Morgunblaðið - 05.11.1994, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Tónleikar í
Akureyrar-
kirkju
KÓR Akureyrarkirkju undir stjórn
Björns Steinars Sólbergssonar og
Bamakór Akureyrarkirkju undir
stjórn Hólmfríðar Benediktsdóttur
halda sameiginlega tónleika í Ak-
ureyrarkirkju á morgun, sunnudag-
inn 6. nóvember kl. 17. Tónleikamir
eru fyrsta skrefið í viðamikilli fjáröfl-
un sem sóknarnefnd Akureyrarkirkju
stendur fyrir vegna endurbóta á org-
eli Akureyrarkirkju. I tilefni af lýð-
veldisári verður efnisskrá tónleik-
anna eingöngu íslensk tónlist.
Messur
AKUREYRARKIRKJA: HÁ-
degistónleikar í dag kl. 12. Fyr-
irlestur Páls Skúlasonar, „Trú,
list og hugsun" kl. 13.30. Allra
heilagra messa, sunnudaginn
6. nóvember; Guðsþjónusta á
Fj'órðungssjúkrahúsinu kl. 10.
Sunnudagaskóli kl. 11. Guðs-
þjónusta í kirkjunni kl. 14. Kór
Akureyrarkirkju syngur við at-
höfnina, einsöngur Þuríðar
Baldursdóttur. Guðsþjónusta á
hjúkrunardeildinni Seli kl. 14.
Fjáröflunartónleikar vegna org-
elssjóðs kl. 17. Fundur æsku-
lýðsfélagsins kl. 17. Biblíulestur
kl. 20.30 á mánudagskvöld.
GLERÁRKIRKJA: Biblíu-
lestur og bænastund kl. 11 í
dag, laugardag. Barnasam-
koma kl. 11 á morgun, sunnu-
dag. Messa kl. 14, Allra heil-
agra messa, látinna minnst.
Már Magnússon syngur ein-
söng. Kirkjukaffi kvenfélagsins
eftir messu. Fundur æskulýðs-
félagsins kl. 18.
H VÍTASUNNUKIRKJ AN:
Samkoma í umsjá ungs fólks
kl. 20.30 í kvöld. Safnaðarsam-
koma kl. 11, vakningarsam-
koma kl. 15.30, ungt fólk sér
um söng og vitnisburði. Bibl-
íulestur kl. 20. á miðvikudags-
kvöld, Jóhann Pálsson. Kristileg
krakkasamtök kl. 17.15 á föstu-
dögum og bænasamkoma sama
dag kl. 20.30.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli kl. 13.30 á
morgun, hjálpræðissamkoma
kl. 20. Heimilasamband fyrir
konur kl. 16. á mánudag.
Saga Akureyrar; Kaupstaðurinn við Pollinn 1863-1905 er komin út
Morgunblaðið/Rúnar Þór
JÓN Hjaitason, sagnfræðingur og höfundur annars bindis af Sögu Akureyrar, afhendir Jakobi
Björnssyni, bæjarsljóra Akureyrar, fyrsta eintak bókarinnar. Á bak við þá standa (f.v.) Bernharð
Haraldsson, Guðniundur Gunnarsson, Bragi Guðmundsson og Þórður Kárason.
Forsvarsmenn Tónlistarskólans minna á kosningaloforð
Peningamenn hug’i að
gildi menningarstarfsemi
„ÞAÐ ER alltaf álitamál í hvað veija
skuli fjármunum bæjarfélagsins og
það er gömul saga og ný að til eru
menn sem sjá ofsjónum yfir fjárveit-
ingum til menningar- og uppeldis-
mála. Það lofar hins vegar ekki góðu
um flutning á rekstri grunnskólanna
frá ríki til sveitarfélaga ef einstökum
bæjarfulltrúum vex í augum kostn-
aður við rekstur þeirra og bregðast
við með því að leggja til að dregið
sé úr starfsemi þeirra eða þeir lagð-
ir niður,“ sagði Gunnar Frímannsson
rekstrarstjóri um ummæli Odds
Halldórssonar, bæjarfulltrúa Fram-
sóknarflokks, þess efnis að leggja
beri Tónlistarskólann á Akureyri
niður eða draga verulega úr starf-
semi hans. Oddur benti á í viðtali
við blaðið í gær að rekstur skólans
kostaði 52 milljónir króna eða milljón
á viku, sem væri að hans mati dýr
rekstur.
„Enginn dregur væntanlega í efa
gildi tónlistariðkunar fyrir einstak-
Iinginn en peningahyggjumenn
hefðu líka gott af að huga að því
hvaða gildi menningarstarfsemi eins
og Tónlistarskólinn stendur fyrir
hefur fyrir bæjarfélagið," sagði
Gunnar og benti á að hópur fólks
kæmi til Akureyrar gagngert til að
stunda nám við skólann eða til að
börn þeirra geti stundað þar nám.
Annar hópur flytti úr bænum til að
sækja tónlistarskóla á höfuðborgar-
svæðinu ef ekki væri tónlistarskóli
hér. Fjöldi fólks nyti tónlistariðkunar
sem af starfsemi skólans sprytti og
gerði því lífið bærilegra. Listasumar-
ið, sem væru samtvinnuð starfsemi
Tónlistarskólans, Myndlistarskólans
og annarra menningarstofnana í
bænum, væri liður í því að gera
Akureyrarbæ eftirsóknarverðari fyr-
ir ferðamenn og byggilegri fyrir
heimamenn.
„Varðandi milljónina á viku sem
T.ónlistarskólinn kostar er rétt að
minnast þess að þessi tala samsvar-
ar heildarlaunagreiðslum til tæplega
40 starfsmanna sem hafa framfæri
sitt af rekstri skólans, greiða gjöld
sln til bæjaríns og skapa eftirspurn
eftir vöru og þjónustu. Annar kostn-
aður við skólann er greiddur af
skólagjöldum nemenda sem nema
um 12 milljónum króna á ári eða
um 230 þúsund krónum á viku.
Raunar væri ástæða til fyrir bæjar-
fulltrúa sem þykjast bera hag at-
vinnulausra og lágtekjufólks fyrir
bijósti að huga að því hvort ekki
væri rétt að auka framlag til Tónlist-
arskólans til þess að hségt sé að
lækka skólagjöldin svo að ýmsir
þeir sem nú beijast í bökkum ijár-
hagslega geti látið það eftir sér að
leyfa börnum sínum að njóta tónlist-
armenntunar," sagði Gunnar.
Kosningaloforð
Hann sagði ummæli Odds Hall-
dórssonar um Tónlistarskólann
dæma sig sjálf í hugum flestra.
„Engu að síður er það áhyggjuefni
að þessi maður er bæjarfulltrúi
flokks sem gaf þá yfirlýsingu fyrir
síðustu kosningar að hann vildi efla
Tónlistarskólann. Nú sýnist mér að
forysta flokksins eigi varla um ann-
að að ræða en biðjast afsökunar á
þessum ummælum hans - geri hann
það ekki sjálfur - og skýra um leið
hvað átt var við með kosningaloforð-
unum og hvernig hún ætlar að
standa við þau.“
Bærinn
breyttist
í alvöru-
kaupstaö
SAGA Akureyrar, II. bindi, eftir Jón
Hjaltason sagnfræðing, kom út í gær
og af því tilefni var opnuð útgáfusýn-
ing í Listasafninu á Akureyri þar sem
sýndar eru opnur úr bókinni, heilar
arkir og hvernig litmynd verður til
í prentsmiðju. Haraldur Ingi Haralds-
son, forstöðumaður safnsins, stjórnaði
uppsetningu sýningarinnar, sem verð-
ur opin almenningi fram til þriðju-
dagsins 8. nóvember frá kl. 14 til 18.
Fyrsta bindi Sögu Akureyrar kom
út árið 1990 og hafði hún titilinn í
landi Eyrarlands og Nausta
809-1862. Annað bindi sögunnar
nefnist Saga Akureyrar; Kaupstað-
urinn við Pollinn 1863-1905. Hún
skiptist í fjórga meginhluta, er 358
blaðsíður og í henni er að finna á
fjórða hundrað ljósmyndir, málverk,
teikningar og kort.
„Á þessum tíma er bærinn að
breytast í alvörukaupstað, sú breyting
verður á þessum tíma að selstöðu-
kaupmennimir dönsku týna tölunni
og bæjarbúar taka sjálfír að reka sín-
ar verslanir. Önnur breyting sem
verður á þessum tíma er að Akureyri
verður mikill útgerðarbær, þeir fara
að gera út á síldina og miðin eru úti
á Pollinum en í kjölfarið verða til
peningar sem opna mönnum margvís-
lega möguleika, m.a. spretta upp veit-
ingastaðir og skemmtanafíkn Akur-
eyringa fer vaxandi," sagði söguritar-
inn Jón Hjaltason við kynningu bókar-
innar í gær.
Fræðimannsstarf og gott
handbragð
Bernharð Haraldsson, sem sat í
ritnefnd ásamt Braga Guðmundssyni
og Guðmundi Gunnarssyni, sagði við
kynningu bókarinnar, að með út-
gáfusýningunni væri verið að leggja
áherslu á fræðimannsstarf sögurit-
ara sem vel hefði verið af hendi leyst
og eins gott handverk bókarinnar,
en vert væri að vekja athygli á af-
bragðsprentun. Bókin var unnið í
prentsmiðjunni Ásprent á Akureyri
og sá Margrét Káradóttir um um-
brotið en Félagsbókbandið Bókfell
tók að sérbókbandið.
r í/Yn œ fi'Siri a (<s e (íi // » S ^a u<s l<s / /irS' :
Veitingahúsið Naust
— ^ 5 4 .. i í) cf 4 '
slufíu,,
d 1994 krónur!
1 tilefni af 40 ára afmæli Naustsins bjóðum
við upp á sérstakan humarmatseðil
í nóvember á aðeins 1994 krónur!
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!