Morgunblaðið - 05.11.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.11.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 17 IMEYTENDUR Uppskriftin Grænmetisréttir frá öllum heimshornum „I>egar ég ferðaðist um í ná- grenni Marrakesh í Marokkó, sá ég margt fólk úr þorpunum lengst uppi í hæðunum koma á ösnum á markaðinn sem haldinn var viku- lega. Þar seldi það matvælin sem það framleiddi heima hjá sér. Áður en það lagði af stað í langa ferðina heim keypti það sér svo nauðsyn- lega matvöru sem það gat ekki aflað sjálft,“ segir Robert Budwig höfundur nýrrar matreiðslubókar sem Mál og menning gaf nýlega út og heitir Grænmetisréttir af gnægtaborði jarðar. Við að ferðast um, sjá til dæmis endalausa akra með kardýnþistl- um, blaðlauk og lauk vaknaði áhugi hans á því hvemig þeir sem rækta grænmetið nota það í hefð- bundinni matargerð. Hann leitaði uppi markaði í ýmsum löndum og fylgdist með grænmetisbændum, hvaða græn- meti þeir eru að selja, hvernig lífið gengur fyrir sig á hinum ýmsu mörkuðum og síðast en ekki síst hefur hann safnað því saman og prófað sjálfur hvemig grænmetið og kryddjurtimar em matreiddar í viðkomandi löndum, þ.e.a.s. á Ítalíu, í Frakklandi, Marokkó, Tælandi, á Indlandi, í Mexíkó og Guatemala og síðast en ekki síst í Kalifomíu. Við birtum hér eina uppskrift úr bókinni af sígildu guacamole sem hann fékk uppskrift af í Mex- íkó. Guacamole Guacamole eða lárperumauk er til í mörgum tilbrigðum. Uppskrift- in inniheldur belgpipar og kóríand- er. Nota má eins mikið eða lítið af belgpipar og hver vill. Guaca- mole er ljúffeng sósa með tortillu- flögum og best að borða hana sam- dægurs. Notið þroskaðar lárperur því að þær er auðveldara að stappa og þær em bragðbetri. Geymið steininn úr einni lárpem og setjið hann í maukið, þá dökknar það ekki. ______________Fyrir 6_____________ 2 stórar, þroskaóar lórperur (avókadó), skornar í tvennt og __________steinninn tekinn________ Vilítill rauðlaukur, saxaður mjög smótt 1 hvítlauksrif, marið 1 msk smótt saxað nýtt kóríandur 1 nýr grænn jalapeno-belgpipar (chilli), fræin tekin burt, saxaður ______________smótt______________ 2 þroskaðir tómatar, afhýddir, fræin tekin burt, lótið renna af þeim og saxaðir safi úr 1 limónu eða sítrónu _____________1 tsk salt___________ 'h tsk nýmalaður pipar Skafið innan úr lárperuhelming- unum í skál og stappið þar til það er nokkuð slétt, en þó á að vera eitthvað að bíta í. Setjið út í lauk, hvítlauk, kóríander, belgpipar, tómata, sítrussafa, salt og pipar. Blandið vel, setjið lárpemsteininn sem geymdur var út í, lokið skál- inni með plastþynnu og geymið maukið í kæli þar til á að bera það fram. Berið maukið fram í skálinni en gleymið ekki að taka burt stein- inn áður! Leiðrétting í FRÉTT á neytendasíðu sl. fimmtudag var sagt frá úrslitum í hönnunarsamkeppni IKEA. Snæ- dís Úlriksdóttir sem hlaut 2. verð- laun fyrir S-hillu var þar sögð nemi í innanhússarkitektúr. Hið rétta er að Snædís lauk mastersprófi i húsgagnahönnun frá Royal Col- lege í London í júlí 1993. Beðist er velvirðingar á þessu. Tökum þátt í prófkjörl sjálfstæöismanna í Reykjaneskjördæmi í dag. Veljum Kristján Pálsson í 3.- 4. sæti. Stubningsmenn. I I I I I I I I I I I PENTIUM dagar lýá N^erjVHEFJAST» dagi í dag hefst Pentium-vika í verslun Nýherja. Til sýnis og sölu verða ýmsar gerðir nýrra Pentium tölva fró Tulip computers og IBM. Stefna Nýherja er að vera í fararbroddi í vörum og þjónustu og er hið fjölbreytta framboð Pentium tölva hjá fyrirtækinu gott dæmi þess. Kaup á Pentium tölvu í dag er fjárfesting til framtíðar. Þess vegna þarf að skoða vandlega hvað á boðstólum er áður en ákvörðun er tekin. Ekki er nóg að tölvan hafi öflugan Pentium örgjörva ef annar búnaður hennarer ófullkominn eða hægvirkur. Þá nýtist ekki afl örgjörvans og afköstin í heild verða léleg og fjárfestingín slæm. Pentium tölva er talsverð fjárfesting. Þess vegna á að gera þær kröfur að hún sé búin öllu því nýjasta og fullkomnasta í tölvutækni. Gerðu samanburð, hvað býður Nýherji, hvað bjóða aðrir? Tulip Pentium 90 MHz Hraðvirk PCI Local Bus skjástýring PCI og ISA tengiraufar Enhanced IDE tengt PCI á móðurborði Hraðvirk SCSI-2 dlskstýring á PCI Local Bus (valkostur) Ethernet tengi á móðurborði (sumar gerðlr) - Nýtt, öflugt ECP hliðtengi (Parallel Port) - Orkusparnaðarkerfi (Energy Star) - "Plug-and-Play" tengimöguleikar - Búnaður fyrir DMI kerfisstjórnun - Öflug aðgangsvörn - Öflugur læsibúnaður Síðan þarf að líta á verðið og meta fjárfestinguna, hvað fæst fyrir peningana? Komdu og skoðaðu, hjá Nýherja eru Pentium sýningartölvur af öllum gerðum! ______ rfyWÐORWþ Tulip Pentium 60 MHz m/ofangreindum búnaði Tulip Pentium 90 MHz m/ofangreindum búnaði frá kr: 198.000 "p8.000 Við höfum breytt og bætt verslun okkar til muna og nú er líka opið alla laugardaga! Tulfip computers E RJ1 » < SKAFTAHLÍÐ 24 - SÍMI 69 77 C Gæðamerkið frá Hollamli SKAFTAHLlÐ 24 - SÍMI 69 77 00 Alltaf skrefi á undan MTHERJI / GÉPÉ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.