Morgunblaðið - 05.11.1994, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 43
FRÉTTIR
Basar haldinn á Grand
HALDINN verður basar laugar-
daginn 5. nóv.kl. 13-17, á munum
heimilisfólksins á Grund í fönd-
ursalnum á jarðhæð Litlu Grund-
ar, sem er á baklóð Elliheimilisins
Grundar á Hringbraut 50.
Margvíslegir munir verða til sölu
á basárnum, auk þess sem heitt
verður á könnunni fyrir gesti og
gangandi.
Viðhorf til baraa
og gildi fjölskyldunnar
í TILEFNI af ári fjölskyldunnar á
vegum Sameinuðu þjóðanna gangast
Félag íslenskra barna- og unglinga-
geðlækna og Félag íslenskra barna-
lækna fyrir ráðstefnu í Menningar-
miðstöð Gerðubergs, Gerðubergi
3-5, laugardaginn 12. nóvember kl.
9 árdegis til 17 síðdegis.
Ráðstefnustjórar verða Stefán
Hreiðarsson, forstöðumaður og for-
maður Félags ísl. barnalækna, og
Helga Hannesdóttir, formaður Fé-
lags ísl. barna- og unglingalækna.
Fjöldi fyrirlesara mun halda erindi
m.a. um viðhorf til barna og ungl-
inga hér á landi; áhrif efnahags á
fjölskyldulíf og félagslega velferð
einstaklinga; hvernig má styrkja fjöl-
skyldur í nútíð og framtíð; áhrif
skilnaðar á börn og unglinga og hvað
hefur áhrif á sálfélagslegan þroska
barna og unglinga frá sjónarhóli fjöl-
skyldunnar.
í umræðuhópnum verður fjallað
um börn og ofbeldi, áfengi og fjöl-
skyldulíf, fjölskylduofbeldi, kreppu-
ástand, fjölskyldumeðferð, kennslu
og menningu fyrir fjölskyldur og
umhverfi barna með tilliti til slysa-
varna.
Ráðstefna þessi er sérstaklega
ætluð starfsfólki á sjúkra- og heilsu-
gæslustofnunum. Þátttöku þarf að
tilkynna á Barna- og unglingageð-
deild Landspítalans.
Fríkirkju-
basar
■ Á ÚTVARSSTÖÐINNIFM 957
hefur Rúnar Sigurbjartarson verið
ráðinn markaðs- og sölustjóri. Rúnar
starfaði áður hjá íslenska útvarpsfé-
laginu sem aðstoðarsölustjóri. Einn-
ig hefur Gunnlaugur Helgason
verið ráðinn til starfa við stöðina og
mun hann stýra morgunþættinum
alla virka daga, segir í fréttatilkynn-
ingu frá FM 957. Mannaráðningar
þessar komu í kjölfar breytinga á
rekstri fyrirtækisins en fyrir
skemmstu tóku nýir eigendur við
rekstrinum og er meirihlutinn í eigu
Sambíóanna.
■ ENSKI miðillinn Joan Mount-
gomery starfar á vegum Sálar-
rannsóknarfélagsins í Hafnar-
firði næstu viku 7.-12. nóvember.
Fáeinir einkatímar eru enn til ráð-
stöfunar og þeir sem hafa áhuga
eru beðnir um að hafa samband við
formann félgsins, Símon Jón Jó-
hannsson. Fimmtudaginn 10. nóv-
ember heldur miðillinn almennan
skyggnilýsingarfund í Gúttó kl.
20.30. Aðgöngumiðar verða seldir
í Bókabúð Olivers Steins.
Merki blindra
STJÓRN Blindrafélagsins hefur
fyrir sitt leyti samþykkt að merk-
ið, hvítur maður með staf á blá-
um gninni verði tákn blindra og
sjónskertra á Islandi. Merkið
hefur verið samþykkt af World
blind union sem alþjóðlegt merki
og hefur nú verið samþykkt í
fjölmörgum löndum, m.a. öllum
Norðurlöndunum.
KVENFÉLAG Fríkirkjunnar í
Reykjavík heldur basar í safnaðar-
heimili kirkjunnar, Laufásvegi 13,
í dag kl. 14.
A basarnum verður m.a. jóla-
varningur, hannyrðir, fatnaður og
heimabakaðar kökur. Einnig verður
efnt til happdrættis, þar sem vining-
ar eru jafnmargir útgefnum miðum.
Kvenfélag Fríkirkjunnar er elsta
starfandi kirkjukvenfélag landsins
og eitt af elstu kvenfélögum hér á
landi, stofnað snemma árs 1906.
■ FFA, Fræðsla fyrir fatlaða og
aðstandendur, sem Landssamtök-
in Þroskahjálp, Sjálfsbjörg lands-
samband fatlaðra, Styrktarfélag
Iamaðra og fatlaðra og Styrktar-
félag vangefinna standa að halda
fræðslu og umræðukvöld þriðjudag-
inn 22. nóvember nk. kl. 20-23 í
félagsheimili Sjálfsbjargar, Hátúni
12 (vesturendi), Reykjavík. Fræðslu-
og umræðukvöld eru ætluð fullorðn-
um systkinum fatlaðra (18 ára ald-
urstakmark), mökum þeirra og öðr-
um sem standa í svipuðum sporum
gagnvart fötluðum einstaklingum.
■ DR. KERSTIN Hagg sem er
. sálfræðingur, kennari og félags-
fræðingur, flytur þriðjudaginn 8.
nóvember opinberan fyrirlestur í
boði Rannsóknarstofu í kvenna-
fræðum við Háskóla íslands. Fyr-
irles'turinn verður fluttur á sænsku
og nefnist: „Om kön och vardag i
förándring - en ortsstudie i ett köns-
teoretiskt perspektiv". Kerstin Hagg
er með doktorspróf í félagsfræði frá
háskólanum í Umeá, Svíþjóð. Dokt-
orsritgerð hennar fjallar um breyt-
I ingar á bæjarsamfélaginu í Kiruna
i í Svíþjóð 1900-1990 í ljósi kenninga
( um kynferði. Dr. Hagg er lektor við
( Umeáháskóla. Hún hefur kennt við
kvennafræðastofu háskólans í mörg
ár og er einnig aðstoðarforstöðu-
maður stofnunar í uppeldisfræði og
ber ábyrgð á rannsókna- og þróunar-
starfi þennar. Fyrirlesturinn verður
í stofu 101 í Lögberg og hefst kl.
17.15.
■ Flugbjörgunarsveitin í Reykja-
( vík verður með fjallabjörgunarsýn-
ingu á Kjörgarðshúsinu við Lauga-
* veg í dag, laugardaginn 5. nóvem-
I ber, kl. 13-16. Gestum verður boðið
að leika sjúklinga sem verða látnir
síga niður húsið ásamt björgunar-
mönnum. Fallhlífahópur sveitarinn-
ar verður með fallhlífastökksýningu
í Hljómskálagarði kl. 13.30. Hóp-
urinn getur stokkið með skíði, tjöld,
bakpoka, sjúkrabúnað og allan ann-
an búnað sem þörf er á hverju sinni,
j segir í fréttatilkynningu. Fjarskipta-
, bíll og snjóbíll sveitarinnar verða til
' sýnis á Laugaveginum þennan dag.
< Samhliða þessum sýningum verða
félagar sveitarinnar með tann-
burstasölu.
■ HAUSTHRAÐSKÁKMÓT
Taflfélag Reykjavíkur fer fram
sunnudaginn 6. nóvember í félags-
heimilinu í Faxafeni 12. Mótið hefst
kl. 14. Tefldar verða 9 umferðir eft-
ir monrad-kerfi. Umhugsunartími er
» 5 mínútur á mann. Hausthraðskák-
( mótið er jafnan eitt sterkasta og fjöl-
i mennasta hraðskákmótið sem haldið
er hér á landi. Öllum er heimil þátt-
taka.
í Dýraríkinu á morgun, sunnudaginn 6. nóvember,
frá klukkan 10.00-17.00
DÝRARÍKIÐ
...fyrir dýravini!
Þessir hundar verða á sýningunni:
Sýndar verða sjaldgæfar hundategundir sem sumar
hafa aldrei áður verið sýndar á íslandi.
Saga þeirra sögð og sérkennum lýst.
Shih Tzu-MiniaturePincher- WestHighland White Terrier-
Briard - Weimaraner - Pekingese - Papillon - Dalmatian -
^ Nýfundnalands-hundur -Maltese - Yorkshire Terrier-Boxer
Sýningartímar: kl. 11.00, 12.00, 13.00, 14.00, 15.00 og 16.00
Dýralæknar verða á staðnum
Hundaþjálfari veitir ráðgjöf um þjálfun
Balance, Wafcolog Tuffy’s
20% afsláttur
af öllum hunda-
vörum á meðan á
sýningunni stendur
DÝRARÍKIÐ
Við Grensásveg - sími 68 66 68