Morgunblaðið - 05.11.1994, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 41
Jóhann Hjartarson
Islandsmeistari
SKÁK
Vcstmannaeyjum
24.-29. október
1994
AUKAKEPPNIN
UM ÍSLANDS-
MEISTARATITILINN
SPENNANDI aukakeppni um
íslandsmeistaratitilinn lauk í Vest-
mannaeyjum á laugardaginn með
glæsilegum sigri Jóhanns Hjartar-
sonar. Hann hlaut þrjá vinninga
úr fjórum skákum, en keppinautar
hans, þeir Hannes Hlífar Stefáns-
son og Helgi Ólafsson, hlutu einn
og hálfan vinning hvor. Jóhann
var lasinn þegar hann kom til
Eyja og varð að fresta fyrstu skák-
inni. Hann gerði síðan jafntefli í
tveimur fyrstu umferðunum en
eftir að hann náði sér af veikindun-
um héldu honum engin bönd. Þetta
er í þriðja sinn sem Jóhann verður
íslandsmeistari, síðast vann hann
titilinn árið 1984, þannig að hon-
um hefur örugglega fundist tími
til kominn.
Hannes Hlífar tók forystuna í
upphafi móts með sigri á Helga
en í seinni hlutanum var hann
heillum horfinn, byijanatafl-
mennska var afar slök. Hann tap-
aði fyrst baráttuskák gegn Jó-
hanni og síðan daginn eftir fyrir
Helga í aðeins 23 leikjum. Við það
gjörbreyttist staðan og skák þeirra
Helga og Jóhanns í síðustu umferð
varð hrein úrslitaskák þar sem
Jóhanni nægði jafntefli. Helgi varð
að leggja allt í sölurnar til að ná
sigri og lagði snemma út í djarfar
sóknaraðgerðir sem enduðu með
því að hann varð að láta drottning-
una af hendi. Jóhann tefldi af
miklu öryggi, gaf engan höggstað
á sér og vann skákina.
5. umferð:
Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson
Svart: Helgi Ólafsson
Sikileyjarvöm
I. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4
— cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3
— a6, 6. Be3 - e6, 7. f3 - b5,
8. g4 - h6, 9. Dd2 - Bb7
Helgi tefldi mun frumlegar
gegn Hannesi á Kópavogsmótinu
í vor: 9. — Rbd7, 10. 0-0-0 — b4,
II. Rce2 - d5, 12. Rf4 - dxe4
og þá fómaði Hannes manni með
13. Rdxe6. Það stóðst ekki, en
honum tókst þó að hanga á jafn-
teflí eftir mistök Helga.
10. 0-0-0 - Rbd7, 11. h4 - b4,
12. Rce2 — d5, 13. Bh3 — dxe4,
14. g5 — hxg5, 15. hxg5 — exf3,
16. Rg3?!
Þetta virðist lakara en 16. Rf4
— Re4, 17. Del — f2! með tví-
sýnni stöðu í frægri skák Anands
og Beljavskís, í Groningen í des-
ember sl.
16. — Re4 17. Rxe4 — Bxe4 18.
Bf4
Þetta er fullrólegur leikur eftir
að hafa fórnað tveimur peðum, en
árás leysir ekki vandann: 18. Bxe6
- Hxhl, 19. Bxd7+ - Dxd7, 20.
Hxhl eða, 18. Rxe6!? — fxe6, 19.
Bxe6 — og nú bjargar svartur sér
með laglegum leik, 19. — Rc5!
18. - Rc5, 19. De3 - Db6
20. g6
Reynir að sprengja sér leið að
svarta kóngnum í örvæntingu
enda stoðar ekki að leika 20. Rxf3
— b3!, 21. axb3 — Rxb3+ 22.
Dxb3 — Dxb3, 23. cxb3 — Bxf3
og svartur vinnur.
20. - f5!, 21. Rxf5 - exf5, 22.
Bxf5 - Hxhl, 23. Hxhl - Rd3+
og Hannes gafst upp.
6. umferð:
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Jóhann Hjartarson
Drottningarindversk vörn
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3
- b6, 4. g3 - Ba6, 5. b3 - Bb7,
6. Bg2 - Bb4+, 7.
Bd2 - c5, 8. 0-0 -
0-0, 9. Bc3 - Ra6,
10. Bb2 - cxd4, 11.
Dxd4 - Be7, 12. Rc3
- Rc5, 13. Hfdl -
d6, 14. Hacl — a6,
15. De3 - Dc7
Upp er komin dæ-
migerð „broddgaltar-
staða“ með fjögur
svört peð á 6. reitaröð-
inni. Þetta er traust
uppbygging og leiðir
oft til Iangvarandi
þæfingsskáka en
Helgi blæs hins vegar
strax til atlögu:
16. b4?! - Rcd7
17. Rd5 - exd5, 18. Dxe7 -
Hae8, 19. cxd5 - Db8, 20. Bxf6
- Hxe7, 21. Bxe7 - He8, 22.
Bg5 - h6, 23. Bf4
Hvítur hefur fengið hrók biskup
og peð fyrir drottninguna og hótar
nú óþyrmilega að leika Rd4 og
Rc6. Jóhann á þó fullnægjandi
mótspil með því að sækja að hvíta
peðinu á d5.
23. - Rf6, 24. Rd4 - Rxd5, 25.
Bxd5 - Bxd5, 26. Rf5 - Da8,
27. Rxd6 - Hd8, 28. Hd2 - f6
Eftir 28. — g5 á hvítur svarið
29. Rf5! - gxf4, 30. Hcdl - Kh7
31. e4 og vinnur manninn til baka.
Nú gæti hvítur leikið
29. g4! og geymt bisk-
up sinn á g3, en reyn-
ir í staðinn að sækja.
I tímahrakinu missir
hann svo tökin á stöð-
unni.
29. Hdc2? - Be6, 30.
Hc6 - b5, 31. a3 -
Bd7!, 32. Hb6 — Dd5,
33. e4
Eftir 33. Hxa6 —
g5, 34. e4 - Dd3, 35.
Be3 — Bh3! á hvítur
einnig unna stöðu.
33. - Dd3, 34. Rf5 -
Dxe4, 35. Re3 — Bh3
Hvíta staðan er nú
greinilega töpuð en
Helgi berst til þrautar.
36. Hbc6 - Hd3, 37. H6c2 -
Hxa3, 38. Hd2 - Kh7, 39. Hcdl
- h5, 40. Bd6 - Df3, 41. Bc5 -
h4, 42. gxh4 — Hxe3!, 43. fxe3
Dg4+ 44. Khl — Bg2+ 45. Hxg2
- Dxdl+ 46. Hgl - Df3+ 47.
Hg2 — a5, 48. Kgl — axb4, 49.
Bd4 - b3, 50. Hb2 - Kh6, 51.
Hf2 - Dg4+ 52. Kfl - Dxh4,
53. Ke2 - De4, 54. Kfl - f5,
55. Hb2 - Dhl+ 56. Kf2 -
Dxh2+ 57. Kf3 - Dhl+ 58. Kg3
- De4, 59. Hh2+ - Kg6, 60.
Hh4 - Dbl, 61. Hh2 - Kf7, 62.
Hb2 - Ddl, 63. Kf4 - Ke6, 64.
Hg2 — Dfl+ 65. Kg3 — g5 og
hvítur gafst upp. Það hefði einnig
mátt ljúka skákinni með 65. — f4+.
Kvennameistaramótið
Staðan eftir fimm umferðir á
íslandsmóti kvenna er þessi:
1. Aslaug Kristinsdóttir 5 v. af 5
2.-3. Anna Björg Þorgrímsdóttir 4 v.
2.-3. Harpa Ingólfsdóttir 4 v.
4.-5. Svava Bjamey Sigbertsdóttir 3 v.
4.-5. Ingibjörg Edda Birgisdóttir 3 v.
o.s.frv.
Margeir Pétursson
Jóhann Hjartarson
íslandsmeistari.
UMHVERFISSTOFNUN EVRÓPU
(Kaupmannahöfn)
Viö stofnunina eru lausar til umsóknar nokkrar (karlmaöur/kona)
stoour
og einnig er ætlunin aö gera samninga viö nokkra ráðgjafa.
þeim sem áhuga hafa á þessum störfum er bent á Stjórnartíöindi Evrópusambandsins
nr. C 303A dags. 29. október 1994 og EES Viöbætir nr. 41 dags. 29. október 1994 sem
fást í Bókabúö Lárusar Blöndal.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 1994.
Dagsetningin miöast viö dagstimplun póststöövar.
Markmiö Umhverfísstofnunar Evrópu er aö sjá Evrópusambandinu og aðildarríkjum
þess (Finnland, Austurríki, 'lsland, Noregur og Svíþjóö eru einnig aðilar aö
umhverfisstofnuninni) fyrir óhlutdrægum, áreiöanlegum og sambærilegum ★ * ★
upplýsingum þannig aö hægt sé aö beita nauösynlegum ráöstöfunum til * *
verndar umhverfínu, meta framkvæmd þeirra og tryggja aö almenningur *
veröi uppiýstur um ástand umhverfisins. (SE nr L 120/2 dags 11.05.90). * **
Kvenfélagið Hringurinn
heldur jólabasar í Fóstbræðraheimilinu,
Langholtsvegi 109—111,
sunnudaginn 6. nóvember nk. kl. 14.00.
Allur ágóði rennur til Barnaspítalasjóðs Hringsins.
Þorpsverð, engu líkt!
LOGBERG
Þorpsverð
BARNAÚLPUR 4 litir,
st. 116-164
HR. RÚLLUKRAGABOLIR
10 litir, st. M-XXL
VINNUSKYRTUR
6 litir, st. 39-46
HR. SPARISKYRTUR
10 litir, st. 39-46
kr. 2.500
Kr. 850
kr. 095
kr. 995
LÖGBERG
H elgartilboð
20%
Herra- og
dömuúlpur
Kllpptu
spai
u1ofl
ÞORPIP
Borgarkringliinni
Lögberg
Ódýrast í bænum
Rakavörn fjrír
leður og rússkinn
150 K»
Klipptu iiiiftaun út og sparaftu
GEIRSBÚÐ
595
ULLARSOKKAR 3 í PK. kr.
st. 39-46
MOONBOOTS kr. 1.750
st. 23-35
HR. SOKKAR 3 í PK. kr. 395
SKÍÐAHANSKAR kr. 995
UNGB. NÁTTGALLAR kr. 400
SKÍÐALÚFFUR kr. 850
i Sprenghlægilegt verð! i
I Krumpus'okkar st. 25-39
KR. 50
-8*S
Ath. Opið á sunnudag kl. 13.00 til 17.00 í Borgarkringlunni.