Morgunblaðið - 22.11.1994, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994
MINNIIMGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t Ástkær bróðir okkar,
ÞORBERGUR SVERRISSON
frá Brimnesi,
Grindavík,
andaðist á sjúkradeild Víðihlíðar, Grindavík, föstudaginn
18. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Systkini hins látna.
t
Bróðir okkar,
GUÐJÓN H. ÁRNASON
húsgagnasmiður
frá Garöi,
Grindavík,
Njálsgötu 75,
Reykjavík,
lóst 18. nóvember síðastliðinn.
Systkini hins látna.
t
Ástkœr eiginmaður minn, sonur minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURJÓN VIÐAR ALFREÐS
flugumsjónarmaður,
lést laugardaginn 19. nóvember.
Birna Viggósdóttir,
Bára Sigurjónsdóttir,
Alfreð V. Sigurjónsson, Elín Hauksdóttir,
Bára Sigurjónsdóttir, Garðar A. Garðarsson,
Svavar P. Sigurjónsson, Anna María Hjaltadóttir,
Margrét Sigurjónsdóttir, Hrannar Ö. Hrannarsson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
KRISTRÚN NÍELSDÓTTIR,
Sporðagrunn 17,
Reykjavik,
lést í Borgarspítalanum 20. nóvember.
Jaröarförin fer fram frá Áskirkju föstu-
daginn 25. nóvember kl. 13.30.
Ragnar Sigurðsson,
Andrés Ragnarsson,
Sigurður Ragnarsson, Inga Stefánsdóttir,
Ása Helga Ragnarsdóttir, Karl Gunnarsson
og barnabörn.
t
Eiskulegur sonur okkar, bróðir og mágur,
ÓLAFUR SKAGFJÖRÐ ÓLAFSSON,
Þurranesi,
Saurbæjarhreppi,
Dalasýslu,
lést í Borgarspítalanum að morgni 15. nóvember sl. af völdum
meiösla, sem hann hlaut í umferðarslysi í Gilsfirði.
Útför hans verður gerð frá Staðarhólskirkju í Saurbæ fimmtudag-
inn 24. nóvember nk. kl. 13.30.
Ingunn Jóna Jónsdóttir,
Ólafur Skagfjörð Gunnarsson,
Jón Ingi Ólafsson,
Sigurbjörg Þórey Ólafsdóttir,
Sigrún Anna Ólafsdóttir,
Steingrfmur Þorgeirsson.
t
Elskulegur eiginmaður minn, sonur,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
FINNBJÖRN HJARTARSON
prentari,
Norðurbrún 32,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
í dag, þriðjudaginn 22. nóvember,
kl. 15.00.
Helga Guðmundsdóttir,
Jensína Sveinsdóttir,
Oddur Kr. Finnbjarnarson, Björg Dan Róbertsdóttir,
Guðrún Finnbjarnardóttir, Guðmundur Helgí Finnbjarnarson,
Jensína Helga Finnbjarnardóttir, Jón Hjörtur Finnbjarnarson,
Guðmundur Helgi Oddsson, Finnbjörn Oddsson.
SIGURÐUR ÁGÚSTSSON
INGIBJÖRG FRÍMANNSDÓTTIR
+ Sigurður Ágústsson
fæddist í Reykjavík
23. júní 1925. Hann lést
á Landakotsspítala 16.
nóvember sl. Sigurður
var sonur Ágústs I.
Magnússonar verksljóra
í Haga í Reykjavík, f. 9.
ágúst 1891, d. 20. desem-
ber 1940, og Lilju Guð-
jónsdóttur húsmóður í
Reykjavík, f. 11. desem-
ber 1892, d. 8. ágúst
1973. Systkini Sigurðar
voru Ágúst og Magnea,
sem eru látin, en eftirlif-
andi bræður eru Högni
og Magnús. Fyrri kona Sigurð-
ar var Ragnhildur Jósafatsdótt-
ir, f. 1. júlí 1909, d. 29. maí
1973. Börn þeirra eru: 1) Hilm-
ar, f. 1947, viðskiptafræðingur,
sambýliskona Kristín Guð-
mundsdóttir bankamaður.
Börn Hilmárs frá fyrra hjóna-
bandi og Hallgunnar M.
Skaptason eru: I. Sigurður
Gunnar, f. 1970, háskólanemi í
Svíþjóð. II. Eva Úlla, f. 1974,
nemi í Garðabæ. III. Ragnar f.
1974, nemi í Garðabæ. IV.
Linda Björk, f. 1985, nemi í
Garðabæ. Böm Hilmars og
Kristínar em: V. Heiðar Már,
f. 1991. VI. Heimir Daði, f.
1994. 2) Esther, f. 1948, skrif-
stofustúlka, gift Emi Guð-
mundssyni viðskiptafræðingi.
Böm þeirra eru: I. Arnar, f.
1969, háskólanemi í Bandaríkj-
unum. II. Helena, f. 1982, nemi
í Reykjavík. Sigurður kvæntist
seinni konu sinni, Ingibjörgu
Frímannsdóttur, 4. ágúst 1974.
Sigurður starfaði lengst af hjá
Togaraafgreiðslunni hf. í
Reykjavík við uppskipun og
afgreiðslu togara. Hin síðari
ár var hann starfsmaður
birgðadeildar Pósts og síma í
Reykjavík, eða þar til hann lét
af störfum vegna veikinda á
árinu 1993.
Ingibjörg Frímannsdóttir
fæddist í Reykjavík 5. desem-
ber 1924. Hún lést á Landakots-
spítala 7. nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar hennar vom
Frímann Einarsson frá Þing-
skálum í Rangárvallasýslu, f.
21.3. 1890, d. 16.12. 1976, og
María Björasdóttir, f. 16.9.
1896, d. 14.11. 1928. Alsystkini
Ingibjatgar era Jóhannes, býr
í Reykjavík, Guðbjöra, býr á
Selfossi, Guðrún, býr í Reylqa-
vík, Bára, f. 1926, d. 1929,
Marvin, býr á Selfossi, f.
1928, d. 1991. Seinni
kona Frímanns var Krist-
ín Ólafsdóttir, f. 19.4.
1895, d. 9.5.1987. Kristín
gekk öllum börnunum í
móður stað. Hálfsystkini
Ingibjargar eru: Ölafur,
býr á Selfossi, Helga, býr
á Selfossi, Einar, býr í
Kópavogi, María Bára, f.
1933, d. 1982, Elín, býr í
Reykjavík, og Kristín,
býr í Vestmannaeyjum.
Hinn 31. desember 1944
giftist Ingibjörg Sig-
mundi Karlssyni frá
Karlsskála í Grindavík. Þau
slitu samvistir. Börn þeirra era:
1) Ágúst Karl, f. 1945. Kona
hans er Ágústina Ólafsdóttir.
Börn þeirra eru: Sigmundur
Rúnar, f. 1966, Ólöf Ásta, f.
1968, og Ingibjörg Lilja, f. 1975.
2) Frímann Kristinn, f. 1947.
Kona hans er Herdís Ragna
Þorgeirsdóttir. Börn þeirra era
Helena, f. 1967, og Alda, f.
1973. 3) Margrét Bára, f. 1952.
Eiginmaður hennar er Ingvi
Theódór Agnarsson. Böm
þeirra eru: Olafur Hólm, f. 7.
maí 1973, og Erla Björk, f.
1976. Barnabömin eru sex.
Seinni eiginmaður Ingibjargar
var Sigurður Ágústsson. Ingi-
björg starfaði lengst af sem
aðstoðarmaður hjá Skólatann-
læknum Reykjavíkurborgar.
Útför þeirra hjóna verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag.
NÚ, þegar stundin er runnin upp,
þegar þið hjartkæru hjón eruð burt
kölluð eftir erfið veikindi, eru okkur
efst í huga yndislegar minningar
og þakklæti fyrir þær stundir sem
þið gáfuð okkur.
Hjartkæra móðir og amma. Glað-
værð þín, bros þitt, og jákvætt og
hlýtt hugarþel þitt í garð alls og
allra voru þín aðalsmerki. Það var
sama þó svo bæri við að syrti í ál-
inn hjá þér eða þínum, þú áttir allt-
af til bjarta og jákvæða tóna sem
við hin hlustuðum hugfangin á. Orð
þín voru senp smyrsl þeim sem um
sárt áttu að binda og fe'ngu margir
notið umhyggju þinnar og skiln-
ings. Svo var og um þau verk sem
hugur og hönd fengust við hveiju
sinni. Allt var unnið af dug með
jákvæðu hugarfari, alúð og natni
og ber heimili ykkar Sigga í Frosta-
fold þess glögg merki. Þangað var
ávallt gott að koma og þar vorum
við bömin miklir aufúsugestgir.
Erfidrykkjur
Glæsileg kafii-
hlaðborð lhllegir
salirogmjög
góð þjónusta
l]pp!ýsingar
ísíma 22322
Haf þökk fyrir söng þinnar sálar
þú söngst inn í hjarta mitt yl.
Eg heyrði þá eilífar óma
þá æðstu, sem lífið á til,
(Frímann Einarsson.)
Hjartkær Siggi. Frá þeirri stundu
að við fyrst kynntumst þér, fyrir
um tuttugu árum, varðst þú okkur
sem faðir og afi og festist Sigga-
afa-nafnið fljótt við þig. Þú hafðir
hjartalag hins góðgjarna og trygg-
lynda manns og leitaðist ávallt við
að láta gott af þér leiða. Þú varst
maður friðar og góðvildar í sam-
skiptum þínum við aðra og máttir
ekkert aumt sjá sakir virðingar fyr-
ir því sem lífsandann dró. Þér féll
sjaldan verk úr hendi og gekkst að
öllum störfum af dugnaði og snyrti-
mennsku og sakir prúðmennsku
þinnar og hógværðar, sem voru þín
helstu kennimerki, komst þú þér
alls staðar vei.
Það er sárt til þess að hugsa að
loks þegar amstur hversdagsins var
rétt að enda og tími tómstunda og
lengri samvista við vini og vanda-
menn var í augsýn bankaði illvígur
sjúkdómur uppá hjá ykkur hjónum.
Síðastliðina mánuði hafið þið háð
harðvítuga baráttu við heilsuleysi
af völdum krabbameins sem að lok-
um lagði ykkur að velli.
Ástkæru hjón. Vegferð ykkar var
vörðuð nærgætni og virðingu, í
garð hvors annars svo og annarra
sem á leið ykkar urðu. í heilsuleysi
síðustu mánaða studduð þið hvort
annað og milduðu ásækið hugarvíl
meðan geta var til. Nú er sú þraut-
arganga á enda og er það trú okk-
ERFIDRYKKJUR
r&S
P E R L A N sími 620200
ar og von, að með lífi hér á jörð
sé tilgangur og ganga ykkar sé nú
á drottins vegi. Trúin sú sefar nú
sáran söknuð.
Við komum upp til sala hæða.
Hvað sakar þá, þótt ferðin reynist ströng?
Við öðlumst kórónu og gnóttir gæða
og grátur allur snýst í feginssöng.
(Þýð. Bjarni Jónsson.)
Guð blessi minningu ykkar.
Ingvi, Bára, Ólafur og Erla.
Tengdafaðir minn, SigurðurÁg-
ústsson, er látinn eftir harða bar-
áttu við skæðan sjúkdóm sem lagði
þau hjónin að velli á rúmri viku.
Ebba, eiginkona Sigurðar, lést
rúmri viku áður í næsta herbergi
við hann á Landakotsspítala. Sig-
urður var nýkominn úr enn einni
aðgerðinni en samt sem áður stað-
ráðinn í að lifa eiginkonu sína, en
hann var langt leiddur af veikindum
sírtum þegar hann fyrst kenndi sér
meins af þeim sjúkdómi, sem á
skömmum tíma leiddi hann til
dauða. í lokin var svo komið að
með öllu var óvíst hvort Sigurður
gæti verið viðstaddur útför Ebbu,
eiginkonu sinnar, vegna ástands
síns. Þegar endanlega varð ljóst að
svo yrði ekki hefur Sigurður ákveð-
ið að fylgja Ebbu sjáifur yfir móð-
una miklu, slíkur var Sigurður.
Orlögin eru furðuleg og á valdi
æðri máttarvalda svo að við hin
fáum þau eigi skilið. Þegar ég sat
við sjúkrabeð Sigurðar á síðustu
dögum hans og horfði á Landakots-
kirkju baða sig í haustsólinni fannst
mér undarlegur friður færast yfir
sjúkrabeð Sigurðar og fann að hin
óendanlega hvíld nálgaðist óðum.
Við Sigurður kynntumst fyrst
fyrir rúmum 28 árum, þegar ég
kynntist Esther, dóttur hans. Með
okkur Sigurði og ijölskyldu hans
tókst strax mikil vinátta, sem hefur
haldist alla tíð síðan. Sigurður var
alltaf sérstakur, meira en tengda-
faðir, einnig góður vinur og mikil
gagnkvæm virðing milli okkar. Sig-
urður var traustur vinur, léttur í
lund og hvers manns hugljúfi. Létt-
ur húmor hans kom öllum í gott
skap, sem umgengust hann.
Sigúrður var í alta staði vel skipu-