Morgunblaðið - 05.11.1994, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Háteigsvegur - Rvík
Rúmgóð 5 herb. þakíbúð. Mikið endurnýjuð, m.a. park-
et, nýleg eldhúsinnr., ofnakerfi og lagnir. Suðursvalir.
Fallegt útsýni. Áhvílandi byggingasjóður 3,4 millj. Laus
fljótlega. Verð 9 millj. 4918.
Opið í dag frá kl. 11-14
lf S:685009-685988
ÁRMÚLA21
OAN V.S. WIIUM, LOGFRÆÐINGUR,
OLAFUR GUOMUNDSSON, SÖLUSTJORI,
...
Smárarimi 78 - nýbygging
Opið hús í dag kl. 13-15!
Þetta skemmtilega einbýlishús, sem er tilbúið til
afhendingar nú þegar fullbúið að utan og fokhelt
að innan, verður öllum áhugasömum til sýnis í
dag kl. 13-15. Húsið sem er á einni hæð er 136
fm auk 40 fm bílskúrs. Gert er ráð fyrir 4 svefn-
herb. Áhv. húsbréf með lágu vöxtunum 4,8 millj.
Verð aðeins 8,5 millj. Líttu inn!
HÓLL, fasteignasala, sími 10090.
—J
Áhugaverð 3ja herb.
íbúð til sölu á góðum
stað í Hafnarfirði
Til sölu falleg 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi á góðum stað
I Hafnarfiröi. íbúðin er um 90 fermetrar og skiptist i forstofu, stofu,
eldhús, geymslu, þvottaherbergi, gang, barnaherbergi, baðherbergi
og hjónaherbergi.
Hún er nýmáluð í hólf og gólf i hlýlegum mildum lltum og nýtt
vandað parkett er á stofu, gangi og eldhúsi. Góöir klæðaskápar
í svefnherbergjum. Geymsla og þvottaherbergi innaf eldhúsi.
Geymsla og hjólageymsla á jarðhæð. Glæsilegt útsýni yfir Hafnarfjörð.
Stórar suðursvalir. Þægilegt fjölbýli, nýtekiö í gegn að utan og nýmálað
(kostnaður að fullu greiddur).
Verð íbúðar kr. 7.200.000,-. Skipti möguleg á einbýli
I vesturbæ Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar í síma 54820 og 686121.
21150-21370
LARUS Þ. VALDIMARSS0N. framkvæmdastiori
KRISTJAN KRISTJANSS0N. loggiltur fasteigvasali
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Skammt frá KR-heimilinu
sólrík 4ra herb. íb. tæpir 100 fm á vinsælum stað. Sólsvalir. Góð sam-
eign. Langtlán kr. 2,4 millj. Tilboð óskast.
Skammt sunnan Háskólans
ný, glæsil. 4ra herb. sérhæð i tvíb. 104,3 fm. Allt sér. Langtlán kr.
4,6 millj. Góður bílsk. Eignaskipti möguleg.
í gamla góða austurbænum
nýendurbyggð 3ja herb. íb. á 1. hæð (jarðhæð) tæpir 80 fm nettó. 40
ára húsnlán kr. 3,1 millj. Frábær greiðslukj.
Skammt frá Hótef Sögu
stór og góð 4ra herb. íb. v. Hjarðarhaga. Nýtt gler. Rúmg. svalir. Sér-
þvaðstaða. Ágæt sameign. Tilboð óskast.
Úrvalsíb. í Árbæjarhverfi - eignaskipti
Endaíb. 4ra herb. á 1. hæö 108,6 fm. Nýtt eldh. Sérhiti. Gott kjherb.
fylgir m. snyrtingu. Ágæt sameign. Skipti mögul. á minni íb.
Af sérstökum ástæðum
getum við boðið glæsil. 3ja herb. endaíb. m. fallegu útsýni á einum
besta stað í Breiðholti. Ágæt sameign. 40 ára húsnlán kr. 3,3 millj.
Útborgun má skipta að óskum kaupanda. Tilboð óskast.
Lítið einbýli - traustur kaupandi
Leitum að litlum einb-, rað- eða parhúsum fyrir trausta kaupendur.
Sérstaklega óskast nýtt sérbýli, helst í Austurbænum í Kópavogi.
• • •
Opiðfdag kl. 10-14.
Fjöldi eigna í makaskiptum.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
AIMENNA
FASTEIGHASAt AH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
FRÉTTIR
NAUSTIÐ hefur staðið af sér allar breytingar sem hafa orðið í veitingarekstri í Reykjavík.
FJörutíu ár liðin
frá opnun Naustsins
VEITINGAHÚSIÐ Naustið
verður 40 ára á morgun, sunnu-
dag, en það hóf starfsemi 6.
nóvember 1954. Fyrirtæki um
reksturinn var reyndar stofnað
árið áður, en meðal eigenda
þess voru sr. Halldór Gröndal,
Eyjólfur Konráð Jónsson og
Geir Zoega. Núverandi eigend-
ur Naustsins. þeir Hörður Sig-
urjónsson og Hafsteinn Egilsson
ætla að minnast þessara tíma-
móta m.a. með því að bjóða
gestum upp á sérstaka humar-
veislu á næstunni.
Hörður sagði í samtali við
Morgunblaðið að veitingarekst-
ur í Naustinu hefði verið
óbreyttur allt frá opnun staðar-
ins fyrir 40 árum, og allar inn-
réttingar væru þær sömu nema
hvað opnuð hefði verið koníaks-
stofa fyrir tveimur árum síðan,
í Geirsbúð þar sem verslun
Geirs Zoega var áður til húsa,
en innangengt er þangað úr
veitingasal Naustsins. Þá var
kjallarinn undir húsinu grafinn
út og bjórkrá opnuð þar fyrir
fimm árum síðan, en þeir Hörð-
ur og Hafsteinn tóku við rekstri
hennar um síðustu mánaðamót.
Hyggjast þeir í framtíðinni
opna á milli veitingasaiarins og
kráarinnar þannig að fólk geti
farið þar á milli að vild. Þá
verður boðið upp á lifandi tón-
list á báðum hæðum
„Við leggjum upp úr því að
halda í þær hefðir sem skapast
hafa varðandi veitingarekstur í
Naustinu. Má má þar nefna
þorramatinn, jólahlaðborðið
vinsæla, og þessa dagana erum
við að koma út úr villibráðar-
hlaðborði sem boðið hefur verið
upp á undanfarnar vikur. Núna
afmælishelgina hefst svo hum-
arveisla, þar sem gestum verður
boðið upp á fjölbreyttan humar-
matseðil á 1.994 kr. í tilefni
afmælisársins, og stendur hún
fram að jólahlaðborðinu sem
hefst 25. nóvember,“ sagði
Hörður.
Bjartsýnn á framtíðina
Hann sagði Naustið standa
vel í veitingahúsaflóru Reykaj-
víkur í dag, og staðurinn hefði
staðið af sér allar breytingar
sem orðið hefðu í veitingahúsa-
rekstri allt frá stofnun þess fyr-
ir 40 árum.
„Það er greinilegt að fólki
finnst þægilegt að koma í
Naustið og sérstaklega vekur
það ánægju fólks sem stundaði
staðinn á árum áður að engu
hefur verið breytt. Við höfum
lagt upp úr því að breyta helst
engu, en það eina sem viðð höf-
um gert er að taka í notkun
þægilegri stóla til þess að betur
fari um fólk. Eg er mjög svo
bjartsýnn á framtíð Naustsins
og þess verður gætt að allir
geti fundið þar eitthvað við sitt
hæfi,“ sagði Hörður.
Leiðtoga-
fundurinn 1986
Ólafi
Ragnari
að þakka?
ÓLAFUR Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandalagsins,
er maðurinn að baki því að
leiðtogafundurinn skyldi hald-
inn í Reykjavík haustið 1986,
að mati Gunnars Dals rithöf-
undar.
Þetta kemur fram í nýútko-
minm viðtalsbók Hans Krist-
jáns Árnasonar við Gunnar, en
þar segir: „Það er mín tiigáta
að Ólafur Ragnar Grímsson sé
maðurinn á bakvið stórvelda-
fundinn í Reykjavík ... En það
er staðreynd að skömmu áður
en Gorbatsjov gerði þetta að
tillögu sinni, fékk hann bréf
frá Aþenu. Það var frá samtök-
um sem Islendingurinn Ólafur
Ragnar Grímsson hafði forystu
fyrir. Og það var vitað að ein-
mitt á þessum tima setti Ólafur
Ragnar Grímsson fram athygl-
isverðar tillögur um friðun
Norður-Atlantshafs og
Norðurlanda. Ég held að Gorb-
atsjov hafi litið á tillögur Ólafs
Ragnars sem stuðning við sín-
ar eigin hugmyndir sem hann
setur fyrst fram, svo allur
heimurinn heyri, í Reykjavík."
Ólafur Ragnar Grímsson
sagðist ekki vilja tjá sig um
þetta í samtali við Morgunblað-
ið.
Játar að
hafa stolið
tölvu Þráins
22 ÁRA gamall maður hefur
í yfirheyrslum hjá RLR játað
að hafa brotist inn í hús Þráins
Bertelssonar rithöfundar á
Rangárvöllum og stolið þaðan
tölvu með hálfkláruðu kvik-
myndahandriti, tveimur tölvu-
prenturum, sjónvarpi, geisla-
spilara og fleiru. Mestallt þýfið
hefur nú komist til skila að
sögn RLR, en áður var tölvan
fundin.
Að sögn lögreglu hafði mað-
urinn notað þýfið í fíkniefna-
viðskiptum og komið því af
höndum sér en RLR komst á
slóð hans'eftir að tölvan kom
í leitirnar en Þráinn lýsti eftir
henni í íjölmiðlum.
Fyrir nokkrum dögum játaði
maðurinn verknaðinn og í
framhaldi af því fundust m.a.
prentararnir tveir og komust í
réttar hendur.
Sérhæð í Kópavogi
AMMUR 24
neðri hæð
séð frá
Eskihvammi
Kjörbýli
641400
Eigandi
46966
Eignin er 140 fm ásamt 30 fm sérrými og 30 fm bílskúr. íbúð-
in er stofa og fimm svefnherbergi. Inngangur í sérrými er úr
garði, einnig er innangengt úr íbúðinni. Sérrýmið gæti hentað
fyrir léttan heimilisiðnað, daggæslu o.fl. eða sem íbúð fyrir
einstakling eða par. í bílskúr er hitalögn og 3ja fasa rafmagn.
Góður garður. Hús í góðu ástandi. Verðhugmynd 9,9 milljónir.
ploröimlbfaijiíi
- kjarni málsins!