Morgunblaðið - 11.08.1994, Blaðsíða 48
HEWLETT PACKARD
Hvl
HPÁ ISLANDI HF Höfðabakka 9. Reykjavík. sími (91) 671000 Frá möguleika til veruleika
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
GSM-farsímar
Þrjú fyrir-
tæki sam-
einast um
innflutning
ÞRÍR innflytjendur farsíma, Há-
tækni hf., Nýherji hf. og Radiomiðun
hf., hafa stofnað fyrirtækið íslensk
ljarskipti hf. til að annast innkaup
á farsímum. Fyrirtækin þijú, sem
hafa verið framarlega á tölvu- og
fjarskiptasviðinu, snúa nú bökum
saman í þessum innflutningi í því
augnamiði að ná hagkvæmara inn-
kaupsverði.
íslensk fjarskipti hf. munu í upp-
hafi eingöngu sjá um innkaup á far-
símum í GSM-kerfinu sem tekið
verður í notkun nú um miðjan mán-
uðinn. GSM-farsímarnir sem fyrir-
tækið býður kosta nú á bilinu 49.000
til 119.000 krónur, en stærð þeirra,
geta rafhlöðunnar og ýmsir notkun-
armöguleikar ráða einkum verðinu.
Fyrirtækið mun sjá um innkaup
á farsímum og tengdum búnaði frá
ekki færri en sjö framleiðendum, að
sögn forráðamanna þess.
■ Farsímainnflytjendur/3B
Hraðakstur
Ók á 168
kílómetra
hraða
ÖKUMAÐUR var sviptur öku-
leyfi eftir að til hans náðist á
168 km hraða í Kolbeinsstaða-
hreppi síðdegis í gær.
Þegar lögreglan innti mann-
inn eftir ástæðu ofsaakstursins
bar hann því einu við að hann
hefði þurft að flýta sér.
Umferð var að öðru leyti
róleg á þessum slóðum og eng-
inn ökumaður komst nálægt
því að mælast á sama ofsahrað-
anum og sá tímabundni, að
sögn lögreglunnar í Stykkis-
hólmi.
Morgunblaðið/Þorkell
Dufl dreg-
ið upp úr
Norðfirði
GULLFAXI, dragnótabátur frá
Neskaupstað, fékk dufl í veiðar-
færi sín þegar þau voru hífð í Norð-
firðinum í gær. Landhelgisgæsl-
unni var tilkynnt um atburðinn,
eins og venja er í tilfellum sem
þessu.
Tveir sprengjusérfræðingar á
vegum Landhelgisgæslunnar, þeir
Ingvar Kristjánsson og Sigurður
Ásgrímsson, héldu til Neskaups-
staðar í gærkvöldi. Ætlunin var
að gera duflið óvirkt, en það er
ýmist gert með því að fjarlægja
púðurhleðsluna og brenna hana,
eða með því að fara með duflið á
afvikinn stað og sprengja það í loft
upp.
Talið er að duflið sé frá árum
heimstyijaldarinnar síðari.
Neyðarþjónusta við togara á Svalbarðamiðum
LÍÚ ræðir þörfina
fyrir aðstoðarskip
Stálbitar
klipptir með
skærum
STARFSMENN við brotajárns-
vinnslu Furu hf. tóku nýverið
í notkun sérstök skæri til að
vinna á þungajárni á verk-
smiðjulóð stálverksmiðjunnar
í Hafnarfirði. Er skærunum
komið fyrir framan á bómu á
beltagröfu, sem nýlega var
komið fyrir á svæðinu. Belta-
grafan var áður notuð við
gijótmokstur vegna fram-
kvæmda við Blönduvirkjun.
Er þar um að ræða tæplega
sjötíu tonna flykki, að sögn
Sveins Magnússonar starfs-
manns hjá Furu. Járnskærin
geta klippt sundur allt að tíu
sentimetra þykka stálöxla og
annað samsvarandi efni. Þau
eru því hið mesta þarfaþing við
brotajárnsvinnslu Furu hf. Að
sögn Sveins hefur notkun svona
búnaðar til að búta niður járn
ekki áður verið reynd hér á
landi.
RÆTT verður hjá Landssambandi
íslenzkra útvegsmanna í dag hvort
óska beri eftir því við ríkisstjórnina
að hún sendi skip til að sinna neyð-
ar- og öryggisþjónustu við íslenzka
togara á fiskvemdarsvæðinu við
Svalbarða. Kristján Ragnarsson,
formaður LIU, segir þó að ekkert
hafi komið fram, sem bendi til að
Norðmenn muni ekki koma til hjálp-
ar, bjáti eitthvað á hjá íslenzku
skipunum.
„Það hefur ekki verið leitað eftir
því formlega við samtökin að óskað
verði eftir þessu,“ sagði Kristján í
samtali við Morgunblaðið. „Það er
hins vegar æskilegt að til staðar
geti verið svona þjónusta, og að hið
opinbera sendi þá skip sem gæti
orðið til aðstoðar ef eitthvað kæmi
upp á.“
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði í fréttum Stöðvar 2
í gærkvöldi að hann væri tilbúinn
að ræða að varðskip yrði sent á
Svalbarðamið til að sinna öryggis-
og neyðarþjónustu. Ef slíkt yrði
tekið upp við sjávarútvegsráðuneyt-
ið yrði málið skoðað. Um þetta sagði
Kristján Ragnarsson að það yrði
rætt í dag hvort LÍÚ ætti að óska
eftir því við ríkisstjómina að aðstoð-
arskip yrði sent.
Ekkert sem bendir til að
Norðmenn hjálpi ekki
Aðspurður hvort hann teldi
ástæðu til að taka undir þau orð
sumra útvegsmanna og skipstjóra
að ekki sé á Norðmenn að treysta,
ef neyðartilfelli kemur upp hjá ís-
lenzkum skipum á Svalbarða, sagði
Kristján að ekkert hefði komið
fram, sem benti til slíks. „Norð-
menn flugu þyrluflug fyrir íslenzk
skip að minnsta kosti tvisvar í fýrra
og það er engin ástæða til að ætla
að þeir myndu ekki bregðast þann-
ig við aftur,“ sagði hann.
Kristján sagði ekki koma til
greina að LÍÚ sem slíkt leigði skip
til að vera íslenzka flotanum á Sval-
barðamiðum til aðstoðar. Aðeins
væri um að ræða fáar útgerðir og
heildarsamtök útvegsmanna myndu
ekki leggja út í kostnað þeirra
vegna.
Rússlandsför frestað
vegna Smuguveiða?
RÚSSNESKA utanríkisráðuneytið
hefur ritað varahéraðsstjóranum í
Múrmansk í Rússlandi bréf þar
sem ráðuneytið óskar skýringa á
því af hverju ekki hefur enn orðið
af fyrirhugaðri ferð nokkurra for-
ystumanna í sveitarstjórnum og
íslensku viðskiptalífi til Múrmansk.
Ráðuneytið bíður nú eftir svari frá
Múrmansk. Þessar upplýsingar
fékk Morgunblaðið hjá Gunnari
Gunnarssyni, sendiherra í Moskvu.
Morgunblaðið hafði samband við
Gunnar eftir að blaðið fékk stað-
fest hér heima, að ákveðið hefði
verið að fresta ferðinni, en sam-
kvæmt heimildum blaðsins var
þetta gert vegna andstöðu íbúa í
Múrmansk við Smuguveiðar Is-
iendinga. Ekki náðist í rússneska
sendiherrann á íslandi til að bera
þær upplýsingar undir hann, þar
sem hanh er á ferðalagi í útlöndum.
í byrjun júní fékk sendiherra
Rússlands á íslandi boð frá Múr-
mansk um að þar væri áhugi á að
fá hóp manna frá íslandi til að
ræða við þá um viðskipti. Sendi-
herrann hafði samband við Út-
flutningsráð íslands sem hafði for:
ystu um að skipuleggja ferðina. í
ferðina ætluðu að fara sveitar-
stjórnarmenn frá Akureyri og
Húsavík, maður frá Reykjavíkur-
höfn, auk forystumanna úr ís-
lensku viðskiptalífi. M.a. ætluðu
verktakar að fara í ferðina með
það í huga að kanna möguleika á
að byggja hús, vegi eða brýr í
Múrmansk og nágrenni. Menn frá
Akureyri hafa farið til Múrmansk
áður og hafa verið að undirbúa að
ná viðskiptum við Rússa um við-
gerðir á skipum og þjónustu við
skip. í ferðinni ætluðu þeir að halda
áfram að treysta þessi viðskipta-
bönd, auk þess sem þeir ætluðu
að skoða flotkví. Alls hugðust 12
menn fara í þessa ferð.
Undirbúningur ferðarinnar fór
eðlilega af stað, en síðan virtist sem
áhugi manna í Múrmansk á því að
fá íslendingana í heimsókn dvínaði.
Þeir hættu m.a. að svara bréfum.
Þegar málið var kannað fengust
þau svör m.a. frá embættismanni í
utanríkisráðuneytinu í Moskvu að
áhugi á málinu hefði dvínað vegna
veiða íslenskra skipa í Smugunni.
Þegar þetta lá fyrir tók Útflutnings-
ráð þá ákvörðun að fresta ferðinni
um a.m.k. mánuð. Á næstu vikum
verður látið á það reyna hvort enn
er einhver áhugi í Múrmansk á því
að fá íslendinga í heimsókn til að
ræða við þá um viðskipti.
. .. • ........................................................
...****
W&M gg ’i í_V. ij
SrfmtfoMÍíiSifiBiiðllíSwÍMÉfiBfiMBÍBBBS ■■
Morgunblaðið/Haraldur A. Einarsson
Hafskip langvíunnar
ÞÆR SÁTU tignarlegar á rekaviðardrumbi þessar sjö lang-
víur um 50 mílur norður af Horni, er rannsóknaskipið Dröfn
sigldi hjá. Á sjónum til vinstri er lundi á sundi og fýll.