Morgunblaðið - 05.11.1994, Side 6

Morgunblaðið - 05.11.1994, Side 6
6 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kostnaður vegna umferð- arslysa 5 milljarðar á ári ÆTLA má að kostnaður samfélagsins vegna umferðarslysa nemi árléga um 10 milljörðum króna og kostnaður vátryggingafélaganna af umferðinni um 5 milljörðum. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Ykkar mála, fréttabréfi við- skiptamanna Vátryggingafélags íslands, VÍS. I fréttabréfinu segir að umferðarslys kosti VÍS um 2,1 milljarð króna á ári. Skemmdir á ökutækjum séu um 6.000 á ári og meðaltals- kostnaður við hvert tjón um 135.000 krónur eða samtals 810 milljónir. Um 950 manneskjur slas- ist að meðaltali í umferðarslysum á ári og sé meðaltalskostnaður við hvert þeirra um 1.200 þúsund krónur eða 1.140 milljónir króna á ári. Þá séu ótalin tjón á framrúðum bifreiða sem séu um 5.000 á ári og kosti hver rúða að meðaltali um 23.000 krónur eða samtals 115 milljónir á ári. Miðað við um 42% markaðshlutdeild Vá- tryggingafélags íslands í bifreiðatryggingum má áætla að kostnaður tryggingafélaganna vegna umferðarinnar sé um 5 milljarðar króna árlega. í bréfi til fjölmiðla með fréttabréfínu kemur fram að hingað til hafi verið áætlað að kostnaður samfélagsins vegna umferðarslysa væri um 6 milljarðar króna á ári en nú væri ljóst að hann væri umtalsvert hærri eða nærri 10 milljörðum. Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Mál Hágangs II fyrir héraðsdómi í Tromsö Krafist 60 daga fang- elsis og 2 millj. sekta Breyting SVR í hlutafélag Viðbótar- launa- kostnaður 12,7 millj. VIÐBÓTARLAUNAKOSTN- AÐUR vegna breytingar SVR í hlutafélag nam um 12,7 millj- ónum króna samkvæmt könn- un Borgarendurskoðunar. Heildarkostnaður vegna breyt- inganna nam samtals 17.491.333 kr. Niðurstaða könnunar Borgarendurskoðunar leiðir í Ijós að kostnaður vegna skýrslu VSÓ-Rekstrarráðgjaf- ar hf. og Lögmanna Höfða- bakka „Breytingar á rekstrar- formi SVR, drög“ nam 1.376.503 kr. Kostnaður vegna upphafsefnahagsreikn- ings SVR hf. lokaskýrslu VSÓ, samninga SVR hf. við Stjórnamefnd um almennings- samgöngur og vegna vinnu við bókhaldsleg skil SVR hf/SNA nam 1.883.607 kr. og vegna flutninga SNA 65.243 kr. Viðbótarlaunakostnaður felst í biðlaunum, viðbótar- stöðugildum hjá SNA, launum aðstoðarforstjóra og hækkun launa vegna nýrra kjarasamn- inga. Stjómsýslukostnaður SVR hf. vegna skrásetningar félagsins og stjórnarlauna nam 1.465.980 kr. Norðurtangi hf. Guðbjartur skráður í Búðardal NORÐURTANGI hf. á ísafirði hefur látið skrá Guðbjart, 407 tonna rækjuskip, nú með ein- kennisstafina DA-20, í Búðar- dal til að- komast framhjá banni við rækjuveiðum norð- lenskra og vestfírskra skipa fyrir sunnan Bjargtanga. „Nú er er skipum frá Norð- urlandi og Vestfjörðum ekki heimilað að veiða rækju fyrir sunnan Bjargtanga, en skip annars staðar af landinu mega veiða allt i kringum landið. Skráningunni var einfaldlega breytt til að komast fram hjá þessu," sagði Jón Páll Hall- dórsson, framkvæmdastjóri Norðurtanga. Guðbjartur leggur áfram upp afla sinn hjá Básafelli á ísafirði. Hann sagði ekki ólíklegt að sama leið yrði farin við skrán- ingu annarra rækjuskipa. DÓMS í máli Antons Ingvasonar, stýrimanns á Hágangi II, og skip- stjóra og útgerðar skipsins er að vænta í héraðsdómi í Tromsö í Nor- egi þann 17. þessa mánðaar. Lars E. Fause, sækjandi málsins, sagðist í samtali við Morgunblaðið hafa gert þá kröfu fyrir dóminum að Anton yrði dæmdur til 60 daga óskilorðs- bundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa skotið út haglabyssu að norsk- um strandgæslumönnum, sem reyndu að klippa á togvíra skipsins RÍKISSJÓÐUR hefur selt, Miðnesi hf. í Sandgerði fiskiskipið Geir goða samkvæmt ákvæði í leigusamningi aðilanna frá því í desember árið 1992. Miðnes missti skipið til ríkis- sjóðs á uppboði í október sama ár. Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri í fjármáiaráðuneytinu, segir að við- skiptin hafi verið með þeim hætti að ríkissjóður hafi ekki hlotið skaða af. Hann segist ekki geta svarað því af hverju skipið hafí ekki verið selt hæstbjóðanda eftir uppboðið fyrir tveimur árum. Geir goði, sem er 160 rúmlesta fiskiskip, var sett á uppboð vegna vandgoldinna skulda í október árið 1992. Miðnes hf., fyrri eigandi Geirs úr gúmmíbáti þegar það var við veiðar á Svalbarðasvæðinu þann 4. ágúst í sumar. Lars Erik Fause sagði að jafn- framt væri gerð krafa um að skip- stjórinn, Eiríkur Sigurðsson yrði dæmdur til að greiða um 500 þús- und íslenskar krónur í sekt og úgerð skipsins verði gert að greiða jafn- virði 1,5 milljóna króna fyrir að hunsa fyrirmæli norskra stjórnvalda. Veijandi íslendinganna og út- gerðarinnar hefur krafíst sýknu og goða, átti hæsta tilboð í skipið en gat ekki staðið við greiðslur. Ríkis- sjóður átti annað hæsta tilboðið, rúmar 50 milljónir, og kom skipið því í hans hlut. Síðar var ákveðið að leigja fyrri eigendum skipið og gerir leigusamningur ráð fyrir 14 milljóna króna greiðslu fyrir tímabil- ið 1. desember 1992 til 31. mars 1994. Leiga upp í kaupverð Magnús segir að þar að auki sé gert ráð fyrir að Miðnes geti, ef sam- komulag um uppgjör á skuldum við Ríkissjóðs náist fyrir lok leigusamn- ingsins, leyst til sín skipið að nýju. Hann sagði að miðað væri við að 14 hefur lýst því yfir að leitun sé að sakamáli í Noregi sem rekið hafi verið á jafnhæpnum forsendum. Hart sé deilt um lagalegan grund- völl þeirra reglugerða sem norsk stjórnvöld hefðu innleitt á verndar- svæðinu. Þann 12. ágúst, viku eftir að Hágangur II var færður til hafn- ar, hefði verið talið nauðsynlegt að breyta orðalagi gildandi reglugerðar til að réttlæta framferði strandgæsl- unnar. milljón króna leigugreiðsla í skulda- bréfaformi með veði í Geiri goða kæmi upp í kaupverð hans. Miðnes hf. stóð við skuldbindingar sínar á leigutímanum og átti á því viðskipti við Keflavíkurbæ. Fyrirtækið tók við skuldabréfi frá Keflavíkurbæ vegna viðskiptanna og þegar kom að því að kaupa Geir goða að nýju var skuldabréfið tekið upp í söluverð, 95 milljónir. Magnús sagði að litið hefði verið svo á að skuldabréf útgefíð af Kefla- víkurbæ væri traustari greiðsla en skuldabréf með veði í skipi og kvóta. Ríkissjóður telji að hann hafi tryggt kröfu sína með tryggum hætti og skaðist ekki á viðskiptunum. Ríkissjóður selur Miðnesi hf. í Sandgerði Geir goða Kaupin samkvæmt ákvæði í leigusamningi Ungfrú Norðurlönd í Miss World „Geri mitt besta“ BIRNA Bragadóttir, ungfrú Norð- urlönd 1994, er nú stödd í Sun City í Suður-Afríku og tekur þar þátt i undirbúningi fyrir keppnina Miss World, sem fram fer laugar- daginn 19. nóvember. „Keppnin er miklu meira mál en mig grunaði," sagði Birna í sam- tali við Morgun- blaðið. „Við erum 87 og sumar stelpurnar komu með sex eða sjö ferðatöskur full- ar af fötum. Ég kom með eina en auðvitað eru sumar verr staddar en ég. Ég er ákveðin að njóta þess að vera hérna og gera mitt besta,“ sagði Birna. „Ég kom hingað 21. október. Fyrstu dagana fórum við í fjög- urra daga ferðalag til Swazilands. i Hápunktur ferðalagsins var að hitta konung landsins. En við fór- um líka í safarí og sáum villt dýr í sínu eðlilega umhverfi. Eftir ferðalagið hefur aðllega verið myndað fyrir sjálfa keppnina og núna eru æfingar að hefjast,“ sagði Birna. Hún sagði að vel væri búið að keppendunum og öryggisgæsla mikil. Hún sagði að hópurinn hefði verið óheppinn með veður því mikið hefði rignt. Hún sagðist vera farin að hiakka til að koma heim í snjóinn og bað fyrir kveðju. j Framsóknarflokkur Sivstefnir > aðl.sæti SIV Friðleifsdóttir, sjúkraþjálfari og bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, gefur kost á sér í fyrsta sæti á lista Fram- sóknarflokksins í Reykjanesi í næstu alþingiskosninum. Framsóknarmenn á Reykjanesi ákveða síðar í 'mánuðinum hvort list- , inn verður ákveðinn með prófkjöri eða á annan hátt. Siv er fjórði fram- ) sóknarmaðurinn sem lýsir yfír fram- j boði í fyrsta sætið. Áður höfðu Unn- ur Stefánsdóttir, leikskólakennari í Kópavogi, Hjálmar Árnason, skóla- meistari í Keflavík, og Drífa Sigfús- dóttir, forseti bæjarstjórnar og vara- bæjarstjóri Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna, gefið kost á sér í það. -----♦-»- ♦---- Alþýðuflokkur á Vesturlandi \ Báðir vilja efsta sætið ÁKVEÐIÐ hefur verið að prófkjör Alþýðuflokksins á Vesturlandi verði , haldið þrátt fyrir að aðeins tveir frambjóðendur taki þátt. Prófkjörið 1 verður 19. nóvember. Frambjóðendurnir tveir eru Gísli S. Einarsson alþingismaður á Akra- nesi og Sveinn Þór Elinbergsson að- stoðarskólastjóri og bæjarfulltrúi > Ólafsvík. Þeir skipuðu 2. og 3. sæti listans 1990. Þegar Eiður Guðnason varð sendiherra varð Gísli þingmaður og Sveinn Þór varaþingmaður. Báðir sækjast eftir fyrsta sætinu nú. í prófkjörinu er kosið um skipan tveggja efstu sæta listans og er Öllum kosningabærum íbúum Vesturlands sem ekki eru skráðir félagar í öðrum stjómmálaflokkum heimiluð þátttaka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.