Morgunblaðið - 22.11.1994, Page 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 22. NÓVEMBER 1994
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Finnbjörn
Hjartarson
prentari var fædd-
ur á Isafirði 19.
október 1937. Hann
varð bráðkvaddur
að kvöldi 14. nóv-
ember 1994. For-
eldrar hans voru
Jón Hjörtur Finn-
bjarnarson, prent-
ari frá Isafirði, lát-
inn 1977, og Jens-
ína Sveinsdóttir frá
Gyllastöðum í Reykhólasveit,
sem lifir son sinn. Systkini hans
eru: Hjörtur, Kolbrún, Her-
mann, Sveinn er dó ungur,
Matthías, Elísabet Guðný og
Sveingerður. Hálfsystur hans
eru Margrét og Nína Hjartar-
dætur. Hinn 19. október 1958
kvæntist Finnbjörn Helgu Guð-
mundsdóttur sem er dóttir Guð-
mundar H. Oddssonar skip-
stjóra, látinn 1983, og Laufeyj-
ar Halldórsdóttur, sem býr nú
hjá dóttur sinni. Börn þeirra
eru: Oddur Kristján, kvæntur
Björgu Dan Róbertsdóttur og
SKYNDILEGA er komið að leiðar-
lokum í jarðvist vinar okkar, Finn-
bjarnar Hjartarsonar. í sína hinstu
för lagði hann upp fyrirvaralaust,
eins og í margar aðrar ferðir, þegar
skundað var vestur eða bara út í
sólskinið og vorið. Margs er að minn-
ast við leiðarlok. Vinátta sem varað
hefur í næstum hálfa öld ber í skauti
sér fjársjóð minninga sem vinir varð-
veita og orna sér við þar til þráður-
inn verður tekinn upp á ný. Upphaf
^þessarar löngu vináttu á rætur sínar
eiga þau tvo syni,
Guðmund Helga og
Finnbjörn; Guðrún;
Guðmundur Helgi;
Jensína Helga og
Jón Hjörtur.
Finnbjörn nam
prentiðn í Prent-
smiðjunni Eddu og
tók sveinspróf
1960. Starfaði hann
þar og á Dagblað-
inu Tímanum í tíu
ár og síðan hjá
Blaðaprenti og Prentstofu G.
Ben. þar til hann stofnaði eigið
fyrirtæki. Frá árinu 1981 hafa
hjónin átt og rekið prentmsiðj-
una Hagprent hf. Finnbjörn var
varaformaður HÍP um tíma.
Hann tók þátt í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins 1979 og sat í
fulltrúaráði hans í mörg ár.
Hann var formaður hverfafé-
lags sjálfstæðismanna í Lang-
holtshverfi til margra ára og
skrifaði fjölda blaðagreina um
trúmál og þjóðmál. Utför Finn-
bjarnar fer fram frá Dómkirkj-
unni í dag.
að rekja til gamla Skátaheimilisins
við Snorrabraut, sem var á þeim tíma
eins og annað heimili okkar. Skáta-
starfið og samvera okkar í „heimil-
inu“ styrkti vináttubönbdin og fljót-
lega urðu „Refir“, flokkurinn okkar,
föst „húsdýr" þar á bæ. Starfið var
fjölþætt. Farið í ferðir sumar sem
vetur, meðal annars um tíma tekinn
í fóstur skáli á Hellisheiði, Jötun-
heimar. Ferðir í Jötun voru margar
og jiáskaútilegur ógleymanlegar.
Arin færðust yfir og félagarnir
svipuðust um eftir kvonfangi, sem
ótrúlega oft fannst í röðum skáta-
systra. Finnbjörn hafði næmt auga
fyrir fegurð og kvenkostum. Hneigð-
ist hugur hans að vinkonu okkar,
Helgu, og fljótlega varð ljóst að
ævivegur þeirra yrði sameiginlegur.
Einn af öðrum bættust ungar í
hreiðrið. Fimm börn uxu og döfnuðu
í óvenjulega stórum og kærleiksrík-
um fjölskyldufaðmi, þar sem allir
rúmast: Feður, mæður, tengdadóttir,
barnabörn og systkini. Hvorki skorti
húsrými né hjartarúm fyrir vinafjöld
heimilis Finnbjarnar, sem stóð öllum
opið, og var öllum velkomin dvöl um
lengri eða skemmri tíma. Fáir rækt-
uðu vináttuna sem hann og þökkum
við fyrir að vera í þeim stóra hópi.
Finnbjörn lærði ungur prentiðn
og varð hún starfsvettvangur hans.
Síðústu árin áttu þau hjón Hagprent
hf. og ráku það saman. Áhugamál
Finnbjör'ns tengdust meðal annars
útiveru, eins og laxveiðum, skíða-
og gönguferðum.
Vestfirðingurinn Finnbjörn var
stórbrotinn persónuleiki, líkur því
landslagi sem ól hann. Römm er sú
taug er dregur föðurtúna til og oft •
var því farið vestur. Festi hann kaup
á jörðinni Galtahiygg í Heydal með
það fyrir augum að dvelja þar á
ævikvöldi með sínum, sér og fjöl-
skyldunni til ánægju.
Skjótt skipast veður í lofti og
kveðjustund er runnin upp. Finn-
björn er horfínn, skarðið verður ekki
fyllt. Vinir standa hnípnir í varpa
með minningar um góðan dreng.
Að leiðarlokum biðjum við góðan
Guð að blessa hann og allt sem hon-
um var kærast hér á jörð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
(V. Briem.)
Skátahópurinn.
Enn á ný hefur dauðinn knúið
dyra og nú var það vinur minn Finn-
bjöm Hjartarson, sem numinn var á
brott frá okkur. Áfallið er mikið og
ef til vill enn meira fyrir þá sök að
það kom mjög snöggt, allt of fljótt
og síðast en ekki síst misstum við
sem þekktum Finnbjörn góðan og
mikinn vin. Missirinn er þess vegna
sérstaklega sár og erfiður að sætta
sig við.
Maður hugsar yfírleitt ekki út í
það, að dauðinn er jafn eðlilegur
hlutur og það að fæðast, anda, næ-
rast og lifa yfirleitt. Það er í raun
furðulegt hvað þessi lokaatburður í
lífinu er á einhvem hátt meðhöndlað-
ur á annan hátt en allir aðrir þættir
lífsins. Sennilega er ástæðan sú að
þessi atburður hefur meiri áhrif á
þá sem eftir lifa, vini og ættingja,
heldur en flest annað sem lífíð ber
í skauti sér. Þeir sem deyja hljóta
hins vegar að vera á sinni náttúru-
legu ferð til annarra heima, sem við
ekki þekkjum. Trúin á að sú sé raun-
in hjálpar þeim sem eftir lifa að
sætta sig við orðinn hlut.
Finnbjörn, eða Bubbi eins og hann
var kallaður, hefur verið stór partur
af mínu lífí frá því ég fæddist. Þau
hjónin Helga og Bubbi era æskuvin-
ir foreldra minna og hafa samskipt-
in verið mikil í gegnum tíðina. Mik-
ill vinskapur og samskipti okkar
Gumma, sonar þeirra Helgu og
Bubba, varð til þess að við Bubbi
urðum mjög nánir vinir. Auðvitað
er ógerlegt að lýsa með tæmandi
hætti í grein sem þessari þeim manni
sem Bubbi hafði að geyma. Ekkert
heimili hef ég þekkt eins gestrisið
og heimili þeirra Helgu og Bubba í
Norðurbrúninni. Það var einmitt
þar, heima í Norðurbrún í faðmi fjöl-
skyldu og vina, sem Bubba leið best.
Hann hafði sérstaka unun af því að
taka á móti gestum. Engum er þar
úthýst og allir finna sig þar vel-
komna, enda er það enginn smá
hópur vina sem heldur tryggð við
fjölskylduna í Norðurbrúninni. Bubbi
var óþreytandi við að rétta þeim sem
þess þurftu hjálparhönd. Hann var
manna örlátastur við þá sem þurftu
stuðning og taldi slíkt aldrei eftir
sér, sama hvernig áraði' hjá honum
sjálfum. Við Bubbi ræddum oft hin
ýmsu mál og oft vorum við ekki á
sama máli. Aldrei sköpuðust þó ill-
deilur eða óvinskapur þó tekist væri
á um málefni, til þess var vináttan
+
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGRÚNAR LEIFSDÓTTUR,
Skarðshlíð 10c,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahjúkrunar og F.S.A.
Olga Loftsdóttir,
Haukur Meldal,
Sturla Meldal,
Hólmfríður Meldal,
Ingvi Meldal,
Frosti Meldai,
Sverrir Meldal,
og barnabörn.
Hólmsteinn Snædal,
Kristleifur Meldal,
Guðmundur Meldal,
Sigurður Hrólfsson,
Svanhildur Sigtryggsdóttir,
Svanhvít Sigfúsdóttir
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
við andlát og útför systur okkar og
frænku,
ÖNNU RAGNHEIÐAR
SVEINSDÓTTUR.
Þorgerður Sveinsdóttir,
Sigurður Sveinsson,
Hallsteinn Sveinsson
og aðrir ættingjar.
+
Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
HULDUVATNSDAL
PÁLSDÓTTUR.
Jón Karlsson,
Örn Karlsson, Ingibjörg Óladóttir,
Eygló Karlsdóttir, Benjamín Hansson,
barnabörn og barnabarnabörn.
FINNBJORN
HJARTARSON
of djúp og ávallt höfð í öndvegi.
Miklu frekar var að vináttan yrði
enn tryggari og traustari með árun-
um.
Það er mér sérstaklega minnis-
stætt frá mínum yngri árum hvað
Bubbi var alltaf tilbúinn til að setj-
ast niður og spjalla við okkur
Gumma eða taka þátt í gríni sem
var í gangi hjá okkur félþgunum í
það og það skiptið. Bubbi virtist
hafa jafn gaman af að umgangast
alla aldurshópa sem ráku inn nefíð
í Norðurbrúninni, og var áberandi
hvað hann var barngóður.
í seinni tíð hafa samskipti okkar
Önnu Maríu, konu minnar, við íjöl-
skylduna í Norðurbrúninni verið
jafnvel enn meiri en áður, bæði hér
heima og á jörðinni þeirra í Mjóa-
fírði í ísafjarðardjúpi. Sá staður á
landinu togaði meira í Bubba en
flestir aðrir. Það leyndi sér ekki
hvað honum leið vel fyrir vestan,
umkringdur fjölskyldu og vinum,
skipuleggjandi hvar skyldi nú byggja
húsið, hvernig væri best að rækta
upp ána o.fl. o.fl. Þetta eru dýrmæt-
ar minningar.
Nú er skarð fyrir skildi, þegar
Finnbjörn er fallinn frá. Minningar
era það eina sem við, sem eftir lif-
um, erum skilin eftir með. Minning-
ar um góðar samverustundir, og
gegnheilan vinskap. Það eru einmitt
þessar minningar sem eiga að hjálpa
okkur að yfirstíga sorgina og ná
áttum á ný. Með söknuð í hjarta,
en vissu um að Bubbi hafi nú náð
saman við vini og ættingja sem falln-
ir eru frá, kveðjum við nú þennan
góða vin okkar. Sameinuð munum
við sem eftir lifum hjálpa fjölskyld-
unni í Norðurbrúninni og hvert öðru
að yfirstíga sorgina með hjálp allra
minninganna um þennan indæla
mann sem við öll munum sakna um
ókomin ár.
Helgi Jóhannesson.
„Hann Bubbi er dáinn,“ vora orð
konu minnar á þriðjudagsmorguninn
var. Hann Bubbi dáinn? Það getur
ekki verið, við sem vorum hjá honum
og Helgu kvöldið áður í mat, þar sem
allt virtist vera í stakasta lagi.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að kynnast þessum vönduðu hjónum,
þegar ég var ungur drengur, en
pabbi og Finnbjöm voru búnir að
vera vinir frá því að þeir vora saman
í sveit á Skjaldfönn í gamla daga.
Venjulega tala ég um vini pabba,
,já, hann er vinur hans pabba“, en
ég gat sagt um Bubba, ,já, hann
er vinur minn“, því alltaf var hægt
að tala við hann sem vin og félaga,
þótt 27 ár skildu okkur að. Já, Bubbi
hafði alltaf tíma til að ræða málin,
hvort sem var um lífið, tilverana,
peningamálin, vegina í Djúpinu, eða
hvað sem er. Oft ræddum við í gríni
hvor okkar væri nú betri bílstjóri eða
hvor okkar væri sterkari. Auðvitað
var hann miklu betri bílstjóri, en ég
var þó sterkari.
Bubbi og Helga voru mér alltaf
sem foreldrar og einnig tóku þau
vel á móti konu minni Kristínu, þeg-
ar ég kynnti hana fyrir þeim fyrir
sex árum. Seinna kom á daginn að
hún og Bubbi voru náskyld.
Við eigum öll eftir að sakna afa
Bubba, eins og stelpurnar okkar
tvær, Sólveig Steinunn og Rebekka
Helga, vora vanar að kalla hann.
Elsku Helga og fjölskylda, megi
góður Guð hjálpa ykkur að fylla í
það stóra skarð, sem fráfall Bubba
hefur myndað.
Ykkar vinur,
Páll Halldór.
Vertu yfír og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Kæri bróðir. Ekki voru synir mín-
ir nema tveggja, þriggja ára þegar
ég kom með þá til Islands í fyrsta
sinn. Þá sagðir þú: „Sendu þá til
mín.“ Þú náðir í alla, réttir út hönd-
ina og vildir þekkja alla ættingja.
Claus' og Henrik synir mínir komu
til þín 11-12 ára gamlir og tóku
Bubbi og Helga vel á móti þeim,
sýndu þeim þetta fallega land og
fengu kærleik sem þeir aldrei
gleyma.
Claus, Henrik og Linþa Björg
báðu mig að færa Helgu og börnun-
um kveðjur. Þau geyma minninguna
um Bubba frænda sinn.
Elísabet Guðný.
„Jesús, láttu mig eignast þinn
frið. Unn þú mér í þínum friði að
sofa, í þínum friði að deyja, í þínum
friði upp að rísa og í þínum friði
eilíflega að gleðjast. Amen.“
Hann elsku Bubbi frændi er dá-
inn, okkur systrum langar að minn-
ast þessa góða frænda. í gegnum
árin var hann okkur sem annar fað-
ir og Helga eiginkona hans sem
önnur móðir. Við minnumst alira
gleðistundanna á heimili þeirra sem
stóð okkur alltaf opið og var gott
skjól á erfiðum stundum.
Bubbi minnti okkur á að týnast
ekki í yfirborðsmennsku og hégóm-
leika heldur rækta sinn innri mann
og samband sitt við Guð. Hann var
góður drengur, orð hans og verk
einkenndust af heilindum. Að hafa
átt frænda eins og Bubba gerir okk-
ur ríkari.
Elsku Bubbi, við þökkum fyrir
allar stundirnar sem við áttum með
þér.
Myndast hefur stórt skarð í fjöl-
skylduna, missir okkar allra er mik-
ill, frændsemi Bubba var einstök.
Hans er sárt saknað.
Við og dætur okkar kveðjum þig,
elsku frændi, og þökkum fyrir allar
góðu minningarnar.
MatthildurLaufey,
Jensína Edda.
Fleirí minningargreinar um
Finnbjörn Hjartarson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
skólar/námskeið
handavinna
■ Saumanámskeið 20% afsláttur
Sparið og saumið fötin sjálf.
Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Upplýsingar f síma 17356.
STJÓRNUNARFÉLAGS ISLANDS
OG NÝHERJA
>j«S. 69 77 69 <Q>
i=£A 62 10 66 NÝHERJ
■ Tölvuskóli f fararbroddi
öll hagnýt tölvunámskeið.
Fáðu senda námsskrána.
■ Tölvunámskeið
- Windows 3.1.
- Word 6.0 fyrir Windows og
Macintosh.
- WordPerfect 6.0 fyrir Windows.
- Excel 5.0 fyrir Windows og
Macintosh.
- PageMaker 5.0 fyrir Windows/
Macintosh.
- Access 2.0 fyrir Windows.
- Paradox fyrir Windows.
- PowerPoint 4.0 fyrir Windows/
Macintosh.
- Tölvubókhald.
- Novell námskeið fyrir netstjóra.
- Word og Excel uppfærsla og
framhald.
- Unglinganám.
- Windows forritun.
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja öllum námskeiðum.
Upplýsingar og skráning
f síma 616699.
Tölvuskóli Reykiavíkur
k...v.v.v..4 ■ Borgartúni 28. sími 616699