Morgunblaðið - 22.11.1994, Side 17

Morgunblaðið - 22.11.1994, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994 17 FRÉTTIR: EVRÓPA Álendingar sam- þykktu ESB-aðild ÍBÚAR Álandseyja samþykktu í atkvæðagreiðslu á 'sunnudag að sjálfsstjórnarsvæði þeirra yrði aðili að Evrópusambandinu líkt og Finn- land. íbúar eyjanna eru 25 þúsund talsins. Niðurstaða atkvæðareiðslunnar var sú að 73,7% íbúa samþykktu aðild en 26,3% höfnuðu henni. Kosningaþátttaka var fremur dræm og greiddu einungis 49,1% þeirra 18.080 íbúa sem voru á kjörskrá atkvæði. Þetta er í annað skipti á skömm- um tíma sem Álendingar greiða atkvæði um aðild. í októbermánuði Spillt að- ildamki? • BRESKI Evrópuþingmaðurinn Christopher Jackson segir í les- endabréfi í The Times að það sé ekki kerfið í Brussel sem sé að svíkja milljarða út úr sameiginleg- um sjóðum ESB heldur íbúar að- ildarríkjanna. Sökin á spillingu innan ESB liggi því að verulegu leyti hjá aðildarríkjum sambands- ins. • THORBJÖRN Jagland, for- maður norska Verkamannaflokks- ins, telur að norska Alþýðusam- bandið myndi mæla með ESB- aðild ef greidd væru atkvæði um málið nú. Hann telur ástæðuna fyrir því að Alþýðusambandið ákvað á sínum tíma að mæla ekki með aðild hafa verið hamslausan áróður ESB-andstæðinga um að atvinnuleysi myndi aukast. Jag- land telur stórhættulegt fyrir Norðmenn að vera utan sam- bandsins. „Við þurfum fleiri at- vinnutækifæri í iðnaði til að standa undir velferðinni. Eg held að það sé eitthvað mikið að í Nor- egi. Er olíuauðurinn farinn að sljóvga okkur?“ • ESB hefur ákveðið að stöðva allar styrkjagreiðslur til kúa- bænda á frönsku eyjunni Korsíku eftir að upp komst um víðtækt svindl meðal bænda. Ákvörðunin var tekin á leynilegum fundi í síð- asta mánuði en franska blaðið Libération greindi frá henni í gær. Talsmaður framkvæmda- stjórnarinnar staðfesti þetta en vildi ekki Ijá sig um hve víðtækt svindlið hefði verið. Heimildir inn- an ESB herma að bændur á Kor- síku hafi skráð rúmlega 60 þúsund kýr, sem ekki eru til í raun, og fengið allt að 150 milljónum króna ofgreitt í styrki sökum þessa. Hugsanlegt er að sambandið muni í framtíðinni tengja styrki náttúru- vemd til að draga úr skógareldum þeim er heija á eyjuna á hveiju sumri. Gmnsemdir em uppi um greiddu þeir atkvæði samhliða Finnum og var niðurstaðan þá sú að 51,9% sögðu nei en 48,1% já. Samkvæmt apildarsamningi Finna við ESB fá Álandseyjar að halda sérstöðu sinni þó að þær gangi í sambandið. Áfram verður leyfilegt að selja tollfijálsan varning um borð í feijunum sem sigla milli eyjanna og Svíþjóðar og Finnlands en það er ein helsta tekjulind Álend- inga. Ekki hefur þó til þessa verið tek- ið undir þá kröfu Álendinga að þeir fái aukið vald varðandi skattlagn- ingu og fulltrúa á Evrópuþinginu. Úrslit nýjustu skoðana- kannana um stuðning við ESB-aðild í Noregi Kosið verður 28. nóvember Scan-Fact að bændur stundi reglubundnar íkveilqur til að brenna niður skóga og hefja akuryrkju í staðinn. • JÓN Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra sagði á fundi Al- þýðuflokksins á sunnudag að á næsta kjörtímabili, 1994-1998, væri talsverð óvissa um framtíð- ina, til dæmis þróun Evrópusam- bandsins, um hversu iangan tíma ríkjaráðstefna þess, sem hefst 1996, tæki o.s.frv. „Að mínu mati er það svo að stjórnmálamenn, sljórnmálaflokkar og þeir, sem bjóða sig fram til Alþingis á næsta kjörtímabili, geta ekki skotið sér bakvið það að málið sé í frysti fram til ársins 2000,“ sagði Jón Baldvin. „Mér finnst að kjósendur eigi rétt á að fá að vita, þegar þeir ganga að kjörborðinu í apríl og eru að veita mönnum umboð til 1998, hvaða afstöðu frambjóð- endur hafi. Hvort þeir séu jákvæð- ir fyrir því að sælqa um og leggja niðurstöðuna fyrir þjóðina, eða hvort þeir hafna því.“ Norsk fyrirtæki í sjávarútvegi Óttast að ísland verði inni en Noregur úti LANDSSAMTÖK norskra sjávarút- vegs- og fískeldisfyrirtækja (Fiskeri- og Havbruksnæringens Landsforen- ing - FHNL), sem stofnuð voru fyr- ir skömmu, hvetja í fyrstu ályktun sinni til að Norðmenn gerist aðilar að Evrópusambandinu. Ella sé hætta á að íslendingar verði þar allsráð- andi í sjávarútvegsmálum. Alls eiga um 650 fyrirtæki aðild að nýju samtökunum og er starfs- mannafjöldi þeirra um 11 þúsund manns. í fyrstu ályktun samtak- anna segir að andrúmsloftið í garð ESB sé nú mjög jákvætt á íslandi og miklar líkur á að íslendingar sæki um aðild á næstunni. „Þá gæti sú staða komið upp að Islend- ingar verði mikilvægasta sjávarút- vegsþjóðin innan ESB og að sá sem fer með sjávarútvegsmálin innan framkvæmdastjórnarinnar muni heita Jón Baldvin Hannibalsson. Það gæti haft mjög neikvæð áhrif á norska fiskistofna og yfirráðarétt Norðmanna," segir í ályktuninni. Þá er tekið fram að ef Norðmenn hafni aðild muni það leiða til hærri tolla á norskar sjávarafurðir, sem fluttar eru út til Svíþjóðar og Finn- Iands, frá og með áramótum. Slíkt myndi koma sér illa fyrir mörg norsk fyrirtæki og atvinnutækifæri á landsbyggðinni glatast. FORLAGIÐ 4L AGIÐlWARA Mál og menning FAGU RBÓKMEN NTIR1Q Q A OG FRÓÐLEIKUR Bókmenntakvöldið stendur í u.þ.b. tvo tíma með hléi. AG Aðgangur er ókeypis. á Hótel Borg í kvöld kl. 20:30 Höfundar lesa úr nýjum íslenskum skáldverkum sem eru aö koma út hjá Máli og menningu og Forlaginu um þessar mundir. i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.