Morgunblaðið - 22.11.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994 29
MIIMNINGAR
lagður. Hann var snyrtimenni mik-
ið, glæsilegur maður, enda eftir
honum tekið hvar sem hann fór.
Heimili Sigurðar hefur alla tíð bor-
ið vott um mikla snyrtimennsku,
hvort sem var í Goðheimum með
Röggu eða eftir lát Röggu í Frosta-
skjóli með Ebbu.
Sigurður var á yngri árum félagi
í knattspymufélaginu Fram eins og
bræður hans, Högni og Maggi, sem
gerðu garðinn frægan hjá félaginu.
Hann hefur allar götur síðan haldið
tryggð við sitt gamla félag og fylgst
vel með framvindu þess. Það lýsir
honum vel að nokkrum dögum fyr-
ir andlátið bað hann mig um að
greiða fyrir sig árgjaldið hjá Fram,
sem auðvitað var gert.
Fyrsta bamabam Sigurðar var
Arnar, sonur okkar Estherar. Hafði
Sigurður alla tíð mikið dálæti á
Arnari og fylgdist vel með honum
í leik og starfi. Þegar Arnar, sem
er við nám í Bandaríkjunum, frétti
um andlát afa síns kom það honum
í opna skjöldu, eins og raunar öllum
sem vissu ekki hve langt leiddur
Sigurður var.
Við hin þökkum Guði fyrir að
hann fékk að ljúka vistinni hérna
megin landamæranna, eftir þær
þjáningar sem hann þurfti að ganga
í gegnum, Þrátt fyrir veikindi var
æðrulaysi hans mikið. Aldrei kvart-
aði hann. í raun var erfitt að gera
sér grein fyrir hve sjúkur hann
var, því Sigurður var allt fram á
síðsta ár heilsuhraustur, enda vanur
erfíðisvinnu. Vann hann hjá Tog-
araafgreiðslunni meðan hún var og
hét og síðustu árin starfaði hann
við lagerstörf hjá Pósti og síma á
Jörfa.
Eftir að Sigurður og Ebba eru
horfín á braut verður lífið allt tóm-
legra og erfítt að fylla það skarð
sem þau skilja eftir sig. En tíminn
læknar öll sár. Minningin um Sigga
afa lifir í huga okkar og mun fylgja
okkur um ókomna tíð.
Um leið og ég þakka þeim hjón-
um þær ánægjulegu samverustund-
ir sem við áttum saman, þá viljum
við hjónin færa læknum og hjúkrun-
arliði sem önnuðust þau sérstakar
þakkir fyrir þeirra stóra hlut. Einn-
ig viljum við þakka börnum og
barnabörnum Ebbu þá hugulsemi
og vinsemd sem þau sýndu á þess-
um erfíðu tímum og biðjum drottin
að styrkja þau í sorg sinni. Fari þau
Sigurður og Ebba í guðs friði.
Órn Guðmundsson.
Með fáeinum orðum ætla ég að
minnast hjónanna Ingibjargar Frí-
mannsdóttur og Sigurðar Ágústs-
sonar. Fyrir 20 árum lágu leiðir
okkar Ingibjargar saman. Hún var
skipuð sem aðstoðarkona mín. Fyrst
var hún mjög tortryggin í minn
garð vegna þess að henni var sagt
að ég væri svolítið „öðruvísi", enda
fædd og uppalin á meginlandi Evr-
ópu.
Það kom strax í ljós að við Ingi-
björg náðum vel saman. Hún gekk
rösklega til verka, var ákveðin en
með góða lund. Hún var barngóð,
sem kom sér vel í okkar starfi. Ég
minnist þess ekki að hún hafi nokk-
urn tíma komið of seint eða verið
veik.
Upp úr þessu góða samstarfi
varð fljótlega vinskapur. Alltaf þótti
mér ánægjulegt að koma í heimsókn
í Frostafoldina. Þar áttu hún og
Sigurður hlýlegt og fallegt heimili.
Gestrisnin var með eindæmum og
aldrei gleymi ég þessum blómum
sem voru í kringum þau. Ingibjörg
var myndarleg í höndunum og það
voru ekki fáar peysur sem hún
prjónaði fyrir fjölskyldu sína og vini.
Þar að auki saumaði hún, málaði,
heklaði, hnýtti o.s.frv. Allt var þetta
sérlega vel gert. Á erfiðum tímum
reyndist mér trúmennska og hjálp-
semi þeirra mikill styrkur.
Sigurður var mjög góður maður,
gamansamur og alltaf skemmtilegt
að vera í návist hans. Hann hjálp-
aði mér mikið þegar ég flutti í nýtt
húsnæði.
Ég og börnin mín hugsum hlýtt
til barnanna og fjölskyldna þeirra
og vottum þeim samúð okkar.
Evamarie Bauer og synir.
SIGURÐUR
VALDIMARSSON
+ Sigurður Valdi-
marsson var
fæddur á Sóleyjar-
bakka í Hruna-
mannahreppi 30.
maí 1914. Hann lést
í Reykjavík 14. nóv-
ember síðastliðinn.
Hann var næst-
yngstur átján
barna Helgu Páls-
dóttur og Valdi-
mars Brynjólfsson-
ar, en sextán þeirra
komust upp.
Bjuggu þau þar
ásamt föður Valdi-
mars, Brynjólfi Einarssyni, sem
gegndi þá enn hreppsljóra-
störfum. Ólst Sigurður upp við
sveitastörf. Gekk hann tvo vet-
ur á farskóla, haldinn í Syðra-
Langholti, og var það öll hans
skólaganga. Á bernskuárum
hans fluttust eldri systkini hans
að heiman og varð hann loks
einn vetrarmaður
hjá foreldrum sín-
um, en ein systra
hans var að venju
líka hjá þeim á vetr-
um.
Sigurður giftist
1946 Soffíu Sigurð-
ardóttur frá Norð-
firði, dóttur Sigurð-
ar Friðbjörnssonar
múrarameistara og
konu hans, Hall-
bjargar Daníelsdótt-
ur. Eignuðust þau
þijú börn, 1947
Höllu, sem gift er
Hafsteini Vilhjájmssyni versl-
unarmanni á fsafirði; 1948
Hilmar húsgagnasmið, sem
giftur er Hrefnu Jónsdóttur;
og 1954 Sigurð Sófus, kjötiðn-
aðarmann, sem giftur er Helgu
Harðardóttur. Utför Sigurðar
fer fram frá Fossvogskirkju í
dag.
SIGURÐI föðurbróður mínum
kynntist ég sumarið 1936, þegar
ég var viku á Sóleyjarbakka (og
aftur sumarið eftir). Man ég enn,
er hann sagði mér frá fjárleitum á
haustin, vikuferðum með hesta (en
alls mun hann hafa farið sjö), og
síðan fjögurra daga fjárrekstri til
Reykjavíkur, sem honum þótti
skemmtilegur, tilbreyting. - Valdi-
mar Brynjólfsson lét af búskap
1939, og eignaðist, keypti, þá elsti
sonur hans, Brynjólfur, Sóleyjar-
bakka, og bauð Sigurði til búskap-
ar. En þótt Sigurður hneigðist til
búskapar, fannst honum félitlum
manni vera óvænlegt að hefja bú-
skap þá í stríðsbyijun, og fluttist
til Reykjavíkur.
Kominn til Reykjavíkur fékk Sig-
urður vinnu í Kassagerðinni og síð-
an í Fiskmjölsverksmiðjunni á
Kletti, en 1943 réðst hann sem iðn-
verkamaður til Steinsteypunnar og
vann í henni í 18 ár, þar til hún
var niðurlögð, en þá réðst hann til
Reyrplasts og starfaði þar í liðlega
20 ár, en bæði þessi fyrirtæki rak
J. Þorláksson og Norðmann.
Sigurður Valdimarsson var með-
almaður á hæð, vel á sig kominn.
Hann var glöggur maður og athug-
ull, hæglátur og hlédrægur, vinfast-
Haraldur Jóhannsson.
ttt
Krossar
á leiði
I viöarlit og málodíÁ
Mismunanai mynsnjr, vönduó vinna.
Simi 91-35929 eq 35735
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, stjúpsonur, bróðir og afi,
ÖRN REYNIR LEVISSON,
Hringbraut 76,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarð-
arkirkju fimmtudaginn 24. nóvember
kl. 13.30.
Fyrir mína hönd og annarra
aðstandenda,
Ásdís Ragna Valdimarsdóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓHANNA ÁRNADÓTTIR,
Laugarásvegi 57,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 23. nóvember
kl. 13.30.
Eirikur Helgason,
Helga Helgadóttir,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
SIGURÐAR VALDIMARSSONAR,
Neðstaleiti 4,
Reykjavík,
ferfram frá Fossvogskirkju í dag, þriðju-
daginn 22. nóvember, kl. 15.00.
Blóm afþökkuð, en þeim, sem vilja
minnast hans, er bent á að láta Velunn-
ara félag Borgarspítalans njóta þess.
Soffía í. S. Sigurðardóttir,
Halla Sigrún Sigurðardóttir, Hafsteinn Vilhjálmsson,
Hilmar Sigurðsson, Hrefna Jónsdóttir,
Sigurður Zófus Sigurðsson, Helga Harðardóttir
og barnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
ÁGÚST ÓSKAR
GUÐMUNDSSON,
Furugerði 1,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 23. nóvemberkl. 13.30.
Þóra Sigurjónsdóttir,
Grímur Brandsson,
Guðrún Atladóttir,
Atli Ágústsson,
Sigriður Ágústsdóttír,
Ágúst Atlason,
Nína Margrét Grímsdóttir, Páll Grfmsson,
Sigríður Atladóttir, Jóhanna Atladóttir,
Birgir Grfmsson,
barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför tengda-
móður minnar og ömmu okkar,
VALGERÐAR STEINUNNAR FRIÐRIKSDÓTTUR
frá Hánefsstöðum
f Svarfaðardal.
María Franklín,
Guðný Franklfn, Valgerður Franklín,
Auður Franklín, Erla Franklín,
Jónas Franklín, Ævar Karl Ólafsson
og fjölskyldur. -
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför
ARNFRÍÐAR EINARSDÓTTUR
frá Arnbergi,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á
3. hæð, Droplaugarstöðum.
Guðmundur Sigurbergsson,
Jóhann Þór Sigurbergsson, Ásta Jónsdóttir,
Einar Sigurbergsson, Ólína Guðmundsdóttir,
Magnea Sigurbergsdóttir, Ásgeir Sæmundsson,
Árni Bergur Sigurbergsson, Agnes Elfdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Lokað verður þriðjudaginn 22. nóvember vegna
jarðarfarar FINNBJARNAR HJARTARSONAR,
prentara.
Hagprent,
Grensásvegi 8.
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
Gjafavörur.
Erfidrykkjur
ESM
HÓTEL ESJA
Sími 689509
Minnismerki úr steini
Steinn er kjörið efni í allskonar minnismerki. Veitum
alla faglega ráðgjöf varðandi hverskonar minnismerki.
Áralöng reynsla.
ai S. HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 91-76677