Morgunblaðið - 08.09.1994, Síða 18

Morgunblaðið - 08.09.1994, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1994 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Mildi náttúrunnar ÞÓRÐUR Hall: Skýjasær. 1994. MYNDLIST Norræna húsiö MÁLVERK/GRAFÍK ÞÓRÐUR HALL/ÝMSIR LISTAMENN Sýningarsalir opnir alla daga kl. 14-19 til 18. september. Aðgangur ókeypis. Þórður Hall LISTAMENN eiga ekki síður en aðrir á hættu að festast í kunnug- legum förum, hvort sem varðar við- fangsefni eða miðla; þroski þeirra byggist ekki síður á fjölhæfni í verk- lagi og kjarki til að reyna sig á annan hátt en algengast hefur ver- ið. Myndlist án tilrauna og end- urnýjunar hefur aldrei átt sér langa lífdaga. Þórður Hall hefur fyrir löngu skapað sér nafn á vettvangi grafík- listarinnar, enda verið formaður félagsins Islensk grafík, tekið þátt i fjölda grafíksýninga hér á landi og erlendis, setið í sýningarnefnd- um og hlotið starfslaun, auk þess sem hann er yfirkennari grafík- deildar MHÍ. Listunnendur kannast þó við að Þórður hefur fengist að nokkru við aðra miðla, og m.a. sýnt pastelmyndir, en nú hefur hann skipt um gír, því á þessari sýningu er eingöngu að finna stór olíumál- verk, sem listamaðurinn hefur unn- ið á síðustu tveimur árum. Viðfangsefnin eru í sjálfu sér svipuð og fyrr hjá Þórði, þ.e. stöðug rannsókn á hinni mildu birtu náttúr- unnar, sem ýmist hylur landið mistri og gerir allar línur óljósar, eða virð- ist í þann mund að greiða því leið fram í tært dagljósið. Hinn nýi miðill gefur listamanninum tæki- færi sem hann hefur ekki haft áður til að sýna hvað undir býr. Undir gráma þokunnar eða bláma fjar- lægðarinnar titrar oft litadýrð landsins, og læðist jafnvel í gegn á stöku stað, eins og í „Síðsumardag- ur“ (nr. 17) og umbreytir þá verk- inu. í pastelverkum sínum hefur Þórður oft byggt mikið á jarðlitun- um, og í þessum olíumálverkum fá slíkar myndir mun meiri fyllingu en áður; brúnir, gulir og grænir lit- ir ráða miklu um þá hlýju, sem staf- ar af verkunum, og samspil blárra og daufbleikra litatóna í t.d. „Streymi“ (nr. 9) og „Speglun“ (nr. 19) er afar vel heppnað. Myndbyggingin er ætíð vel mót- uð í verkum Þórðar, eins og sést í „Lágskýjað" (nr. 20), „Heiðmyrk- ur“ (nr. 5) og „Skýjasær" (nr. 8), þar sem bláminn er að hverfa í þoku fjarlægðarinnar. Ef nokkuð er, má helst finna að því að jafn- vægi myndbyggingarinnar sé of fastbundið; þar vanti þá spennu eða sundrungu, sem oft verður til að gera einstök verk öðrum minnis- stæðari. Það er helst í verkum eins og „Uppsprettur" (nr. 7) sem vottar fyrir þeirri lausung, sem á stundum þarf til að heildin gangi upp. Þórður hefur valið að takast á við fremur einfalt myndmál, sem tengja má við höfgi hins fljótandi heims fremur en glæsileik litanna eða átök ljóss og skugga. Þessi við- fangsefni krefjast fínlegs jafnvægis forma og litatóna, og gefa um leið ýmis tækifæri til að kanna dýpt myndsviðsins, sem ekki er alltaf ljóst; það þarf aðeins að falla í freistni litanna til að jafnvægi heild- arinnar raskist og verkin missi þá seiðmögnun, sem þau búa yfír. Þórður er löngu búinn að sanna að hann hefur gott vald á þessu jafn- vægi í öðrum miðlum, og er gaman að sjá því fylgt fram í olíulitunum, um leið og möguleikar þeirra eru kannaðir á ýmsan hátt. Er rétt að hvetja listunnendur til að líta inn í sýningarsali Norræna hússins næstu vikurnar. Grafík úr listlánadeild Starfsemi Norræna hússins hefur frá upphafi verið fjölbreytt og náð til ýmissa sviða, en almenningur er misvel upplýstur um starfið í heild. Einn vinsælasti þáttur þess, sem margir hafa notfært sér í gegn- um tíðina, er listlánadeildin, sem er hluti bókasafnsins. Þessi deild tók til starfa 1976, m.a. fýrir hvatn- ingu Norræna grafíkbandalagsins. Nú eru í eigu deildarinnar hundruð listaverka, sem almenningur, stofn- anir og fýrirtæki geta fengið lánuð tímabundið gegn vægu gjaldi til að skreyta sín húsakynni, og mun þetta sívaxandi þáttur í starfsemi bókasafnsins. Grafíkin er mest áberandi meðal þessara listaverka, og hefur húsið átt gott samstarf við grafíklistafólk á öllum Norðurlöndunum vegna þessa starfs. Það er því vel við hæfi að gefa gestum hússins örlítið tækifæri til að kynnast nokkru af því sem listlánadeildin hefur að geyma, en nú eru uppi í anddyri hússins tæplega tveir tugir grafík- mynda eftir listamenn frá öllum Norðurlöndunum. Það er vonlítið að gefa nokkra marktæka mynd af jafn stóru safni með svo lítilli sýningu, og því betra að líta á það sem hér er boðið upp á sem dæmi um þá fjölbreytni, sem er að finna innan þess. Verkin eru öll verk þroskaðra listamanna, og er athyglisvert að sjá hversu vel þau eldast, en hér eru margar myndanna frá upphafsárum listl- ánadeildarinnar. Fulltrúar íslands í hópi sýnenda eru þeir Sigurður Guðmundsson og Bragi Ásgeirsson, og eru verk þeirra kunnugleg íslenskum list- unnendum; þó er rétt að benda á að hvöss form myndheims Sigurðar njóta sín ekki síður í þessum miðli en öðrum. Samspil ljóss og skugga, þar sem byggingar borganna eru viðfangsefnið, í myndum Danans Palle Nielsens er vel leyst í fletin- um, og gefa góðan samanburð við sjávarklettamyndir landa hans Johns Olsens. Verk Victors Sparre frá Noregi vísar á nokkurn hátt í einmanalegan heim Edvards Munchs, þó úrvinnslan sé öllu létt- ari; myndir Lars Ahlgréns frá Finn- landi eru greinilega börn síns tíma, en eru ekki síður forvitnileg í dag. Þessi litla sýning gefur örlitla innsýn í starf listlánadeildar og þá breidd verka, sem þar er að finna; fastir viðskiptavinir deildarinnar og Norræna hússins ættu að kunna að meta þetta framlag, og rétt er að hvetja aðra til að kynna sér það við fyrsta tækifæri. Eiríkur Þorláksson Saga sem allir þekkia. Láttu ekki þessa stórkostlegu sýningu fram hjá þeir fara. Blta Gfsladóttir. Jóhannes Bachmann. Magnús Kjartansson. Esther Helga Guömundsdóttlr. SONGLEIKURINN LONDON NEW YORK REYKJAVÍK Leikstjóri: Dansstjóri: Framkvæmdastjóri: A HOTEL ISLANDI Miða- og borðapantanir alla daga á Hótel Islandi í síma 687111 og hjá Söngsmiðjunni í síma 612455 Þumalína með íslensku tali KVIKMYNPIR Bíóhöll/Bíóborg ÞUMALÍNA „THUMBELINE" ★ ★ Leikstjóri: Don Bluth. Leikstjóri ísl. talsetningar og þýðing: Ágúst Guð- mundsson. Leikraddir: Edda Heið- rún Backman, Felix Bergsson, Óm Ámason, Lísa Pálsdóttir, Jóhann Sig- urðarson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Magnús Ólafsson, Hanna María Karlsdóttir, Margrét Ákadóttir, Þór- hallur Sigurðsson. Wamer Bros. 1994. ÆVINTÝRI H.C. Andersens um Þumalínu litlu hefur nú fundið sér leið upp á hvíta tjaldið með aðstoð teiknimyndadeildar Warner Bros. kvikmyndaversins undir stjórn teiknimyndagerðarmannsins Don Bluths („An American Tale“). Myndin, sem ætluð er yngstu kvik- myndahúsagestunum, er með ís- lensku tali en það er orðinn fastur liður hjá Sambíóunum að talsetja teiknimyndimar sínar og bjóða þannig krökkum uppá sjálfsagða þjónustu. Bíða örugglega margir spenntir eftir stórmyndinni Kon- ungi ljónanna, sem kemur með ís- lensku tali um jólin. íslensk talsetn- ing á teiknimyndir þíóanna er orðin að föstum punkti í tilverunni og því ber að fagna. Þannig verða þær aðgengilegri og skemmtilegri börn- um að ekki sé talað um menningar- Iegt gildi þess að hafa skemmtiefni sem þetta á íslensku. Þumalína er talsvert minni í snið- um en Disneyteiknimyndirnar en talsetning hennar undir leikstjórn Ágústs Guðmundssonar, sem einnig þýðir textann, hefur tekist með ágætum. Með helstu raddir fara Edda Heiðrún Backman og Felix Bergsson sem leika Þumalínu og álfaprinsinn en í minni hlutverkum leikarar eins og Örn Árnason, Jó- ATRIÐI úr teiknimyndinni um Þumalínu, sem sýnd er með íslensku tali. hann Sigurðarson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Don Bluth er afkastamesti teikni- myndahöfundur í Hollywood sem starfar utan Disneyfyrirtækisins en myndir hans hafa ekki náð sömu vinsældum eða gæðum og Disney- myndirnar. Helsti gallinn við Þuma- línu er að sagan er ekki nógu sterk eða mikilfengleg og Bluth hefur tekið á það ráð að fylla upp í eyðurn- ar með fjöldamörgum söngatriðum, sem vart teljast mjög spennandi og koma í röðum hvert á fætur öðru. Barry Manilow hefur verið fenginn til að semja tónlistina og honum hefur ekki tekist að gera neitt lag- ið sérstaklega grípandi eða líflegt. Teikningarnar ættu þó að fanga yngstu áhorfendurna því þær eru bæði ævintýralegar og fallegar og spennan að líkindum hæfileg fyrir þann aldurshóp. Sjálf er Þumalína ekki sérlega áhugaverð persóna frá hendi Bluths. Ólíkt þeirri þróun sem átt hefur sér stað hjá Disneyfyrirtæk- inu þar sem kvenpersónumar hafa fengið aukið vægi og orðið virkari, sterkari og sjálfstæðari í takt við kvennabaráttu síðustu áratuga, er Þumalínu frekar óvirk og helst umhugað um fallegt útlit sitt og fallega draumaprinsinn. Arnaldur Indriðason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.