Morgunblaðið - 05.11.1994, Side 1
80 SIÐUR B/C/D/E
253. TBL. 82. ÁRG.
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Poul Nyrup Rasmussen heim úr ferð sinni til Færeyja
Gaf engin fyrirheit um
aukin fjárframlög
Kaupmannahöfn. Morgnnblaöið.
Gramsað
ítunnum
London. Reuter.
MICHAEL Heseltine, viðskipta-
ráðherra Breta, lét í gær inn-
kalla bækling um markaðsmál
sem ráðuneytið hefur styrkt
útgáfu á. Ástæðan er sú að í
honum er mælt með ýmsum
bolabrögðum í viðskiptum, svo
sem að gramsa í ruslatunnum
keppinauta.
Bæklingurinn, „Markaðs-
settu fyrirtæki þitt“, kom út
1983. Höfundar hans eru við-
skiptaráðgjafar. Mælt er með
því að menn vingist við ritara
í fyrirtæki keppinauta, einnig
geta þeir njósnað með því að
þykjast vera fréttamenn eða
námsmenn að skrifa ritgerð um
efni tengt keppinautnum.
POUL Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Dana, sneri í gær heim úr
nokkurra daga heimsókn til Færeyja.
Móttökumar voru heldur kaldar í
Þórshöfn og Færeyingar gagnrýndu
óspart tök Dana í efnahagslífi eyj-
anna, sem þeir telja gagnast dönsku
bönkunum betur en eyjaskeggjum.
Nyrup Rasmussen -sagði fýrir
heimferðina að nú skipti mestu að
treysta undirstöður atvinnulífsins til
að stöðva fólksflóttann, án þess þó
að hann gerði grein fyrir hvernig það
mætti verða eða kæmi með nein lof-
orð í þá átt. Hann áleit þó bjartara
framundan, því samkvæmt mæling-
um fiskifræðinga færi þorskstofninn
vaxandi á ný. Einnig mætti huga að
því að hvort ekki væri í auknum
mæli hægt að vinna fisk frá þriðja
landi í fyrirtækjum eyjanna.
Erlendar fjárfestingar
Edmund Joensen, lögmaður Fær-
eyja, tók undir með Nyrup Rasmussen
um nauðsyn þess að stöðva fólksflótt-
ann. Það væri erfitt verkefni og á því
hefði forsætisráðherrann skilning.
Ekki var að skilja á orðum Nyrups
Rasmussens um komandi viðræður í
Kaupmannahöfn að Danir ætluðu sér
að slaka á aðhaldsstefnu sinni í efna-
hagsmálum eyjarskeggja. Skuldir
færyskra sveitarfélaga nema um 20
milljörðum ísl. króna.
Dönsk ráðgjafarnefnd um Færeyj-
ar skilaði nýlega skýrslu sinni. Þar
er bent á að atvinnuleysi á eyjunum
hafi minnkað en það sé ekki vegna
aukinnar atvinnu, heldur fólksflótta.
Nefndin mælir með að formlegum
og óformlegum hindrunum gegn er-
lendum fjárfestingum verði aflétt,
svo að nýtt fjármagn, frumkvæði og
þekking berist til eyjanna.
Reuter
Dronka
Umbætur
í hættu?
Moskvu. Reuter.
BORÍS N. Jeltsín Rússlandsforseti
skipaði í gær Vladímír Panskov, er
verið hefur háttsettur í fjármála-
ráðuneyti landsins, að fjármálaráð-
herra. Skipun Panskovs var ekki
borin undir Alexander Shjokín, að-
stoðarforsætisráðherra með yfir-
stjórn efnahagsmála á sinni könnu,
en hann er einn örfárra umbóta-
sinna sem eftir eru í stjórninni.
Shjokín sagðist í gær myndu láta
af embætti, en hann hefur verið
aðalfulltrúi Rússa í viðræðum við
erlenda lánardrottna um ríkisskuld-
ir og notið álits á Vesturlöndum.
Miðstýring á ný
Nýi fjármálaráðherrann, Pansk-
ov, var á sínum tíma staðgengill
Valentíns Pavlovs, afturhaldssams
fjármálaráðherra Sovétríkjanna
gömlu í tíð Míkhaíls Gorbatsjovs,
en Pavlov tók þátt í valdaráninu
1991. Nýskipaður landbúnaðarráð-
herra, Álexander Nasartjúk, vill
styrkja samyrkjubúin, efla á ný
miðstýringu ríkisvaldsins í atvinnu-
greininni og vernda hana fyrir er-
lendri samkeppni.
Bosníu-Serbar aðþrengdir
vegna skorts á eldsneyti
Sarajevo, SÞ, Edinborg, Pale. Reuter.
STJÓRN Bosníu-Serba lýsti yfir
því í gær að allsheijar herútboð
yrði á svæðum sem hún ræður og
þing þjóðarbrotsins yrði kallað
saman í næstu viku til að setja
herlög. „Múslimar er staðráðnir í
að beijast áfram og vilja ekki
semja um pólitíska lausn á deilun-
um. Meirihluti ríkja heims styður
árásarstefnu múslima," sagði
Radovan Karadzic, leiðtogi Bos-
níu-Serba, i höfuðstað þeirra, Pale.
Mikill fögnuður ríkti í Sarajevo í
gær vegna sigra stjórnarhers
múslima og Króata, sem barist
hafa með stjórnarhernum.
Staðfest hefur verið að múslim-
ar og Króatar hafa tekið borgina
Kupres og er þetta fyrsti ósigur
Bosníu-Serba frá því að átökin
hófust í Bosníu fyrir 31 mánuði.
Karadzic sagði að á þinginu
Radovan Karadzic segir að stefnt
sé að allsherjar herútboði
myndi verða Iýst yfir að ríkið ætti
í styijöld. Bosníu-Serbar væru
beittir órétti en þeir myndu ekki
gefast upp heldur beijast þar til
lokasigur ynnist.
Öllum leyfum hermanna Bos-
níu-Serba var frestað, framhalds-
skólum lokað og nemendur á her-
skyldualdri fengu skipun um að
mæta hjá herflokkum sínum.
Menn sem flúið hafa land til að
komast undan herskyldu fengu
„síðustu viðvörun". Annaðhvort
sneru þeir heim eða hlytu dóm
fyrir liðhlaup sem m.a. merkir að
eignir þeirra verða gerðar upptæk-
ar.
Douglas Hurd, utanríkisráð-
herra Bretlands, gerði lítið úr hót-
unum Karadzic í gær, sagði að
svipuð ummæli hefðu heyrst fyrr
úr þeirri átt. Hurd harmaði á hinn
bóginn að bardagar hefðu færst í
aukana. Góðu tíðindin væru þau
að Slobodan Milosevic, forseti
Serbíu, þrýsti nú æ meir á þjóð-
bræður sína í Bosníu um frið.
Þrýstingnr frá Serbíu
Serbar og Svartfellingar hafa
hætt að styðja landa sína með
vopnum, eldsneyti og öðrum gögn-
um í Bosníustríðinu. Talið er að
skortur á eldsneyti valdi því að
Bosníu-Serbar, sem hafa í sumum
tilvikum keypt bensín af Króötum
á uppsprengdu verði, eigi nú erfitt
með að nýta sér mikla yfirburði á
sviði skriðdreka og annarra
þungavopna sem þeir eiga gnægð
af. Einnig fullyrða heimildarmenn
að baráttuþrek herliðsins fari ört
minnkandi, sums staðar ríki upp-
lausn og hermenn neiti að berjast
annars staðar en á heimaslóðum
sínum.
Allsheijarþing Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gær með miklum
meirihluta tillögu um að vopna-
sölubanni á Bosníu yrði aflétt til
að gera stjórninni í Sarajevo auð-
veldara að veijast Bosníu-Serbum
en 10 af 15 fulltrúum öryggisráðs-
ins, sem hefur úrslitavaldið í mál-
inu, studdu ekki tillöguna.
■ Vara við hryðjuverkum/20
Reuter
SKRIÐDREKI múslima, rússneskur af gerðinni T-55, í grennd við Kupres en um borgina
liggur mikilvæg flutningaleið milli norður- og suðurhluta Bosníu-Herzegóvínu.
SLÖKKVILIÐSMAÐURI
egypsku smáborginni Dronka
þar sem mikill eldsvoði varð á
fimmtudag er tveim tankvögnum
með olíu hvolfdi vegna þess að
geysileg flóð grófu undan járn-
brautarteinum. Fjöldi fólks fórst
er brennandi olían skall á húsum
í grennd við slysstaðinn. Enn
loga eldar á staðnum og björgun-
arfólk leitar að líkum í rústum
húsa sem hrundu í flóðunum víða
á svæðinu. Talið er að alls hafi
rúmlega 500 manns týnt lífi af
völdum hamfaranna, að sögn
embættismanna í gær. Ibúar í
Dronka segja yfirvöld vanmeta
manntjónið, þúsundir manna hafi
farist. Hosni Mubarak forseti
kom til héraðshöfuðborgarinnar
Assiut í gær til að kynna sér
aðstæður ásamt nokkrum ráð-
herrum.
Eldar í