Morgunblaðið - 22.11.1994, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.11.1994, Qupperneq 1
56 SIÐUR B 267. TBL. 82. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Sveitarstjórnar- kosningar á Ítalíu Hrun hjá Berl- usconi Róm. Reuter. FLOKKUR Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, beið mik- inn ósigur í sveitarstjórnarkosn- ingum sem fram fóru í landinu á sunnudag. Er talningu var að mestu lokið hafði fylgi flokksins hrunið úr 30% í 8,3%. Talsmaður flokksins, Áfram Ítalía, bar sig þó vel og sagði úrslitin ekki myndu hafa nein áhrif á stjórnina. í þeim borgarstjómarkosningum þar sem enginn frambjóðenda nær hreinum meirihluta verður að ganga aftur til kosninga, og verður það gert 4. desember. Þetta er í fýrsta sinn sem Berl- usconi tapar í kosningum en hann bauð í fyrsta sinn fram í þingkosn- ingunum í mars sl. og fékk þá yfir 30% atkvæða. Sagði talsmaður flokksins að hann hefði fengið að kenna á óánægju fólks með ijár- lagafrumvarpið. Samstarfsflokkar Berlusconis hlutu ekki eins slæma útreið, Þjóð- arbandalagið, flokkur sem kenndur hefur verið við nýfasisma, hlaut um 12,5% fylgi, og Norðursam- bandið hélt sínu á Norður-Ítalíu. Gianfranco Fini, leiðtogi Þjóðar- bandalagsins, sagði, að endur- skoða yrði stjórnarsamstarfíð í ljósi úrslitanna svo að stjórnarflokkarn- ir mættu skilja sjónarmið hver annars. Kristilegir og vinstri- menn í sókn Það voru hins vegar andstæð- ingar hægristjórnarinnar sem unnu kosningasigur. Lýðræðislegi vinstriflokkurinn (PDS) jók fylgi sitt í 14% og Þjóðarflokkurinn, sem stofnaður var á rústum kristilegra demókrata, hlaut um 12,7% fylgi. Sögðu talsmenn Þjóðarflokksins hann enn eiga erindi við kjósend- ur, en kristilegir demókratar voru um áratuga skeið stærsti flokkur landsins. Reuter LEIGHTON Smith aðmíráll og yfirmaður NATO-heijanna í Suður-Evrópu skýrir út fyrir frétta- mönnum árangur loftárásanna á flugvöll Serba í Udbina í Krajina. Warren Christopher, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, segir, að NATO-vélarnar geti gert aðra árás verði það talið nauðsynlegt. Breska lottóið Lánsamur atvinnu- leysing-i London. Reuter. ATVINNULAUS, ungur maður fékk ásamt sex öðrum hæsta vinninginn í breska lottóinu þegar dregið var í því í fyrsta sinn síðastliðinn laugardag. í gær var vitað um þrjá vinnings- hafa en fjórir höfðu ekki gefið sig fram. Mark Wright, sem er 18 ára gamall og býr í Liverpool, kvaðst næstum því hafa kastað burtu lottómiðanum í ógáti. „Það er hins vegar of snemmt að segja hvað ég tek mér fyrir hendur en eitt er víst, að ég ætla að hjálpa fjölskyldu minni,“ sagði Wright en hæsti vinningurinn var 620 milijónir ísl. kr. þannig að um 88,7 millj- ónir koma í hlut hvers. Herflug-yélar Atlantshafsbandalagsins ráðast á flugvöll Serba í Krajina Arásunum fagnað sem tímabærum aðgerðum Sarajevo. Reuter. Umfangsmesta hernaðaraðgerð NATO-ríkjanna frá upphafi HERFLU G VELAR Atlantshafs- bandalagsins, NATO, gerðu árásir í gær á fiugvöll í Udbina, sem er á yfirráðasvæði Serba í Króatíu. Tóku 30 bandarískar, breskar, franskar og hollenskar flugvélar auk 20 aðstoðarflugvéla þátt í árás- inni en frá flugvellinum hafa Serbar haldið uppi loftárásum á Bihac í Bosníu og meðal annars beitt nap- almsprengjum. Að...sögn franska varnarmálaráðunejrtisins var flug- brautin eyðilögð og einnig loft- varna- og eldflaugapallar. Árásin er mesta hernaðaraðgerð NATO í 45 ára sögu bandalagsins. NATO-vélarnar lögðu up.p frá Ítalíu og tókst árásin mjög vel að sögn Leightons Smiths aðmíráls og yfirmanns NATO í Suður-Evrópu. Skotið var á vélarnar en þær sneru allar aftur til stöðva sinna á Ítalíu og um borð í breska flugmóðurskip- inu Invincible. Óvíst um mannfall Höfðu flugmennirnir fyrirmæli um að granda ekki flugvélum á jörðu niðri kæmust þeir hjá því og reynt var að komast hjá mannfalli meðal óbreyttra borgara. Ríkisstjómir á Vesturlöndum, í Bosníu og ýmsum íslömskum ríkj- um hafa lýst yfir stuðningi við að- gerðirnar, sem sagðar voru meira en tímabærar, og einnig Borís Jelts- ín, forseti Rússlands. Hann varaði hins vegar Bandaríkjastjórn við að hefja vopnasölu eða aðrá aðstoð við Bosníustjórn. Ymsir fjölmiðlar á Vesturlöndum hafa haldið því fram að undanförnu, að starfsmenn CIA, bandarísku leyniþjónustunnar, séu nú þegar komnir til Bosníu þar sem þeir veiti stjórnarhernum tæknilega aðstoð í stríðinu við Serba. Óttast hefndir Múslimar í Sarajevo fögnuðu fréttinni um loftárásina á Udbina en hún vakti einnig ótta við, að Serbar reyndu að hefna hennar á þeim. Skömnju eftir árásina féll einn maður fyrir serbneskri leyni- skyttu og fjarstýrðri eldflaug var skotið á ráðhúsið í borginni. Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýska- lands, sagði í gær, að fulltrúar fimm ríkja hópsins, sem reynt hefur að koma á friði í Bosníu, ætluðu að koma saman til fuhdar í Brussel 2. desmber nk. Sakleysið sann- að eftir 24 ár Ósló. Morgunblaðið. PER Liland, 63 ára gamall Norð- maður, hefur verið fundinn sak- laus af því að hafa myrt tvo menn árið 1969 en hann var dæmdur fyrir morðin 1970 og var í fangelsi í 14 ár eða til 1984. Skömmu fyrir jól 1969 voru tveir menn myrtir með öxi í húsi í Fredrikstad, sem kallað var „Litla víti“. Voru nágrannar Li- lands, fjölmiðlar og lögreglan ekki í neinum vafa um, að hann væri sekur og yfirlýsingar hans um að hann hefði ekki verið á morðstaðnum voru ekki teknar trúanlegar. Liland og vinir hans hafa þó aldrei gefist upp og nú, 24 árum eftir að sektardómurinn var kveðinn upp, hefur verið sánnað, að hann sagði satt. Þegar forseti réttarins hafði lesið upp sýknudóminn stóðu aðrir dómarar á fætur og klöpp- uðu fyrir Liland. Er ekki vitað til, að það hafi áður gerst. „Nú hefur æra mín verið hreinsuð og ég er glaður og þakklátur," sagði Liland við fréttamenn í gær. Lögfræðingur Lilands býst við, að skaðabótakrafan verði ekki undir 100 milljónum kr. Reuter MEIRA en 10.000 Palestínumenn gengu um Gaza-borg í gær til að láta í ljós stuðning við Yasser Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palestinumanna (PLO), eftir átök palestínsku lögreglunnar við fé- laga í múslimskum öfgasamtök- um á föstudag sem kostuðu fjórt- án manns lífið. Fatah, hreyfing Arafats, stóð fyrir göngunni og Fylkja liði fyrir Arafat hún var til marks um hversu hatrammur klofningurinn meðal Palestínumanna er orðinn. Meira en eitt þúsund göngumenn voru vopnaðir byssum og skutu upp í loftið svo hávaðinn var stundum ærandi. Leiðtogar Hamas vísuðu í gær á bug fregnum um að sam- tökin hefðu fallist á aðild að tutt- ugu manna nefnd sem palestínsk yfirvöld hafa ákveðið að skipa til að rannsaka átökin siðastlið- inn föstudag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.