOFUNDURINN og kvenrétt-
indakonan Taslima Nasrin kom til
Svíþjóðar í gær, að sögn Margaret-
hu af Ugglas, utanríkisráðherra.
Sagðist hún ánægð með að Nasrin
hefði getað yfirgefið heimaland
sitt, Bangladesh, með löglegum
hætti. Af Ugglas gaf ekki nánari
upplýsingar um hvar Nasrin væri,
né hversu lengi hún myndi dvelja
ast í hendur og tók Rabin vel í
hugmyndina.
Sýrlendingar hvika hvergi
Sýrlendingar vísuðu í gær á bug
getgátum ísraelskra ráðamanna um
að hinir fyrrnefndu hefðu átt þátt
í stöðva árásir Hizbollah-skæruliða
á stuðningssveitir ísraela í syðstu
héruðum Líbanons sem ísraelar
hersitja. Farouk al-Shara, utanrík-
isráðherra Sýrlands, gaf í skyn að
árásir skæruliða væru réttlætanleg-
ar.
Múslimaleiðtogar
vilja meina Nasrin
að snúa aftur heim
í Svíþjóð. Embættismaður utanrík-
isráðuneytisins í Bangladesh
sagði: „Við erum afskaplega fegin
ef hún er í raun og veru farin.
Við vorum alveg búin að fá nóg.“
Shara sagði að enginn áþreifan-
leguur árangur hefði orðið í viðræð-
um við Israela með milHgöngu
Bandaríkjamanna um lausn á deil-
unni um Gólanhæðir, hernámssvæði
ísraela í Sýrlandi, en viðræðurnar
hefðu verið gagnlegar. Ráðherrann
sagði að eftir sem áður væri það
ófrávíkjanleg krafa að ísraelar
drægju allt herlið sitt frá hæðunum
og hefði þessi stefna verið áréttuð
er Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, var í heim-
sókn í Damaskus nýverið.
í síðustu viku kom Nasrin fyrir
rétt í Bangladesh, eftir að hafa
verið í felum í rúma tvo mánuði
vegna líflátshótana frá bókstafs-
trúuðum múslimum, sem saka
hana um guðlast, og handtöku-
skipunar sem yfirvöld gáfu út á
hendur henni. Hún var látin laus
gegn tryggingu, og handtökuskip-
unin afturkölluð.
„Til hvíldar og starfa“
í stuttri yfirlýsingu frá Nasrin
í gær sagðist hún hafa komið til
Svíþjóðar í boði rithöfundasam-
bands landsins „til hvíldar og
starfa.“ Hún væri afskaplega
þakklát öllum þeim sem hefðu
sýnt henni stuðning bæði heima
og erlendis.
Leiðtogar múslima fegnir
Innanríkisráðherra Bangladesh
sagði fréttamönnum fyrr í gær að
Nasrin væri frjálst að fara úr landi,
rétt eins og hvéijum "ðrum ríkis-
borgara.
Leiðtogi stærsta stjórnmála-
flokks múslima í landinu, sem hef-
ur tekið virkan þátt í mótmælunum
gegn Nasrin, sagði að nú gætu
allir andað léttar. Hann sagði að
vísa hefði átt henni úr landi, „til
þess að þjóðin hefði ekki að nauð-
synjalausu þurft að eyða tíma og
kröftum í hana.“ Annar múslimsk-
ur stjórnmálaleiðtogi sagði að þótt
ekki væri unnt að meina Nasrin
að yfírgefa landið, mætti ekki leyfa
henni að snúa aftur.
Heilbrigðisfrum-
varp Clintons
Ofsljórn
og skrif-
ræði?
Washington. Reuter.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkja-
þings er byrjuð að ræða hið um-
deilda frumvarp stjórnar Bills
Clintons forseta um heilbrigðiskerfi
sem tryggja á öllum landsmönnum
læknishjálp. Repúblikanar segja að
tillögur demókrata muni leiða til
oftsjórnar og skrifræðis.
Demókratinn George Mitchell,
leiðtogi meirihlutans í þingdeild-
inni, hefur látið gera ýmsar breyt-
ingar á frumvarpinu. Allmargir
demókrataþingmenn eru þó fullir
vantrúar og ekki má gleyma að
skoðanakannanir sýna mikla and-
stöðu almennings við hugmyndir
forsetans. Nancy Kassebaum,
repúblikani frá Kansas, sagði að
frumvarp demókrata væri „flækja
af skrifræði og reglugerðafargani“
sem myndi valda skattahækkun-
um, launalækkunum og fækka
störfum.
Niðurgreiðslur og umbætur
í tillögunum er gert ráð fyrir
niðurgreiðslum, umbótum og frum-
kvæði einkaaðila; fjárlaganefnd
þingsins gerir ráð fyrir að nái tillög-
urnar fram að ganga muni 95%
Bandaríkjamanna njóta trygginga
árið 1997. Til vara leggur Mitchell
til að atvinnurekendur greiði helm-
ing tryggingakostnaðar starfs-
manna og myndi þá markmið Clint-
ons nást árið 2002. Umbætur í
heilbrigðismálum voru meðal helstu
kosningaloforða Clintons 1992.
Rússaher
frá Moldovu
SAMKOMULAG náðist í gær
um brottflutning rússneskra
hersveita frá Moldovu. Hverfa
sveitirnar, um 15.000 hermenn,
þaðan á þremur árum. Sam-
komulagið náðist eftir tveggja
ára þref. Vildu Moldovar að
sveitirnar færu fyrr en Rússar
báru því við að minnst þijú ár
tæki að fjaúaggja gífurlegt
magn vopna og skotfæra sem
herliðið, sem upprunalega var
sovéskt, réði yfir.
Matvælaskort-
ur í Súdan
HÖRMUNGAR bíða um eitt
hundrað þúsund flóttamanna í
suðurhluta Súdans. Vegna bar-
daga uppreisnarmanna og
stjórnarhers er matvælaskortur
orðinn mikill á stórum svæðum
og hungur blasir við.
Neyðarkall
frá Kambódíu
NEYÐARKALL hefur borist
frá einum þriggja vestrænna
ferðamanna sem skæruliðar
Rauðu khmeranna í Kambódíu
tóku í gíslingu eftir lestarrán í
iok júlí. Páraði hann hjálpar-
beiðni á eyðublað fyrir lyf og
matvæli sem send voru þre-
menningunum um síðustu
helgi. Reynt hefur verið með
samningum að fá skæruliða til
að sleppa mönnunum. Sveitir
stjórnarhermanna hafa um-
kringt búðir skæruliðanna og
er óttast að það kunni að draga
úr líkum á samningum.
Aukið ofbeldi
í S-Afríku
OFBELDI hefur vaxið stórum
í Suður-Afríku það sem af er
ári, að sögn lögreglu. Voru
rúmlega 50 manns að meðal-
tali myrtir daglega fyrstu þijá
mánuðina. Á þeim tíma voru
4.849 manns myrtir sem er
aukning um 650 morð miðað
við sama tíma í fyrra. Þá hefur
ránum og hvers kyns glæpum
öðrum stórfjölgað.
Nýtt krabba-
meinslyf?
BRESKIR vísindamenn sögð-
ust í gær binda miklar vonir
við nýtt krabbameinslyf,
DACA, sem þeir segja að geti
ef til vill komið að notum við
meðferð á lungnakrabba. Tals-
maður vísindamannanna sagði
lyfið geta komið að notum þeg-
ar hefðbundin meðferð dygði
ekki til og þá sérstaklega gegn
æxlum í lunga, þar sem oft
myndast mótstaða gegn lyfjum.
Sjómenn
klaga flotann
FULLTRÚAR breskra sjó-
manna sem stunda túnfískveið-
ar á Biscayaflóa gagnrýndu í
gær bresku stjórnina fyrir
framferði breskra gæsluskipa
þar. Þeir sögðu að svo virtist
sem skipin hefðu verið send
þangað til höfuðs sjómönnun-
um í stað þess að veita þeim
vernd fyrir spænskum bátum.
Ásakanirnar voru settar fram
eftir að breskt gæsluskip rak
breskan togara til hafnar fyrir
að brúka of löng reknet við
túnfiskveiðarnar. Netin reynd-
ust standast reglur ESB.
Reuter
Viðræðufundur Arafats og Rabins á Gaza-svæðinu
Endurtekin handa-
bönd og glensyrði
Erez á Gaza, Beirut. Reuter.
Reuter
YITZHAK Rabin, forsætisráðherra ísraels, heilsar leiðtoga
PLO, Yasser Arafat, með handabandi í gær.