Morgunblaðið - 22.11.1994, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Segist hafa
stungið sig
sjálfur
MAÐUR, sem var fluttur á
sjúkrahús á laugardag eftir að
hafa fundist alblóðugur og með
stungusár á handlegg á heimili
sínu við Njálsgötu, sagði lög-
reglu á sunnudag að hann hefði
sjálfur veitt sér áverkana.
í upphafí sagðist maðurinn
hafa verið stunginn og beindist
grunur að konu sem hefur hald-
ið til í húsi hans og áður gerst
sek um að leggja hnífum og
bareflum til manna.
Maðurinn var á sjúkrahúsi á
laugardag en ein stungan gekk
í gegnum upphandlegg hans.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Kínveijar
í Eyjum
Stjórnmálaályktun flokksráðsfundar Sjálfstæðisflokksins
Batinn í efnahagslífinu
skili sér til fólksins
FLOKKSRÁÐ Sjálfstæðisflokksins
samþykkti stjómmálaályktun á fundi
sínum á laugardag þar sem segir
m.a. að nýta verði efnahagsbatann
í þjóðfélaginu til að draga úr halla
ríkissjóðs og að á næstu árum verði
að treyeta atvinnulífið, fjölga störf-
um og bæta lífskjörin, sérstaklega
þeirra sem minna megi sín.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðisflokksins,
kynnti niðurstöður fundarins á blaða-
mannafundi og sagði að meginefnið
í umræðum dagsins hefði verið sá
vilji flokksins að standa vörð um
þann árangur sem hefði náðst og
stöðugleikann sem ekki mætti tap-
ast. Þá hefðu verið rædd markmið
og leiðir til þess að sá ábati sem
hefði orðið í þjóðfélaginu gæti skiiað
sér til fólksins í landinu án þess að
allt færi um koil, eins og oft hefði
viljað verða, m.ö.o. að kaupmáttur
verði að aukast án kollsteypu.
Niðurstaða kjarasamninga
innan marka efnahagsbatans
Friðrik Sophusson, fjármálaráð-
herra og varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, rakti helstu atriði
ályktunar fundarins. I henni kemur
m.a. fram að með aðgerðum ríkis-
stjómarinnar hafí undirstöður efna-
hagslífsins verið treystar og bata-
merkin séu skýr. Bent er á hvernig
ríkissjórnin og aðilar vinnumarkað-
arins hafí í sameiningu unnið að
kjaramálum og að átak í vegamálum
geti orðið liður í að skapa grund-
völl fyrir lausn í komandi kjara-
samningum en niðurstaða þeirra
verði að vera innan þeirra marka
sem efnahagsbatinn leyfi og auka
þurfi kaupmátt lægstu launa án
þess að það hafi keðjuverkandi áhrif
í för með sér.
Vakin er athygli á nauðsyn þess
að ísland og íslensk fyrirtæki séu
samkeppnisfær í harðnandi sam-
keppni í heiminum og bent á hvernig
ríkisstjórnin hafi reynt að bregðast
við því með stefnumótun á mismun-
andi sviðum, þ.á m. með samningn-
um um Evrópska efnahagssvæðið og
GATT.
Fjallað er um Evrópusambandið
og EÉS í sérstakri málsgrein og á
það bent að gangi aðrar EFTA-þjóð-
ir í ESB hver af annarri geti íslend-
ingar byggt á samningnum um Evr-
ópska efnahagssvæðið.
Fram kemur að vegna breyttrar
aldurssamsetningar þjóðarinnar
þurfí að treysta undirstöður velferð-
arkerfísins, breyta forgangsröð, hag-
ræða o.s.frv.
Þá segir að flokksráðsfundurinn
telji mjög brýnt að atkvæðisréttur
landsmanna verði jafnaður og þing-
mönnum fækkað og sagði Friðrik að
áhersla yrði lögð á að skref í þá átt
yrðu tekin á yfirstandandi þingi.
HÉR á landi er staddur stór
hópur kínverskra listamanna,
um sjötíu talsins, sem sýna
margvíslegar fjölleikalistir í
anda ævagamallar kínverskrar
hefðar. Áhersla er lögð á mik-
inn hraða, ótrúlegar jafnvægis-
listir og skrautlega búninga.
Ágóði af sýningum rennur að
hluta til einhverfra barna. Alls
eru sýningar hópsins sex tals-
ins og var sú fyrsta í gær-
kvöldi í Vestmannaeyjum fyrir
bæjarbúa sem fjölmenntu.
Næsta sýning er í Reykjavík í
dag, Akureyri á morgun og
síðan á nýjan leik í Reykjavík.
Ljósmyndari Morgunblaðsins
tók á móti hópnum þegar flug-
vél hans lenti í Vestmannaeyj-
um síðdegis á sunnudag. Vélin
kom með hópinn beint frá Skot-
landi og voru það þreyttir lista-
menn sem gengu inn í flugstöð-
ina eftir leiðbeiningum toll-
varða.
Kærði
nauðgun
SAUTJÁN ára gömul stúlka hefur
kært tvo menn fyrir árás og nauðg-
un. Ráðist var á stúlkuna þar sem
hún var á gangi á Laugavegi um kl.
5 á sunnudagsmorgun. Mennimir
voru ófundnir í gær.
Stúlkan var á gangi þegar menn-
imir, sem hún telur vera um tvítugt,
kölluðu til hennar og buðu henni í
samkvæmi. Þegar hún neitaði drógu
þeir hana inn í húsasund og þar var
hún slegin í höfuðið svo hún féll í rot.
Hún telur sig hafa legið í roti í
15-20 mínútur og þegar hún vakn-
aði sá hún að föt höfðu verið dregin
niður um hana. Hún var illa á sig
komin en gaf sig á tal við lögreglu-
menn skömmu síðar og tilkynnti
þeim hvað gerst hafði.
Stúlkan var færð á neyðarmóttöku
Borgarspítalans til skoðunar og að-
hlynningar. Hún gat gefíð nokkra
lýsingu á mönnunum tveimur. Síðar
um nóttina stöðvaði lögregla tvo
menn á Laugaveginum vegna máls-
ins. Þeim var sleppt eftir að nöfn
þeirra höfðu verið tekin niður en
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins eru þeir ekki grunaðir um
árásina og í gær var vitað hvetjir
hefðu framið hana.
----» ♦ ♦---
Sluppu lítt
meiddir úr
ónýtum bíl
ÞRÍR menn um þrítugt slösuðust
minna en á horfðist þegar bíli sem
þeir voru í valt og þeyttist tugi metra
á malarvegi við Korpúlfsstaði á
sunnudagsmorgun. Mennirnir eru
grunaðir um að hafa verið undir
áhrifum fíkniefna.
Að sögn lögreglu er talið að bíl
mannanna hafí verið ekið á mikilli
ferð en við blindhæð missti ökumað-
urinn vald á honum og hann valt.
Einn mannanna þeyttist út um
glugga en enginn þeirra slasaðist
hættulega og gátu þeir gert vart um
slysið. A einum mannanna fannst
efni sem talið er vera amfetamín.
Rannsókn á kæru Lindu Pétursdóttur á hendur lögreglumönnum að ljúka
Linda Pétursdóttir hefur *■ t j •
að eigin frumkvæði gengist JVIRIIO SGIlt riKlS"
undir lyfjapróf til að afsanna ^
saksoknara 1 dag
eða næstu daga
getgátur i lögregluskýrslu
um að hún hafi verið undir
áhrifum fíkniefna nóttina
sem hún var handtekin.
RANNSÓKN RLR á kæru Lindu Pétursdótt-
ur á hendur lögreglunni í Reykjavík vegna
meints harðræðis við tilefnislausa handtöku
og gagnkæru tveggja lögreglumanna fyrir árás
og rangar sakargiftir er langt komin, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, og verð-
ur málið sent Ríkissaksóknara í dag eða næstu
daga. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins liggur fyrir að Linda og sambýlismaður
hennar höfðu verið í um 50 mínútur á lögreglu-
stöðinni síðastliðinn mánudagsmorgun áður en
bíll foreldra hennar fannst, óskemmdur og
óhreyfður, við heimili foreldra hennar í Breið-
holti.
Bíliinn fannst um það leyti sem Lindu var
leyft að hringja í lögfræðing sinn, sem fór þá
á lögreglustöðina henni til aðstoðar. Linda seg-
ir að áður en hún fékk að hringja hafí að beiðn-
um hennar um það margoft verið hafnað.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
segir lögreglan að þegar bíllinn var fundinn
hafí Lindu og sambýlismanni hennar strax
verið leyft að fara enda hafi þá og fyrr ekki
verið ljóst að kæra sem borist hafði á sambýlis-
manninn átti ekki við rök að styðjast.
Eins og áður hefur komið fram höfðu Linda
og sambýlismaður hennar verið færð á lög-
reglustöðina vegna gruns um að sambýlismað-
urinn hefði ekið bíl foreldra Lindu á kyrrstæð-
an bíl við Leifsgötu. Bíllinn, sem ekið var á, er
í eigu manns sem sambýlismaður Lindu hafði
fyrr um nóttina lent í átökum við í einkasam-
kvæmi í veitingahúsinu Marhaba við Rauðarár-
stíg.
Kærandinn taldi sig sjá bíl, svipaðan bíl for-
eldra Lindu, aka í burtu eftir ákeyrsluna.
Samkvæmt skýrslum lögreglunnar hafði
kærandinn sagt við Iögreglumenn sem fóru á
staðinn að hann teldi hugsanlegt að sambýlis-
maður Lindu, sem hann vissi til að hefði að-
gang að bíl foreldra hennar, væri að hefna
harma sinna vegna þeirra árekstra sem höfðu
orðið á milli þeirra í samkvæminu.
Leituðu að bíl en ekki Lindu
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
segir lögreglan að ekki hafí verið farið að veit-
ingastaðnum þessa nótt í þeim erindum að
handtaka sambýlismann Lindu eða hana sjálfa
heldur til að kanna ábendingu kærandans um
að bíll foreldra Lindu gæti verið þar í grennd
og þá til að athuga hvort bíllinn væri skemmd-
ur eða ekki. Þetta hafi verið venjuleg ráðstöfun
í málum þar sem stungið er af frá árekstri og
einhver vísbending liggur fyrir um hver hafí
valdið tjóninu.
Bíllinn hafí ekki verið við veitingastaðinn
en fyrir tilviljun hafi lögreglubíll verið þar fyr-
ir utan þegar einkasamkvæminu var að ljúka
og hafi lögreglumennirnir sem í honum voru
séð hvar sambýlismaður Lindu, sem þeir
þekktu, gekk út af veitingastaðnum.
Linda hafí komið út meðan lögreglan var
að ræða við sambýlismann hennar og hafí sest
inn í bílinn í óþökk lögreglunnar. Lögreglu-
mennimir hafí hins vegar um þetta Ieyti feng-
ið fyrirmæli um að fara með Lindu ásamt sam-
býlismanni hennar á lögreglustöðina.
Þau fyrirmæli munu hafa komið um tal-
stöðvakerfi lögreglunnar frá lögreglumönnum,
sem á sama tíma voru að ræða við kærandann
við heimili hans. Þeir báðu um að Linda og
maður hennar yrðu ekki flutt í sama bíl svo
þau ættu ekki möguleika á að bera sig saman
um málið.
Óljós réttarstaða
Um aðgerð lögreglunnar, í þessu máli sem
slíku, er það viðhorf lögreglumanna, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, að eftir
að hafa heyrt sögu kærandans, bíleigandans,
hafi þeir talið skyldu sína að kanna strax hvort
grunsemdir hans væru á rökum reistar.
Ekkert hafí hins vegar bent til hvorki þá
né síðar að Linda hefði valdið ákeyrslunni eða
ætti beina aðild að málinu. Hins vegar hafi
verið talin þörf á að ræða við hana, m.a. til að
fá upplýsingar um ferðir sambýlismanns henn-
ar um nóttina.
Skýrsla, sem varðstjóri lögreglunnar gerði
um viðtal sitt við Lindu eftir að hún hafði
verið færð á lögreglustöðina, ber á hinn bóginn
með sér, samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins, að á lögreglustöðinni hafí verið litið
svo á að Linda væri handtekin og hefði réttar-
stöðu grunaðs manns.
Hún var því ekki spurð eins og um vitni
væri að ræða og t.d. ekki bent á að samkvæmt I
lögum gæti hún átt rétt á að svara ekki spum- |
ingum um mál sem sambýlismaður hennar ,
tengdist.
í skýrslu varðstjórans er sérstakur dálkur
ætlaður fyrir'iýsingar varðstjórans á ástandi
þess sem verið er að yfirheyra.
í skýrslunni um Lindu er krossað við reit
þar sem stendur „fíkniefni" en spurningar-
merki sett aftan við krossinn.
%
Fer í lyfjapróf að eigin frumkvæði
Gísli Gíslason, lögmaður Lindu, sagði í sam- I
tali við Morgunblaðið í gær, að lögreglan hefði |
ekkert reynt til að sanna þessa aðdróttun og ,
hefði t.a.m. ekki tekið blóðprufu úr Lindu um '
nóttina.
Gísli sagði að Linda hefði sjálf óskað eftir
að fara í lyfjapróf hjá rannsóknarstofu Háskól-
ans til að hreinsa sig af þessum áburði og
sagði hann að niðurstöðu væri að vænta á
næstu dögum.
Samkvæmt upplýsingum dr. Þorkels Jóhann-
essonar forstöðumanns rannsóknarstofunnar
er of langt liðið frá atburðinum til að þvag- \
sýni gæti leitt í ljós annað en neyslu kannabis- i
efna, hafi þeirra verið neytt. Neysla kókaíns '
og amfetamíns mældist Ld. ekki. I
Gísli Gíslaon sagði að. sér þættu viðbrögð
lögreglunnar við kæru Lindu óskiljanleg. Kær-
an beindist að tveimur lögreglumönnum en
lögreglan öll virðist telja að sér vegið og hefði
m.a verið brugðist við með því að leka skýrsl-
um í fjölmiðla.
Þá hafi fjölmiðlar verið farnir að hringja í
Lindu fyrir hádegi á þriðjudag og verið með
upplýsingar um málið og að Linda tengdist ,
því nokkrum klukkutímum eftir að henni var i
sleppt af lögreglustöðinni. Það hafi ekki verið *
að frumkvæði Lindu að athugasemdir hennar }
við framkomu lögreglumannanna í málinu urðu
fréttaefni.