Morgunblaðið - 22.11.1994, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Fjögur brúðkaup
og jarðarföt;
HASKOLABIO
SÍMI 22140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
I LOFT UPP
JEFF BRiDGES
TOMMY LEEJONES
mm*-
Aöalhlutverk: JEFF BRIDGES, TOMMY LEE JONES OG
FOREST WHITAKER. LEIKSTJÓRI STEPHEN HOPKINS.
Bönnuö innan 14 ára.
Sýnd kl. 9 og 11.15.
NIFL OG FERÐIN AÐ MIÐJU JARÐAR
AÐALHLUTVERK
JÓHANNAJÓNA5 OG
jakob WmSmwséoN
BEIN OGNUN
HARRISON FORD
ferðin aðIðju Jarðar
Kvikmynd eftir Ásgrím Sverrisson
,Nifl: Gott handrit, mjög góð vinnubrögð
*** F.S. Dagsljós.
Sýndar kl. 5 og 7.
2 fyrir 1
ÞRIR LITIR: HVITUR
ZBICNIEW ZAMACHOWSKI
JULIE DELPY
TROIS COULEURS
2 fyrir 1
Tom
Hanks er
Forrest
Gump
Aðalhlutverk:Harrison Ford
Sýnd kl. 9 og 11.
★ ** A.i. MBL
★ ★★ Ó.H.T. Rás2
★ ★★★ e.h,
Morgunpósturinn
KRZYSZTOF KIESLOWSKl
Sýnd kl. 5 og 7.
2 fyrir 1
Iattevagten
Sýnd kl. 6.45 og 9.15.
Sýnd kl. 9. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 5 og 7.
Sýningum fer fækkandi.
Heimsósóma-
söngvar
Geislar af
gáfum
SKAPGERÐARLEIKKONAN
Judy Davis á marga aðdáendur.
Einn þeirra er leikarinn Peter
Weller sem hefur leikið með henni
í kvikmyndunum „Naked Lunch“
og „The New Age“. „Að mínu
mati er hún besta leikkona sinnar
kynslóðar," segir Weller. „Eg er
mjög þakklátur fyrir að hafa
fengið tækifæri til að vinna með
henni tvisvar á lífsleiðinni. Við
erum Astaire og Rogers sérkenni-
legra sambanda.*1 Weller þegir,
en bætir svo við: „En ef þú hefur
ekki vængi jarðar hún þig.“
Víst er að George Sluizer leik-
stjóri „The Dark Blood" er sam-
mála Weller, því hann lenti í þræt-
um við Davis meðan á tökum
myndarinnar stóð. Davis víldi
sjálf fá að ráða túlkun á hlutverki
sinu án afskipta leikstjórans og
hafði sitt fram að Iokum. Fyrir
vikið er það samdóma álit gagn-
rýnenda að hún beri af i æði
skrykkjóttri mynd.
Leikstjórinn Woody Allen á
vart orð til að lýsa hæfileikum
Davis, en hún Iék í mynd hans
„Husbands and Wives“. „Ég hafði
séð hana í nokkrum hlutverkum
áður,“ segir Allen. „Mér fannst
hún ein mest spennandi leikkona
í heimi. Hún getur brugðið fyrir
sig bæði gamanleik og drama.
Hún geislar af gáfum. Hún er
kynþokkafull. Hún býr yfir öllum
þeim kostum sem leikstjóra
dreymir um.“ ,
Leikstjórinn James Lapine, sem
leikstýrði henni í „Impromptu",
segir hana hafa verið ánægða með
samvinnuna við Allen, líklega
vegna þess að hann lét hana eiga
sig. „Það er það sem hún vill.
Mæta til vinnu, skila af sér sínu
og láta gott heita." Davis var tif-
nefnd til Óskarsverðlauna í annað
sinn fyrir leik sinn i „Husbands
and Wives“. Hún hafði áður feng-
ið Óskarsverðlaun árið 1984 fyrir
stjörnuleik í myndinni „A Passage
to India“.
TONLIST
Gcislad iskur
SPOON MEÐ SPOON
Fyrsta plata hljómsveitarinnar
Spoon, samnefnd henni. Spoon skipa
Emiliana Torrini söngkona, Höskuld-
ur Ö. Lárusson gítarleikarí og söngv-
ari, G. Hjörtur Gunnarsson gítarleik-
arí, Ingi S. Skúlason bassaleikarí og
Friðrik Júlíusson G. trommuleikari.
Upptöku stjómaði Jón Ólafsson og
útsetningar voru í hans höndum og
hljómsveitarinnar. Spoon Records
gefur út, Japís dreifír. 36,12 mín.,
1.999 kr.
HLJÓMSVEITIN Spoon vakti
mikla athygli snemmsumars fyrir
lagið Taboo, sem varð gríðarlega
vinsælt, ekki síst fyrir skemmtileg-
an söng Emiliönu Torrini, en lagið
var líka lipurleg smíð. Bið varð þó
á að það yrði gefið út. Fyrir
skemmstu kom svo út fyrsta breið-
skífa sveitarinnar, samnefnd henni,
CABELL „Cab“ Calloway lést
laugardaginn 19. nóvember 86 ára
að aldri. Calloway var eitt af stóru
nöfnunum á gullöld djassins. Hann
hafði verið þungt haldinn alveg
síðan hann fékk hjartaáfall í júní
síðastliðnum.
Cab Calloway var með eina af
bestu stórsveitum djassins á árun-
um fyrir stríð. Hann var fyrst og
fremst söngvari og frægastur fyrir
lagið „Minnie the Mooche", sem
var endurgert í kvikmynd Francis
Ford Coppola „Cotton Club“. Hann
söng lagið síðan sjálfur í gaman-
myndinni „Blues Brothers" og fór
auk þess með smáhlutverk í mynd-
inni.
Margir djasssnillingar hófu feril
sinn með hljómsveit Calloways.
Má þar einna helstan telja Dizzie
Gillespie sem var komungur í
hljómsveit Calloways þar sem hann
hljóðritaði fyrsta djasssóló sitt.
Sjálfur var Calloway á fullu langt
fram yfir áttrætt og alltaf í sínum
fræga hvíta smóking. Það er til
þar sem finna má Taboo og tíu lög
til viðbótar.
Eftir að hafa heyrt lagið Taboo
í sumar hafa sjálfsagt margir gert
því skóna að söngur Emiliönu ætti
eftir að verða áberandi á breiðskífu
Spoon, því hann var aðal lagsins
eins og áður er getið. Innan sveitar-
innar er þó annar söngvari, Hös-
kuldur Lárusson, sem er aðalsöngv-
ari hennar, og flest laganna á plöt-
unni syngur hann, aukinheldur sem
hann semur þau. Það er og helsti
galli plöturíhar, því hann syngur
einfaldlega of mikið; þegar Hös-
kuldur syngur er sveitin ósköp
venjuleg miðlungs poppsveit, eins
og í Da Capo, Vibes og Awake, sem
hann syngur illa, en þegar Emiliana
syngur, til að mynda í Taboo og
Tomorrow, verður hún annað og
meira. Á meðan liðsmenn Spoon
átta sig ekki á þeim einfalda sann-
leik, verður ekki mikið úr sveitinni
annað en þessi breiðskífa.
Höskuldur er prýðilegur laga-
smiður, en mistækur, og þannig
marks um vinsældir Calloways að
þegar Duke Ellington hætti að
troða upp á fínasta veitingastað
Harlem, „Cotton Club“, var það
Calloway með hljómsveit sinni sem
tók við.
CAB Callowy var víðfrægur
söngvari og trompetleikari.
Cab Calloway
látinn
SPOON, ósköp venjuleg miðlungs poppsveit eða annað og meira?
má segja að sveitin hefði sem best
getað tekið sér lengri tíma áður en
hún sendi frá sér plötu, til að semja
fleiri grípandi lög.
Á textasmið plötunnar, Agli Lár,
hvílir heimsins böl, því langt er síð-
an aðrir eins heimsósómatextar
hafa heyrst á íslenskri plötu; Spoon
syngur um sifjaspell, hrannvíg og
rotnandi lík, stríðshörmungar trú-
leysi og efa. Þá sjaldan að ástin
kemst að er hún vitanlega óendur-
goldin eða vonlaus. Víst er gott að
einhver fjalli um það sem miður er,
en hálf kjánalegt að heyra sungið
um illvirki og hörmungar sykur-
sætri rödd í léttu popplagi. Iðulega
eru textarnir líka full bóklegir og
stirt ortir, til að mynda eru línur
eins og „The utter state of grace /
that enchanted my mind“ kjánalega
upphafnar.
Árni Matthíasson
CALLOWAY í óperunni „Porgy and Bess“ í Ziegfield-leikhúsinu.