Morgunblaðið - 11.08.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1994 17
ERLENT
Flugstjóri Airbus-þotu með 160 innanborðs reyndi lendingu þrátt fyrir illviðri
Allir
komust
lífs af
Seoul. Reuter.
FARÞEGAÞOTA frá suður-kóreska
flugfélaginu KAL brotlenti og sprakk
í lendingu á eynni Cheju í gær. 160
voru um borð og sluppu allir lifandi.
Flugvélin var af gerðinni Airbus
300-600. Talsmaður flugfélagsins
sagði að flugstjórinn hefði verið að
reyna að lenda þrátt fyrir illviðri,
rigningu og storm. Vélin hefði lent
á flugbrautinni, en vegna hvassviðris
barst hún út af brautinni, rakst á
girðingu og sprakk. Vélin staðnæmd-
ist um 100 metra frá sjó. Farþegum
og áhöfn tókst að komast út um
neyðarútgang örskömmu eftir að
vélin brotlenti.
Margar sprengingar munu hafa
orðið rétt eftir að allir voru komnir
út úr vélinni.
Reuter
Á sjónvarpsmyndum mátti sjá sprengingar verða í flaki Airbus-flugvélarinnar, þar sem það lá utan brautar á eynni Cheju. Einungis
fremsti hluti vélarinnar og stél var heillegt.
Skoðanakann-
anir í Danmörku
SF treyst-
ir stöðu
sína
Kaupmannahöfn. Reuter.
DÖNSK verðbréf féllu veru-
lega í verði á þriðjudag eftir
birtingu skoðanakönnunar,
sem bendir til að vinstri flokk-
ar verði við stjóm að loknum
næstu kosningum. Boða verð-
ur til kosninga ekki síðar en
í desember. Þetta er fyrsta
skoðanakönnunin, sem birtist
í Danmörku frá því í júní.
Samkvæmt Gallupkönnun-
inni, sem gerð var fyrir Berl-
ingske Tidende halda núver-
andi stjómarflokkar, Jafnað-
armannaflokkurinn, Miðdemó-
krataflokkurinn, Kristilegi
þjóðarflokkurinn og Radikale,
ekki stjórnamieirihluta.
Smáflokkar standa tæpt
Tveir stjórnarflokkanna,
kristilegir og miðdemókratar,
ná ekki einu sinni þeim tveim-
ur prósentum sem þarf, til að
ná manni á þing. Flokkarnir
gætu hins vegar myndað
stjórn ásamt Sósíalíska þjóðar-
flokknum, SF. Er þetta talið
munu auka þrýsting á Poul
Nyrup , Rasmussen forsætis-
ráðherra að taka upp samstarf
við sósíalista.
Blokk hægriflokkanna hef-
ur þó lítið minna fylgi en vinst-
riflokkarnir og munar einungis
tveimur prósentustigum á
fylkingunum, ef Framfara-
flokkurinn er talinn með
hægriblokkinni.
Ótti við SF
Ástæða verðfallsins á verð-
bréfum er sögð vera ótti við
að Sósíalíski þjóðarflokkurinn
muni eiga aðild að næstu
stjóm. Em tillögur hans í efna-
hagsmálum ekki taldar líkleg-
ar til árangurs. Atvinnuleysi í
Danmörku er nú 12,3% og vill
flokkurinn fjölga opinberum
starfsmönnum og stytta
vinnuvikuna í þijátíu stundir
til að draga úr því.
Vaxandi óánægja ungverska minnihlutans í Rúmeníu
Vilia heimastióm
Búkarest. Reuter.
UNGVERSKI minnihlutinn í Rúm-
eníu lagði í gær fram kröfur um
heimastjóm. Marko Bela, leiðtogi
Sambands Ungverja í Rúmeníu
(SUR) setti kröfumar fram. Rúm-
enskir stjórnmálaleiðtogar brugðust
ókvæða við, og sakaði einn þeirra
Ungveijana um að vilja valda þjóð-
ernisólgu. Sagði hann Ungveija,
bæði innan Rúmeníu og utan, vilja
breyta landamærum Rúmeníu.
„Þetta er fráleit krafa, sem ætti ekki
að vera til í siðuðum þjóðfélögum."
Alls búa um 1,6 milljónir Ungveija
í Rúmeníu, og em um 7% af íbúum
landsins.
Leiðtogar SUR hafa farið þess á
leit við stjóm Ungveijalands, sem
réði í Transylvaníuhéraði í Rúmeníu
fyrir heimsstyijöldina fyrri, að tekið
verði tillit til krafnanna í sáttmála
sem ríkin vinna að sín á milli.
Bela sagði að SUR krefðist viður-
kenningar á sérstöðu þeirra svæða í
Transylvaníu þar sem væm „þétt
samfélög Ungveija." Slík svæði ættu
að mynda bandalag og ungverska
ætti að njóta sömu viðurkenningar
og rúmenska. „Á þessum svæðum
ætti ungverski minnihlutinn að ráða
meira um ákvarðanir í mennta- sg
menningarmálum,“ sagði Bela.
Rúmenía hefur ekki enn komið á
tvíhliða vináttusamningi við Ung-
veijaland, eitt fárra ríkja í Mið-Evr-
ópu, eftir hmn Sovétríkjanna.
Að sögn talsmanns flugfélagsins
vora átta manns fluttir á sjúkrahús
þar sem gert var að minniháttar
meiðslum þeirra. Hann sagði orsök
siyssins vera stormsveip sem fór yfir
eyjuna, sem er suður af Kóreuskaga.
Embættismaður í samgönguráðu-
nejdinu sagði hins vegar að fiugvélin
hefði verið komin of langt inn yfir
brautina áður en hún lenti, og ekki
haft nægilega brautarlengd til þess
að staðnæmast. Þess vegna hefði
verið reynt að komast aftur á loft,
en það ekki tekist. Veðurstofa Suður-
Kóreu hafði gefíð út viðvöran vegna
stormsveipsins. Nákvæm rannsókn á
orsökum slyssins er hafin.
Haft var eftir einum farþeganna
að gífurleg skelfíng og óreiða hefði
ríkt í vélinni eftir brotlendinguna,
og hefðu ekki komið til yfirvegaðar
leiðbeiningar áhafnarinnar hefði get-
að farið mun verr.
isienska tómatsósan
sem þotti bera. af!
Matgæðingar DV mátu gæði 14 mismunandi tegunda af
tómatsósum og gáfu okkar tómatsósu hæstu einkunn.
Tómatsósan fékk 14 stig af 15 mögulegum hjá matgæðingunum
og þótti þeim hún bera af.
Tilvitnun í DV þann 24.06 1994
„Bæði Dröfn og Úlfar gáfu henni hæstu einkunn og sagði Úlfar hana
vera fallega á litinn með lúmskt dimmt bragð. Sigmar sagði hana
hafa mjög gott tómatbragð."
Við hjá Vogabæ hf. erum að vonum glöð yfir þessari
niðurstöðu enda höfum við lagt okkur fram við að
finna og þróa gott tómatsósubragð.
Veldu íslensku tómatsósuna og
finndu hvað hún er góð!
N\l /y
VOGABÆR
190 Vogar Sími: 92- 46525