Morgunblaðið - 05.11.1994, Síða 16

Morgunblaðið - 05.11.1994, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA í REYKJANESKJÖRDÆMI NEYTENDUR . * ;----------------------------- I Forsendur tryggingafélaga eru misjafnar og erfítt er að átta sig á bestu kjörum en hlutfallstalan hækkar hjá þeim sem komnir eru með mínus- bónus. 17 ára ungling- ur sem veldur tjóni greiðir 60% álag á grunniðgjald ef hann veldur tjóni á fyrsta 1 ári. I Skandia Bónus-flokkar hjá Skandia eru 14 talsins, segir Þórður Þórðar- son, frkvstj. vátrygg- ingasviðs. Mesta álag, sem sá sem veldur mjög mörgum árekstr- um þarf að greiða, ) samsvarar því að grunniðgjald sé marg- * faldað með þremur. Við hvert tjón fellur ökumaður niður um einn flokk, en þeir sem hafa þrjár af eftirtöld- um tryggingum hjá félaginu missa ekki bónus við fyrsta tjón: ábyrgðartryggingu, kaskó-tryggingu, húseigenda- eða » heimilistryggingu. Sá sem hefur > 55-70% bónus missir 5% bónus við hvert tjón, en sá sem hefur 10-50% bónus missir 10% bónus við hvert tjón sem hann veldur. Unglingur, með 10% bónus fær 30% álag á grunniðgjald, valdi hann tjóni á fyrsta ári. Hafi einhveijum dottið í hug að auðvelt væri að finna hagstæðustu kjör í ábyrgðartryggingum bíla, . er hann líklega annarrar skoðunar núna. í bæklingi sem Talnakönnun | hf. gerði fyrir tækninefnd bifreiða- tryggingafélaganna, kemur fram að 1990 greiddu tryggingafélög rúma 2 miljarða króna vegna tjóna á ökutækjum og tæplega einn mil- jarð vegna slysatrygginga öku- manna og eiganda bíla. Samkvæmt sömu heimild eru 17 ára ökumenn valdir að lang- , flestum tjónum og er áberandi * mikill fjöldi 17-25 ára sem lendir | í umferðarslysum. Er það einmitt ástæða þess að sum tryggingafé- lög skipta iðgjöldum í verðflokka eftir aldri ökumanna. Það kom fram í samtölum við starfsfólk tryggingafélaga að ekki er óal- gengt að foreldrar kaupi ábyrgðar: tryggingu fyrir bíl bama sinna. í þeim tilvikum þurfa foreldrar einn- ig að vera skráðir eigendur, en | þetta gera þeir til að lækka ið- | gjöld, þar sem þeir fá oftast hærri ™ bpnus en unglingur með glóðvolgt bílpróf. Sé ætlunin að lækka trygg- ingakostnað á þennan hátt, þarf að kanna áður hvort tryggingafé- lagið fer fram á sjálfsábyrgð ef ökumaður undir 25 ára aldri veldur tjóni. Sum félög gera það. Misjafnlega langan tíma tekur að vinna upp bónusmissi Ökumaður missir sama bónus hvort sem hann veldur 50 þúsund króna tjóni eða tveggja milljóna króna tjóni. Brynja Tomer heyrði hljóðið í starfsmönnum nokkurra tryggingafé- laga og forvitnaðist um bónus-kerfi þeirra. ÞEGAR fólk kaupir ábyrgðartryggingu fyrir bíl í fyrsta sinn veita tryggingafélög 10% af- slátt af grunniðgjaldi. Með öðrum orðum fá nýir ökumenn 10% bón- us, alla vega hjá þeim fjórum tryggingafélögum sem haft var samband við, VÍS, Sjóvá-Almenn- um, Skandia og Tryggingamið- stöðinni. Hæsti bónus er 70% hjá þessum félögum, en iðgjald getur orðið æði hátt hjá þeim sem valda mörg- um tjónum. Þeir greiða sérstakt álag, eða hafa mínus-bónus, eins og oft er sagt og er hann mis mikill eftir félögum. Anna Robert- son hjá Sjóvá-Almennum segir t.d. að þar séu engin takmörk á því hve há iðgjöld geta orðið og sama gildir hjá VÍS. Hjá Tryggingamið- stöðinni getur mínus-bónus mest orðið 90%, að sögn Einars Þorláks- sonar, sem þýðir að 90% álag er á grunniðgjald. Tryggingaverð hækkar ef tjóni er valdið Ef ökumaður veldur tjóni á öðr- um bfl, mannvirkjum, gangandi eða hjólandi vegfaranda, missir hann bónus og greiðir hærra ið- gjald fyrir vikið. Oftast þarf hann að aka í nokkur ár án þess að valda tjóni til að öðlast sess í sama bónusflokki aftur. Forsendur tryggingafélaga eru misjafnar og því er erfitt að koma auga á hagstæðustu kjör þegar til stendur að kaupa ábyrgðartrygg- ingu fyrir bfl. Ekki skiptir máli hvort ökumaður veldur miklu eða litlu tjóni, hann missir sama bónus hvort sem tjónið nemur 50 þúsund kr. eða tveimur milljónum. Mis- jafnt er svo eftir tryggingafélögum hve mikill bónus-missirinn er. Talsmenn tryggingafélaga sögðu allir að væri tjón lítið af völdum áreksturs gæti borgað sig fyrir ökumann að bera kostnað af því fremur en missa bónus. í sam- tölum við þá kom fram að starfs- fólk tæki að sér að reikna út fyrir viðskiptavini hvor kosturinn væri hagstæðari. VÍS Hjá Vátryggingafélagi íslands var rætt við Jón Þór Gunnarsson, deildarstjóra einstaklingstrygg- inga. Engin takmörk eru a álagi á grunniðgjald að hans sögn. Fyrir hvert ár sem ekið er tjónlaust, færist ökumaður upp um einn bónusflokk og eftir 9 tjónlaus ár í tryggingu er bónus hans orðinn 70%. Þeir sem hafa ekið tjónlaust í 15 ár eða lengur, falla um 2 flokka ef þeir valda tjóni. Það þýðir að sá sem hefur 70% bónus og veldur tjóni fær 60% bónus næsta ár, síð- an 65% og því næst 70%, svo fram- arlega sem hann er tjónlaus þenn- an tíma. Þeir sem hafa ekið í 6-14 ár án þessa að valda tjóni, falla um þriá flokka við fyrsta tjón, t.d. úr 70% bónus í 55% og þeir sem hafa ekið í allt að fimm ár tjón- laust falla um fjóra bónus-flokka við fyrsta tjón. Nýgræðingur, með 10% bónus fær á sig 60% alag lendi hann í tjóni á fyrsta ári sínu sem ökuþór. Sj óvá-Almennar Anna Robinson hjá söludeild Sjóvá-Almennra segir að þeir sem hafi lengi verið tryggðir hjá félag- inu falli ekki um jafn marga bónus- flokka við fyrsta tjón og þeir, sem tryggðir hafa verið skemur. „Eftir 8 ára tjónlausan akstur fær öku- maður hámarks-bónus. Hafi hann verið tryggður hjá okkur í 4-6 ár fellur hann í 50% bónus við fyrsta tjón. Eftir að hafa verið tryggður hér í 7-9 ár fellur hann í 55% bón- us, eftir 10-12 ára tryggingu hér fellur hann í 60%. Eftir 13-15 ár fellur hann í 65% bónus. Okumaður sem hefur verið tryggður hér lengur en í 15 ár fellur ekki um bónus-flokk við fyrsta tjón, en valdi hann öðru tjóni á sama ári fellur hann í 40%.“ Sé tekið dæmi um óvanan ökumann, t.d. 17 ára ungling sem fær 10% bónus í upphafi, segir Anna að 40% álag bætist við grunniðgjald ef hann veldur tjóni á fyrsta ári. Tryggingamiðstöðin 90% álag, eða mínus-bónus, er hámark hjá Tryggingamiðstöðinni, að sögn Einars Þorlákssonar. Til að fá hámarks-bónus þarf að aka tjónlaust í 8 ár, en iðgjöld eru misdýr eftir aldri ökumanns. 17-25 ára greiða mun hærra iðgjald en sá sem orðinn er þrítugur. Öku- menn fá 10% bónus fyrir hvert ár sem þeir aka tjónlaust, en þegar hámarks-bónus er náð fellur maður niður í 50% bónus-flokk við fyrsta tjón og tekur tvö tjónlaus ár að vinna sig upp í 70% bónus. Þeir sem hafa 50% bónus eða minna, missa 40% bónus fyrir hvert tjón, Vara innkölluð vegna fúkka NATHAN & Olesen-umboðsversl- unin hefur þurft að innkalla 1.120 pakka af Cheerios Honey Nut vegna galla, sem lýsir sér, að sögn eins Cheerios-aðdáanda, í fúkkalykt um leið og pakkarnir eru opnaðir og megnu fúkkabragði. Að sögn Þorsteins Gunnarssonar, sölustjóra hjá Nathan & Olesen, uppgötvaðist gallinn fyrir rúmum tíu dögum þegar kvartanir fóru að berast og gallaða varan sem fannst aðeins á höfuðborgarsvæðinu hefur verið tekin af markaði. Hún var aðeins hluti af einni dagstimplun, 7. desember 1995. Gölluðu pakk- arnir ættu því allir að vera horfnir úr hillum verslana. í heildina þurfti að inn- kalla 80 kassa sem hver inniheldur fjórtán Che- erios-pakka. „Við ákváðum að hreinsa hillurnar í þeim búðum, sem vandamálið hafði gert vart við sig. Það reyndist vera bundið við Hagkaups- og Bónus- verslanir og sömuleiðis við Fjarðarkaup og Nó- atúnsbúðirnar.“ Þorsteinn segir að talsverður hluti af göll- uðu vörunni hafi verið Vandamálið ætti nú að vera úr sög- unni þar sem pakkarnir hafa verið innkallaðir. kominn inn á heimili fólks. Neytendum hafi verið bættur skaðinn með þremur til fjórum Cheerios-pökkum í staðinn og sælgæti. Að sögn sölustjórans er ekki enn vitað um or- sakir fúkkabragðsins. Málið sé nú í rannsókn hjá bandaríska fram- leiðandum General Mills og beinast athug- anir helst að fram- leiðslugalla, dreifingar- málum eða leka á gámi. MÁLVERKA- 1 UPPBOÐ GALLERÍ BORG HELDUR MÁLVERKAUPPBOÐ Á HÓTEL SÖGU SUNNUDAGINN 6. NÓVEMBER KL. 20.30. UPPBOÐSVERKIN SÝND í DAG OG Á MORGUN KL. 12-18. BORG } v/Austurvöll, sími 24211

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.