Morgunblaðið - 08.09.1994, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBBR 1994 <i 35
MINNINGAR
AXEL JULIUS JONSSON
+ Axel Júlíus
Jónsson var
fæddur að Uxa-
hrygg á Rangár-
völlum 9. júlí 1914.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Suðurlands
30. ágúst sl. For-
eldrar hans voru
Ingigerður Jóns-
dóttir og Jón
Helgason. Hann
átti eina systur,
Vigdísi Jónsdóttur,
fædda 15. júlí 1925.
Hann fluttist með
foreldrum sínum
að Stóru-Hildisey í Austur-
Landeyjum 1919. Hann kvænt-
ist 27. janúar 1940 Sigríði
Önnu Siguijónsdóttur frá
Vestmannaeyjum. Þau tóku
við búi í Stóru-Hildisey 1940
og bjuggu þar til 1978 er þau
fluttu á Selfoss. Þau eignuðust
fjögur börn: Guðjón, fæddur
26. apríl 1941, kvæntur Ásdísi
Ágústsdóttur, þau eiga fimm
börn og fjögur barnaböm;
Ingigerði, fædd 12. júli 1944,
hún á þijú böm og tvö barna-
böm; Jón, fæddur 30. mars
1950; og Erlu, fædd 16. febr-
úar 1952, gift. Birgi Schram,
þau eiga þijú björn. Sigríður
lést 5. október 1989. Jarðarför
Axels fer fram frá Krosskirkju
í dag.
OKKUR langar að minnast afa
okkar, Axels Júlíusar Jónssonar,
sem lést hinn 30. ágúst sl., með
örfáum orðum.
Fyrstu minningarnar eru frá
Stóru-Hildisey þar sem hann
ásamt ömmu okkar, Sigríði Önnu
Sigurjónsdóttur, er lést 1989,
stjómaði góðu búi. Bamabömin
voru alltaf velkomin og dvöldumst
við hjá þeim nokkur sumur í góðu
yfirlæti. Þessi sumur vom gott
innlegg í lífsins skóla og lærðum
við margt sem fólki er nauðsynlegt
að vita á lífsleiðinni.
Afí og amma bmgðu búi árið
1978 og fluttu á Selfoss þar sem
nýr kafii hófst í lífí þeirra. Þar
eignaðist afí marga nýja vini og
myndaði sterk bönd, en tengslin
við sveitina rofnuðu aldrei og sást
það best þegar fjöldi sveitunga
heiðraði hann áttræðan í júlí sl.
Afi kom okkur fyrir sjónir sem
vinnusamur maður. Hann lagði
allt í starf sitt og sinnti af alúð
jafnt mönnum sem málleysingjum.
Eftir að við fullorðnuðumst kynnt-
umst við honum á nýjan hátt og
nú sem jafningja. Samræður okkar
einkenndust oft af glettni og þó
að skoðanir hafi verið andstæðar
þá skildum við alltaf sátt og tilbú-
in í næstu rökræður. Eitt var það
við afa sem tekið var eftir. Jafnvei
þótt hann væri kominn
á níræðisaldurinn
lagði hann mikið upp
úr útliti sínu og vand-
aði klæðnað sinn í hví-
vetna. Afí var maður
sem naut félagsskapar
fólks og hafði mikla
ánægju af ferðalögum.
Hann var virkur þátt-
takandi í starfí aldr-
aðra á Selfossi fram á
síðasta dag.
Nú er afí kominn í
faðm ömmu sem hefur
beðið hans. Blessuð sé
minning þeirra.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kve.ðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Inga Þóra, Axel og Már.
Það var á dimmu haustkvöldi
fýrir sautján árum að við hjónin
knúðum dyra hjá Axel og Siggu
að Stóru-Hildisey 2. Höfðum við
heyrt að þau hygðust bregða búi.
Boðið var til stofu, borð dekkað
kræsingum, og spjallað Iengi
kvölds. Rammi kaupmála var gerð-
ur í orðum sem stóðu betur hjá
þeim en stafír á bók hjá öðrum.
Héldum við heim með sól í sinni
full eftirvæntingar að taka við búi
að vori.
Þannig hófust kynni okkar af
þeim heiðurshjónum Axel Júlíusi
Jónssyni og Sigríði Önnu Sigur-
jónsdóttur sem hér stóðu fyrir búi
í nær fjóra áratugi. Búi sem ekki
einkenndist af stærðinni heldur
snyrtimennsku og natni ábúend-
anna og umhyggju fyrir skepnun-
um. Hér unnu þau samhent að
ræktun og uppbyggingu, komu
upp fjórum börnum og tóku virkan
þátt í félagslífi sveitar sinnar. Öll
okkar samskipti mörkuðust frá
fyrstu kynnum af sérstökum
drengskap og heilindum þeirra sem
meðal annars birtust okkur í ein-
stökum viðskilnaði þeirra við bæ
og bú þegar við tókum við í maí
1978. Öll verkfæri, stór og smá,
voru til staðar, langt umfram það
sem ætlast mátti til, allt til að létta
undir með ungum og efnalitlum
frumbýlingum. Alla tíð nutum við
vináttu þeirra og tryggðar sem við
viljum nú þakka af einlægni að
þeim báðum gengnum. Þau eyddu
ævikvöldi sínu á Selfossi, studd af
vinum og vandamönnum, ekki síst
Jóni syni þeirra sem bjó með þeim
alla tíð. Sigríður lést í október árið
1989. Sárt tók skilnaðarstundin á
bóndann sem þó að vanda bar sig
af reisn og átti ólifuð tæp fimm
ágæt ár í vinagarði á Selfossi og
hér í sveit sem hann ræktaði af
kostgæfni. Ófáar átti hann ferðim-
ar á heimaslóðir og minnisstæðar
verða þær okkur, því ellin setti
ekki mikið mark á hugann þótt
árin færðust yfír. Oft var setið
fram eftir og spjallað um mannlíf-
ið. Mörgu var frá að segja úr ferða-
lögum og gjarnan fremur staldrað
við mannleg samskipti en ítarlegar
landslagslýsingar. Ekki hlotnast
okkur að njóta frásagnar af síð-
ustu ferðinni sem farin var nú í lok
ágúst norður í land, þar sem hann
ferðaðist með eldri borgnrum glað-
ur og reifur að vanda, eftir að
hafa fyrr í sumar haldið með
rausnarskap upp á áttræðisafmæli
sitt. Ferðasagan verður að bíða
betri tíma, því skömmu eftir heim-
komu beið hans lengri ferð, von-
andi umvafinn heilladísum, til
fundar við Siggu sína. Megi þau
hvíla í sæluranni.
Óli, Birna og synir,
Stóru-Hildisey 2.
LEGSTEINAR
Flutningskostnaður innifalinn.
Stuttur afgreiðslufrestur.
Fáið myndalistann okkar.
720 BorgarfirSi eystra, sími 97-29977
Skólaostur kg/stk.
i R Ú M L E G A 15% LÆKKUNi
VERÐ NU:
592 kr.
kílóið.
VERÐÁÐURi^SS^Z Kr. kílóið.
105 kr.
ÞU SPARAR:
á hvert kíló.
OSIAOG
SMIÖRSALANSE