Morgunblaðið - 05.11.1994, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 25
nesi og óvíst sé hvenær þeir fái
úrlausn mála sinna, og að við lok-
un Kópavogshælis stækki hópur-
inn þar svo um munar. Þá er einn-
ig ljóst að fjárframlög ríkisins til
vangefinna er tilheyra Svæðis-
skrifstofu Reykjaness eru af
skornum skammti, en við breyt-
inguna munu vistmenn hælisins
væntanlega tilheyra henni. Vand-
anum er þar með sópað frá Heil-
brigðis- til Félagsmálaráðuneytis.
Fyrst ástandið í málum vangef-
inna er svona alvarlegt á Reykja-
nesi liggur beint við að spyija
hvernig það sé annars staðar á
landinu? Og hvers vegna er ekki
Stór- Reykjavíkursvæðið samein-
að í eitt umdæmi vangefinna til
þess að tryggja réttlæti og jafn-
vægi í fjárveitingum til þessa
málaflokks og einfalda um leið
rekstur og eftirlit?
Það er ekþi hægt að segja að
vangefið fólk láti bera mikið á sér
í íslensku samfélagi: Þetta er ekki
fólkið sem rís upp og mótmælir
þegar fjármunum rikisins er veitt
í eitthvað „mikilvægara" en þeirra
málaflokk. Þetta er ekki fólkið sem
kveinar yfir erfiðum lífskjörum og
vonlausri framtíð. Þetta er fólkið
sem treystir mér og þér; fólkið sem
leggur skilyrðislaust líf sitt í ann-
arra hendur: Því má aldrei gleyma
að „til eru fræ“ um allt Island,
og að þau eru góðir og vænir ís-
lendingar, en varnarlaus sé þeim
ekki veitt skjól í tilverunni. Þung-
bær eru þau örlög „að falla í jörð,
en verða aldrei blóm“. Við hin, sem
ekki „fengum þennan dóm“, skul-
um standa vörð um velferð vangef-
inna og sjá til þess að stjórnmála-
menn nútíðarinnar á Reykjanesi
og í Reykjavík geri strax ráðstaf-
anir um hvað taki við þegar Kópa-
vogshæli verður lagt niður í sinni
núverandi mynd.
Höfundur er arkitekt og bróðir
vangefinnar stúlku.
EDESAmS PVOTTAVÉLAR
Á FRÁBÆRU VERÐI.
- 850 snúningar á mín.
- Tekur 5 kg. af þvottl.
W 1 Aðeins
i 47.750 kr.
Staðgreitt.
a: m bs
RflFTáÍUERZLUIÍ iMOSIf
Skútuvogi 1,104 Reykjavík,
Sími: 688660 - FAX 680776.
GÆMHÍSARÁGÓfXi™
ip\\ --... .
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 674844
T /
*Með nýjum lögum um
bruriatryggingar húseigna
öðlast húseigendur rétt tii
þess að ákveða hvar þeir
brunatryggja húseignir sínar
frá og með 1. janúar 1995.
... hvar þú kaupir þér brunatryggingu húseigna*
Við hjá Tryggingamiðstöðinni önnumst brunatryggingar
þínar ásamt öllum öðrum tryggingum. Nánari upplýs-
ingar færðu hjá starfsfólki Tryggingamiðstöðvarinnar og
umboðsmönnum um allt land. Notaðu tækifærið og veldu
hvar þú tryggir húseign þína. Skilafrestur uppsagna er til
30. nóvember næstkomandi.
TRYGGINGA
MIÐSTÖÐIN HF.
- þegar mest á reynir!
Aðalstræti 6-8,101 Reykjavík, sími 26466.
•íí*
Högum akstri eftir aðstæðum.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík