Morgunblaðið - 05.11.1994, Page 20
20 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
LANDVINNINGAR MUSLIMA
Bosníu-Serbar búa sig undir-aö lýsa yfir allsherjarstríði eftir aö hafa
misst landsvæöi í hendur múslimum og Króötum síöustu tvær vikur.
Eldsneytisskortur hefur háð her Bosníu-Serba eftir aö
Serbía/Svartfjallaland hætti að styöja þá
Stækkaö'
vBosanska
Banja Luka
50 km
Orasje svæðið
Posavina hliðið
IfU
Brcko
®
® Doboj
BOSNIA-
®
Tuzla
/
Srebrenica
HERZEGOVINA
W®
Bugojno ^ ®
Sarajevo s ® ZePa
j| Paie @
Gorazde
j j Á valdi
Bosniu-Serba
j Svæöi á valdi
i Sarajevo-stjómarinnar
ILandvinningar
Sarajevo-stjómarinnar
Bosanska Krupa
Nú umkringd múslimum
Grabez
Taka Grabez færði
múslimum vopn og gerði
ný áhlaup möguleg
til suðurs og austurs
REUTER
Fréttamenn á ófriðarsvæðum varaðir við
Verða oft skot-
spónn stríðsaðila
París. Reuter.
SAMTÖKIN Fréttamenn án
landamæra (RSF) segja að æ
meira beri á því að fréttamenn
á átakasvæðum verði beinlínis
skotspónn stríðandi aðiia. Hafa
þau gefið út bækling með leið-
beiningum fyrir þá sem hyggjast
afla frétta á slíkum svæðum en
40 fréttamenn hafa týnt lífi í
lýðveldum gömlu Júgóslavíu frá
1991.
78 fallnir
Alls hafa 78 fréttamenn fallið
í heiminum það sem af er árinu,
fleiri en nokkru sinni fyrr. Herve
Deguine, einn höfunda bækling-
ii)s, sagði í gær að 37 hefðu
látið iífið í Rúanda eða þriðjung-
ur allra fréttamanna í landinu.
Bæklingnum verður dreift
ókeypis af hálfu SÞ. Bent er á
að aldrei eigi að yfirgefa bíl sinn
við vegatálma og ekki slökkva
á mótornum, óskynsamlegt sé
að taka lausa stnáhluti upp af
götu eða reyna að opna með
miklu afli dyr í húsum þar sem
barist hafi verið; ef til vill séu
þar sprengjugildrur.
Lendi fólk í slagsmálum sé
best að „sleppa öllu sínu ofbeldi
lausu“ og reyna að vera eins
nálægt andstæðingnum og unnt
sé.
Bosníski flugræninginn í Noregi reyndist vera óvopnaður
Vara við hryðjuverk-
um vegua Bosníu
Ósló, London. Reuter.
BOSNÍU-múslimi, sem rændi
SAS-flugvél í innanlandsflugi í
Noregi á fimmtudag en gafst upp
átta tímum síðar, reyndist óvopn-
aður en hann hafði sagst vera með
handsprengju og sprengju. Hann
er nú í varðhaldi í Ósló og bíður
hans allt frá tveggja til 21 árs
fangelsi. Fréttaskýrendur í Bret-
landi hafa varað við því að í kjöl-
far þessa ráns kunni öfgamenn,
t.d. Serbar eða múslimar, að velja
svipaðar aðferðir til að ná sér niðri
á heimi sem þeir telji að hafi svik-
ið þá.
Bosníumaðurinn er 25 ára
Sarajevobúi, Haris Kec, sem kom
til Noregs fyrir rúmu ári og fékk
landvistarleyfi af mannúðarástæð-
um. Lögregla segir Kec samvinnu-
þýðan og að hann geri sér grein
fyrir því að hans bíði fangavist.
Kec sagði lögreglu að hann hefði
gefist upp vegna þess að hann teldi
sig hafa náð takmarki sínu, sem
var að vekja athygli á ástandinu í
heimalandinu. Þá hefði hann ekki
viljað að farþegarnir þjáðust.
Norskir fjölmiðlar sögðu frá því
í gær að Kec hefði verið í fjölmiðla-
námi í Sarajevo og að hann hefði
miklar áhyggjur af ástandinu í
borginni, þar sem fjölskylda hans
byggi enn.
Hertar öryggisráðstafanir
Samtök bosnískra flóttamanna
í Noregi fordæmdu flugránið í gær
og sögðust óttast að það kynni að
gera Bosníumönnum erfiðara fynr
um að sækja um landvist.
Flugmálayfirvöld ræddu í gær
öryggismál á flugvöllum en þess
hefur verið krafist'að öryggið verði
hert. Slíkt hefði hins vegar ekki
komið í veg fyrir þetta flugrán,
þar sem miði Kecs var gildur, hann
hegðaði sér í engu óeðlilega og
hann var óvopnaður.
Breskir fréttaskýrendur vöruðu
í gær við því að flugránið væri
merki um það að átökin í Bosníu
væru að fæða af sér nýja ógn,
hryðjuverk. Að Sérbar og múslim-
ar kynnu að vilja hefna sín á um-
heiminum og að það valdi því flug-
ránum og sprengjuhótunum fjölgi
að nýju, rétt eins og á áttunda og
níunda áratugnum.
Reut«r
NORSKA lögreglan færir Haris Kec, Bosníumanninn sem rændi SAS-flugvél i Noregi,
frá Gardemoen-flugvelli í fangelsi á fimmtudagskvöld.
Prófkjör Sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi 5. nóv.
íbúar í Reykjaneskjör-
dæmi. Við hvetjum
ykkur til að mæta í
prófkjör Sjálfstæðis-
manna í dag.
Stuðningsmerm
Sigurrósar Þorgrímsdóttur
Játar að hafa
myrt syni sína
Union. Reuter.
UNG bandarísk móðir, sem hélt
því fram í hálfa aðra viku að
sonum sínum hefði verið rænt,
var handtekin á fimmtudag, sök-
uð um að hafa myrt þá. Lík barn-
anna fundust eftir umfangs-
mikla leit um Suður-Karólínuríki
sama dag.
Konan, Susan Smith, er 23 ára
ára og er nýlega skilin við eigin-
mann sinn. Hún fullyrti fyrir 10
dögum að maður hefði ruðst inn
í bíl hennar vopnaður byssu, rek-
ið hana út og ekið burt með syni
hennar í aftursætinu, eins og
þriggja ára. Kom hún margoft
fram í fjölmiölum og grátbændi
ræningjann um að skila börnun-
um.
Féll á lygamælisprófi
Foreldrar drengjanna geng-
ust undir lygamælispróf og féll
konan í tvígang. Þá bárust engar
vísbendingar sem studdu frá-
sögn hennar og játaði hún á
fimmtudag að hafa myrt börnin.
Fundust lík þeirra í bílnum, sem
hafði verið ekið út í vatn nálægt
heimabæ fjölskyldunnar.
Ekkert hefur verið gefið upp
um hugsanlegar ástæður morðs-
ins en CAWsjónvarpsstöðin hef-
Keuter
SUSAN Smith, hylur andlit
sitt er hún er flutt í fangelsi.
ur sagt frá því að lögreglan hafi
undir höndum bréf frá unnusta
hennar, þar sem hann segist vilja
vera með hcnni, en vi^ji hins
vegar „enga krakka".