Morgunblaðið - 22.11.1994, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 22.11.1994, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Ný tímarit • ANDBLÆR heitir nýútkomið tímarit sem hefur undirtitilinn: Bók- menntir og draumbókmenntir. í formála segir frá skáldakvöldum Andblæs sem eru orðin 40, sjálf- útgáfuforlaginu Andblæ og stefnu tímaritsins. Fimmtán höfundar eiga efni í tímaritinu þar á meðal sögur, ljóð, grein um draumorð og drauma- setningar og draumbókmenntir. Draumbókmenntir eru bókmenntir skrifaðar eftir drauma. Ritstjóri er Bjami Bjarnason. Með honum í rit- nefnd eru Ágúst Borgþór Sverris- son, Steinunn Asmundsdóttir og Þórarinn Torfason. Heftið er 76 blaðsíður, fæst í Máli ogmenningu við Laugaveg, Ey- mundsson, Austurstræti, ogBóksölu stúdenta ogkostar 570 krónur. Fors- íðumynd er eftir Kristínu Arngríms- dóttur. • HITT húsið hefur gefið út sextán' síðna teiknimyndahefti eftir tíu unga höfunda en útgáfa blaðsins er loka- þátturinn í Ung- listahátíð Hins hússins. Ung- listahátíðin var haldin í þriðja sinn í ár. Hátíðin hefur vaxið frá ári til árs og núna voru þátttakend- ur 1.132 en áhorfendur á fimmta þúsund og eru þó ótaldir þeir fjölmörgu sem fylgdust með uppákomum í Kringlunni og Kola- portinu og sáu ljósmyndasýningu í Háskólabíói. Á dagskránni voru m.a. tónleikar, upplestrar, kvikmyndasýn- ingar, leiksýningar og myndlistar- sýningar. Þá voru einnig starfræktar listsmiðjur og fram fór ljósmynda- og stuttmyndamaraþon. Hluti af Unglist í ár var norræna tónlistarhá- tíðin Norden rockar þar sem hljóm- sveitir frá vinabæjum Reykjavíkur á Norðurlöndum léku. Úr skopmynda- blaðinu. Myndlistarmenn mótmæla MYNDLISTARMENN stóðu í gær fyrir aðgerðum til að vekja athygli á að ekki er gert ráð fyrir fjárframlagi til Listskreyt- ingasjóðs ríkisins í fjárlögum næsta árs. Aðgerðirnar fólust í því að segldúk var brugðið yfir Sólfar, verk Jóns Gunnars Árnasonar, sem stendur við Sæbraut í Reykjavík. Sam- kvæmt lögum um Listskreyt- ingasjóð ríkisins hefur sjóður- inn það markmið að fegra opin- berar byggingar og umhverfi þeirra með listaverkum. í fréttatilkynningu frá SÍM segir að sú ákvörðun að fella niður greiðslur til Listskreyt- ingasjóðs hafi verið tekin án nokkurrar vitundar listamanna eða samráðs við þá. Þykir sljórn sambandsins það kaldar kveðj- ur frá núverandi ríkisstjórn, ekki síst þar sem árið 1995 verð- ur norrænt myndlistarár. Enn- fremur segir í fréttatilkynning- unni: „Þessi niðurskurður hefur í för með sér um 50% skerðingu á framlagi ríkis til listaverkaka- upa og því stórfellda lgara- skerðingu myndlistarmanna á erfiðum tímum.“ Bréf til menntamálaráðherra Ennfremur hefur stjórn SÍM ritað Ólafi G. Einarssyni, menntamálaráðherra, bréf þar sem hún kveðst treysta því að ráðherra standi með myndlist- armönnum í þessu máli og beiti sér fyrir því að framlag til sjóðs- ins verði aldrei skert og unnið verði að því að greiðslur til sjóðsins verði í samræmi við þau lög sem um hann gilda frá 1990. BOKMENNTIR Skáldsaga KVIKASILFUR eftir Einar Kárason. Mál og menn- ing, 1994 — 233 blaðsíður. í „KVIKASILFRI" tekur Einar Kárason upp þráðinn frá skáldsögu sinni, „Heimskra manna ráðum“ sem kom út árið 1992. Þar hafði hann leitt fram á sögusviðið Kiiliansfjöl- skylduna frá Lækjarbakka, þijár kynslóðir sem hver bar svipmót ann- arrar. Lokin í „Heimskra manna ráðum“ voru dálítið endaslepp og því er „Kvikasilfur" nauðsynleg lesn- ing til að fá heillegri mynd á hið brotakennda lífshlaup þessara þriggja kynslóða. Líkt og í „Heimskra manna ráð- um“ er það faðir sögumanns, Bárður Killian, sem er þungamiðjan í at- burðarásinni. Þessi framkvæmdaóði íslendingur sem aldrei stoppar og alltaf endurreisir sig þrátt fyrir gjaldþrot, drykkju og annað basl. Þannig byijaði Bárður á því að bjarga olíutönkum í „Heimskra manna ráðum“ og heldur hér upp fyrri iðju í „Kvikasilfri" með stofnun flugfélagsins „Loftsýnar“. En þrátt fyrir að athafnaæðið birtist í ýmsum myndum dettur Bárður Killian út við og við vegna fylierís, en tekur bara upp þráðinn aftur og dettur í það í óeiginlegri merkingu, þ.e. í einhveiju framkvæmdaæði sem er ekkert annað en sjálfsbjargarvið- leitni þessarar kynslóðar. Hann er einskonar ótemjandi „fullhugi" sem veður áfram til að bjarga sér. Aðrar persónur fá hér meira rúm eins og Vilhjálmur, bróðir Bárðar, og þriðja kynslóðin, þ.e. sögumaður sjálfur, sem heitir því kunnuglega nafni Halldór Killian. Eins og í fyrri sögu er það athafnaæðið sem gegn- sýrir flestar persónurnar þó að und- antekning sé eins og Salómon. Hann lokast inni í þögn og afskipta- leysi geðveikinnar, þangað til eitthvað virðist fara að rofa til eftir gjaldþrot og fyllerí samferðamanna hans og „ofþreyta" fer að setja mark sitt á tví- burabróðurinn, Friðrik geðlækni. Þannig er „Kvikasilf- ur“ saga kynslóðar sem gegnsýrð er af pen- ingahyggju í leit sinni að hamingju sem snýst upp í andstæðu sína óhamingju og harmleiki þegar verst lætur ! svindli og svinaríi. Þessi mikla framkvæmdagleði end- urspeglast í hraðri atburðarás, því hver viðburðurinn rekur annan eins og einhver óróleiki leiki um söguper- sónumar enda bendir titill bókarinnar til þess. Það eru helst kvenpersónum- ar sem eru utangarðs og kannski jarðbundnari sem tekst að halda sig réttu megin við strikið eins og Imba sem fer að læra tannlækningar og móðir sögumanns sem að lokum fínn- ur fast land í Hvítasunnusöfnuðinum í Vestmannaeyjum. Mikil breidd er jafnframt í sögu- persónunum og eru þær tengdar öll- um stigum þjóðfélagsins, glæpa- menn, guðfræðingur, læknir og bankastjóri. Þrátt fyrir það eru það hinar grótesku lýsingar á athöfnum þeirra sem gera þær beinlínis skop- legar og harmrænar líkt og endir Vilhjálms bankastjóra og fþrótta- hetju, sem endar sem einrænn og helsjúkur maður. „Kvikasilfur“ er byggð upp á brotum eða „epísóðum" sem spyrð- ast saman þannig að frásögnin líður áfram á hraðan og kraftmikinn hátt. En þegar fram líður í tíma verður rás viðburða dálítið kunnug- leg lesanda líkt og hvarfið á Sigfúsi Kill- ian sem minnir á Geirf- innsmálið og leitin að „gullskipinu". Þar hefði mátt vinna betur úr hugmyndunum og þessi brot verða fyrir vikið heldur hrá og reyfarakennd, þó að orðfæri og stíll vísi ekki til þess. Eins og áður eru ekki siðferðislegir sleggjudómar látnir falla í „Kvikasilfri“ heldur er gagnrýni textans fólgin í því að birta athafnir þessara kynslóða í grótesku ljósi. Þannig er hugmynd þessarar kynslóðar, sem lagði allt sitt af mörkum í einhverskonar úr- eltri framfaraleit og efnishyggju fyrst og fremst gagnrýnd með því að sýna þær í athafnaæði sem að lokum getur af sér einmanalegt hlut- skipti sögupersónanna, eins og Bárð- ar, Vilhjálms, Friðriks, Sigfúsar eldri og yngri. Frásögnin byggist á fyrstu per- sónu sögumanni og alvitrum þriðju persónu sögumanni, þannig er farið á víxl í „epísóðunum". Þessi fyrstu persónu sögumaður gerir grín að sjálfum sér jafnframt sem hann sýn- ir viðhorf sem hinir eldri hafa til hans: „Æ þú veist hvernig svona strákar eru. Þetta er að hlaupa og fljúgast á allan daginn! Sagði hannn um mig, tæplega tvítugan meintan menningarvitann. En ekki nema svona tveimur vetrum seinna var ég orðinn alveg nauðsynlegur bakhjarl í milljónaviðskiptum við Amer- íkana ...“ (85) Húmorinn, hraðinn og hráleikinn sem einkennir tungumálið í textan- um nær vel að koma til skila við- fangsefninu eins og þegar Gúnda bróður sögumanns er lýst: „Svo var Gúndi fæddur peningamaður, hann var athafnaskáld einsog síðar var farið að kalla það; . . . hann þrúkk- aði til samninga við harðsvíraða bissnesmenn með sínu jákvæða og hreinlega fasi, græddi á öllu sem hann snerti, tók á móti rukkurunum og sendi þá til baka ánægða en tómhenta, sá út nýja möguleika á viðskiptum..(49). Að sama skapi kemst talmálið til skila í hráu málfari og orðræðu á svipmikinn hátt. Einari Kárasyni hefur tekist vel upp í þessu framhaldi og er „Kvika- silfur“ óaðskiljanlegur hluti af brölti Killiansfjölskyldunnar. Hér hefur tekist vel að leiða til lykta samheng- ið í íslensku „fullhugunum", án þess að kasta rýrð á sögupersónurnar heldur ber söguhöfundur virðingu fyrir þeim þrátt fyrir að hugmyndir þeirra séu kannski kafsigldar. En þetta tvísæi er einmitt aðalsmerki sögunnar af Killiansfjölskyldunni. Textinn hefði mátt rista eitthvað dýpra með því að koma hugdettum sögumanns betur á framfæri, en sögumaður er oft ansi spar á dóma eða gagnrýni á tilurð þess að hanrt fer að skrifa sögu Killiansfjölskyld- unnar. Eins og bent hefur verið á um „Heimskra manna ráð“, þá gagnrýnir Einar Kárason goðsagnir samfélagsins, og úr rústum þeirra rís þriðja kynslóðin í „Kvikasilfri“, rithöfundurinn og sögumaðurinn Halldór Killian, sem „... lagði ekk- ert nýtt eða frumlegt til mál- anna...“ (131), þegar hann birtir grein um Einar Benediktsson. Ein- mitt þar liggur afhjúpunargildi frá- sagnarinnar um leið og goðsögn- unum er rústað. Með þessu móti tekst Einari Kárasyni að skapa kostulega frásögn af fólki sem í barnalegri bjartsýnistrú sinni virðist ekki hafa þroska til að fóta sig í nútíma samfélagi. Einar E. Laxness Gjaldþrot, svindl og svínarí _____________ Einar Kárason Síðustu sýningar á Jörfagleði AÐEINS tvær sýningar eru eftir á Jörfagleði í Borgarleik- húsinu en Svöluleikhúsið frumsýndi verkið á stóra sviði Borgarleikhússins, 8. nóvem- ber sl. í kynningu segir: „Þetta er stórbrotið verk sem byggir á rammíslenskum veruleika. Þar segir af fólki, sem fer til skemmtunar að bænum Jörfa í Haukadal, en þar var mikið drukkið, dansað og duflað." í sýningunni taka þátt dansarar íslenska dans- flokksins, leikarar, hreyfí- listamaður, 18 manna kór og 9 manna hljómsveit. Höfundur er Hákon Leifs- son og Auður Bjarnadóttir. Hákon samdi tónlistina en hann er talinn í fremstu röð íslenskra tónskálda. Danshöf- undur er Auður Bjarnadóttir og leikmynda og búningagerð annaðist Siguijón Jóhanns- son. Síðustu sýningar verða í dag þriðjudag og á fimmtu- dag 24. nóvember. Skáldakvöld í fjórum lands- hlutum MÁL og menning og Forlagið efna í nóvember til upplestra úr nýjum skáldverkum á fjór- um stöðum á landinu, á ísafírði, í Reykjavík, á Akur- eyri og á Egilsstöðum. Laugardaginn 19. nóvem- ber var upplestur á Hótel Isafirði í samvinnu við Lista- skóla Rögnvaldar Ólafssonar undir yfirskriftinni „Opin bók“. í kvöld kl. 20.30 verður útgáfuhátíð Máls og menn- ingar og Forlagsins á Hótel Borg, þar sem höfundar lesa upp og bækur forlaganna verða kynntar. Á morgun miðvikudag kl. 20.30 verður upplestur í Deiglunni í Grófargili á Akur- eyri þar sem rithöfundamir Gerður Kristný, Pétur Gunn- arsson, Páll Pálsson og Guð- bergur Bergsson lesa úr nýj- um bókum, auk þess sem les- ið verður úr síðustu bók Jak- obínu Sigurðardóttur. Fimmtudaginn 24. nóvem- ber kl. 20.30 verður upplestur í Menntaskólanum á Egils- stöðum þar sem Einar Kára- son, Fríða Á. Sigurðardóttir, Sjón; Jóhanna Sveinsdóttir og Isak Harðarson lesa úr nýjum bókum. Norsk bókagjöf í TILEFNI af opnun hins nýja, sameinaða Landsbóka- safns-Háskólabókasafns í Reykjavík 1. desember nk. færa norsk menningarmála- yfirvöld bókasafninu að gjöf norsk fræði- og uppflettirit að verðmæti um 10.000 norskar krónur. Samtals er hér um að ræða nærri 40 nýlegar ritraðir og bækur, sem afhent verða bókasafninu frá norska sendi- ráðinu í Reykjavík. Val verk- anna og bókanna hefur ann- ast norski sendikennarinn við Háskóla íslands, Astrid Kjetsá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.