Morgunblaðið - 08.09.1994, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Fjölskyldan
í Hewlett-
Packard
geisla-
prenturum
Tilvalinn geislaprentari fyrir
einstaklinga og smærri fyrirtæki.
300 dpi + RET*. 4 síöur á mínútu.
HP LaserJet 4L á einstöku tilboði
kr.69.900
stgr. m. vsk.
HP LaserJet 4P & 4MP
Hágæöa 600 punkta útprentun
I fyrirferðalitlum geislaprentara.
600 dpi + RET*. 4 slður á mlnútu.
HP LaserJet 4P
kr. 137.500
stgr. m. vsk.
HP LaserJet 4 PLUS
& 4M PLUS
Nýr HP geislaprentari með hágæða
600 punkta útprentun. Hraðvirkur.
600 dpi + RET*. 12 síöurá minútu.
HP LaserJet 4 PLUS
kr.209.900
stgr. m. vsk.
HP LaserJet 4Si
&4Si MX
LISTIR
Syngjandi
skáld
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
DAVID Byrne fór á kostum á frábærum tónleikum í Háskólabíói.
TONLIST
Rokktónlcikar
DAVID BYRNE í HÁ-
SKÓLABÍÓI
David Byme og kvartett hans í Há-
skólabíói 5. og 6. september. Tónleik-
amir vom á RúRek jasshátíðinni á
vegum Smekkleysu s.m. hf. David
Byme söng^ur og gítarleikur, Todd
Turkisher trommur og slagverk,
Mauro Refosco slagverk og hljóm-
borð, Paul Socolow bassi og raddir.
TALKING Heads var í framlínu
bandarísku pönkbyltingarinnar, þó
tónlist sveitarinnar hafi alla tíð
verið frekar þungt popp, en hrein-
ræktað rokk. Leiðtogi sveitarinn-
ar, David Byrne, var og andlit
hennar út á við; pervisið gáfnaljós
sem lagði mikið upp úr umbúnaði
og útliti, ekki síður en inntaki.
Tónlistin var flókin á ytra byrði
og textarnir virtust djúphugsaðir
og veigamiklir, þó margir hafi
verið þunnir þegar grannt var
skoðað. Talking Heads hafði gríð-
arleg áhrif og náði miklum vin-
sældum, þó tónlist hennar hafi
ekki elst ýkja vel, en eftir að Byrne
leysti hana upp hefur hann þróað
tónmál sitt til muna, aukinheldur
sem hann hefur náð þvílíkri leikni
í textasmíð að þegar best lætur
má kalla hann syngjandi skáld.
Á sviðinu í Háskólabíói mátti
sjá að Byrne hefur breyst úr blóð-
lausum rindilslegum gleraugnagl-
ám í sjálfsömggan og kraftmikinn
rokkara, sem beitir gítarnum af
hugkvæmni og fimi. Lagasmíðar
hans hafa líka tekið miklu fram-
förum, í það minnsta ef borið er
saman við þau Taiking Heads-lög
sem hann flutti á tónleikunum.
Þau yljuðu fyrir minninguna- og
voru skemmtilega flutt, en það
sem mest skilur eftir sig eru nýju
lögin; lög sem hann hefur samið
eftir að Talking Heads lagði upp
laupana. Líklega hafa margir
áheyrenda hissað sig á því hve
Byrne hefur samið mikið af góðri
tónlist síðan hann hóf sólóferilinn,
ekki síður en þeir hafa velt vöng-
um yfír því hvað tónlist hans er
fjölbreytt og frumleg. Sem texta-
smiður er Byrne við sama hey-
garðshornið; notar beittar líkingar
og skarpar einfaldar myndir til að
fletta ofan af siðferðisþrengingum
mannsins; söngröddin er eins og
skurðhnífur sem sprettir fram
taugaendum smáborgarans og lýs-
ir upp króka og kima smásálarinn-
ar, en hún hentar síður þegar á
að fara að skera brauð eða brytja
spað, því textarnir eru yfírleitt
stofudrama skotnir beittri kímni
og Byrne fyrst og fremst borgar-
skáld sem yrkir um hugarangur
og innantómt líf borgarbúans sem
óttast og vantreystir náttúrunni,
ekki síður en náunganum. Þegar
hann syngur því í einu laga sinna
um það hve langt hann sé frá New
York, lætur hann þess ekki getið
að hann ber borgina með sér hvert
sem hann fer. Greinilega má þó
merkja að hann er á innleið, ef
svo má kalla, textarnir verða æ
persónulegri og á nýrri plötu hans,
sem obbinn af tónleikalögunum
var af, má heyra að hann er að
virða fyrir sér innviðina.
Hljómsveitin náði frábærlega
vel saman, best á seinni tónleikun-
um, og þó stundum hafi aðstoðar-
menn Byrnes verið að setja sig í
stellingar sem þeim eru ekki eigin-
legar, höfðu þeir á valdi sínu allar
þær tónlistarstefnur sem Byrne
hefur fléttað inn í lagasmíðar sín-
ar, hvort sem var charranga í öðru
lagi tónleikanna, saudade í þriðja
laginu, rokk eða afrískir rytmar.
Öll þessi stílbrigði gæddu lögununi
dýpt og lyftu þeim, og gaman var
að heyra hvernig hefðbundið rokk-
lag breyttist skyndilega í hrífandi
souskoussveiflu með syngjandi
gítarspili án þess að misfellu
mætti sjá á. Þannig voru þessir
tónleikar afbragðs skemmtun;
Talking Heads aðdáendur fengu
nokkuð fyrir sinn snúð, en því trúi
ég að David Byrne-aðdáendum
hafi fjölgað um eitthvað á annað
þúsund á mánudag og þriðjudag.
Árni Matthíasson
Tríó Bjössa Thor
og Hilmar Jensson
TONLIST___________
Tunglið og Djúpið
TRÍÓ BJÖSSA THOR OG
KVARTETT HILMARS
JENSSONAR Á
RÚREK-DJASSHÁTÍÐINNI.
Flytjendur: Björn Thoroddsen
gítar, Gunnar Hrafnsson
kontrabassi, Ásgeir Óskarsson
trommur.
Hilmar Jensson gítar, Tim Berne
alt- og baritónsaxófónar, Chris
Speed tenórsaxófónn og klarinett.
6. september 1994.
ÞAÐ var úr fímm tónleikum að
velja á RúRek-djasshátíðinni á
þriðjudagskvöld og hvarvetna sem
litið var inn var fullt hús áheyrenda
og mikil stemning.
Það þarf reyndar ekki marga til
að fylla rýmið í Djúpinu og þar eru
áheyrendur í hvíslfæri við spilara.
Tríó Bjössa Thor var að ljúka við
Birdland þegar rýni bar að, einkar
snotra útsetningu á þessu Weather
Report-lagi fyrir tríó, klassískan
gítar, kontrabassa og trommur. Á
efnisskrá tríósins eru auk þess lög
eftir yngri djasstónlistarmenn er-
lenda sem heyrast ekki oft eins og
t.a.m. First National Anthem eftir
Pat Metheny en einnig voru fluttar
gamlar perlur eins In a Sentimental
Mood og St. Thomas, sem virðist í
sérstöku uppáhaidi hjá mörgum um
þessar mundir. Völuspá eftir þá
félaga er fönkað djasslag með sér-
lega skemmtilegu gítarsólói þar
sem tækni og kunnátta Björns nýt-
ur sín og hann er dyggilega studd-
ur af þéttum bassaleik Gunnars.
Ásgeir Óskarsson hefur varpað
rokkslaginu fyrir róða og tekið upp
mýkri háttu með góðum árangri.
Tríó Bjössa Thor leikur akústískan
djass, léttan, fluttan af fagmennsku
og efnisvalið er skemmtilegt.
Það var þyngra yfir öllu á Tungl-
inu þar sem Kvartett Hilmars Jens-
sonar flutti frumsamda tónlist
Hilmars auk þess sem Chris Speed
og Tim Berne áttu sitt hvort verk-
ið. Þetta er tilraunatónlist sem á í
raun fátt skylt með djasstónlist
annað en snarstefjunina og er mun
nær nútímatónlist í eðli sinu. Þó
brá á stöku stað fyrir kunnuglegum
rytmum, og hjartað tók aukaslag
af eftirvæntingu, en það var ekki
lengi staldrað við þá heldur teygt
á hefðunum þannig að ekkert stóð
eftir nema hávaði og eyrnarverkur.
í Doðinn eftir Hilmar lék Speed á
klarinett og Berne á altsaxófón en
verkið sjálft er ótrúlega órætt og
fljótandi og gæti eflaust dugað vel
sem hljóðeffektar í kvikmynd gerða
eftir vísindaskáldsögu. í tónlist
kvartettsins brá þó fyrir fallegum
köflum, en þeir voru fáir og það
var langt á milli þeirra. Það finnast
þó áhugamenn um þessa tegund
tónlistar, kannski aðallega aðrir
tónlistarmenn í svipuðum pæling-
um, og við þá segi ég: Verði ykkur
að góðu! Qugjón Guðmundsson
Verk eftir
Alan Uglow
OPNUÐ hefur verið í sýningarsaln-
um Annarri hæð á Laugavegi 37,
sýning á verkum Alans Uglows.
Alan Uglow fæddist í Englandi
árið 1941, en hefur búið og starfað
í New York síðan 1969. í fréttatil-
kynningu segir: „í málverkum sínum
teflir hann saman ólíkum hefðum
geometrisks málverks. Myndirnar
eru hlutlægar en þó tilfinningaríkar.
Litameðferðin er persónuleg og
áberandi og ætti að njóta sín í sí-
breytilegri birtu sýningarsalarins.
Alan Uglow er mikill áhugamaður
um fótbolta og gætir áhrifa þess
beint eða óbeint í mörgum málverka
hans.“ Málverkin sem hér eru til
sýnis eru annars vegar málaðar með
akrýl á sink-galvaniseraðar plötur
og hins vegar silkiþrykktar á ryðf-
rítt stál. Þau eru öll máluð á þessu
ári. Sýningin er opin á miðvikudög-
um frá kl. 2-6 út október.
----» ♦ 4---
Stærsta nor-
ræna myndlist-
armiðstöðin
Hraðvlrkur alhlíða geislaprentari
fyrir meöalstór og stór netkerfi.
600 dpi + RET*. 16 siður á mínútu.
HP LaserJet 4Si
kr.414-900
stgr. m. vsk.
Kynntu þér heila fjölskyldu
af Hewiett-Packard
geislaprenturum
hjá Tæknivali.
N Af ö
*
* dpi = Upplausn ^
punkta á tommu.
RET = HP
upplausnaraukning.
i u k ^
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665
Fax (91)680664
„Grease“ á
Hótel íslandi
SÖNGLEIKURINN „Grease“ verður frumfluttur á
Hótel Islandi laugardaginn 18. september nk. og
er það Söngsmiðjan sem stendur fyrir þessari sýn-
ingu. í helstu aðalhlutverkum eru Guðjón Berg-
mann sem Danny og Jóna Sigríður Grétarsdóttir
sem Sandy. Gestir sýningarinnar eru Hemmi Gunn
og Edda Björgvinsdóttir.
Elfa Gísladóttir leikkona leikstýrir verkinu og
sér um Ieikgerð, Esther Helga Guðmundsdóttir
söngkona sér um söng og tónlist og er einnig fram-
leiðandi sýningarinnar, Magnús Kjartansson er
hljómsveitarstjóri, Jóhannes Bachmann dansari
semur dansa og sér um kóreografíu, Helga Rún
Pálsdóttir hönnuður hannar búninga og leikmynd,
Sigurður Guðmundsson er ljósameistari sýningar-
innar, Ásgeir Eiríksson hannar hljóð, Sif Guð-
mundsdóttir sér um förðun og Ómar Eiríksson í
Hárklass sér um hárgreiðslu.
Sýningar verða á föstudögum og laugardögum
í september og áætlaðar eru sex sýningar.
BYGGING norrænar myndlistarmið-
stöðvar hófst nú í byijun vikunnar í
Fjaler í Noregi. Miðstöðin, sem nefnd
er Daisásen, verður hin stærsta á
Norðurlöndum. Hana á að reisa fyrir
gjafafé einkaaðila og gert er ráð
fyrir að vinnustofur og önnur aðstaða
verði- samtals 1.700 fermetrar að
flatarmáli. Um er að ræða fimm
vinnustofur með íbúðum fyrir fjöl-
skyldur, sérstaka trévinnustofu og
ennfremur stóra sameiginlega vinnu-
stofu gestalistamanna.
------»■♦ ♦-------
Dagskrá RúRek ’94
Ingólfstorg kl. 17: Karnivala með
götudjass.
Tunglið kl. 22: Mezzoforte.
Fógetinn: Kvartett Kristjáns Guð-
mundssonar.
Hornið/Djúpið: Fánar.
Kringlukráin: Krúpatríóið.
Kaffi Reykjavík: Lovemakers.
I
I
(
I
I
i