Morgunblaðið - 13.11.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.11.1994, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ÁGÚST Felix I bakaríinu Viðurkenningar daglegt brauð íslenski bakarínn Ágúst Felix Gunnarsson í Boston hefur komið eins og eldibrandur inn í lágreista brauðmenningu Bandaríkjanna og gerir stormandi lukku með nýbökuðum heilsubrauðum sínum. Karl Blöndal brá sér í bakaríið og bragðaði á kræsingunum. Boston. Morgunbladið. AÐ ER ekki oft sem eig- endur nýs fyrirtækis geta hugpað með hlýhug til framleiðslu helsta keppinautarins. Ef um er að ræða hið svokallaða Undrabrauð (Wonderbread, skrá- sett vörumerki), sem er mest selda brauð í Bandaríkjunum, kann málið að skýrast. Undrabrauð er þeim eiginleika gætt að það skemmist ekki, þótt það gleymist uppi í skáp svo mánuðum skiptir og það bragð- ast eins og svampur. Undrabrauð er dæmigert fyrir það brauðmeti sem er á boðstólum í Bandaríkjun- um. Hvort sem bandarísk brauð eru ' .bökuð úr hveiti, heilhveiti, súrdeigi eða höfrum, eru þau mjúk og lin og aldur þeirra óræður. Mitt í þessari lágreistu amerísku brauðmenningu sáu Ágúst Felix Gunnarsson, Matt Carberry og Tim Turner sér leik á borði. Fyrir tæpu ári opnuðu þeir bakarí og kaffihús í Cambridge, sem er næsti bær við Boston. Síðan hafa þeir fengið við- urkénningu fyrir að vera meðal fjögurra bestu nýju fyrirtækjanna í Cambridge, besta bakaríið í Cam- bridge og besta bakaríið í Boston. Klukkan er ekki orðin sjö á nóv- embermorgni, en samt er viðskipta- vinina farið að drífa að. Á glerhurð stendur að það sé opið frá klukkan 6.45 til 9.00, en oft eru dyrnar opnaðar klukkan sex. Þegar inn er komið má greina lágan söng Bjarkar Guðmundsdóttur, ijúkandi kaffiilm í bland við lykt af nýbök- uðu brauði ber að vitum og undir glerinu í kökuborðinu liggja snúðar og vínarbrauð. Þar fyrir aftan eru hillur hlaðnar brauði og virðast tegundimar skipta tugum. „Þetta hefur verið ævintýri lík- ast,“ sagði Ágúst í samtali við Morgunblaðið. „Við bjuggumst aldrei við því að verða valdir með besta bakaríið í Boston, en það er gaman að fá þessar viðurkenningar eftir alla þá vinnu, sem liggur að baki.“ Viðurkenning frá viðskiptaráði Viðurkenningarnar hafa komið úr þremur áttum. Mánaðarblaðið Improper Bostonian valdi Carberr- y’s besta bakaríið í Boston, bæjar- blaðið Cambridge Chronicle valdi það besta bakarí í Cambridge og Viðskiptaráð Cambridge, sem er það næststærsta í Massachusetts- ríki á eftir Viðskiptaráði Boston, útnefndi Carberry’s meðal fjögurra bestu nýju fyrirtækjanna í Cam- bridge. „Þetta kom mér algerlega í opna skjöldu," sagði Tim Turner, sem sér um fjármál bakarísins, um viðurkenningu viðskiptaráðsins. „Við vorum í hópi með fyrirtækjum, sem höfðu starfað lengur, eða allt að tvö ár.“ í lok október var besta nýja bak- aríið valið í hófí, sem viðskiptaráð- ið hélt, og Ágúst, sem allajafna hnoðar deig og bakar frá miðnætti framundir hádegi, fékk eitt af fáum tækifærum til að fara í sparifötin. Hann líkti hófínu, þar sem besta fyrirtækið, besti fjölmiðillinn og fleiri fyrirtæki voru heiðruð, við vasaútgáfu af afhendingu Óskars- verðlaunanna. Matsölustaðurinn House of Blu- es reyndist hlutskarpastur í flokki nýrra fyrirtækja. Að baki honum standa gamanleikarinn Dan Aykro- yd og sömu aðilar og reka Hard Rock Café. Hin fyrirtækin tvö voru California Dinner Kitchen, sem er hluti af veitingastaðakeðju, sem nær um öll Bandaríkin, og kráin og brugghúsið John Harvard, sem rekið er af tveimur viðskiptafræð- ingum úr Harvard Business School. Fyriitæki urðu að uppfylla ákveðin skilyrði til að vera valin og sagði Tim að mikilvægt hefði verið að þremenningarnir sköpuðu atvinnu í Cambridge og legðu sitt af mörkum til samfélagsins meðal annars með því að gefa heimilis- lausum og sjúklingum brauðið, sem gengur af í lok hvers dags. Carberry’s er miðja vegu á milli tveggja þekktustu háskólanna á Boston-svæðinu, Harvard og Massachusetts Institute of Techno- logy, og myndi ekki teljast í fín- asta hverfí borgarinnar. Þar er hins vegar mikið af skrifstofum og einn- ig eru stúdentarnir góðir viðskipta- vinir. „Við völdum Boston af því að hún er evrópskasta borgin í Banda- ríkjunum," sagði Ágúst og bætti við að Matt hefði búið hér fyrir fjórum árum. „Þetta er skemmtileg borg og mikið af ungu fólki. Stað- setningin réðist af því að fermetr- arnir voru dýrari annars staðar.“ Ágúst og Matt höfðu unnið sam- an í Washington við að reka bak- arí og opna búðir, sem versluðu með brauð, en fyrirtækið var í eigu annarra og þeir vildu verða eigin herrar. Þar við bættist Tim, sem er með próf í viðskiptafræði. „Stefnan var að virkja þá strauma, sem umfjöllun um heilsu- mál hefur komið af stað,“ sagði Ágúst. „Við fylgjum þeirri línu, notum mikið súrdeig og bökum heilsubrauð, tólfkornabrauð og fleira, eða 48 tegundir í allt. Hér notum við engin gerviefni og það laðar að viðskipti.“ KR-brauðið bíður í sumar bakaði Ágúst einnig heimsmeistarabrauð í tilefni af heimsmeistarakeppninni í knatt- „oCmöBo® 57W feáiifiSII uon. snacKY ol,orsl’WhSS»»baWnclh‘:' samp 'v.brh dramalioi^Y wttíingot áem.n „TlteWb'ÍMCY°UI tht k-vr t. tjiero 1 1 -warm., thev ie ^ in.0 V”;,bfpS d'sW tórols of ptance.Y"^ s_cso[sconcs 1 tnullins. elfh' c^otócs havc an andl0 ihej’re' less unusud suO“ ' y,>ve a svvcct tban rathct dtan hffltoIil0íTcorotnvtdaUustv. ana8S«>av,;“,,I dachakety ,S,00TroWn6 Whenvontv 'n8a uthe Wal tlto-. ianl BEST 0F CAMBR 3*mTiimrifrrTffwhffrTii^rRrírfB,r^ —^ "J FOOP TO ca best bagels Brueggers Kup*r* BEST ITALIAN BESTAUHANT La Groceria 2nd pIacb: Marino'* dni pl.c, C.pucino'., JlldMt,Ci,p„,„„ best cafe 1369 best coffi 1369 Hróður bakar- ísins berst víða og mikið um það fjallað í fjölmiðlum í Boston. Bake sSediomanUc -ápan anð the breads, ®e__ spyrnu, en hann er enn ekki farinn að baka KR-brauð, þótt hann eigi ætt til; faðir hans, Gunnar Felix- son, og föðurbræður, Bjarni og Hörður Felixsynir, léku með KR á gullaldarárum knattspyrnufélags- ins í Vesturbænum. „KR-brauðið verður ekki sett í ofninn fyrr en við verðum íslands- meistarar," sagði Ágúst og glotti. Ekki er allt jafn heilsusamlegt í bakaríinu; það eru heldur engin gerviefni í snúðunum, kókoskúlun- um og napóleonshöttunum, svo eitthvað sé talið upp af sætabrauð- inu. Hvort sem það er heilsuæðið eða sætabrauðsfíknin sem lokkar, hef- ur aðsókninni vart linnt frá því, bakaríið var opnað. Það er „brjál- að“ að gera í hádeginu, sagði Ág- úst og á morgnana um helgar er hvert sæti skipað. Sagði hann að daglega kæmu milli 800 og 1.000 manns í bakaríið. Fjallað hefur verið um Carberr- y’s í nánast öllum tímaritum og dagblöðum Boston og í hvert skipti sem bakaríið hefur komist í blöðin hefur aðsóknin tekið kipp. Stundum hefur þó skort nákvæmni í blaða- skrif. Skömmu eftir að bakaríið var ^pnað fylltist skyndilega allt af Irum sem heimtuðu írskt sóda- brauð. í ljós kom að skeikað hafði einum staf í blaðagrein. Blað í Cambridge hafði skrifað að bakar- inn væri frá írlandi og hugsuðu írskir útlagar sér gott til glóðarinn- ar að fá brauðmeti að heiman. Það má teljast athyglisvert að bakaríið hefur aldrei verið auglýst. Markaðssetningin hefur verið fólg- in í umfjöllun íjölmiðla og umtali viðskiptavina. Og að sjálfsögðu hafa einnig verið gerðir stutterma- bolir með Carberry’s-merkinu. Ekkert bandarískt fyrirtæki með sjálfsvirðingu getur án þeirra verið. Milli 40 og 50 manns vinna í Carberry’s og sagði Ágúst að sennilega væri um 30 full störf að ræða. Þeir hafa verið beðnir um að baka fyrir aðrar verslanir og kaffíhús, en bakaríið ræður ekki við meira og þeir hyggjast að minnsta kosti ekki færa út kvíarn- ar fyrr en eftir eitt eða tvö ár, þegar tekist hefur að saxa á stofn- kostnaðinn. Það hefur íjölgað í bakaríinu og brauðin virðast hverfa ofan í poka viðskiptavinanna jafnóðum og þau koma út úr ofnunum. Nokkrir sitja við borð með kaffibolla og „croiss- ant“ og lesa dagblöðin. „Dunandi brunandi brimaldan grá“ syngur nú Bubbi Morthens. — Ef til vill væri Piparkökulagið betur við hæfi. p » ft ft V m c < €

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.